Morgunblaðið - 20.11.1996, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 20.11.1996, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ HASKOLABIO SÍMI .552 2140 Háskólabíó HTTP://WWW. THE ARRIVAL.COM ALLT I GRÆNUM SJO r- 'C » r wæm -o .. Sagt er að hördustu brimbrettagæjar heims séu i sudur-Englandi. Þetta eru brjálaðir Lundúnarbúar sem ferðast sudur til að kljúfa stórhættulegar öldur reifa allar nætur og lifa eins hratt og mögulegt er. Blue Juice er kröftug, spennandi og rennandi blaut kvikmynd með Ewan McGregor úr Trainspotting i aðalhlutverki. Heppnir gestir sem kaupa miða á Blue Juice fá gefins Stuzzy bol eða derhúfu frá Xtra á Laugavegi 51. KLIKKAÐI PROFESSORINN STAÐGENGILLINN ®[Ö)DU LaJUJJ fatai (þiM í Tflfo® ísOaa^ ★★★ A.I.MBL Mynd sem lífgar uppá tilveruna. H.K. DV The Nutty Professor er gamanmynd fyrir alla fjölskylduna. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Ekki missa af þessum frábæru kvikmyndum. Sýningum fer fækkandi!! Harösviraöur malaliöi tekur aö ser aö uppræta eiturlyfjahring sem hefur aöalbækistöövar i gagnfræöaskóla í suöur Flórída. Aöalhlutverk Tom Berenger (Platoon, The Big Chill), Ernie Hudson (Congo, The Crow), Diane Venora (Heat) Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.15. B. i. 16 ára. DAUÐUR BRIMBROT H^ligjJJaira DEAD MA Sýnd kl. 6 SHANGHAI TRIAD SHANGHAI GENGIÐ ÉNýasta mynd meistara Yimou (Raudi 0 v.. 2 lamDÍnn) TILBOÐ KR 300 i°* "'A' * i>-' ■? 2, V Sýnd kl. 5 og 7. Kolrassa í fremstu röð Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir ELIZA Geirsdóttir, söngkona Kolrössu krókríðandi, á flugi. TONLIST Gcisladiskur KÖLD ERU KVENNARÁÐ Köld eru kvennaráð, breiðskífa htjómsveitarinnar Kolrössu krókríð- andi. Sveitina skipa Elíza Maria Geirsdóttir, söngkona og fiðluleik- ari, Anna Margrét Hraundal, gítar- leikari, Signin Eiríksdóttir gítarleik- ari, Ester Ásgeirsdóttir bassaleikari og Karl Agúst Guðmundsson trommuleikari. Til aðstoðar voru meðal annars Sigtryggur Baldurs- son, Dave Crawford og Baron von Trumflo. Platan var tekin upp í Kingsize htjóðverinu í Chicago og Hljóðhamri. Upptökustjóri í Kingsize var Dave Trumfío, en í Hljóðhamri Ken Thomas. Lög eftir Kolrössu utan eitt eftir Lennon og McCartney. Textar eftir Elizu nema tvær þjóðvís- ur og textinn við lag Lennons og McCartneys. Smekkieysa s/m hf. gefur út, Japís dreifir. 46,58 mín. KOLRASSA krókríðandi hefur verið í sífelldri þróun frá því sveitin sigraði í Músíktilraunum Tónabæjar fyrir margt löngu og verður sífellt betri. Fyrsta platan var byrjenda- verk, sem vonlegt er, en sú næsta þar á eftir framúrskarandi skemmti- leg og upp frá því hefur Kolrössum vaxið ásmegin eins og heyra má á síðustu plötu sveitarinnar, Köld eru kvennaráð, sem kom út í haust. Köld eru kvennaráð er að hluta á ensku enda ætlað að koma hljóm- sveitinni á framfæri ytra; reyndar tekin upp á vegum Bandaríkjadeild- ar Smekkleysu til að kynna sveitina þar í landi og víðar. Ekki verður öðru trúað en Kolrassa krókríðandi nái eyrum tónlistarunnenda um heim allan, þvi tónlistin er bráðskemmti- leg og sérstök og Elízu Geirsdóttur fer bráðvel að syngja á ensku, nefni sem dæmi lagið From the Ground Up, sem er að auki með vel sömdum texta, og poppstemmuna Day to Remember. Kolrössur eru jafnvígar á grípandi létt popp eins og Opnaðu augun þín, rífandi „gammarokk" eins og Gammgarg og síðan einskonar dul- úðuga framúrstefnu eins og Hellis- mannasögu. Elíza Geirsdóttir er löngu komin í fremstu röð íslenskra söngkvenna, með gríðarlega breidd í raddbeitingu og túlkun og söngur hennar er aðal sveitarinnar. Nefni sem dæmi mikla keyrslu í Góðum gaur o g tilfinningaríkan söng í Fróða lagi. Elíza leikur minna á fiðluna en á fyrri plötum Kolrössu sem gefur fiðluinnskotunum aukið vægi. Gít- arpar hljómsveitarinnar, Anna Mar- grét Hraundal og Sigrún Eiríksdótt- ir, nær afskaplega vel saman í skreytingum og uppfyllingu, til að mynda í Fróða lagi, áhrifamesta lagi plötunnar, og Góðum gaur, og hrynparið Ester Ásgeirsdóttir og Karl Ágúst Guðmundsson gefa þann stuðning sem þarf og gott betur. Eini gallinn á þessari plötu er að Lennon og McCartney-lagið All To- gether Now skuli hafa fengið að fljóta með; það er skemmtilegt sem skraut á tónleikum en hefði frekar hæft sem b-hlið á smáskífu eða álíka. Það spillir heildarmynd á plöt- unni, sérstaklega að hafa það í miðju kafi, strax á eftir afbragðs kvæði um Hellismenn. Iðulega leggja menn áherslu á að Kolrassa sé kvennasveit þegar hana ber á góma, en það er með öllu óþarf- ur merkimiði; Kolrassa krókríðandi er einfaldlega í fremstu röð íslenskra rokksveita sakir frumleika og sköp- unargleði og ýtir vonandi undir það að íslenskar stúlkur grípi til rokks- ins, því það er engin strákamúsík. Eitt af sérkennum sveitarinnar er kímnin sem einkennir tónlistina og það hvað liðsmenn eru ófeimnir við að bregða fyrir sig hvaða tónlista- stefnu sem er eftir því sem andinn blæs henni í brjóst. Nefni sem dæmi Hellismannakvæði, Góðan gaur, Tvö gömul viðlög, Fróða lag og Sígauna- lagið. Enskir textar á Köld eru kvenna- ráð spilla nokkuð heildarmynd breið- skífunnar, en draga ekki úr því að platan er ein sú besta sem komið hefur út á þessu ári og þótt fleiri væru talin; plata sem sýnir á sér því fleiri hliðar eftir því sem oftar er hlustað. Árni Matthíasson Morgunblaðið/Jón Svavarsson HLJÓMSVEITIN Brim. STIGINN var trylltur „brim“dans. TRYGGVI Baldursson og Ari Guð- mundsson komu í Hawaiiskyrtunum á tónleikana. ÁMUNDI Óskar Jóhannsen, Edda ívars- dóttir og Bára Mjöll Þórðardóttir. Brim í MH ►HLJÓMSVEITIN Brim lék lög af væntan- legri breiðskífu sinni, Hafmeyjar og hanastél, í Norðurkjallara Menntaskólans við Hamrahlíð í síðustu viku. Hljómsveitin leik- ur svokallaða „surf“ tónlist sem á ættir að rekja til suðlægra stranda. Upphitunar- hljómsveitir kvöldsins voru PPPönk, The Bang Gang og Kúkur. Ljósmyndari Morgun- blaðsins fór í Hawaii- skyrtunni á tónleikana og fékk því 100 króna afslátt af miðaverði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.