Morgunblaðið - 20.11.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 20.11.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996 39 FRÉTTIR Málþing um lækninga- mátt líkamans NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAG Reykjavíkur efnir til málþings í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld, miðvikudaginn 20. nóvember, þar sem fjallað verður um lækninga- mátt líkamans og spurninguna um það hvort innan heilbrigðiskerfisins sé of mikið fjallað um sjúkdóma og of lítið um heilbrigði. Á þessu málþingi verða kynntar kenningar bandaríska læknisins dr. Andrews Weils en hann hefur hald- ið því fram að nútíma læknisfræði sé um of háð tæknilegum framför- um og að hún leggi of mikla áherslu á að kveða niður sjúkdómseinkenni án þess jað leita að rótum vandans. Hann telur einnig að læknisfræði Vesturlanda hafi of lítið sinnt og lært af læknisfræði Austurlanda. Kjarninn í kenningum dr. Wiels er sá að á Vesturlöndum hafi lækning- armætti líkamans ekki verið nægi- lega sinnt, né því að efla varnir lík- amans gegn sjúkdómum. Dr. Andrew Weil hlaut læknis- menntun sína í Harvard-háskóla. Hann var um tíma yfirmaður Nat- ional Institute of Mental Health. Hann starfaði um árabil að ýmsum læknisfræðilegum rannsóknum og kynnti sér margvíslegar læknis- fræðilegar aðferðir og lækningalyf, hefðbundin og óhefðbundin. I dag veitir hann forstöðu læknadeild háskólanas í Tucson í Arizona. Dr. Weil skrifar mikið um kenningar sínar í blöð og tímarit. Hann er eftirsóttur fyrirlesari og hefur sína eigin sjónvarpsþætti. Hann hefur skrifað nokkrar bækur sem flestar hafa orðið metsölubækur og sú síð- asta „Spontaneous Healing“ er nú komin út á íslensku undir heitinu Lækningamáttur líkamans. Á málþinginu á miðvikudag les Gunnar Eyjólfsson leikari kafla úr bókinni, Þorsteinn Njálsson læknir kynnir dr. Weil og síðan verða pall- borðsumræður undir stjóm Árna Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Heilsustofnunar NLFÍ. Þátttakend- ur verða m.a. Gunnhildur Valdi- marsdóttir hjúkrunarforstjóri, Laufey Steingrímsdóttir, næringar- fræðingur og forstöðumaður Mann- eldisráðs íslands, Sigurbjörn Birgis- son, lyflæknir og sérfræðingur í meltingarsjúkdómum, Sigríður Guðmunsdóttir, sérfræðingur í smitsjúkdómum, og Þórarinn Sveinsson, yfiriæknir krabbameins- deildar Landspítalans. Guðmundur Björnsson yfirlæknir stjórnar málþinginu. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. íðorð í iðjuþjálfun Á DEGI íslenskrar tungu þann 16. nóvember sl. hélt Iðjuþjálfafélag íslands námkeið um íðorð í fræði- greininni. Nýlega var _ gefið út á vegum félagsins ritið íðorð í iðju- þjálfun en það nær yfir flokkun og skilgreiningar á ýmsum hugtökum og fræðiorðum er varða iðjuþjálfun á íslandi. Að þessu verkefni hefur staðið vinnuhópur skipaður Guðrúnu Pálmadóttur, Kristjönu Fenger, Rósu Hauksdóttur, Sigrúnu Garð- arsdóttur, Spæfríði Þ. Egilson og Þóru Leósdóttur sem allar eru starf- andi iðjuþjálfar. Tilgangur verksins, sem fór af stað 1992, var í raun tvíþættur. íslenskir iðjuþjálfar hafa allir þurft að stunda nám erlendis þar sem ekki er til námsbraut við Háskóla íslands. Þetta hefur m.a. í för með sér mismunandi skilning á ýmsum grundvallahugtökum sem notuð eru í daglegu starfí og skrif- um iðjuþjálfa. Annað meginmark- mið þess að ráðast í þetta mikil- væga verk var sú þörf að flokka Ný herrafataverslun í Kringlunni FYRIR nokkru opnuðu þeir Sig- uqón Þórsson og Hákon Hákon- arson verslunina Herrana í Kringlunni. Þetta er önnur verslunin sem þeir opna undir nafninu Herrarnir og er hin ennþá að Austurstræti 3. Versl- unin í Kringlunni er mun stærri og er um 120 fm verslun. Allar innréttingar voru hannaðar af Pétri Hafsteini Birgissyni inn- anhúsarkitekt og framleiddar af Innréttingasmiðju Magnúsar í Kópavogi og Ofnasmiðjunni. Herrarnir er verslun sem legg- ur áherslu á herrafatnað í vand- aðri kantinum en á sama tíma á góðu verði, segir í fréttatil- kynningu. Helsta merki versl- unarinnar er frá Kenzo sem er þekktur japanskur tískuhönn- uður. Hann starfar í París og fer öll framleiðsla fram í Frakk- landi. Jólakort Bamaheilla ÚT eru komin jólakort Barna- heilla í samvinnu við prentsmiðj- una Odda. Kostar hvert kort 100 kr. og er umslag innifalið. Félagsfólk og aðrir stuðnings- menn BarnaheiIIa fá send fimm kort með blaðinu nú sem fyrr og segir í tilkynningu að vonandi verði vel tekið í erindið enda mikilvægt fyrir samtökin að efla fjárhag sinn til frekari verkefna í þágfu barna í samfélaginu. Fyrirtæki í landinu geta pant- að kort og valið um áritun innan í þau. Starfsmenn Prentsmiðj- unnar Odda taka á móti pöntun- um og hafa veg og vanda af prentun og útsendingu. Einnig er veittur afsláttur ef keypt er stórt upplag af kortum. 200 þátttak- endum í get- raun boðið í Stjömubíó KVIKMYNDIN Matthildur, sem byggð er á samnefndri barnabók eftir Roald Dahl, verður meðal jólamynda Stjörnubíós í ár. Bók- in um Matthildi kom fyrst út í íslenskri þýðingu árið 1944 og hefur verið vinsæl meðal barna hér á landi, segir í fréttatilkynn- ingu. Söguhetjan hennar, Matthild- ur, hefur mikia ást á bókum og veit fátt skemmtilegra en að ferðast um í huganum með hjálp einnar slíkrar. I samvinnu við Stjörnubíó mun Borgarbókasafn bjóða heppnum hópi af yngri lán- þegum sínum á sérstaka forsýn- ingu myndarinnar 7. desember kl. 15. Til þess að eiga von um bíó- miða þurfa börn á aldrinum 8-12 ára að svara léttri bókmennta- getraun sem liggur frammi á öllum útibúum Borgarbókasafns og nokkrum skólabókasöfnum. Dregið verður úr innsendum lausnum 2. desember nk. og fá 200 heppnir lánþegar 2 miða á forsýninguna. Hringt verður í vinningshafa dagana 3.-5. des- ember. hugtök á kerfisbundinn hátt, segir í fréttatilkynningu. Námskeiðið sóttu 40 iðjuþjálfar en það er rúmlega helmingur starf- andi iðjuþjálfa á íslandi. Ritið íðorð í iðjuþjálfun er selt á vegum Iðju- þjálfafélags íslands og í Bóksölu stúdenta. Ráðstefna um árangur og markmið í ríkisrekstri HALDIN verður ráðstefna 26. nóv- ember nk. um árangur og markmið í ríkisrekstrinum til aldamóta. Ráð- stefnan er liður í umfjöllun um nýskipan í ríkisrekstri. Á ráðstefnunni verður einkum fjallað um fjóra efnisþætti. Starfs- mannamál og ýmis atriði sem tengjast þeim koma fyrst til um- ræðu. Því næst verður fjallað um opinber innkaup, einkavæðingu og tilflutning verkefna. Að því loknu verða tillögur nefndar um árang- ursstjórnun í ríkisrekstrinum kynntar og notkun árangursstjórn- unar í ríkjum OECD rakin. Ráð- stefnunni lýkur með umræðum um framtíðarsýn í opinber rekstri. Á milli efnisþátta verður tími fyrir fyrirspurnir og svör. Ráðstefnan hefst kl. 9 og henni lýkur kl. 16.30. Hún er haldin í Súlnasal Hótel Sögu. Þátttökugjald er 1000 kr. Þátttöku þarf að til- kynna í síma 560 9200 og eru allir velkomnir. Hæfileika- keppni grunnskóla HÆFILEIKAKEPPNI grunnskóla verður haldin fimmtudaginn 21. nóvember kl. 15 í Laugardalshöll en þetta er í sjöunda sinn sem keppnin er haldin. Innan skólanna hafa verið haldn- ar forkeppnir og bestu atriðin frá hveijum skóla taka þátt í loka- keppninni. Þátttakan er góð, 14 skólar verða með atriði í keppn- inni. Dómnefnd er skipuð lista- mönnum og unglingum úr skólum, sem ekki taka þátt í keppninni. Verðlaunastyttan Skrekkur verður afhent sigurvegurum í lok keppninnar. Miðasala verður í skól- unum dagana fyrir keppnina. Vilja hefja hrefnuveiðar MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi: „Aðalfundur Félags hrefnuveiði- manna skorar á stjórnvöld að leyfð- ar verði hrefnuveiðar nú þegar eða eigi síðar en á komandi vori. Ekkert er í veginum frá vísinda- legu sjónarmiði að þær geti hafist. Fundurinn telur að markaðir fyrir aðrar afurðir okkar íslendinga muni ekki skaðast þegar til lengri tíma er litið, samanber reynsla Norðmanna. Þvert á móti gæti sú auglýsing sem fælist í veiðunum aukið t.d. ferðamannastraum til landsins eins og gerst hefur þar. Það er krafa okkar að við getum nýtt auðlindir hafsins sjálfbærri nýtingu eins og alþjóðasamþykktir hafa verið gerðar um. Við hrefnu- veiðimenn teljum okkur eiga óskor- aðan rétt til veiðanna byggðan á reynslu fyrri ára eins og fiskveiði- stjórnunarlög gera ráð fyrir um aðrar veiðar. Vegna frétta af hvalaskoðun og umfangi þeirra þykir okkur rétt að taka fram að þessi nýja atvinnu- grein geti haldið áfram að vaxa og dafna við hlið hrefnuveiðanna en ekki að stilla greinunum upp á móti hvor annarri eins og eigendur sumra þessara atvinnufyrirtækja hafa gert. Fundurinn vill jafnframt minna á að hrefnuveiðar tilheyra menningu þjóðarinnar. Nú hefur komið í ljós að sá ótti sem hrefnuveiðimenn hafa haft undanfarin ár varðandi „svokall- aða umhverfisverndarsinna“ sem barist hafa gegn hvalaveiðum er nú í æ ríkari mæli að beinast gegn almennum fískveiðum íslendinga. Vill fundurinn hvetja almenning og stjórnvöld til að snúast til vam- ar í tíma svo ekki hljótist af óbæt- anlegur skaði.“ Kjörganga og heimsókn RÖÐ stuttra heimsókna í kvöld- göngu Hafnargönguhópsins hefst miðvikudagskvöldið 19. nóvember. Þessar heimsóknir munu tengjast sjónum, sjávarbúum og starfsemi tengdri sjónum og verða í lok gönguferðanna. Þetta gefur þeim sem ekki fara í gönguferðirnar kost á að taka þátt í heimsóknun- um. Ferðir Hafnargönguhópsins eru öllum opnar og ókeypis. Á miðvikudagskvöldið verður farið frá Hafnarhúsinu kl. 20 og gengið inn með ströndinni í hópum þannig að allir eiga að geta fundið gönguhraða við sitt hæfi. Hóparnir koma til baka niður á Miðbakka kl. 21.30 og fara um borð í rækju- togarann Pétur Jónsson. Þar verð- ur skipið kynnt og rækjuveiðarnar. Uppeldis- námskeið Barnaheilla SAMTÖKIN Barnaheill standa fyr- ir námskeiði fyrir uppalendur barna fimmtudagskvöldið 21. nóv- ember kl. 20 að Grand Hótel. Leiðbeinendur eru sálfræðing- arnir Margrét Halldórsdóttir og Þórkatla Aðalsteinsdóttir og er við- fangsefnið agi og uppeldi barna. Þær Margrét og Þórkatla hafa staðið fyrir ráðgjöf til aðstandenda barna og unglinga í gegnum For- eldralínuna en það er ókeypis upp- eldis- og lögfræðiráðgjöf sem Barnaheill hafa staðið fyrir nú undanfarin misseri. Skráning og frekari upplýsingar fást á skrifstofu Barnaheilla. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Leiðréttingar Nafn féll niður Í formála minningargreina um Huldu Jóhannesdóttur í Morgun- blaðinu á sunnudag féll niður í upp- talningu nafn eins af systkinum hennar, sem eftir lifa. Þau eru fjög- ur: Einar, f. 1915, Páll, f. 1917, Lára, f. 1923, og Gissur, f. 1928.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.