Morgunblaðið - 20.11.1996, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996 3 7
l
3
i
]
I
3
j
j
1
I
(
:
<
Áhugi almennings
stórkostlegur
VERÐLAUN afhent í teiknisamkeppni grunnskólabarna.
FRIMERKI
Kjarvalsstaðir
NORDIA 96
Norræna frímerkjasýningin NOR-
DIA 96 var haldin 25.-27. október sl.
í SÍÐASTA þætti varð ekki komið
að öllu því, sem vert er að minnast
á um þessa frábæru norrænu sýn-
ingu, sem hér var haldin í þriðja
sinni. Verður nú reynt að bæta úr
því að einhveiju leyti. Hins vegar
veit ég, að lesendum flestum er þessi
sýning svo í fersku minni, að þess
gerist ekki þörf að stikla nema á
helztu atriðum hennar umfram það,
sem fram kom í síðasta þætti.
Að því var vikið síðast, að einn
liður í mikilli aðsókn að NORDIU
96 hafi örugglega verið teiknis-
amkeppni sú, sem Landssamband
íslenzkra frímerkjasafnara efndi til
meðal grunnskólabarna í 4. til 7.
bekkjar. Var þátttaka í þeirri sam-
keppni mjög mikil, og fengu 21 barn
verðlaun. Því miður er ekki unnt að
greina frá öllum verðlaunahöfum.
Aðeins verður örfárra getið. Úr Set-
bergsskóla deildu þær Tinna Björk
Kristinsdóttir og Asthildur Gyða
Kristjánsdóttir, báðar 10 ára, 1.
verðlaunum milli sín. í sama aldurs-
flokki fengu 2. til 3. verðlaun Vala
Dís Birgisdóttir og Elma Sif Einars-
dóttir. Báðar úr Flataskóla. Úr Rima-
skóla fékk Ásdís Bjarndís, 11 ára,
1. verðlaun í sínum flokki. Daníel
Ingi Þórisson úr Hamraskóla fékk
1. verðlaun í 12 ára flokki. Anna
Sveinbjörnsdóttir úr Æfingaskólan-
um fékk 1. verðlaun í 9 ára flokki.
Síðan voru aðrar teikningar hafðar
til sýnis á vegg eða í möppum. Mátti
sjá þar mörg börn skoða teikningar
og tillögur sínar í fylgd með foreldr-
um sínum og öðrum skyldmennum.
Er enginn efi á, að þessi keppni hef-
ur fallið í góðan jarðveg. Hver veit
líka, nema hún geti örvað eitthvað
áhuga ungmenna á frímerkjasöfnun,
en hann virðist fremur á undanhaldi
meðal ungs fólks hvar sem er í heim-
inum. Um þetta hefur mikið verið
rætt og ritað í frímerkjasamtökum
og frímerkjablöðum. Eru menn sam-
mála um það, að alls konar afþrey-
ingarefni síðustu ára og áratuga
hafí dregið unglinga frá frímerkja-
söfnun, og telja það að sjálfsögðu
miður farið. Nú er að sjá, hver árang-
ur verður af þessari tilraun Lands-
sambandsins til þess að vekja áhuga
íslenzkra unglinga á þessari hollu
tómstundaiðju, sem fylgt hefur
manninum frá upphafi frímerkisins
sem greiðslumiðils undir burðargjald
póstsins í rúm 150 ár.
í síðasta þætti var einungis minnzt
á söfn íslenzkra safnara á NORDIU
96, þar sem þau voru öll tengd ís-
lenzkum frímerkjum með ýmsum
hætti. Einn íslenzkur safnari, þ.e.
höfundur þessara þátta, hefur valið
sér aðra leið í söfnun sinni og haldið
sig við gömlu herraþjóðina við Eyrar-
sund, Danmörku. Þar er m.a. mjög
skemmtilegt viðfangsefni, sem nefn-
ist tvílit frímerki og gefin voru út í
Danmörku frá 1870 til 1905. Dansk-
ir safnarar hafa sjálfir mikinn áhuga
á þessu tímabili. Safn það, sem hér
hefur verið dregið saman á liðnum
áratugum, fékk svonefnt gyllt silfur.
Margir ágætir safnarar á Norð-
urlöndum og raunar allt vestur til
Bandaríkjanna áttu íslenzk frí-
merkjasöfn á NORDIU 96. Orla Ni-
elsen frá Danmörku átti safn frá
1847-1918 og hlaut fyrir gyllt silf-
ur. Annar íslandssafnari frá Dan-
mörku, Tor. C. Jensen, sýndi mikið
sérsafn af merkjum, sem voru í
GILDI ’02-’03. Hlaut það einnig
gyllt silfur. Þriðji Daninn, Torben
Jensen, fékk gyllt silfur fyrir sérsafn
sitt af Kristjáni konungi X. í þessum
sama flokki sýndi sænskur maður,
Sigvard Grelson, svonefnd aura-frí-
merki og eins í GILDI merki. Þetta
safn stendur mjög að baki söfnum
Dananna. Fékk það silfurverðlaun.
Gordon Morison frá Bandaríkjunum
sýndi mikið íslenzkt bréfspjaldasafn
allt frá upphafi þeirra 1879 og til
loka um 1940. Mun þetta einna
stærsta safn sinnar tegundar, sem
nú er til. Hlaut það Iíka gyllt silfur
á sýningunni. Munu nú upptalin þau
íslenzk söfn, sem voru á NORDIU
96, að undanskildum söfnum þeirra
Sigurðar R. Péturssonar af Tveimur
kóngum frá 1907-15 og Ólafs Elías-
sonar, sem hann kallar Póstkröfubréf
á verðbólgutímum. Þar sem þau voru
í Dómaradeild, hlutu þau enga
stigagjöf.
Erfitt er að tíunda margt af því
útlenda frímerkjaefni, sem bar fyrir
augu gesta á NORDIU 96. Þó skal
vikið að nokkrum söfnum.
í Meistaraflokki voru frábær söfn
við hlið safns Indriða Pálssonar,
bæði frá Noregi og Svíþjóð og svo
allar götur austur í Asíu, til Kambód-
íu og Laos og til Cook-eyja í Kyrra-
hafi. Hafa þessi söfn áður hlotið
gullverðlaun á sýningum og svo var
einnig hér.
Göran Nykvist frá Finnlandi fékk
gullverðlaun og að auki Stóru nor-
rænu verðlaunin fyrir safn sitt um
finnsk heilpóstumslög frá 1845-
1884. Er þetta safn vel þekkt meðal
frímerkjasafnara. Þá fékk Michel
Lascombe frá Noregi gullverðlaun
og Grand Prix International (Stóru
alþjóðlegu verðlaunin) fyrir stórt og
vandað safn af frönskum bréfum,
sendum til Danmerkur, Noregs og
Svíþjóðar 1779-1875. Þá vil ég
minnast á mjög vandað safn danskra
skildingafrímerkja frá 1851-1874,
sem mér þótti unun að skoða. Skýr-
ingar allar voru snyrtilega handskrif-
aðar, og fer slíkt að stinga í stúf við
tölvuskriftina, sem æ meira ber á í
söfnum manna, enda vissulega hand-
hæg lausn fyrir flesta. Þetta safn
hlaut að sjálfsögðu gull og að auki
heiðursverðlaun.
Enginn vafi leikur á því, að ís-
lenzkum frímerkjasöfnurum, sem
fæstir eiga heimangengt á sýningar
erlendis, er verulegur fengur í því
að fá hingað til lands vönduð frí-
merkjasöfn, sem þeir geta sjálfir lit-
ið augum og um leið lært heilmikið
af, bæði um vandað efni og eins um
uppsetningu þess. Þetta virðist mér
hafa tekizt mjög vel á þeim norrænu
sýningum, sem haldnar hafa verið
hér. Hins vegar kostar sýningarhald
mikið átak og ekki sízt meðal ís-
lenzkra safnara, sem eru fáir í
samanburði við það, sem þekkist með
öðrum þjóðum. Allir eru samdóma
um, að NORDIA 96 hafi heppnazt
einstaklega vel, og þeir, sem að henni
átóðu, eiga miklar þakkir skildar af
hálfu okkar, sem vorum einungis
sýnendur eða gestir. NORDIA 96
varð öllum til sóma, og við þurfum
engan kinnroða að bera gagnvart
„kollegum” okkar á öðrum Norður-
Iöndum - nema síður sé.
Jón Aðalsteinn Jónsson
RRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag Reykjavíkur
Miðvikudaginn 13. nóvember var
’ spilaður eins kvölds tölvureiknaður
( Mithcell tvímenningur með forgefnum
i spilum. 50 pör spiluðu 14 umferðir
með 2 spilum á milli para. Meðalskor
var 364 og bestum árangri náðu:
NS-riðill
Haukurlngason-JónÞorvarðarson 439
Július Snorrason — Hjálmar S. Pálsson 413
Gylfi Baldursson - Jón Hjaltason 410
Símon Símonarson - Páll Bergsson 409
Björn Theodórsson — Örn Amþórsson 403
AV-riðill
( Karl G. Karlss. - Hermann Friðrikss. 446
. SigurðurB. Þorsteinss. — Helgi Sigurðss. 434
* Vilhjálmur Sigurðss. y. — Daníel Sigurðss. 434
( Páll Hjaltason - Hjalti Elíasson 425
Halldór Svanbergss. — Óli M. Guðmundss. 422
Þetta var 5. mótið af 5 Mitchell
tvímenningum vetrarins. Sérstök
verðlaun verða veitt fýrir besta
árangurinn í 4 af þessum mótum.
Efstir í þeirri keppni urðu:
Sigurður B. Þorsteinss. - Helgi Sigurðss. 1689
Jón Þorvarðarson — Haukurlngason 1621
( Hallgr. Hallgrímss. - Sigm. Stefánss. 1607
I Júlíus Snorrason - Hjálmar S. Páisson 1570
( Jón og Haukur urðu Bikar-
tvímenningsmeistar BR 1996!
Jón Þorvarðarson og Haukur Ingason háðu
harða baráttu við Júlíus Snorrason og Hjálm-
ar S. Pálsson í úrslitaviðureign Bikar-tvímenn-
ings BR 1996. Svo skemmtilega vildi til að
bæði pör spiluðu í sömu átt og voru bæði í
toppbaráttunni allt kvöldið. Jón og Haukur
unnu síðan með 26 stiga mun, 439 stigum
i gep 413.
( Miðvikudaginn 20. nóvember verður spilað-
I ur einskvölds Monrad barómeter. Miðvikudag-
inn 27. nóvember byrjar síðan 3ja kvölda
Monrad sveitakeppni. Spilaðir verða þrír 10
spila leikir með forgefnum spiluml! Einnig
verður reiknaður út Butler með frammistöðu
paranna. Tekið er við skráningu hjá BSÍ (Jak-
ob) s: 587-9360 eða á skráningarblöðum sem
liggja frammi á spilakvöldum félagsins.
Reykjavíkurmót í tvímenningi
Reykjavíkurmótið í tvímenningi
verður spilað með svipuðu sniði og
síðastliðið ár. Spiluð verður undan-
keppni laugardaginn 23. nóvember.
16 efstu pörin í henni komast í
úrslit, sem verða spiluð á sunnudeg-
inum. Spilamennska byijar kl. 11 á
laugardeginum og eru áætluð spila-
lok laust fyrir kvöldmat. 16 efstu
pörin taka 15% af skori undan-
keppninnar með sér í úrslitin. Spila-
mennska byijar kl. 11 á sunnudeg-
inum og eru áætluð spilalok um kl.
20.
Keppnisgjald: Undankeppni
1.500 kr. á hvern spilara, úrslit 500
kr. á hvern spilara.
Bridsfélag Hornafjarðar
Nýlokið er þriggja kvölda hraðsvei-
takeppni hjá félaginu. Úrslitin urðu
eftirfarandi eftir hörkukeppni.
SveitinHansKolla 1684
Hótel Höfn 1680
Borgey 1678
Sveitin hans Kolla var skipuð:
Kolbeini Þorgeirssyni, Sigfinni
Gunnarssyni, Ólafi Jónssyni og
Kristjóni Elvarssyni.
Síðastliðið sunnudagskvöld var
spilaður einskvölds tvímenningur.
Gunnar P. Halldórs. - Guðbr. Jóhannsson 125
Gísli Gunnarsson - SverrirGuðmundsson 119
Sigurpáll Ingibergss. - Ágúst Siprðsson 116
Sveit Sparisjóðs Norðfjarðar
sigurvegari í bikarkeppni
Bridssambands Austurlands
Sunnudaginn 17. nóv. sl. var háður
í Félagslundi Reyðarfirði úrslitaleikur
í bikarkeppni BSA 1996. Við áttust
sveitir Loðnuvinnslunnar hf. og Spari-
sjóðs Norðfjarðar. Leiknum lauk með
nokkuð öruggum sigri hinnar síðar-
nefndu, 102 IMPar gegn 61.
Sigursveitina skipuðu: Jóhanna
Gísladóttir, Vigfús Vigfússon, Bjarni
Sveinsson, Jón Aðall Kjartansson,
Hallgrímur Bergsson og Svavar
Bjömsson.
Fyrir sveit Loðnuvinnslunnar hf.
spiluðu: Magnús Ásgnmsson, Jónas
E. Ólafsson, Ævar Ármannsson og
Hafþór Guðmundsson.
Næsta mót á vegum BSA er hrað-
sveitakeppni, sem haldin verður á
Hornafirði laugardaginn 23. nóvem-
ber.
Bridsdeild Félags eldri
borgara, Kópavogi
Spilaður var Mitchell tvímenningur
þriðjudaginn 12. nóvember. 22 pör
mættu. Urslit: N/S:
Ólafurlngvarsson-ÞórarinnÁrnason 250
HannesAIfonsson-EinarElíasson 246
Sæbjörg Jónasdóttir - Þorsteinn Erlingsson 227
A/V:
Garðar Sigurðsson - Páll Hannesson 294
Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 251
Bragi Salómonsson - Einar Einarsson 248
Meðalskor 216
Spilaður var Mitchell-tvímenningur
föstudaginn 15. nóvember. 24 pör
mættu. Urslit: N/S:
Cyrus Hjartarson - Sigurjón H. Sigurjónsson 265
Ingibjörg Stefánsdóttir - Þorsteinn Davíðsson 256
Bjöm E. Kristjánsson - Hjörtur Elíasson 247
A/V:
Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 290
Þórarinn Amason - Þorleifur Þórarinsson 270
Þórhildur Mapúsdóttir - Halla Ólafsdóttir 227
Meðalskor 216
- kjarni málsins!
Whp% hewlett
®LkÆ paqkard
PRENTARAR OG SKANNAR
Gerið
verösamanburö
Tölvu-Pósturinn
Hnmnrksgæði ■ Lngmnrksvcrð
GLÆSIBÆ, ÁLFHEIMUM,
SÍMI 533 4600, FAX: 533 4601
Blað allra
landsmanna!
- kjarni málsins!
Kjarvalsstaðir
Bækur, kort, plaggöt, gjafavörur.
Opið daglega frá kl. 10-18.
SILFURBÚÐÍN
NX/ Kringlunni 8-12 •Sími 568 9066
- Par fœrðu gjöfina -
WICANDERS
GUMMIKORK
í metravís
• Besta undirlagið fyrir trégólf
og linoleum er hljóðdrepandi,
eykur teygjanleika gólfsins.
• Stenst hjólastólaprófanir.
í rútlum - þykktir 2.00 og 3.2 mm.
• Fyrir þreytta fætur.
GUMMIKORK róar gólfin niður!
PP
&CO
Þ. ÞORGRÍMSSON &CO
ARMÚLA 29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK
SÍMl 553 8640 568 6100