Morgunblaðið - 20.11.1996, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 1996 43
I DAG
BRIDS
llmsjón Guðmundur Páll
Arnarson
„OVER Your Shoulder"
heitir ný bridsbók eftir
Bretana Tony Forrester og
Brian Senior. Uppsetningin
er óvenjuleg, en nokkuð
skemmtileg: Fyrst sýna þeir
allar fjórar hendur og sagn-
ir og segja hvað gerðist í
reynd. Síðan fara þeir í sau-
mana á hverri ákvörðun,
gagnrýna og leiðbeina eftir
því sem tilefni gefst til. Hér
er spil úr bókinni:
Austur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ K104
V K1043
♦ KD2
♦ D94
Vestur
♦ DG75
V D6
♦ 543
♦ G1082
Austur
♦ 329
V 752
♦ G1098
♦ ÁK3
Suður ♦ Á86 V ÁG98 ♦ Á76
♦ 765
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 grand*
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
»12-14.
Útspil vesturs er spaða-
fimma, fjórða hæsta. Lítið
úr borði og nía austurs
drepin með ás. Síðan
hjarta upp á kóng og
hjartatíu svínað. Vestur
fær slaginn á drottninguna
og spilar spaða. Sagnhafi
dúkkar, tekur síðan slag-
ina á rauðu litina og von-
ast eftir kraftaverki í lauf-
inu í lokin. Niðurstaða:
Einn niður.
Hvað er hægt _að segja
um þetta spil? Ýmislegt.
Það má velta fyrir sér út-
spilinu. Er betra að spila
út laufi eða kannski spaða-
drottningu? Niðurstaða
höfundanna er að laufáttan
geri útspil í laufi öruggari
kost, en hins vegar bendi
stökk norðurs í þijú grönd
til þess að hann eigi ekki
hálit og því sé spaðinn
sókndjarfara útspil. En
hvað með stökk norðurs í
þtjú grönd? Hvers vegna
leitar hann ekki eftir
hjartasamlegu? Forrester
telur að það eigi ekki að
gera með skiptinguna
4-3-3-3 og háspil í öllum
litum.
Spilaði sagnhafi rétt? Ef
hann reiknar með að vestur
eigi 4-6 spaða, eru auðvitað
meiri líkur á að austur eigi
fleiri hjörtu og þar með
drottninguna. Hins vegar
gat suður gefið sér auka-
möguleika með því að spila
fyrst hjartagosa upp á
kóng. Eigi vestur drottn-
ingu aðra, er freistandi að
leggja á gosann.
Eina skarplega athuga-
semd er að finna hjá þeim
félögum varðandi vörnina.
Austur er í vanda þegar
hann þarf að henda í síð
asta hjartað. Þá á hann
eftir G1098 í tígli og ÁK3
í laufi. Hann má ekki henda
láufþristinum, því þá vinn-
ur sagnhafi spilið með því
að spila tvívegis litlu laufi.
En ef suður á fjóra tígla
er auðvitað ekki gæfulegt
að kasta tígli. Austur getur
nýtt sér útspil makkers til
að leysa þennan vanda.
Vestur kom út frá fjórlit
og hefur sýnt tvö hjörtu.
Ef suður á fjóra tígla, er
vestur með tvo og þar með
fimm lauf og hefði senni-
lega spilað út í þeim lit.
Ergó: Makker á þijá tígla,
minnst.
Árnað heilla
OAÁRA afmæli. Þriðju-
ÖDdaginn 26. nóvember
nk. verður áttræður Konráð
Oskar Auðunsson, bóndi á
Búðarhóli í A-Landeyjum,
Rangárvallasýslu. Eigin-
kona hans er Sigríður Har-
aldsdóttir. Þau taka á móti
ættingjum og vinum í fé-
lagsheimilinu Gunnars-
hólma A-Landeyjum,
laugardaginn 23. nóvember
nk. frá kl. 20.30. Sætaferðir
verða frá Reykjavík. Nánari
uppl. í s. 487-8578. Konráð
frábiður sér allar gjafir en
vonast til að sjá sem flesta.
/»AÁRA afmæli. í dag,
Owmiðvikudaginn 20.
nðvember, er sextugur
Auðunn O. Helgason,
Seljalandi 5, Reykjavík.
Eiginkona hans er Kristín
Þ. Gísladóttir. Þau dvelja
á Kanaríeyjum á afmælis-
daginn.
pf AÁRA afmæli. í dag,
O vl miðvikudaginn 20.
nóvember, er fimmtugur
Svavar Tryggvi Omar
Óskarsson, verkstjóri hjá
Akranesveitu, til heimilis
að Vogabraut 40, Akra-
nesi. Eiginkona hans er
Aðalheiður Finnbogadótt-
ir. Þau hjónin verða fjarver-
andi á afmælisdaginn.
Ljósmyndastofa Páls, Akureyri
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 1. júní í Laufáskirkju
af sr. Pétri Þórarinssyni
Lára Svansdóttir og Jón
Heiðar Daðason. Heimili
þeirra er á Núpasíðu 8c,
Akureyri.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót o.fl. lesendum
sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og eða
nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma
569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329 sent á
netfangið:
gusta@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Dagbók
Morgunblaðsins,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík.
Farsi
,, |//£ &um ekki mek barnxgaesiu -suo
i/io rbóum pau sem samartaerlingcx. •"
STJÖRNUSPA
*
SPORÐDREKI
Afmælisbarn dagsins: Þú
hefur ákveðnar skoðanir og
ert ekkert að fela þær.
Hrútur
(21.mars- 19. apríl)
Varastu óhóflega ýtni, sér-
staklega gagnvart þínum
nánustu, og hlustaðu á það
sem aðrir hafa til máianna
að leggja.
NdUt
(20. apríl - 20. maí)
Ef þú flýtir þér um of geta
smáatriðin framhjá þér farið
og torveldað lausn á verkefni
í vinnunni. Hafðu augun opin.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 4»
Fjölskyldumálin eru á dag-
skránni hjá þér í dag. Var-
astu óþarfa eyðslu, sem get-
ur valdið þér vandræðum síð-
Krabbi
(21. júní — 22. júH) HsB
Flýttu þér hægt við að gefa
vini óumbeðin ráð, sem ekki
eru vel þegin. Ný tómstunda-
iðja heillar þig þegar líður á
daginn.
Ljón
(23. júl! - 22. ágúst)
Þér semur illa við einhvern
árdegis, sem hlustar ekki á
rök þín. Bíddu betri tíma,
því skoðanir þínar ná fram
að ganga.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) M
Komdu til móts við óskir
ástvinar í dag. Það styrkir
sambandið og tryggir ykkur
ánægjulegar stundir í vina-
hópi í kvöld.
y°g „
(23. sept. - 22. október)
Gagnkvæmur skilningur er
mikilvægur þáttur í sam-
skiptum ástvina og styrkir
sambandið. Góð ábending
nýtist vel í vinnunni.
Sþorðdreki
(23.okt.-21.nóvember) HljS
Varastu óþarfa stjórnsemi í
vinnunni, sem getur spillt
góðu samstarfí. Ættingi leit-
ar ráða hjá þér í viðkvæmu
fjölskyldumáli.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Fyrir tilstilli gamals ijöl-
skylduvinar tekst þér að
finna lausn á flóknu heimilis-
vandamáli I dag, sem allir
sætta sig vel við.
Steingeit
(22.des. - 19.janúar) m
Þótt heppnin sé með þér í
viðskiptum dagsins er óþarfí
að láta það leiða til eyðslu
semi. Sýndu stirðlyndum
ættingja þolinmæði.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þægileg framkoma greiðir
þér leið í viðskiptum dagsins
og færir þér velgengni. Þú
leysir ágreining innan fjöl
skyldunnar.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) *
Þú gætir hlotið viðurkenn-
ingu fyrir vönduð vinnu-
brögð í starfi í dag. í kvöld
bíður þín skemmtilegur
mannfagnaður.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Pelsarnir loKsins komnir
stuttir kr. 7.9oo 5ama göða verðið
Millisíðir kr. 9.900
Urin Svart^g'b^gf 00 StTUtUTUlTj tískuverslun,
Sendum í póstkröfu Laugavegi 55, sími 561 8414.
Hvab er rétt klukka?
í síma 155 er að finna upplýsingar um hvað
rétt klukka er • Opið allan sólarhringinn.
PÓsniROQSlMI
Vörugeymslur • Kælilagerar • Frystilagerar
Matvælageymslur • Bókasöfn • Skjalasöfn • Bflskúrar
Lagermál eru okkar sérgrein
Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi
fyrir vélvædd vörugeymsluhús sem minni lagera.
Innkeyrslurekkar sem rúllurekkar.
Aðeins vönduð vara úr sænsku gæðastáli.
Mjög gott verð. Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki.
Leitið ráða við skipulagningu og byggingu lagerrýma.
Brettarekkar, margar gerðir
Skjalaskápar á hjólum
Þjónusta - þekkíng - ráðgjöf. Áratuga reynsla.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
SMIÐJUVEGI 70, KÓP. • SÍMI564 4711 • FAX564 4725