Morgunblaðið - 19.01.1997, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1997 41
____BREF TIL BLAÐSIMS_
Nostradamus og
gagnrýnandinn
Frá Signýju Amilíu Hackett:
ÞANN 19. desember síðastliðinn
birti Morgunblaðið ritdóm um bók-
ina Nostradamus og spádómarnir
um ísland eftir Guðmund Sigurfrey
Jónasson. Ritdómurinn, ef ritdómur
skyldi kallast, á að mínu mati ekk-
ert skylt við bókmenntagagnrýni.
Höfundurinn, Geir Svansson, virðist
telja vel til fallið að vera með skæt-
ing, hártoganir og rangfærslur í
umfjöllun sinni, í stað þess að leggja
á sig þá vinnu sem þarf til að inna
starf sitt sómasamlega af hendi.
Eftir lestur „ritdómsins" er bersýni-
legt að gagnrýnandinn hefur ekki
lesið bókina í heild sinni heldur
glefsur úr henni hér og þar. Hlýtur
það að teljast forkastanleg vinnu-
brögð. Franski spámaðurinn Mikaíl
Nostradamus er aldrei nefndur ann-
að en „Nostri" í umfjöllun gagnrýn-
andans. „Nostri" þetta og „Nostri“
hitt. Er gelgjuskeiðshúmor af þessu
tagi sæmandi fjölmiðli sem vill
væntanlega láta taka sig alvarlega?
í pistlinum fullyrðir gagnrýnand-
inn að ekki sé hægt að finna í bók-
inni fleiri ferskeytlur sem fjalla um
ísland „en telja má á fingrum ann-
arrar handar“. Ekki er mér kunn-
ugt um hvað gagnrýnandinn hefur
marga fingur á hendi en hitt veit
ég að í kaflanum „Leiðtoginn frá
Islandi" má finna alls fjórtán spá-
dómsljóð sem vísa á ísland. Þau er
einnig að finna í öðrum köflum
bókarinnar og telst mér að fer-
skeytlumar sem tengjast íslandi
eða íslensku þjóðinni séu nærri tutt-
ugu talsins. Gagnrýnandinn hefur
hins vegar litla trú á framtíðarhlut-
verki Islendinga og kýs að gera
grín að sjálfri hugmyndinni og er
honum það að sjálfsögðu í sjálfs-
vald sett.
Frumtexti og líkingarmál
Nostradamusar
Hann fullyrðir einnig að það komi
ekki fram „hvort höfundur þýðir
beint úr miðaldafrönsku, frönskum
nútímaþýðingum eða jafnvel ensk-
um“. í kaflanum „Nostradamus og
Aldirnar“ segir höfundur hins vegar
frá því að stuðst sé við frumtexta
Nostradamusar, eins og hann birtist
í ritverki Le Pelletier „Les Oracles
de Nostradamus ..." sem kom út
í París árið 1867. í formála bókar-
innar kemur einnig fram að höfund-
ur hafi notfært sér „internetið með
skjótum aðgangi að gagnabönkum
og grískum, latneskum og fom-
frönskum orðasöfnum". Bendir það
til þess að þýðingin sé úr nútíma-
frönsku eða jafnvel ensku?
Gagnrýnandinn finnur einnig að
því að stundum sé „meint líkingar-
mál spámanns túlkað beint inn í
þýðinguna í spádómsljóðinu". Hann
getur þess hins vegar ekki að höf-
undur bókarinnar gagnrýnir aðra
þýðendur fyrir að gera litla sem
enga tilraun til að túlka líkingarmál
Nostradamusar. Höfundur segir (á
bls. 47): „Spádómsljóðin eru yfir-
leitt þýdd orðrétt, án tillits til hvaða
merking liggur til grundvallar. Fyr-
ir vikið verða þau óaðgengileg og
jafnvel illskiljanleg hinum almenna
lesanda“. Ástæðan fyrir því að þýð-
ingu spádómanna fylgir frumtexti
ferskeytlanna, ásamt orðaskýring-
um, er einmitt sú að gefa lesandan-
um kost á því að sjá hvernig líking-
ar spámannsins eru útlagðar. Er
eðlilegt að gagnrýna höfund fyrir
að gera einmitt það sem hann ein-
setur sér?
Leiðtoginn frá íslandi
Gagnrýnandinn segir á einum
stað: „Hægt er að túlka og þýða
(spádómsljóðin) býsna fijálslega:
sumir mundu segja eftir vild. Túlk-
unardæmi: „Þjóðskörungur fæðist
á íslandi. Alþingi sett á Þingvöllum.
Styrjöld í Austurlöndum." En þessi
útlegging er fengin úr eftirfarandi:
Þar sem þijú höf liggja að landi
fæðist sá/ sem gerir Þórsdag að
hátíðisdegi. Frægð hans,/ völd og
vegsauki mun vaxa þegar Asía/
riðlast vegna styijaldar á sjó og
landi. Augljóst, ekki satt?“ Gagn-
rýnandinn lætur þess þó ekki getið
að Guðmundur Sigurfreyr útskýrir
túlkun sína: ísland er úthafseyja
og að því liggja þijú höf; Atlants-
hafið að sunnan, Grænlandshaf að
vestan og íslandshaf að norðan og
austan. A sama hátt og sunnudagur
er helgidagur kristinna manna og
föstudagur helgidagur múhameðs-
trúarmanna var fimmtudagur
(Þórsdagur) helgasti dagur land-
námsmanna. Alþingi til forna var
alltaf sett á fimmtudegi, deginum
sem helgaður var Þór, en það var
guðinn sem mestur átrúnaður var
á og almennastur var. Túlkun höf-
undar er þess vegna ekki svo galin,
þótt vissulega sé hún frumleg. Auk
þess má finna fleiri ferskeytlur hjá
Nostradamusi sem renna stoðum
undir umrædda túlkun.
Nasismi og nýaldarbókmenntir
Gagnrýnandinn hneykslast einnig
á hugtakinu „yfirmannkynsþjóð" og
vænir höfund bókarinnar um að
boða „hættulegan messíanisma“ ef
ekki séríslenska útgáfu af nasisma
Þriðja ríkisins. Hann getur þess þó
ekki að hugtakið „yfirmannkyns-
þjóð“ er hvergi að fínna í texta
Guðmundar Sigurfreys sjálfs, heldur
birtist það á einum stað í orðum sem
höfð eru eftir þýskri spákonu frá
árinu 1919. Á þeim tíma var hugtak-
ið haft yfir fólk sem bjó við hátt
menningarstig, en ekki skilið þeim
skilningi sem gert er í dag. Gagnrýn-
andinn fínnur einnig að því að tilvitn-
anir sem hafðar eru í upphafi hvers
hluta og sumra kaflanna séu „hver
úr sinni áttinni og oft algerlega
ósamstæðar“. Til þess að skilja sam-
hengi tilvitnana þarf aftur á móti
að lesa kaflana í heild sinni en það
hefur gagnrýnandinn bersýnilega
ekki gert. Það vekur til dæmis furðu,
að jafnvel þótt stór hluti bókarinnar
hafi að geyma spádóma Nostrada-
musar, sem höfundur - oft á snilld-
arlegan hátt - sýnir fram á að hafi
ræst, þá minnist gagnrýnandinn
ekki einu orði á þennan þátt verks-
ins. Sama gildir um öll önnur spá-
dómsljóð sem vísa á framtíðina, önn-
ur en þau er lúta að íslandi. Ber
það vott um þá „skynsemishyggju
o g rökstuddu vinnubrögð“ sem
gagnrýnandinn stærir sig af?
I lok pistilsins lýsir gagnrýnand-
inn síðan því yfir að allar svonefnd-
ar „nýaldarbókmenntir" séu í reynd
húmbúkk! Það vekur þess vegna
furðu hvers vegna í ósköpunum
maður með slík viðhorf er fenginn
til þess að gagnrýna slíkar bók-
menntir. Hefur Morgunblaðið þá
yfirlýstu stefnu að gera lítið úr öllu
því sem flokkast undir „nýaldarbók-
menntir" eða stendur viðkomandi
gagnrýnandi í persónulegri ófræg-
ingarherferð gegn öllum þeim sem
hafa önnur viðhorf til lífsins en hann
sjálfur?
SIGNY AMILIA HACKETT,
Framnesvegi 25, Reykjavík.
Opið hús
Kringlan 15 — endaraðhús
Milli kl. 14 og 17 í dag ertil sýnis glæsilegt 175 fm hús
auk bílskúrs á þessum vinsæla stað. Verið velkomin
að skoða eignina. Verð hennar er 16,4 millj., áhvílandi
eru hagstæð lán við Byggingarsjóð ríkisins 3,5 millj.
Húsið, fasteignasala,
Suðurlandsbraut 50,
sími 533 4300.
hOLl
FASTEIGNASALA
5510090
OPIÐ HÚS í DAG FRÁ KL.15 - 17
Dofraborgir 32
í dag býðst þér og þinni fjölskyldu að skoða þetta glæsilega 167
fm raðhús á þessum mikla útsýnisstað. í húsinu eru 3 svefnher-
bergi, stofa og borðstofa, innbyggður bílskúr o.fl. Eignin verður
seld fullbúin að utan, lóð grófjöfnuð og tilbúin til innréttinga að
innan og er til afhendingar strax í dag. Ásmundur sölumaður á
Hóli sýnir eignina á milli kl. 15 og 17 og verður hann með teikn-
ingar af eigninni og allar nánari upplýsingar á reiðum höndum.
Skipti möguleg á minni eign. Verð 10,4 milljónir.
Ásgarður.
Vorum að fá í sölu gullfallega 58 fm 2—3 herbergja íbúð á jarð-
hæð í nýlegu húsi á þessum vinsæla stað. Parket og vandaðar
innréttingar. Möguleiki á sérinngangi. Áhv. hagstæð lán. Verð 5,4
millj. íbúðin getur losnað strax (2007).
Fornaströnd 15 — Seltjn.
Oið hús í dag kl. 13—17
Vandað 260 fm einbýli á einum besta stað
á Seltjnesi. Frábært útsýni. Húsið er klætt
að utan með í-múr, nýlegt þakjárn, þakk-
antur og rennur. Rúmgóð ræktuð eignarlóð
með matjurtagarði.
Verðhugmynd 18,5 millj. eða tilboð.
Skipti möguleg á ódýrari.
Áhugasömum er velkomið að líta inn
milli kl. 13 og 17 í dag.
Valhöll, fasteignasala, Mörkinni 3,
sími 588 4477.
Iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði
við Skeiðarás Arnarnesvogi, Garðabæ
Höfum fengið í einkasölu fyrir Sparisjóð Hafnarfjarðar atvinnu-
húsnæði, einkar hentugt sem trésmíðaverkstæði, vélaverkstæði,
bátaverkstæði, heildverslun o.s.frv. Húsnæðið er byggt 1961 og er
tvískipt. Annars vegar er um að ræða stálgrindarhús sem skiptist í
ca 300 fm atvinnuhúsnæði með góðri lofthæð og innkeyrsludyrum
ásamt 300 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð. Hins vegar er um að
ræða áfast ca 240 fm steypt atvinnuhúsnæði. Húsnæðið stendur
á sérlóð við sjó. Stærð lóðarinnar er ca 2.360 fm. Ekkert áhvílandi
en möguleiki á að fá langtímalán fyrir hluta kaupverðs.
Verð 26 milljónir.
Fasteignasala,
Strandgötu 25, Hfj.
Árni Grétar Finnsson, hrl.
Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl.
Símar 555 1500, 896 4211, bréfsími: 565 2644.
hjá H&M I Evrópu.
Minnst 40% afsláttur.
Hefst á morgun, mánudag.
m
KCWELLS
Kringlunni 7, sími 588 4422.
.. FYRIR ALLA í
► FJOLSKYUHINM <