Morgunblaðið - 19.01.1997, Page 42

Morgunblaðið - 19.01.1997, Page 42
42 SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Allt nýjar vörur aiao Laugavegi 70, sími 551-4515. Fasteignasalan Suöurveri ehf. Stigahlíð 45-47, 105 Reykjavík Sími 581 2040 Fax 581 4755 Fersk fasteignasala Einar Örn Reynisson, Reynir Þorgrimsson, Helgi Hákon Jónsson, uiöskiptafr. og löggildur fasteignasali. Einbýlishús Seltjarnarnes Tjarnarstígur. Eldra parhús á tveimur hæðum um 200 fm + tvöfaldur bílskúr. 4 góð svefnherb., 2 saml. stofur. Möguleiki á fleiri svefnherb. Góður garður. V. 11,9 millj. Bergstaðastræti - mikið endurnýjað. Til sölu fallegt eldra timburhús um 170 fm, Járnklætt hús á þremur hæðum, kjallari, hæð og ris. Sérbílastæði. Skipti möguleg. Verð 12,5 millj. Grundarstígur. Hús á tveimur hæðum sem nú eru tvær íbúðir tæp. 60 fm hvor, selst í einu lagi, þarfnast endurbóta. Fyrirtæki í eigin húsnæði Hótel - veitinga- staður. Höfum til sölu á vesturlandi spennandi 1100 fm hótel sem einnig er skemmtistaður. Fullt vínveitingaleyfi. 26 herbergi - gisti- aðstaða fyrir 50 manns + smáíbúð. Gott eldhús. Veislusalur tekur 140 manns i sæti, hægt að skipta I þrjá sali. Spennandi staðsetning sem býður upp á óteljandi útivistar- möguleika. Skipti koma til greina á eign I Reykjavík. Starengi - á einni hæð. tíi sölu skemmtilegt og fallegt 138 fm einbýlishús ásamt 40 fm bílskúr. Húsið er tilbúið að utan en fokhelt að innan. Telkn. á skrifst. Skuldlaust. Erum að leita að einbýlishúsi í Þingholtunum eöa gamla bænum í eldri kantinum. 3ja-4ra herb. Engihjalli - Kóp. Rúmgóð 3ja herbergja ibúð 89,2 fm á 2. hæð I lyftublokk. Tvennar svalir til vesturs og norðurs. Parket á stofu. Flísar á gangi og dúkur á herbergjum. Ekkert áhv. V. 6,7 millj. Vill gjarnan skipti á minni íbúð, helst í Hamraborg Kópavogi. Kleppsvegur. Góð 77 fm 3ja herb. íbúð i lyftublokk, öll ný gegnumtekin. Hugguleg íbúð. Suðursv. Litið áhv. V. 5,8 miilj. Atvinnuhúsnæði Álfaskeið - Hafnarfirði. Gott verslunarhúsnæöi um 420 fm. Laust strax og var þar rekin til margra ára matvöruverslun, en hentar til margvíslegra nota. Áhv. 6 millj. V. 21 millj. Laugarneshverfi. Gott versi unarhúsnæöi í verslunarmiðstöð um 100 fm meö kj. Hentar sérlega vel undir t.d. fiskbúð, ísbúð með sælgætissölum, pizzastað o.fl. Ekkert áhv. V. 6,3 millj Laust strax, er staðsett við hliðina á vinsælli 10-11 verslun. Völvufell. Höfum til sölu 50 fm verslunarpláss viö verslunarmiðstöð í Fellagörðum, Reykjavík. Húsnæðið er í útleigu en gæti mögulega losnað fljótlega. Ekkert áhv. V. 2,4 millj. Kópavogur. Til sölu ca 50 fm húsnæði sem leigt er út í dag undir söluturn. Langur leigusamningur sem gefur um 55 þús. á mán. í leigutekjur. V. 3,5 millj. Skipti mögul. Flugumýri. Iðnaðarhúsnæði, 180 fm salur + 40 fm skrifstofuris og 40 fm geymsluris. Mjög hátt til lofts, vegghæð um 5 m og 8 m í mæni. Er í útleigu og gefur um 77 þús. á mán. i leigutekjur. Eignin er skuldlaus og ásett verð er 8,5 millj. Óskum eftir m.a. þessum ákveðnu eignum á söluskrá okkar: 1. í Heimum eða nágrenni, tveggja herbergja fallegri íbúð í skiptum fyrir fallega 3ja í sama hverfi. í Hlíðahverfi, góðri 2ja til 3ja herbergja með 2 millj. kr. samningsgreiðslu. í Verslunarhúsnæði ca 200 fm við Laugaveginn eða nágrenni, fjársterkur aðili. 4. í Iðnaðarhúsnæði 200-500 fm með góðum innkeyrslu- dyrum. 5. í 50-100 fm skrifstofu í Ármúla eða Síðumúla. 2. 3. - kjarni málsins! ÍDAG Með morgunkaffinu Áster..... ... aðleiðast. TM Reg U.S. Paf. Off. — aU rights reserved (c) 1996 Los Angeles Times Syrxlicate ÉG VEIT að þú gafst mér bestu ár ævi þinnar, en það var 1954 og 1955. MAMMA! Gáðu hvort þetta er tannkrem. að heimilisbókhaldi og tekjurnar stemma alveg við útgjöldin. Þú þarft bara að fá 50 þúsund króna Iaunahækkun. O ÞÚ VEIST ekki hvernig þessi dagur var hjá mér. NEI, ég hef ekki lesið Biblíuna og ætla ekki að gera það fyrr en hún verður sett á netið. VIÐ ákváðum að halda innflutningspartýið núna, því það er ekki víst að við höfum efni á því þegar húsið verður tilbúið. VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: laugaÞmbl.is Fyrirspurn til Vegagerðar RANNVEIG hringdi og vill spyija Vegagerðina hvort gerðar hafi verið rannsóknir á því hvaða áhrif malarflutningar í Seyðishólum í Grímsnesi hafi á slysahættu á þjóð- veginum í nágrenninu. Bækur óskast ELIN hringdi og er hún að leita að einhveijum sem á bækurnar um Tuma, Möggu og Emmu sem viðkomandi gæti gefið eða selt. Upplýs- ingar í síma 552-3433. Tapað/fundið Pels tapaðist BRÚNN pels tapaðist úr bíl við Grettisgötu, helg- ina 3.-5. janúar. Skilvís finnandi hafíð samband í síma 552-8037. Fundarlaun. Hvar eru skórnir? SKöMMU fyrir jól tapað- ist poki. í honum voru svartir nýlegir spariskór með gylltri og svartri skrautspennu. Hefur trú- lega gleymst í verslun í jólainnkaupunum á leið um Austurstræti og Laugaveg upp í Eskihlíð. Skilvís fmnandi hafi samband í síma 551-8643. Hjól fannst REIÐHJÓL fannst í Fossvogsdal, Kópavogs- megin, 15. janúar. Upp- lýsingar í síma 564-1976. 4 :3 SKÁK Umsjón Margeir Pétursson HVÍTUR leikur og vinnur STAÐAN kom upp á ísra- elska meistaramótinu í vet- ur. Alþjóðlegi meistarinn Eduard Porper (2.425) hafði hvítt og átti leik, en Evgeny Rapoport (2.195) var með svart. 32. Rxa5! — bxa5 33. Dxa5 (Hvítur hefur náð að tæta sundur svörtu kóngsstöðuna og biskupapar hans og hrókar eiga nú greiða leið í sóknina) 33. — Rhf6 34. Bxc5 - Rd6 35. Da7+ - Kc8 36. Hbl - Dh7 37. Hxb7! - Rxb7 38. Da8+ og svartur gafst upp því hann er óveijandi mát í þriðja leik. Hraðmót hjá Helli mánudagskvöldið 20. janúar kl. 20 í nýju hús- næði Hellis hjá Bridgesam- bandinu í Mjódd í Breið- holti. Unglingaæfing á sama stað kl. 17.15. Víkverji skrifar.. GÍFRAÐ um geitarull kölluðu áar okkar það þegar menn fóru í hár saman út af smámunum. Víkveija finnst á stundum sem gífr- að sé um geiti rull í flestum dægur- dálkum og lesendabréfum prent- miðlanna, að ekki sé nú minnzt á keisarans skegg í þjóðarsálinni. Hin stóru málin liggja frekar í þagnar- gildi á þeim vettvangi. Það eru ekki margir sem kveða sér hljóðs um stöðu móðurmálsins, sem er hornsteinn stjórnarfarslegs og menningarlegs fullveldis okkar, og á í vök að veijast vegna ásóknar annarra mál- og menningarsvæða (sjónvarp, alnet o.s.frv.). Eða um almenna og sérhæfða menntun þjóðarinnar, en menntun og þekk- ing ráða mestu um lífskjör þjóða í bráð og lengd. Eða um stöðu okkar í Evrópusamrunanum. Eða um þjóðararðinn af sjávarauðlindinni, sem er verðmætust sameign þjóðar- innar, að sögn. Eða um jafnstöðu fólks í kosningum til Alþingis. Eða um nauðsyn fjölskylduvænna skattaumhverfis. Stóru málin vega lítið í hinni al- mennu umræðu. Okkur fellur betur að gífra um geitarull. xxx FLESTIR landsmenn hugleiða kjaramál þessa dagana, enda samningar lausir og allra veðra von á vinnumarkaði. Víkveiji veltir fyrir sér, hvernig við náum bezt þeim markmiðum, sem allir góðir menn vilja stefna að, það er viðunandi afkomu fólks og atvinnuöryggi. Við búum þegar við fullnýtta, jafnvel ofnýtta fískistofna. Við bú- um þegar við búvöruframleiðslu umfram markaðseftirspurn. Hvar á þá að leita fanga um fleiri störf, til að útrýma atvinnuleysinu, eða til að auka þjóðartekjur - stækka skiptahlutinn á þjóðarskútunni? Beinast liggur við að fjölga störf- um og auka þjóðartekjur með því að nýta þriðju auðlindina, orkuna í vatnsföllum iandsins og jarðvarm- anum. Það er með orkufrekum iðn- aði. Að sjálfsögðu með beztu meng- unarvörnum. Fleira kemur til, svo sem ferðaiðnaður og margs konar hugbúnaðar. Við sækjum hins veg- ar ekki fram til atvinnuöryggis og bættra lífskjara ef við nýtum ekki það bjargræði sem forsjónin leggur okkur upp í hendur. Og með því að stórefla almenna og sérhæfða menntun og þekkingu í landinu. XXX MEGINFORSENDA hamingju hvers og eins er heilbrigði til sálar og líkama. Enginn getur að vísu alfarið siglt fram hjá sjúk- dómum eða slysum, sem sjaldnast gera boð á undan sér. Sérhver get- ur á hinn bóginn haft ótrúlega mik- il áhrif á heilsufar sitt, bæði líkam- legt og andlegt, með lífsmáta sínum einum saman. Lyklarnir að líkamlegu heilbrigði eru fyrst og fremst þrír: rétt fæðu- val, hæfileg hreyfing, t.d. göngur og sund og að hætta reykingum. Þetta þarf ekki að kosta mikla fjár- muni. Aðeins dulitla fyrirhyggju og sjálfsaga. Það er ekki síður mikilvægt að leggja rækt við hugarfar sitt en lík- ama. í þeim efnum er gott að huga að gömlum gildum, trúarlegum og siðfræðilegum. Fjárútlát eru nánast óþörf. í flestum tilfellum er hæfileg ganga frá heimiii að sóknarkirkju. Það er óþarfi að fara yfir lækinn til að sækja vatnið. XXX A OÐINN Pétur Vigfússon segir nýverið í grein í Degi-Tíman- um: „Ég er búinn að vera erlendis megnið af ævinni við nám og störf, og þegar heim er komið undrast ég allan þennan harmagrát; kannski er nauðsynlegt að íslend- ingar eignist sinn Grátmúr." Gömlu mennirnir sögðu að sá væri ekki búmaður sem ekki kynni að beija sér. Grátmúrsþörfín er því ekki ný af nálinni. Það er meira að segja talað um grátkór kvótakónga - í miðri kvótaverðsuppsveiflunni. Hvað höfðingjarnir hafast að, hinir ætla sér leyfíst það. Og sumir leggja jafnvel krókódílstár í púkkið!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.