Morgunblaðið - 19.01.1997, Qupperneq 52
YDDA F69.99/ SÍA
52 SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Shemmtun vetrarins
ÍSúlnasal
Það verður franskt fjör á laugardagskvöldum í Súlnasal,
frá og með 15. febrúar. Frábærir skemmtikraftar
koma fram og láta ekkert franskt framhjá sér fara:
— Egill Ólafsson, Sigrún Eva Ármannsdóttir,
fulltrúar frá hinni óborganle^u Spaugstofii: \
________Örn Arnason og Karl Agúst Ulfsson
og Tamlasveitin. Einnig sýna dansarar eldfjörug
dansatriði, ekki hvað síst í can can og öðrum frönskum
sporum undir stiórn Helenu lónsdóttur.
Aggi SLe og Tamlasveitin leika fyrir dansi til kl 3.00.
I
Þríréttuð kvöldmáltíð:
Estragon kryddað laxakrem og
laxatartar með soyavattu salati
Sinnepsgljáður lambahryggur með
hvítlaukskryddaðri brauðskel
og nautahryggssneið, framreitt
með léttsteiktu grœnmeti,
Lyonnaise kartöflum og Búrgundarsósu
Súkkulaðimousse og ávaxtasátt í
kampavínshlaupi
meðfranskri vanillusósu
itiiviu nRAiu n
IVI i IV VISUIVV
Ansi
mynd
Hattadeildin(Mu//)o//and Falls)
Spcnnumynd
★ ★
90 mín. Bandarísk. Largo Ent-
ertainment/Myndform 1996. Leik-
stjóri: Lee Tamahori. Handrit: Pete
Dexter. Kvikmyndataka: Haskell
Wexler. Tónlist: Dave Grusin. Aðal-
hlutverk: Nick Nolte, Chazz Pal-
minteri, Melanie Griffith, John
Malkovitch, Michael Madsen, Chris
Penn, Andrew McCarthy og fleiri
góðir.
ANNAÐ verður ekki sagt um
kvikmyndina Mulholland Falls
en að hún sé smekklega unnin í
alla staði. Til þess sá leikstjórinn
Lee Tamahori, en flestir kannast
við kvikmynd hans Once We Were
Warriors sem sýnd var hér á landi
við metaðsókn. Nú hefur hann feng-
ið til liðs við sig marga stórstjörn-
una sem skilar sínu frekar vel, sem
og flestir aðstandendur myndarinn-
ar. Viðfangsefnið er nú fengið úr
hinum dæmigerða bandraríska
kvikmyndaheimi, en Mulholland
Falls er skringileg blanda af mafíu-
mynd og rannsóknarlögreglumynd.
Hún hefst á dæmigerðu mafíuatr-
iði, en tekur svo óvænta stefnu, og
smart,
en . . .
má spyqa sig hvort handritahöf-
undur hefðu ekki betur haldið sig
við annan hvorn stílinn. Kvik-
myndatakan og sviðshönnun öll eru
mjög flott og tekst jafnvel að hylma
yfir stílbreytinguna með því augna-
konfekti.
Þrátt fyrir að öll þessi stjörnuljós
Hollívúddar séu samankomin í einni
mynd, þá hefur hún ekki notið mik-
illar athygli. Nick Nolte leikur hér
foringja í lögguklíku á sjötta ára-
tugnum, en starfsaðferðir hennar
eru í anda mafíósanna sem þeir
eiga í höggi við. Virðist allt ganga
þeim í hag þar til viðhaldið hans
finnst myrt. Það er gaman að sjá
Nick Nolte í hlutverki aðaltöffarans
og er hann ansi flottur og sannfær-
andi þótt þar sé ansi grunnt á því
góða. Eina litríka persónan er fé-
lagi hans Coolidge sem hinn frá-
bæri leikari Chazz Palminteri túlk-
ar, en þó er eins og botninn detti
úr honum þegar líða tekur á, auk
þess sem hlutverk hans verður
veigaminna en tilefni gefa. Melanie
Griffith leikur eiginkonu Nolte. Hún
er krúttleg en ósköp lík sjálfri sér,
og gaman hefði verið að sjá hana
gera meira úr eiginkonuhlutverk-
inu. í klíkunni með þeim félögum
eru Chris Penn og Michael Madsen,
og er hálfgerð synd að þeir fái ekki
meira að láta ljós sitt skína, eins
Chazz Palminteri og Nick
Nolte þungt hugsi.
og þeir eiga það nú til að vera
skemmtilegir.
Veiki punktur myndarinnar er
án efa sagan. Vel er haldið utan
um þróun mála, og allt virðist í
góðum gír, en málalok valda vissu-
lega vonbrigðum. Auk þess hefði
lokaatriðið milli félaganna Nolte og
Palminteri átt betur við í dæmi-
gerðu melódrama, og var algerlega
óþarft. Vandræðalegur og væminn
endir á ansi smart mynd. í hana
vantar líka sterkari persónur. Meira
hefði mátt gera úr tilfinningum
Nolte, og samskiptum hans við eig-
inkonu sína og Malkovitch sem
einnig var ástmaður hinnar myrtu.
í stað þess er lögð áhersla á töffara-
skapinn, og hefur þá mörgum ung-
um kvikmyndaunnendanum þótt
vanta blóðugt ofbeldi og hnyttin
tilsvör sem nú eru svo mjög í tísku
þegar að glæpamyndum kemur. Því
ber þó fagna.
Mulholland Falls er ágætis af-
þreying og falleg á að líta, og hefði
betri endir og kröftugri leikstjórn
gert hana að mjög góðri mynd.
Hildur Loftsdóttir
H
í
4
I
4
i
i
i
i
i
(
(
<
HÖFRUNGURINN Flipper og Elijah Wood í hlutverkum sínum.
Misheppn-
að sumar-
ævintýri
Flipper (Flipper)__
Fjölskyldumynd
★r
93 mín. Bandarísk. Universal/CIC
myndbönd 1996. Leikstjórn og
handrit: Alan Shapiro, byggt á sögu
Arthur Weiss. Kvikmyndataka: Bill
Butler. Tónlist: Joel McNeely. Aðal-
hlutverk: Paul Hogan og Elijah
Wood.
AÐ verður seint sagt um íjöl-
skyldumyndina Flipper að þar
séu frumlegheitin látin sitja í fyrir-
rúmi. Öll höfum við áður séð mynd
um unglingsdrenginn sem ekkert
vill heyra og sjá nema rokktónlist
og tölvuspil. Hann lendir í þeim
hörmungum (að honum fínnst í
fyrstu) að vera sendur yfir sumarið
til frænda síns sem býr við frumleg-
ar aðstæður við ströndina. Frænd-
inn tekur drenginn í karphúsið, og
með hjálp góðra kunningja (þar
með talinnar sætrar unglings-
stúlku), höfrunga og töfra náttúr-
unnar tekst honum að lækna dreng-
inn af fylgni hans við hin „ónáttúru-
legu“ gildi unga fólksins í dag.
Margar góðar afþreyingar- og
ævintýramyndir hafa verið gerðar
með heldur þunnum og fyrirsjáan-
legum söguþræði. Galdurinn við
þær myndir er að aðstandendurnir
kunna sitt fag; að fá áhorfandann
til liðs við aðalsöguhetjurnar og
ná þannig fram hjá honum hinum
ýmsu hughrifum. Persónusköpun
er þá oftast góð, og atburðarás
sannfærandi. Það á alls ekki við
hér; klunnaleg og flöt persónu-
sköpun ásamt gloppóttri framvindu
sögunnar verður til þess að áhorf-
andinn getur setið rólegur í sínu
sæti án þess að þurfa að æsa sig
yfir einu né neinu. Tónlistin hefur
hins vegar fengið það hlutverk að
láta áhorfandann vita hvort um
spennu eða hugnæmi sé að ræða,
en þar sem klisjukennd atriðin ná
ekki að undirstrika þær tilfinning-
ar, rennur allt út í sandinn.
Paul Hogan birtist hér aftur í
hlutverki hrjúfa náttúrubarnsins,
og er ágætur sem slíkur, þó að
hann sé kannski ekki eins fyndinn
og vanalega. Allir leikararnir
standa sig þokkalega, og hefðu
sjálfsagt gert betur ef handrit og
leikstjórn hefðu gefið tilefni til.
Kvikmyndatakan er ágæt í flesta
staði, en framleiðandinn hefði þó
átt að splæsa í alvöru neðansjávar-
tökur, í stað þess að pukrast í
stúdíói, það hefði þá alltént verið
þess virði fyrir náttúruunnendur
að fara út á leigu og fá sér Flipper.
Hildur Loftsdóttir
• •
Onnur mynd
Kubricks
LEIKSTJÓRINN Stanley
Kubrick, sem nýlokið hefur
gerð myndarinnar, „Eyes
Wide Shut“, sem er fyrsta
mynd hans í langan tíma
og mikil leynd hefur hvílt
yfir, gefur sér lítinn tíma
til að kasta mæðinni því
hann hefur þegar hafið
gerð næstu myndar, „Art-
ificial Intelligence", en sú
mynd verður ekki eins
stjörnum prýdd og „Eyes
Wide Shut“ en í henni fara
þau Tom Cruise, Nicole
Kidman, Jennifer Jason
Leigh og Harvey Keitel
með hlutverk.
Vildi hita og
Zorro
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
flytja tökustað nýjustu
myndar Melanie Griffith og
Chazz Palminteri, „Largo
’s Reasonable Doubt“, sem
upphaflega átti að taka í
Washington D.C., til Los
Angeles þannig að hin ný-
bakaða móðir og brúður
þyrfti ekki að þola frost-
hörkur Washington-borg-
ar. Einnig vildi hún vera
nær eiginmanni sínum,
Antonio Banderas, sem nú
er að leika hinn grímu- og
skikkjuklædda Zorro í
myndinni „The Mask of
Zorro“ sem verið er að taka
í Mexíkó.