Morgunblaðið - 19.01.1997, Blaðsíða 56
Si ma b a n ki
560 6060
JMtffgunÞlfifrtb gjgtff
aö koma póstinum fejggg^V PÓSTUR 1
þínum til skila 06 SÍMI |
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1
SUNNUDAGUR 19. JANUAR 1997
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
Hluti tölvukerfis Metró Norðman fannst við rannsókn á árás
Árásarmenn taldir
ásælast lausnargjald
LÖGREGLA hefur til rannsóknar
hvort árás sem gerð var á mann á
heimili í Seljahverfi í fyrrakvöld teng-
ist því að tölvukerfi byggingavöru-
verslana Metró Norðman var stolið
í innbroti og að verslunin hefur boð-
ist til að greiða lausnargjald fyrir.
Lögregla hafði þrjá menn í haldi
vegna málsins í gær, þar á meðal
þann sem varð fyrir árásinni. Aðal-
varðstjóri lögreglu staðfesti í gær
að talið væri að árásin tengdist inn-
brotinu.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins kom hluti af þýfinu frá
Metró Norðman í leitimar í Heið-
mörk og Hafnarfirði við rannsókn
lögreglu á þessu máli í fyrrinótt.
Árásin var gerð með þeim hætti
að sex menn á tveimur bílum komu
að húsinu og réðust á íbúa þar með
golfkylfu að vopni. Mennirnir allir -
árásarmennirnir og sá sem fyrir varð
- hafa komið við sögu lögreglu vegna
ýmissa mála.
Heimildarmenn Morgunblaðsins
innan lögreglunnar sögðu í gær að
talið væri að árásarmennirnir hefðu
haft í huga að nema manninn á brott
með sér og þvinga hann til að sýna
þeim þýfíð svo þeir gætu skilað því
og innheimt „lausnargjaldið," sem
verslunarstjóri fyrirtækisins kvaðst
fús til að greiða en vélbúnaður í
tölvukerfi fyrirtækisins var talinn
allt að milljón króna virði, auk þeirra
gagna sem þar voru geymd.
Hjá aðalvarðstjóra lögreglu feng-
ust í gær þær upplýsingar að óvenju-
legar aðstæður hefðu valdið því að
lögreglan gat brugðist óvenjuskjótt
við þegar henni var tilkynnt um árás-
ina.
Átta lögreglumenn höfðu verið að
feija lögreglubíla frá nýju lögreglu-
stöðinni niður í miðbæ og voru á
tveimur bílum í næstu götu og voru
innan við mínútu á staðinn þegar
útkallið barst. Tveir menn til viðbót-
ar voru komnir á vettvang á þriðja
bílnum innan fárra mínútna.
Pjórum árásarmannanna var
sleppt að loknum yfirheyrslum en
tveir voru hafðir í haldi og yfirheyrð-
ir í gær. Árásarþolinn var einnig
settur í fangageymslur eftir aðhlynn-
ingu á slysadeild.
RLR tók við rannsókn málsins í
gærmorgun en rannsóknin þar var
að heflast um hádegi í gær.
Fura hf. flytur út brotajárn til Evrópu
Hagstætt verð
vegna kulda
Á VEGUM Furu hf. er verið að
flytja út tæplega fjögur þúsund
tonn af brotajárni til Bilbao á
Spáni. Utflutningur á brotajárni
er óvenjulegur á þessum árs-
tíma, en vegna óvenju mikilla
vetrarkulda í Evrópu er nú
skortur á brotajárni í álfunni
og það hefur leitt til verðhækk-
ana.
„Það hefur verið lægð í út-
flutningi á brotajárni síðasta
hálfa árið vegna þess að sala á
Asíumarkað hefur dregist sam-
an og vegna þess að gífurlegt
framboð hefur verið á brota-
járni frá Úkraínu. Miklir kuldar
í Evrópu hafa valdið erfiðleik-
um við að flylja brotajárn og
einnig hefur gengið illa að
flokka það og vinna. Við feng-
um fyrirspurn um miðja þessa
viku þar sem óskað var eftir
kaupum á brotajárni strax. Við
áttum á lager á fjórða þúsund
tonn af efni og það vildi svo vel
til að á Grundartanga var skip
að losa hráefni sem við gátum
fengið til að flytja efnið til Spán-
ar,“ sagði Sveinn Magnússon
hjá Furu hf.
Sveinn sagði að vegna þess-
ara sérstöku aðstæðna í Evrópu
núna fengi Fura hf. hagstætt
verð fyrir brotajárnið, en það
er flutt út flokkað og að hluta
til tætt.
Frá því Fura hf. hóf starfsemi
hefur fyrirtækið flutt út rúm-
lega 55 þúsund tonn af brota-
járni. Á síðasta ári nam útflutn-
ingurinn um 13 þúsund tonnum.
Fíkniefna-
menn
snerust til
varnar
TVEIR menn sem höfðu í fórum sín-
um 35 grömm af amfetamíni, stolið
myndbandstæki og hljómflutnings-
tæki, snerust til varnar þegar lög-
regla hugðist handtaka þá í húsi í
miðbæ Reykjavíkur um klukkan 9 í
gærmorgun.
Tveir rannsóknarlögreglumenn frá
lögreglunni í Reykjavík höfðu upplýs-
ingar um að fíkniefni gæti verið að
fínna í húsinu og fóru á staðinn, að
sögn aðalvarðstjóra.
Tveir þekktir afbrotamenn voru í
húsinu og veittu mótspymu. Beittu
lögreglumennirnir svokölluðum
maze-úða, sem verkar svipað og
táragas á skynfæri manna, til þess
að yfírbuga annan mannanna.
í íbúðinni fundust auk 35 gramma
af amfetamíni myndbandstæki, nýtt
og ónotað, sem talið er að hafí verið
stolið í innbroti, og hljómflutnings-
tæki úr bifreið.
Mennirnir tveir eru í haldi.
Loðdýrabú
á kafi í snjó
Vaðbrekku. Jökuldal.
LITLU munaði að þök á loðdýrahús-
um á Teigaseli í Jökuldal hryndu
undan snjóþunga á föstudag. Jóni
Sigurðssyni bónda og nágrönnum
hans tókst þrátt fyrir erfiðar aðstæð-
ur að bjarga húsunum. Húsin eru
þijú og byggð fyrir 300 refalæður.
Loðdýrahúsin eru stálgrindarhús
með timburlangböndum. Á föstu-
dagsmorgun hafði skafíð svo mikið
að húsunum að þakið var farið að
Wfc* síga. A.m.k. eitt langband brotnaði.
Heimamenn settu stoðir undir þakið
þar sem snjóþunginn var mestur og
mokuðu af þakinu. Aðstæður voru
mjög erfiðár þar sem veður var slæmt
og mikill skafrenningur. Vegurinn
að húsunum var ófær og þess vegna
var ekki hægt að koma að stórvirkum
tækjum til að moka frá húsunum.
Vegurinn opnaðist í gær og þá tókst
að moka snjó frá húsunum.
Morgunblaðið/RAX
STARFSMENN Furu hf. hafa unnið hörðum höndum við að koma brotajárninu í skip, en kaupandinn á Spáni bíður eftir því.
Könnun Samkeppnisstofnunar á kaupum VÍS á Skandia lokið
Ekki gripið til aðgerða
SAMKEPPNISSTOFNUN telur
ekki ástæðu til aðgerða vegna
kaupa Vátryggingafélags íslands
á Skandia. Ekki er enn lokið at-
hugun stofnunarinnar á kaupum
Flugleiða á þriðjungshlut í Ferða-
skrifstofu íslands.
Markaðsráðandi staða?
VÍS keypti þrjú félög Skandia
í október á síðasta ári og ákvað
Samkeppnisstofnun þá að kanna
hvort kaupin kynnu að bijóta gegn
ákvæðum samkeppnislaga um
markaðsráðandi stöðu fyrirtækja,
sem leiði til þess að samkeppni
skerðist.
Að sögn Guðmundar Sigurðs-
sonar forstöðumanns samkeppnis-
sviðs Samkeppnisstofnunar hefur
VÍS verið tilkynnt að samkeppnis-
yfirvöld telji ekki ástæðu til að-
gerða.
Samkeppnislög heimila sam-
keppnisráði að ógilda samruna
fyrirtækja eða yfirtöku fyrirtækis
á öðru fyrirtæki telji ráðið að það
leiði til markaðsyfirráða fyrir-
tækisins, dragi verulega úr sam-
keppni eða sé andstætt markmiði
samkeppnislaganna. Þá getur ráð-
ið sett sh'kum samruna eða yfir-
töku skilyrði sem verður að upp-
fylla innan tilskilins tíma.
Samkeppnisstofnun ákvað einn-
ig að kanna hvort nýleg kaup
Flugleiða á þriðjungshlut í Ferða-
skrifstofu Islands kynnu að bijóta
gegn sömu ákvæðum samkeppnis-
laga. Að sögn Guðmundar hefur
niðurstaða ekki fengist en hennar
sé að vænta eftir rúma viku.
Yélsleða-
menní
snjóflóði
SNJÓFLÓÐ féll í grennd við hóp
vélsleðamanna sem voru á ferð
við Hrafnabjargaháls í grennd við
Skjaldbreið í fyrrinótt. Engan
sakaði.
Einn vélsieðamannanna var þó
hætt kominn og dróst í átt að
flóðinu en tókst að sigia ofan á
flóðinu og komast út úr því með
sleða sinn heilu og höldnu, að
sögn lögreglu á Selfossi, sem
hafði verið í símasambandi við
mennina.
Ekki náðist samband við vél-
sleðamennina í gær.