Morgunblaðið - 02.02.1997, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Vikan 26/1 - 1/2
KyaMfll
► AUKINNAR bjartsýni
gætir nú innan samtaka
vinnuveitenda á að skriður
komist á yfirstandandi
kjaraviðræður, þar sem
árangur hefur náðst í ýms-
um sérmálum á seinustu
dögum og viðræður hafa
víða komist á rekspöl, að
sögn Ólafs B. Ólafssonar,
formanns VSÍ.
► KAMBUR HF. á Flateyri
og Básafell hf. á ísafirði
hafa hafið viðræður um
sameiningu fyrirtækjanna.
Sameinað kæmi fyrirtækið
til með að ráða yfir um
11.000 þorskígildistonnum
og yrði meðal stærstu sjáv-
arútvegsfyrirtækja lands-
ins.
► VERÐ á mjólkurkvóta er
nú um 150 kr. lítrinn í við-
skiptum milli bænda og hef-
ur sjaldan eða aldrei verið
hærra. Heildarverðmæti út-
hlutaðs mjólkurkvóta er um
15 milljarðar krónur.
► FRAMKVÆMDASTJÓRI
og eigandi Bifreiðastöðvar
ÞÞÞ á Akranesi hefur verið
dæmdur í 10 mánaða fang-
elsi og til að greiða 40 millj-
óna króna sekt í ríkissjóð
fyrir brot á skattalögum og
skjalafals.
► FLUGLEIÐIR hafa
tilkynnt Samkeppnisstofn-
un að félagið hyggst nýta
sér kauprétt að afganginum
af hlutafé í Ferðaskrifstofu
íslands en áður hafði félag-
ið keypt þriðjungshlut.
Samkeppnisráð kemst að
þeirri niðurstöðu að kaup
Flugleiða feli í sér yfir-
töku. Það leyfir kaupin en
setur félaginu skilyrði í
niu liðum.
Bandaríkín taka ekki
á sig nýjan kostnað
BANDARÍKIN hafa komið á framfæri
við íslenzk stjómvöld þeirri ákvörðun
bandaríska flotans að taka ekki á sig
neinn nýjan kostnað vegna fyrirhug-
aðrar stækkunar Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar eða annarra framkvæmda
á Keflavíkurflugvelli, sem kunna að
verða nauðsynlegar vegna aukinnar
borgaralegrar flugumferðar um völl-
inn. Borgaralegt flug er nú þegar
meirihluti allrar umferðar um Kefla-
víkurflugvöll.
Samherji eignast
Fiskimjöl og lýsi
SAMHERJI hf. hefur eignast öll hluta-
bréf í fyrirtækinu Fiskimjöl og lýsi hf.
í Grindavík. Eftir samninginn ræður
Samherji yfir um 11,1% af sfldarhlut-
deild íslendinga og 10,7% af loðnu-
kvótanum.
Breytt stefna ÁTVR
í TILLÓGUM stjómar Áfengis- og
tóbaksverslunar ríkisins er gert ráð
fyrir verðlækkun á léttum vínum og
bjór, allt að 10%, fjölgun vínbúða og
að rekstur þeirra verði boðinn út.
Stjómin vill að afgreiðslutími verði
lengdur og gert er ráð fyrir því að
áfengisverslanir verði í nálægð við
matvöruverslanir og jafnvel sem sér-
stakar verslanir innan þeirra.
Krapa- og aurflóð
féll á Bíldudal
MESTA mildi var að enginn varð fyrir
stóm krapa- og aurflóði sem féll úr
Gilsbakkagili og á milli íbúðarhúsa á
Bíldudal á þriðjudagskvöld. Það stöðv-
aðist að mestu við brú á þjóðveginum
og dreifðist. Tiltölulega litlar skemmd-
ir urðu á eignum.
Maskhadov kjörinn
forseti Tsjetsjníju
ASLAN Maskhadov, fyrrverandi leið-
togi tsjetsjenskra skæruliða, fór með
sigur af hólmi í forsetakosningunum í
Tsetsjníju á mánu-
dag. Hann hét því
að knýja fram fullt
sjálfstæði Tsjetsjníju
og afla Kákasuslýð-
veldinu alþjóðiegrar
viðurkenningar.
„Árið 1991 ákváðum
við að Tsjetsjníja
væri sjálfstætt ríki
og lýstum yfir full-
veldi. Nú þurfa önnur ríki, þar á með-
al Rússland, að viðurkenna það,“ sagði
hann og kvaðst vilja hefja samninga-
viðræður sem fyrst við rússnesku
stjómina um aðskilnaðinn.
Boris Jeltsín, forseti Rússlands,
fagnaði úrslitunum en var þó varkár.
Hann taldi úrslitin vekja vonir um að
viðræður Rússa og Tsjetsjena bæm
árangur en lagði áherslu á að þær
yrðu að snúast um stöðu Tsjetsjníju
innan rússneska sambandsríkisins.
Mótmælin í Búlgaríu
færast í aukana
STJÓRNARANDSTÆÐINGAR í
Búlgaríu hertu mótmælaaðgerðir sínar
á miðvikudag og höfnuðu tilboði sósíal-
ista, sem sögðust vilja mynda bráða-
birgðastjóm og boða til kosninga innan
þriggja til fimm mánaða. Efnt var til
allsherjarverkfalla og helstu vegunum
til Grikklands og Tyrklands var lokað
með kyrrstæðum leigubflum og stræt-
isvögnum. 250.000 manns lögðu niður
vinnu og hálf önnur milljón Búlgara
tók þátt í ýmsum mótmælaaðgerðum
til að knýja á um að boðað yrði til
kosninga þegar í stað, að sögn sam-
bands óháðra verkalýðsfélaga.
Maskhadov
►►HÆSTIRÉTTUR Pak-
istans úrskurðaði á mið-
vikudag að forseti landsins,
Faroq Leghari, hefði ekki
gerst sekur um lögbrot með
því að rjúfa þingið og víkja
ríkisstjórn Benazir Bhutto
frá í nóvember á liðnu ári.
Bhutto kvaðst tejja að for-
setinn og bráðabirgðastjórn
hans myndu reyna að ganga
af flokki hennar dauðum
með „upplognum morð-
ákærum" á hendur henni
og handtökum á stuðnings-
mönnum hennar. Ákvörðun
dómstólsins merkir að
gengið verður til þingkosn-
inga á morgun, mánudag.
►BORÍS Jeltsín, forseti
Rússlands, frestaði á mánu-
dag ferð sinni til Hollands,
sem fyrirhuguð var á
þriðjudag, að ráði lækna.
Forsetinn fór hins vegar
tvisvar til Kremlar í vikunni
sem leið til að ræða við
embættismenn og talið er
að markmiðið með fundun-
um hafi fyrst og fremst ver-
ið að sýna að forsetinn væri
á góðum batavegi eftir að
hafa fengið lungnabólgu í
kjölfar þjartaskurðaðgerð-
ar í nóvember.
► TALSMAÐUR Banda-
ríkjaforseta sagði á mið-
vikudag að ýmis merki væru
um að hörð valdabarátta
væri nú háð í írak og vísaði
m.a. til frétta um að Saddam
Hussein, forseti landsins,
hefði sett eiginkonu sína í
stofufangelsi. Stjórn Sadd-
ams sagði ekkert hæft i
þessu og sakaði Bandaríkja-
menn um blekkingar og
áróðursherferð á hendur
írak.
FRÉTTIR
Bensínstöðvar stækkað-
ar og vöruval aukið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
UNNIÐ er að stækkun bensínstöðvar Skeljungs í Suðurfelli.
SKELJUNGUR hf. hyggst hefja
sölu á nýlenduvörum í a.m.k. þrem-
ur bensínstöðvum sínum í Reykja-
vík á næstunni. Verið er að endur-
byggja og allt að þrefalda gólfrými
bensínstöðvanna í Suðurfelli og á
Vesturlandsvegi. Gólfrýmið verður
um 200 fermetrar í hvorri verslun.
Auk þess er ráðgert að hefja sölu
á matvöru í bensínstöðinni við
Öskjuhlíð. Hugsanlegt er að versl-
anirnar verði opnar allan sólar-
hringinn.
Kristinn Björnsson, forstjóri
Skeljungs, segir að ætlunin sé að
vera með meiri verslunarrekstur á
þessum stöðvum en verið hefur.
Shell er með slíkan rekstur í um-
talsverðum mæli í Norður-Evrópu
undir nafninu Select.
Opnað í febrúar á
Vesturlandsvegi
„Þar er boðið upp á um það bil
80% af þessari dæmigerðu inn-
kaupakörfu sem neytendur kaupa
inn og teljast til daglegra nauð-
synja. Shell International telur rök-
rétt að álykta að u.þ.b. helmingur
af veltu bensínstöðva verði af ann-
arri vöru en olíuvöru um aldamót-
in. Við erum að fylgja þessari þró-
un eftir,“ sagði Kristinn.
Núna kemur liðlega 30% af veltu
bensínstöðva Skeljungs af öðrum
vörum en bifreiðavörum.
„Við teljum okkur vera að koma
með algjöra nýjung inn á markað-
inn. Af þessum sökum þurfum við
að stækka stöðvamar og skipta
rýminu milli olíuvaranna og ann-
arrar vöm. Menn munu sjá ýmsar
nýjungar þegar stöðvarnar verða
opnaðar. Við teljum að þetta verði
eitthvað í líkingu við kaupmanninn
á horninu," sagði Kristinn.
Stefnt er að því að endurbyggð
bensínstöð við Vesturlandsveginn
verði opnuð í lok febrúar og stöðin
við Suðurfell um mánaðamótin
apríl-maí. Um svipað leyti verður
stöðin í Öskjuhlíð opnuð með
breyttu sniði.
Kristinn segir að stefnt sé að
því að hafa annan opnunartíma á
þessum stöðvum en almennt gildir.
„Þar sem þessi verslunarmáti er
kominn lengst em þær opnar allan
sólarhringinn alla daga vikunnar.
Við erum að velta því fyrir okkur
hve lengi við getum haft þær opnar
og það er í raun aðeins samnings-
atriði milli fyrirtækisins og starfs-
manna,“ sagði Kristinn.
Hjúkrunarheimiii fyrir 26 aldraða byggt í Hveragerði
Grund greiðir bygginguna
Hveragerði. Morgunblaðið.
TILBOÐ forsvarsmanna Elliheimil-
isins .Grundar um byggingu
hjúkmnarheimilis í Hveragerði hef-
ur verið samþykkt bæði í heilbrigð-
is- og fjármálaráðuneytinu. Bygg-
ing hússins mun því hefjast í byij-
un apríl. Hjúkrunarheimilið, sem
mun skapa um 30 ný störf í Hvera-
gerði, verður rekið í tengslum við
Dvalarheimilið Ás/Ásbyrgi sem
Elliheimilið Gmnd á og rekur nú
þegar í bæjarfélaginu. Hveragerð-
isbær hefur samþykkt staðsetningu
heimilisins er verður við Hverahlíð
á lóð milli skrifstofuhúss Hvera-
gerðisbæjar og Hveragerðiskirkju.
Að sögn Gísla Páls Pálssonar
framkvæmdastjóra Dvalarheimilis-
ins Áss mun Gmnd alfarið fjár-
magna byggingu hjúkmnarheim-
ilisins sem og húsbúnað allan. Rík-
ið mun hins vegar taka þátt í
rekstrarkostnaði eins og gert er á
sambærilegum stofnunum. Kostn-
aðaráætlun fyrir bygginguna hljóð-
ar upp á 230 milljónir.
„Það er gleðilegt að tilboð okkar
skuli hafa fengið svo jákvæða um-
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdðttir
GÍSLI Páll Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Dvalarheim-
ilisins Áss, með lóð hjúkr-
unarheimilisins í baksýn.
fjöllun sem raun hefur orðið. Við
teljum okkur gera ríkinu mjög gott
tilboð. Venjan er að hið opinbera
fjármagni 60 prósent af byggingar-
kostnaði við stofnanir sem þessar,
en sveitarfélögin eða byggingar-
aðilinn 40 prósent. Hér bjóðumst
við til að fjármagna bygginguna
alfarið. Dvalarheimilið Ás og Elli-
heimilið Grund hafa verið með ein
lægstu daggjöld sem þekkjast hér
og því ætti rekstur á hjúkrunar-
heimilinu einnig að vera hinu opin-
bera hagstæður," sagði Gísli Páll.
Skortur er á hjúkrunarrými jafnt
á Suðurlandi sem annars staðar.
Bygging hjúkrunarheimilisins í
Hveragerði er því kærkomin viðbót
við þær stofnanir sem fyrir eru. í
Hveragerði hefur ekki fyrr verið
heimili fyrir langlegusjúklinga og
því gjörbreytir tilkoma hjúkrunar-
heimilisins aðstöðu þessa fólks.
Hjúkrunarheimilið verður á
tveimur hæðum, alls um 1.500 fm
og mun geta hýst 26 manns. Einn-
ig verður þar ýmis aðstaða sem
nýtast mun öðrum íbúum Dvalar-
heimilisins, svo sem aðstaða fyrir
hjúkrunarfræðing og lækni, að-
staða fyrir hár- og fótsnyrtingu og
aðstaða fyrir sjúkraþjálfun. Fyrir-
hugað er að taka hjúkrunarrýmið
í notkun síðari hluta árs 1998.
Nauðungaruppboð á hlut í Miðbæ Hafnarfjarðar
Bærinn kaupir á 24,8 millj.
BÆJARSJÓÐUR Hafnarfjarðar
hefur keypt á nauðungaruppboði
rúmlega 458 fermetra eignarhlut í
Miðbæ Hafnarfjarðar fyrir 24,8
milljónir. Miðað við að 80 þúsund
krónur fáist fyrir fermetrann er
verðmæti eignarinnar 36,7 milljón-
ir að mati bæjarlögmanns og fjár-
málastjóra.
I minnisblaði, sem lagt hefur ver-
ið fram í bæjarráði kemur fram að
eignin er keypt til að forða 10,1
milljónar króna tapi bæjarsjóðs
vegna eignarhlutans en bæjar-
ábyrgð er á veðkröfu á þriðja veð-
rétti. Að mati bæjarlögmanns og
fjármálastjóra er verð eignarhluta í
húsinu ekki enn fastmótað en með
tilliti til áætlaðs söluverðs miðað við
sambærilegar eignir í húsinu gæti
fermetraverið verið á bilinu 80-90
þús. á eignarhlutanum.
Samkvæmt því mun 10,1
milljónar krónu krafa bæjarsjóðs
greiðast að hluta eða jafnvel að
fuliu við endursölu. Bent er á að
ef ekki hefði komið til kaupanna
hefði bæjasjóður þurft að afskrifa
þessa kröfu að fullu.
Standa skil á 34,9 miiy.
í bókun Magnúsar Jóns Árna-
sonar, Alþýðubandalagi og Magn-
úsar Gunnarssonar, Sjálfstæðis-
flokki í bæjarráði, er bent á að
bærinn hafi keypt eignina fyrir
24,8 milljónirtil að veija 10,1 millj-
ón og að bærinn þurfi því að standa
skil á 34,9 milljónum. Jafnframt
hafí verið upplýst á fundi bæjar-
ráðs að fyrra uppboðið hafi farið
fram fyrir nokkrum vikum. Átalið
er að þrátt fyrir það hafi bæjar-
stjóri ekki upplýst bæjarfulltrúa um
stöðu mála.
„Þá vekur athygli að umrædd
veðkrafa, sem bærinn telur sig
vera að veija að upphæð 10,1 millj-
ón króna hvíldi áður á skrifstofut-
urni hússins en var flutt þann 9.2.
’96 með þeim rökstuðningi að
þannig væri hag bæjarins betur
borgið. Annað hefur komið í ljós,“
segir í bókuninni.