Morgunblaðið - 02.02.1997, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 02.02.1997, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÁLL HILMAR KOLBEINS, rafvirkjameistari, Gljúfraseli 10, Reykjavik, lést á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur föstudaginn 31. janúar. Hetga S. Claessen, Hilmar Örn Kolbeins, Jóhann Emil Kolbeins, Helga Kristin Kolbeins, Arnar G. Hjaltalin, Ásgeir Helgi Hjaltalín. t Hjartans þakkir fyrir vináttu og samúð við andlát og útför föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, HARALDAR Þ. JÓHANNESSONAR fyrrv. lögregluþjóns, Gunnarsbraut 36, Reykjavík. Sérstakar þakkir til Lögreglukórs Reykja- víkur og starfsfólks 5. hæðar á Skjóli. Jóhanna Haraldsdóttir, Málfrfður Haraldsdóttir, Margrímur G. Haraldsson og fjölskyldur. t Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og þróðir, E. KRISTINN CLAUSEN, sem andaðist í Floro í Noregi 20. janúar, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju mánudaginn 3. febrúar kl. 13.30. Ragnheiður Blandon, Hrund Clausen, Ola Waage, Ole K. Clausen, Kristin Clausen, Ragnar Steinn Clausen, Hörður Þ. Sigurðsson, Þorsteinn Kristinsson, barnabörn og systkini. t Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför tengdamóður minnar, ömmu okkar og langömmu, MAGNHILDAR VILBORGAR JÓNSDÓTTUR, áður til heimilis á Vesturgötu 93, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks á dvalar- heimilinu Höfða, Akranesi. Elísabet Karlsdóttir. Hulda Björk Ragnarsdóttir, Magnús Ólafur Kristjánsson, Sigurður Karl Ragnarsson, Magni Ragnarsson, Vignir Ragnarsson, Ragnheiður, Ólöf Lilja, Jóhann Bjarki og Hildur Sólveig. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar end- urgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins 1 Kaupvangs- stræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (5691115) og í tölvupósti (MBL@CENTRUM.IS). Um hvem látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfí- legri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfílega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skímamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali ern nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslu- kerfín Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. MINNINGAR PÁLÍNA ÞÓRUNN MA GNÚSDÓTTIR + Pálína Þórunn Magnúsdóttir fæddist í Reykjavík 22. júlí 1929. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 19. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Siguijóna Soffía Siguijóns- dóttir frá Saltvík á Kjalarnesi og Magnús Jónsson frá Snjallsteinshöfða í Landsveit. Systkini Pálínu eru: Sigrún Lina, látin, Hulda Ragna, Siuijóna Gyða, Sigur- jón, látinn, og Guðmundína. Hinn 2. desember 1950 giftist Pálína eftirlifandi eiginmanni sinum, Jóni Þórarni Siguijóns- syni, f. 2. mars 1927. Börn þeirra eru: 1) Margrét, f. 4. apríl 1949, maki Páll Viðar og eiga þau fjögur böm: Björgvin Þór, Rósu Kristínu, Jón Þór og Pálínu Þómnni. 2) Valdís, f. 22. apríl 1951, maki Ólafur Jón, böm: Guðrún Áslaug, Hulda Ragna og Valur Guðjón. 3) Siguijón, f. 12. september 1958, maki Ásta, börn: __ Steinþór Árni, Árni Jón og Eva Mtjöll. 4) Elín, f. 23. september 1960, maki Karl Kristján og eiga þau þijú _ böm: Bjarna, írisi Ósk og Pálma Þór. 5) Guðlaug, f. 6. maí 1962, sambýlismaður Jón Sigurbjöm, böra: Elías Þór og Magnús Viðar. Uppeldisdóttir Pálínu og Jóns er Guðrún Ás- laug, f. 20. október 1967, sam- býlismaður Jón Már og eiga þau einn son, Ólaf Frey. Útför Pálínu fór fram í kyrr- þey að ósk hinnar látnu. Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar hefur nú sofnað svefninum langa. Fráfall hennar er mikið áfall fyrir okkur öll, en stuðningur okkar í sorginni eru allar þær fallegu og hugljúfu minningar sem við eigum um hana. Pálína tileinkaði fjölskyldunni líf sitt. Hún gerðist heimavinnandi hús- móðir til þess að geta hugsað sem best um eiginmann sinn, böm og heimili og gerði það vel. Þannig var hún, hugsaði alltaf fyrst um aðra og síðan sjálfa sig. Þegar við fréttum að elsku eigin- kona mín og móðir okkar, væri með erfiðan sjúkdóm og ætti ekki langt pftir lifað þá var eins og tilgangs- leysi og tómleiki fyllti líf okkar. Maður spyr: „ Af hveiju hún?“ Hún sem var miðpunktur í lífi okkar og var alltaf til staðar þegar á þurfti að halda, hún sem alltaf var svo dugleg og sterk, hún sem hugsaði meira um aðra en sjálfa sig og á hún þakkir skilið fyrir allt sem hún gerði fyrir okkur. Það er okkur ómetanlegt og gleymist aldrei. Fyrir rúmi ári hófst barátta Pálínu við sjúkdóminn sem hún hafði geng- ið með svo lengi. Þegar við fréttum að sjúkdómur hennar var langt genginn og hún var orðin mikið veik, dró það allan þrótt úr okkur. Síð- ustu þrír mánuðimir vom henni mjög erfiðir, en alltaf barðist hún eins og hetja. Við reyndum eftir fremsta megni að styðja hana í bar- áttu hennar. Þetta vom erfiðar stundir en dýrmætar. Hún gat alltaf látið okkur brosa í gegnum tárin. Þú varst og ert yndisleg móðir og eiginkona. Við munum aldrei gleyma þér. Við söknum þín og minningin um þig mun ávallt lifa í hjörtum okkar. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sðlin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt sem Guði er frá. Nú héðan lík skal hefja, ei hér má lengur teQa í dauðans dimmum dal. Úr inni harms og hryggða til helgra Ijóssins byggða far vel í Guðs þíns gleðisal. (V. Briem.) Jón Þórarinn, Margrét, Valdís, Siguijón, Elín og Guðlaug. Stórt skarð í tilveru mína er höggv- ið með fráfalli elsku ömmu minnar. Eftir langvarandi veikindi hefur hún loks hlotið hina hinstu hvíld. Það kom mér ekki á óvart þegar móðir mín hringdi í mig snemma á sunnudags- morgni og sagði mér þær sorglegu fréttir að Pálíamma væri dáin. I bijósti mér börðust blendnar tilfinn- ingar, annars vegar léttir að nú væri amma komin til betri staðar, laus við veikindi og kvalir sem hún hafði bar- ist svo hetjulega við og hins vegar sorg, söknuður og missir. Eg var þeirrar gæfu aðnjótandi að alast upp hjá ömmu og afa á „Grundó" og átti því margar góðar stundir með ömmu. Amma gaf sér alltaf tíma fyrir yngstu kynslóðina í fjölskyldunni. Margar góðar minning- ar á ég þegar við kubbuðum, spiluð- um og lituðum saman. Þegar ég elt- ist kenndi hún mér að lesa. Hún taldi í mig kjark þegar ég fór til tannlækn- is í fyrsta skipti og huggaði mig þegar eitthvað bjátaði á. Það var alltaf gott að koma á Grundarstíginn til ömmu, hún var fastur punktur i tilveru minni og var alltaf til staðar þegar á þurfti að halda. Hvenær sem var gat ég leitað til hennar, hvort sem um stuðning, hjálp eða öxl til að gráta við var um að ræða. Hún var alltaf til staðar, Erndrykkjur (iliusilojn kaH'i- hlaúborO, lallt'tpr salir o<i nijiii» )>o0 |)jonus(a, llpplvsinoar i símiim 5050 ‘>25 0)4 502 7575 HOTEL LQFTLEIÐIR, ICItAMOAlH__M O T 1 t 1 ERFI drykk.hr Láúð okkur annast erfidrykkjuna. Fyrsta flokks þjónusta og veitingar. Rúmgóð og þœgileg salarkynni. Upplýsingar í síma 552-9900 alltaf reiðubúin að hlusta og gefá ráðleggingar. Það sem einkenndi ömmu mína var hennar eðlislæga góðmennska við alla, hún var létt í lundu og gaf mikið af sér án þess að krefjast neins í staðinn. Hún var ávallt ung í anda og fylgdist vel með. Amma var besta sál sem ég hef kynnst og er ég þakklát fyrir að hafa fengið að þekkja hana í öll þessi ár. Með sorg í hjarta og tár í augum kveð ég þig í hinsta sinn elsku amma mín, ég mun aldrei gleyma þér. Áslaug. Elsku amma mín er dáin. í hug- anum heyri ég Pálíömmu kalla á mig: Voter, Voter. Amma kallaði mig alltaf Voter. Afhveiju veit ég ekki. Stundum sönglaði hún, Voter Voter everywhere, platan fæst í Vesturver. Þetta hafði almennt enga sérstaka merkingu en mér hefur allt- af þótt vænt um gælunafnið sem mér var gefíð af ömmu og afa. Páliamma var engin venjuleg amma. Það sem henni datt í hug var framkvæmt. Einn daginn lang- aði hana að læra að spila á orgel og það var keypt. Næstu mánuði sat hún síðan og spilaði á orgelið, afa til blendinnar ánægju! Því næst varð leikjatölva fyrir valinu og það kunnu yngstu barnabömin vel að meta. Hennar áhugi á tónlist var ekki eins og hjá öðru eldra fólki. Hjá ömmu voru Bubbi Morthens og Freddy Mercury í miklu uppáhaldi. Hún eyddi líka mörgum stundum í að dansa og syngja með þeirra tón- list og þá var hátt spilað. Það var alltaf hægt að treysta á vemdarvæng ömmu. Ef eitthvað bjátaði á, þá átti maður vísan stað á heimili hennar. Elsku amma mín, ég þakka þér fyrir allar þær stundir sem við áttum saman. Þú ert ein sú besta og hjartahlýjasta manneskja sem ég hef kynnst. Þinn innri maður var jafn fagur og sá ytri. „Þeir deyja ungir sem guðimir elska“. Amma mín var ekki ung en hún skildi of fljótt við okkur, ástvini sína. Við hefðum viljað njóta nær- vem hennar lengur. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem.) Hulda. Elsku amma, það er erfitt að trúa því að þú skulir vera farin frá okk- ur, þú sem varst alltaf svo góð við okkur. Alltaf þegar við komum á „Grundó" með svanga maga var allt- af nóg til, þú varst svo gjafmild og góð og þótti okkur mjög vænt um þig. Þess vegna eigum við bágt með að trúa því að þú skulir vera farin frá okkur og komir ekki aftur. Það verður tómlegt að koma á Grundarstíginn þegar þig vantar. Það var alltaf gaman að koma til þín, þú gafst þér alltaf tíma fyrir okkur. Þær voru margar stundimar sem við átt- um með þér við eldhúsborðið á „Grundó" við að spila og kubba. Þetta em ógleymanlegar stundir sem við geymum í hjarta okkar. Elsku amma okkar, þín er sárt saknað og megi Guð vera með þér. w ti iö érum vaktSnni il 22.00 d Ib LYFJA I «1 Lágmúla 5 Sími 533 2300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.