Morgunblaðið - 02.02.1997, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997 11
hækkunar flutningsgjalda, eins og fram kom
á þeim tíma í Morgunblaðinu. Við ætluðum
þá að hefja samstarf við erlenda aðila og
stefndum að því strax i upphafi. Hins vegar
gátum við ekki tekið flutningana í gegnum
E\rópu vegna þess að skip okkar voru of lít-
il. Jafnframt voru tengingar okkar í Evrópu
ekki nægjanlega góðar. Við þurftum því að
stækka skipin og hófum að sigla til Brem-
erhaven í stað Hamborgar áður.
Á þessu ári hefur verið settur kvóti á veið-
ar íslenskra skipa á Flæmska hattinum þann-
ig að þær minnka fyrirsjáanlega úr 20 þús-
und tonnum í 7 þúsund tonn á milli ára.
Þessi 7 þúsund tonn verða varla flutt með
flutilingaskipum þvi væntanlega munu frysti-
skip veiða þau og sigla sjálf með aflann heim.
I ofanálag eru íslenskar sjávarafurðir hf.
að flytja sínar höfuðstöðvar og birgðastöðvar
í Bandaríkjunum frá Gloucester og Harris-
burg niður til Norfolk. Okkar skip hafa hins
vegar ekki siglt niður til Norfolk. Við stóðum
því frammi fyrir þvi að sigla á fjögurra vikna
fresti í stað þriggja vikna og halda áfram
að auka flutninga í gegnum Evrópu. Það
hefði hins vegar þýtt að við hefðum tekið
mikla fragt frá okkar aðalskipi til Bandaríkj-
anna og þannig á vissan hátt verið í sam-
keppni við okkur sjálfa.
Við ákváðum því að ræða við þá tvo aðila
sem sigla á þessari flutningaleið, Van Omm-
eren og Eimskip sem reyndust báðir mjög
áhugasamir um viðskipti við okkur. Fyrir
höfðum við samning við Van Ommeren og
nýtum allt þeirra rými sem ekki fer undir
flutninga fyrir Varnarliðið. Van Ommeren
bauðst til að hefja siglingar með stærra skipi
og það kom mjög vel til greina. Eimskip
bauð okkur hins vegar samning sem var án
magntakmarkana og þeirra skilmála sem við
vorum ósáttir við í síðustu samningaviðræð-
um. Niðurstaðan var sú að hefja samstarf
við Eimskip með þann hluta flutninganna sem
við munum ekki taka í gegnum Evrópu. Við
getum alveg kinnroðalaust keypt rými af
Eimskip. Þetta er samningur til 18 mánaða
þannig að hægt er að leita annarra leiða ef
við teljum okkur standa frammi fyrir einhveij-
um afarkostum."
Samkeppnin í flutningum yfir
N-Atlantshafið að aukast
„Þessi markaður er stöðugt að breytast,"
segir Þórður Sverrisson, framkvæmdastjóri
flutningasviðs Eimskips, þegar hann er
spurður um rökin fyrir samstarfínu við Sam-
skip. „Það eru ýmis tilefni til þessa eins og
t.d. það að flutningur á frystivöru til Banda-
ríkjanna hefur frekar verið að minnka. I öðru
lagi voru miklir flutningar í tengslum við
veiðar íslenskra skipa á Flæmska hattinum
á síðasta ári, en nú er fyrirsjáanlegt að þeir
verða ekki á þessu ári. I þriðja lagi er sam-
keppnin á Norður-Atlantshafinu stöðugt að
aukast. Við erum einfaldlega að keppa í sigl-
ingum beint frá íslandi við fyrirtæki sem sigla
frá Evrópuhöfnum. Það kom því upp sú hug-
mynd hvort hægt væri að auka hagkvæmni
í flutningunum milli íslands og Bandaríkj-
anna.
Okkar viðskiptavinir auka stöðugt sínar
kröfur og veita okkur mikið aðhald varðandi
lækkun flutningsgjalda. Þær breytingar sem
við höfum nú gert í Ameríkusiglingum eru
liður í því að lækka kostnaðinn og hagræða
í okkar rekstri.“
Eins og fyrr segir slitnaði upp úr samning-
um Eimskips og Samskipa árið 1995, þar sem
félögin komu sér hvorki saman um flutnings-
rými eða flutningsgjöld. Því vaknar sú spurn-
ing hvað hafi breyst nú. „Þessi samningur
er byggður á öðrum skilmálum en sá fyrri
og því verulega breyttur. Kjör í þessum samn-
ingi eru i samræmi við það sem við stefndum
að og því tókust samningar," svarar Þórður.
Kaup á Hofsjökli komu ekki á óvart
Það kom ekki mjög á óvart á flutninga-
markaði þegar tilkynnt var um kaup Eim-
skips á frystiskipinu Hofsjöki af dótturfélagi
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna (SH),
Jöklum hf., á dögunum og að SH hefði sam-
ið við Eimskip um að annast flutninga á fryst-
um sjávarafurðum til Bandaríkjanna. Hofs-
jökull var kominn til ára sinna og SH stóð
frammi fyrir því að fjárfesta í nýrra skipi eða
fela öðrum aðila að annast flutninga á afurð-
um sínum til Bandaríkjanna. Jöklar hafa jafn-
framt verið að taka við nýjum verkefnum frá
SH, t.d. fjárfestingum í hlutabréfum sjávarút-
vegsfyrirtækja og samningagerð. Þá blasir
við að náin tengsl eru á milli SH og Eim-
skips, eins og glöggt hefur mátt sjá af um-
svifum fyrirtækjanna í tengslum við Útgerð-
arfélag Akureyringa hf.
Flutningar SH til Bandaríkjanna styrkja
stöðu Eimskips á þessari siglingaleið, enda
höfðu Jöklar um þriðjungs markaðshlutdeild
frá árinu 1994, ef flutningar fyrir Varnarlið-
ið eru undanskildir og flutningar til Kanada.
Nemur árlegt flutningsmagn um 20 þúsund
tonnum.
Eimskip tók formlega við Hofsjökli af Jökl-
um hf. á mánudag og fékk skipið nafnið
Stuðlafoss. Það verður í siglingum milli Norð-
ur-Noregs, Bandaríkjanna og Kanada með
viðkomu á íslandi. Þórður Sverrisson segir að
Eimskip hafi á síðasta ári verið með frystiskip
í þessum siglingum frá því um mitt siðastliðið
ár. Þar var um að ræða danskt leiguskip, Ice-
bird, sem hefur verið skilað til eigendanna.
„Þessar siglingar gengu ágætlega í fyrra og
við ætlum að halda áfram að vinna á þessum
mörkuðum. Hluti af frystivörunni héðan verð-
ur fluttur með Hofsjökli, en við gerum ráð
fýrir að meginhlutinn fari í gámum.“
Lakari afkoma af flutningum
Það hefur vakið sérstaka athygli að skipa-
félögin tvö lögðu á ný þjónustugjöld vegna
inn- og útflutnings um svipað leyti og til-
kynnt var um samstarf þeirra á Ameríkuleið-
inni. Hjá Eimskip er um að ræða 460 króna
afgreiðslugjald á hveija sendingu í flutningi
stykkjavöru og 980 króna gámagjald í inn-
flutningi. Hin nýju gjöld Samskipa eru nær
hin sömu. Einnig innheimtir Eimskip nú 880
króna gjald fyrir að útbúa farmskjöl ef út-
fyllt fyrirmæli fylgja, en annars er gjaldið
1.760 krónur. Innflytjendur hafa rifjað upp
að Eimskip hafi einnig hækkað almenna
flutningstaxta í nóvembermánuði um 2,9%
og Samskip hafi skömmu síðar hækkað um
3%.
Hafa líkur verið leiddar að því að þessa
nýju gjaldtöku Eimskips megi rekja til þess
að afkoma félagsins á árinu 1996 af flutning-
um hafi verið lakari en árið 1995. Þrýstingur
hafi verið á flutningsgjöldin á sama tíma og
kostnaður hafi hækkað eða staðið í stað. I
því sambandi má benda á að rekstrarafkoma
Eimskips án tillits til fjármagnsliða varð um
160 milljónum lakari á fýrri helmingi ársins,
en á sama tímabili á árinu 1995. Góð útkoma
leiðis hafa fylgt í kjölfarið í þessu efni. í sjálfu
sér er það ekkert óvanalegt á sambærilegum
mörkuðum að minni aðilinn fylgi þeim stærri
eftir við svona breytingar."
Baldur Guðnason, framkvæmdastjóri
flutningasviðs Samskipa, sagði í sömu frétt
að umboðsmenn skipafélaga erlendis inn-
heimtu þjónustugjald fyrir póstburð, fax,
síma og aðra slíka þjónustu. „Þetta er al-
gengt í þessum viðskiptum erlendis en hefur
ekki tíðkast hér á landi. Kröfur viðskiptavina
hafa verið að aukast undanfarin ár um upp-
lýsingar og þjónustu. Allir innfiytjendur fá
tilkynningu senda á faxi og við tökum á
okkur kostnað vegna DHL-sendinga. Hins
vegar höfum við ekki treyst okkur til að leggja
á slík gjöld einir, en töldum eðlilegt að fylgja
í kjölfarið eftir að Eimskip hóf innheimtu
þessara gjalda."
Félag íslenskra stórkaupmanna og Kaup-
mannasamtök íslands hafa nú þegar sent
formlegar athugasemdir við nýju þjónustu-
gjöldin til skipafélaganna og óskað eftir að
Samkeppnisstofnun taki málið til athugunar.
Telja samtökin Ijóst að hin nýju gjöld valdi
hækkun heildarflutningskostnaðar, enda hafi
ekki verið tilkynnt um samsvarandi lækkun
annarra flutningsgjalda.
Ekki hægt að loka landinu
eins og fyrr á öldum
En að þessu sögðu stendur eftir sú spurn-
ing hvort þær breytingar sem orðið hafa und-
anfamar vikur og mánuði á flutningamarkaðn-
um kunni að vera undanfari minnkandi sam-
keppni sem gæti komið fram í hækkandi flutn-
ingsgjöldum. Þegar spurt er um hættu á
minnkandi samkeppni bendir Þórður Sverris-
son á að hægt sé að flytja milli íslands og
Bandaríkjanna með Eimskip, en einnig flytji
félagið fýrir Samskip svo og gáma fyrir Flutn-
ingsmiðlunina Jóna. í öðm lagi sé hægt að
fjármagnsliða gerði hins vegar gott betur en
að vega þar á móti þannig að hagnaður af
reglulegri starfsemi jókst milli ára um 10%.
Þá er fullyrt að afkoma af rekstri Samskipa
hafi verið lakari í fyrra en árið 1995.
Þórður Sverrisson rökstuddi gjaldtökuna á
þann veg í frétt Morgunblaðsins á þriðjudag
að félagið hafi tekið í notkun nýtt gjaldskrár-
kerfi fyrir rúmu ári sem kynnt hafi verið
rækilega hjá stórkaupmönnum og iðnrekend-
um. „Gjaldskrárkerfin eru byggð þannig upp
að menn greiða eingöngu gjald eftir þunga
eða rúmmáli. Hins vegar er talsverður kostn-
aður við hveija sendingu án tillits til magns
og þess vegna töldum við eðlilegt að taka
upp þjónustugjald fyrir hveija sendingu. Slíkt
gjald er þekkt. í mörgum greinum, bæði hjá
tryggingafélögum, bönkum og ýmsum öðrum
þjónustufyrirtækjum. Þetta gjald settum við
á núna í byijun ársins til þess að mæta vax-
andi kostnaði við hveija sendingu.
Samskip hafa fylgt í kjölfar okkar á ýms-
an hátt á liðnum misserum og virðast sömu-
flytja með banda-
ríska skipafélag-
inu Van Ommer-
en og í þriðja lagi
um Evrópuhafn-
ir.
„Ég vil einnig
rifla það upp að
ekkert gáma-
skipafélag heldur
uppi beinum sigl-
ingum á milli
Noregs og
Bandaríkjanna.
Það er heldur
ekkert skipafé-
lag sem heldur
uppi beinum sigl-
ingum milli Dan-
merkur og
Bandaríkjanna.
Aðeins eitt skipafélag heldur uppi siglingum
frá Gautaborg til Bandaríkjanna og því að-
eins eitt félag á hinum Norðurlöndunum með
sambærilega þjónustu eins og við hér á ís-
landi. í þessum löndum talar þó enginn um
einokun í flutningum til Ameríku. í okkar
Ameríkusiglingum erum við einfaldlega í
harðri samkeppni við stóru skipafélögin á
Norður-Atlantshafinu. Það er því misskilning-
ur að halda þvi fram að ekki sé samkeppni
á þessari siglingaleið eins og öðrum til og
frá landinu. Heimurinn er ekki lengur þannig
að hægt sé að loka landinu eins og fyrr á
öldum.“
Þá bendir Ólafur Ólafsson á að Samskip
geti núna boðið sjö brottfarir í mánuði, þ.e.
íj'órar ferðir með Maersk, eina ferð með Van
Ömmeren og tvær með Eimskip. „Viðskipta-
vinurinn hefur valkosti. Ef stórkaupmenn sem
flytja með okkur vilja ekki láta flytja vöruna
með Eimskip, þá getum við boðið upp á fimm
ferðir í mánuði með öðrum aðilum.“
Hann bætir því við að flutningsleggurinn
yfir hafíð sé einungis hluti af þjónustu félags-
ins því Samskip eigi alla gámana, upplýsinga-
kerfið, það sjái um alla forflutninga, söfnun
innanlands, alla dreifingu erlendis o.s.frv.
„Menn verða einnig að muna það að flutning-
arnir til Bandaríkjanna eru innan við 5% af
okkar viðskiptum og 95% af þeim eru annars-
staðar. Flutningar okkar með flugi eru t.d.
um 50% af Ameríkuflutningunum."
Innflytjendur hræddir við
að styggja skipafélögin
Innflytjendur og útflytjendur reyndust ákaf-
lega tregir til að tjá sig opinberlega undir
nafni um viðhorf sín til skipafélaganna. All-
margir aðilar í þessum hópi sögðu í samtölum
við Morgunblaðið að þeir væru eðlilega mjög
háðir skipafélögunum í viðskiptum og gætu
ekki tekið þá áhættu að styggja þau með
ummælum sínum. Þó kvaðst Sigfús Sigfússon,
forstjóri Heklu hf., vera óhræddur við að lýsa
skoðunum sínum á Eimskip og Samskipum.
„Ég er mjög ósáttur við þróunina á flutninga-
markaðnum. Hekla er í viðskiptum við bæði
fyrirtækin og við erum mjög ánægð með þjón-
ustu þeirra beggja. Hins vegar óttast ég að
flutningsgjöldin eigi eftir að hækka vegna
þess að engin raunveruleg samkeppni virðist
vera markaðnum. Samkeppnin veitir fyrir-
tækjum nauðsynlegt aðhald og hvetur þau til
að leita alltaf hagkvæmustu leiða.“
Sigfús sagðist telja að hin nýju þjónustu-
gjöld skipafélaganna væru afleiðing af
minnkandi samkeppni, því það væru engin
ný sannindi að í skjóli einokunar eða vegna
skorts á samkeppni væru neytendur látnir
greiða óeðlilega hátt verð fyrir vöru og þjón-
ustu. „Fáar þjóðir þekkja betur en við Islend-
ingar hveijar afleiðingar einokunar eru og
satt að segja hélt ég að við sigldum inn í
21. öldina undir fánum frjálsrar samkeppni
en ekki einokunar."
„Dulbúin hækkun á flutningsgjöldum“
Aðrir innflytjendur og raunar einnig út-
flytjendur, sem Morgunblaðið ræddi við, tóku
í svipaðan streng og lýstu því yfir að mjög
brýn nauðsyn væri á mikilli samkeppni á ís-
lenska flutningamarkaðnum. Ef samkeppni
yrði ekki fyrir hendi á milli tveggja eða fleiri
íslenskra félaga yrði kallað eftir henni utan
frá. Raunar var í einstökum tilvikum bent á
að innflytjendur hefðu skipt flutningum sín-
um milli skipafélaganna eingöngu til að
leggja samkeppninrii Iið. Þar að auki kom
fram að það sé engan veginn ákjósanleg staða
fyrir Eimskip að búa við takmarkaða sam-
keppni, því fylgifiskar slíkrar stöðu væri afar
neikvæð umræða og tortryggni.
Bent er á að mikil hagræðing hafi orðið í
verslun á undanförnum árum. Þar ríkti mikil
samkeppni á sama tíma og lítil samkeppni
eða jafnvel einokun virtist nú ríkja á flutn-
ingssviðinu. Samskip hefðu engan veginn
getað beitt sér af krafti í samkeppninni vegna
veikrar eiginfjárstöðu sinnar. Félaginu sé
skömmtuð 25% markaðshlutdeild, en Eimskip
ætli sér að halda öðrum flutningum og ráði
lögum og lofum á markaðnum. Þessir aðilar
segja þó margir hveijir jafnframt að þjónusta
skipafélaganna sé góð, en nefnt var að þau
væru sifellt að finna upp á nýjum gjöldum.
Það virðist vera útbreidd skoðun í röðum
innflutningsfyrirtækja að skipafélögin hafi
verið búin að semja um það fyrirfram að
leggja á ný þjónustugjöld á viðskiptavini sina
núna í byijun ársins. Nýju gjöldin séu ekkert
annað en dulbúin hækkun á flutningsgjöldum
sem feli í sér talsverðan kostnaðarauka og
verði á endanum velt út í verðlagið til neyt-
enda. Gáfu menn lítið fyrir þá skýringu að
verið væri að auka upplýsingagjöf því það
væri almennt þróunin í viðskiptalífinu að
auka upplýsingastreymi án þess að sérstak-
lega væri rukkað fyrir það.
Þá er á það bent að hin nýju gjöld hafi
síðan margfeldisáhrif, einkum þegar um er
að ræða hátollavöru á borð við bíla. Fragtin
komi fremst í verðútreikningi, en þar ofan á
leggist tollur, álagning og virðisaukaskattur.
Eitt þúsund króna gjald geti á þennan hátt
endað sem 2-3 þúsund króna viðbótarálögur.
Mun neita að greiða gjöldin
Þannig virðist ríkja mikil gremja meðal inn-
flytjenda í garð skipafélaganna um þessar
mundir og raunar kom fram í samtali við einn
forsvarsmann hjá tiltölulega stóru og þekktu
fyrirtæki að hann hygðist ekki greiða hin
nýju gjöld. Fullyrti hann að mjög mikil and-
staða væri að skapast meðal innflyljenda gegn
hinum nýju gjöldum, enda skiptu þessar álög-
ur milljónum króna. Þeir myndu bregðast við
með tilteknum hætti þegar skipafélögin sendu
út sína reikninga eftir þennan mánuð.
Öll þessi sjónarmið munu væntanlega verða
tekin til athugunar hjá samkeppnisyfirvöld-
um. Þau hafa þegar hafist handa við að kanna
aðstæður á flutningamarkaði og þurfa að
komast að einhverri niðurstöðu um það hvort
eðlileg samkeppnisskilyrði ríki á flutninga-
markaðnum.