Morgunblaðið - 02.02.1997, Side 20

Morgunblaðið - 02.02.1997, Side 20
20 SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík 130 ára STJÓRN Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík í dag. Frá vinstri: Ásgrímur Jónas- son, Ólafur Jónsson, Guðmundur Kristjánsson, Siguroddur Magnússon og Örn Guðmundsson. GISSUR Símonarson (t.v.) var kjörinn heiðursfélagi Iðnaðarmannafélagsins á síð- asta aðalfundi þess. Þórður Krisljánsson afhendir honum skjalið. Aðrir núlifandi heiðursfélagar eru Ingólfur Finnbogason, Haraldur Ágústsson, Björgvin Frederiksen og Helgi Hallgrímsson. Stofnað til að styrkja samheldni iðnaðarmanna TILGANGUR Iðnaðar- mannafélagsins í Reykja- vík sem á morgun fagnar 130 ára afmæli sínu var orðaður þannig við stofnun en í ár- daga þess var það nefnt Handiðna- mannafélagið í Reykjavík: Að koma upp duglegum handiðnamönnum, efla og styrkja samheldni meðal handiðnamanna á Islandi og innlent iðnaðarlíf taki framförum og enn- fremur að styðja að gagnlegum og þjóðlegum fyrirtækjum. Fjöldi stofn- enda var 31, þeir voru orðnir 100 nokkru fyrir fertugsafmæli félagsins, hafa sjaldan verið fleiri en 300 en í dag eru félagsmenn kringum 220. Elsta gjörðarbók félagsins týndist en aðrar heimildir greina að stofnda- gurinn hafi verið 3. febrúar 1867. Þótt nafnið hafi í upphafi verið Handiðnamannafélagið var félagið iðulega nefnt Iðnaðarmannafélagið og með lagabreytingu árið 1882 ákveðið að svo skyldi vera enda þótt fyrra heitinu bregði fyrir oft eftir það. Talið er að félagið sé stofnað í húsi Landsprentsmiðjunnar en það hús var arfur frá iðnveri Skúla fóg- eta, brautryðjanda iðnrekstrar á Is- landi. Gísli Jónsson á Akureyri ritaði sögu félagsins á aldarafmæli þess og segir hann að í byijun síðustu aldar hafi aðeins fjórir iðnaðarmenn verið starfandi í Reykjavík. Um miðja öldina eru þeir orðnir 40 en þeir höfðu lengi átt erfitt uppdráttar sökum fámennis staðarins, „en upp frá þessu tekur hagur þeirra að vænkast, og verða margir þeirra efnaðir og vel metnir borgarar. Tek- ur þá brátt að þróast með þeim sá metnaður og ásetningur að gera veg starfs síns og stéttar sem mestan, svo að ekki þurfi að leita til erlendra iðnðarmanna, hvenær sem einhver stórvirki skuli leyst af höndum. Til þess að hefja hag stéttarinnar þurfí samtök, menntun og framkvæmdir. Það varð hlutskipti félags iðnaðar- manna í Reykjavík að stuðla að þessu,“ segir í bók Gísla. Segja má að aðalviðfangsefni Iðn- aðarmannafélagsins hafí verið menn- ingarmál af ýmsu tagi og fræðslumál en félagið varð aldrei stéttarfélag. í áratugi stóð félagið fyrir iðnfræðslu og sinnti í raun stefnumótun hennar í nærri heila öld eða þar til fræðslu- lög voru samþykkt 1966. Félagið reisti iðnskólahús við Lækjargötu sem margir þekkja og hafði forgöngu um byggingu Iðnskólans á Skóla- vörðuholti sem yfírvöld hafa nú yfír- tekið. Þá stóð félagið fyrir fímm iðn- sýningum á árunum 1883 til 1949, árið 1977 var haldin sýning á mynd- verkum félagsmanna og árið 1980, á ári trésins, var sett upp list- og nytjamunasýning. Hefur stjómin í hyggju nú að efna á næstu misserum til listsýningar. Þá samþykkti félagið á félagsfundi árið 1906 að standa straum af full- vinna styttuna af Ingólfí Amarsyni sem Einar Jónsson gerði. Segir í grein Jóns Böðvarssonar í afmælisriti sem gefíð var út fyrir 10 ámm að ríkis- þing Dana hafí heykst á að gefa ís- lendingum styttuna og í framhaldi af því hafí Iðnaðarmannafélagið tek- ið að sér verkið. Leiðin hafí reynst löng og torsótt en 24. febrúar 1924 hafí félagið fært ríkisstjórn landsins styttuna og hún afhjúpuð af Jóni Halldórssyni trésmið sem flutt hafði tillöguna á félagsfundinum. Guðmundur Kristjánsson Höfum alltaf verk að vinna í menningar- og menntamálum Morgunblaðið/Árni Sæberg FORMAÐURINN Guðmundur Kristjánsson er hér í baðstof- unni. Við hlið hans er lampi sem Ríkharður Jónsson skar út og var það eina sem varðveittist í brunanum árið 1986. OTJÓRNIN hefur rætt það LJ nokkuð að undanförnu að tímabært væri að koma aftur upp sýningu á listaverkum iðnaðar- manna því meðal iðnlærðra manna eru fjölmargir listamenn sem hafa ýmislegt; fram að færa. Þetta er eitt af því sem við munum vinna að á næstunni, segir Guð- mundur Kristjánsson formaður Iðnaðarmannafélagsins í Reylqa- vík í samtali við Morgunblaðið, aðspurður um það sem á döfinni væri hjá félaginu. Það væri þá ekki í fyrsta sinn sem félagið efndi til slíkrar sýn- ingar því árið 1977 stóð það fyrir sýningu á málverkum, högg- myndm og skúlptúrum iðnaðar- manna og hafði forgöngu um fyrstu iðnsýninguna þegar árið 1911. Guðmundur Kristjánsson er veggfóðrarameistari og er nýlega hættur störfum sem slíkur eftir 50 ára feril bæði á höfuðborgar- svæðinu og víða út um landið. -Ég hef starfað við iðnina allar götur frá því ég útskrifaðist, hætti þeg- ar ég var 74 ára, en hlutverk okkar eru jöfnum höndum vegg- fóðrun og dúkalagnir. Veggfóðr- un hefur löngum verið sveiflu- kennd, komið í miklum bylgjum og er heldur í lægð um þessar mundir en dúkalögn hefur alltaf verið nokkuð jöfn, segir Guð- mundur ennfremur. -Þar er farið að leggja miklu meiri og vand- aðri vinnu í allar samsetningar, þær eru nú soðnar og vinyl hefur að mestu leyti horfíð fyrir linole- um dúk sem þykir í dag sterkara efni og meira fyrir augað. Guðmundur segir að meira sé líka um hvers kyns mynstur og skreytingar við dúkalagnir. En hveijir teikna mynstrin? -Það eru ýmist við sem Ieggjum eða arki- tektar en í náminu fá veggfóðr- arar og dúklagningamenn nám- skeið í teikningum rétt eins og margir aðrir iðnaðarmenn, segir Guðmundur og kveðst hann ekki óttast að fagið leggist niður þrátt fyrir minni verkefni við veggfóðr- un þessi árin, nokkur ásókn sé að komast í námið en í dag starfa um 80 manns við fagið. En aftur að Iðnaðarmannafélaginu og Guð- mundur er spurður hvort hann hafi lengi verið félagsmaður: -Ég dróst nú fljótt inn í félags- mál fyrir okkar stétt, var formað- ur og um tíma einnig fram- kvæmdastjóri fyrir Meistarafé- lagið og hef lengi verið í Iðnaðar- mannafélaginu einnig. Ég hugsa að það sé sanlmerkt okkur í félag- inu að við höfum flestir starfað fyrir sérgreinafélögin. Iðnað- armannfélagið hefur alla tíð haft verk að vinna, aðallega að menn- ingar- og menntamálum iðnaðar- manna, stutt stofnanir sem starfa í þágu þeirra, haft sjóð sem styrk- ir menn til framhaldsnáms og á hveiju vori verðlaunar félagið þá sem skara framúr í Iðnskólanum í Reykjavík fyrir teikningar og ástundun. Forgöngumenn Iðnaðarmannafélagið reisti Iðnó í Reykjavík 1895-1996 en þá hafði lengi verið talað um þörf á alhliða samkomusal fyrir Reykvíkinga. Leikfélag Reylqavíkur fékk þar inni og segir Guðmundur hafa verið minnt á þetta framtak og frumkvæði Iðnaðarmannafélags- ins þegar fagnað var 100 ára af- mæli L.R. Minnti hann einnig á að af 19 stofnendum L.R. hafi 8 komið úr röðum iðnaðarmanna. Félagið sá um rekstur Iðnskólans allt til ársins 1954 er ríkið tók við honum og flutt var í nýtt hús á Skólavörðuholtinu en gamla iðn- skólahúsið við Lækjargötu var síð- ar selt og andvirði þess lagt í Hús iðnaðarins við Hallveigarstig en i þvi á félagið rúman fímmtung. -Við höfum þó áfram umráða- rétt yfir baðstofunni sem svo er kölluð og þar höldum við félags- fundina og tökum stundum á móti ýmsum sem vilja heimsækja okkur og segjum frá sögu húss- ins, segir Guðmundur. -Reylqa- víkurborg keypti húsið af okkur 1965 þegar menn höfðu hugmynd- ir um að reisa ráðhús borgarinnar þar en það var sem betur fer fall- ið frá því og um leið fengum við aðgang að baðstofunni meðan húsið stendur. Það hlýtur að geta orðið nokkuð lengi því nú er búið aðfriðahúsið! FÉLAGIÐ er bæði fyrir sveina og meistara og nokkrir kennarar í Iðnskólanum eru einnig félagar en alls er tala þeirra nú um 220. Þeim hefur farið hægt fjölgandi en það er kannski helst á tímamótum sem þessum þegar eitthvað fréttist af félaginu að nýir menn ganga inn og það er ánægjulegast þeg- ar okkur tekst að yngja félagið svolítið upp, segir Siguroddur Magnússon rafvirkjameistari sem er ritari í stjórn Iðnaðar- mannafélagsins. Siguroddur hefur starfað við iðn sína allt frá árinu 1938 er hann hóf námið: -Lítið var en lokið er, sagði hann um dags- verkið og mælir af hógværð en fyrir utan það að vera rafverk- taki frá árinu 1952 með nokkra menn í vinnu hefur hann haft margháttuð afskipti af félags- og menntamálum rafvirlqa, ver- ið í stjórn sérgreinafélags síns, setið í prófanefnd um árabil og í stjórn Iðnaðarmannafélagsins í 23 ár. -Ég átti fáa en góða kúnna, segir Siguroddur, -starf- aði til dæmis mikið fyrir Bygg- ingafélag verkamanna og lagði í húsin við Stórholt, Stangar- holt, Nóatún og Stigahlíð og síð- ar í Fossvoginum og var í þess- um almennu raflögnum lengst af. Nýjungar í rafvirkjun sagði hann hafa skilað sér nokkuð vel til rafvirlqa ekki síst eftir að Rafiðnaðarskólinn kom til en hann hefur þau mál á sinni könnu í dag. -Skólinn er stolt okkar rafiðnaðarmanna og við höfum átt mikið og gott sam- starf við bræðrafélög okkar á Norðurlöndum, meðal annars í Danmörku og mér finnst hafa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.