Morgunblaðið - 02.02.1997, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997 33
allan systkinahópinn. Við hjónin
sendum þeim öllum hugheilar sam-
úðarkveðjur.
Við kveðjum þig, kæra vinkona,
að sinni með söknuði og virðingu.
Ingibjörg og Erling.
Hér hvílir væn og göfug grein
af gömlum, sterkum hlyni;
hún lokaði augum hugarhrein
með hvarm mót sólar skini.
Hún dæmdi ei hart, hún vildi vel,
í vinskap, ætt og kynning.
Hún bar það hlýja, holla þel,
sem hverfur ekki úr minning.
Og hennar auðna og afl var trú
á öllum lífsins gæðum,
til röðulhallar byggði hún brú
og bjó sig veizluklæðum.
Á þessu bjargi stóð hún straum
gegn stefnu í tímans fræðum;
í reynsluheim hún réð þann draum,
sem rætist guðs í hæðum.
(E. Ben.)
Kæra vinkona, þakka þér yndis-
legar samverustundir og sú síðasta
var á heimili dóttur þinnar og
tengdasonar. Þar dvaldir þú þar til
yfir lauk.
Elsku Alla, Hafþór, makar, börn
og aðrir aðstandendur. Það hlýtur
að vera huggun í harmi að þið sýnd-
uð móður ykkar svo endalausa
hlýju, umvöfðuð hana ástúð sem
aðeins gott fólk eitt getur gert. Ég
veit að þið voruð gullmolarnir henn-
ar. Innilegar samúðarkveðjur til
ykkar allra.
Guðrún (Dollý).
Kæra vinkona, Hafdís. Það var
fyrir um það bil 12 árum, sem við
kynntumst fyrst og þá aðeins í
gegnum síma til að byija með.
Þannig var að fyrirtækin sem við
unnum hjá áttu í samskiptum og
töluðum við því oft saman í síma.
Ég man að ég hugsaði með mér
hvað hún væri þægileg og elskuleg
þessi stúlka sem svaraði í símann,
ég hélt hún væri svona 17 eða 18
ára gömul.
Við höfum hlegið mikið að þessu
saman síðan þá, en þegar fyrirtæk-
in okkar sameinuðst og við hitt-
umst, kom í ljóst að þú varst engin
smástelpa, heldur yndisleg kona,
rúmum 20 árum eldri en ég. Með
okkur tókst mjög góð vinátta frá
fyrstu stundu, sem hefur varað æ
síðan.
Við upplifðum ýmislegt saman á
þessum rúmlega 11 árum sem við
þekktumst. Fórum meðal annars
sem hásetar á einum frystitogara
fyrirtækisins, sem var heilmikil
upplifun fyrir mig, en þú hafðir nú
farið á sjóinn áður. Þú varst kjark-
mikil kona sem lést þig ekki muna
um að vera á síldveiðum í Norður-
sjónum, hérna áður fyrr. Þær hefðu
ekki margar farið í skóna þína,
Hafdís mín.
Ég minnist líka allra stundanna,
þegar við ræddum um allt milli him-
ins og jarðar. Við unnum saman á
daginn, en það var ósjaldan sem
síminn var notaður á kvöldin til að
ræða málin. Þú varst alltaf svo sam-
viskusöm, að ekki mátti eyða of
miklum tíma í spjall í vinnutíman-
um, það var af og frá.
Ekki má ég gleyma að þakka þér
fyrir peysurnar, sem þú pijónaðir
fyrir Björn Þór son minn, en honum
varst þú alveg einstaklega hlý og
góð. Þessar peysur bera vott um
mikinn myndarskap í höndunum,
enda voru margir sem dáðust að
handverkinu og höfðu orð á hve
fallegar peysurnar væru og vel
unnar.
Þú sagðir mér einu sinni að þú
tryðir því, að ef þú sinntir þínu af
alúð og sýndir fólki vingjarnleika,
myndir þú fá það margfalt til baka
í einhverri mynd. Oftar en einu sinni
bentir þú mér á dæmi, sem sönnuðu
þessa lífsspeki þína. Þetta lýsir þér
svo vel og fáa þekki ég sem hafa
þetta eins mikið að leiðarljósi í líf-
inu og þú gerðir.
Þú hefur alltaf verið til staðar
fyrir mig og sýnt mér mikla um-
hyggju og gefið mér góð ráð. Ég
lít á það sem mín forréttindi að
hafa fengið að kynnast þér svona
vel og mun alltaf minnast þín sem
sérstakrar vinkonu. Það var eins
og það væri einhver þráður á milli
okkar, við skildum alltaf hvor aðra.
Ég sakna þín sárt og bið góðan
Guð að passa þig vel, en einhvern
daginn hittumst við svo aftur.
Alveg til dagsins þegar mér var
tjáð að þú hefðir verið kölluð burt,
vonaði ég að þú yrðir frísk og
kæmir til okkar aftur á skrifstof-
una, þú myndir setjast í gamla
sætið þitt og allt yrði eins og áður.
Það er erfitt að sætta sig við það
að þú sért horfin úr lífi okkar hér
á jörðinni, en eftir sitja margar
góðar minningar og það er ekki
svo lítið.
Fjölskylda mín sendir Öllu og
Hafþóri og aðstandendum öllum
innilegustu samúðarkveðjur. Minn-
ingin um ljúfa og góða konu lifir.
Hildur.
Elsku amma Hafdís.
Með þessum örfáu orðum langar
okkur systurnar að kveðja þig í
hinsta sinn. í hugum okkar er mik-
il sorg og söknuðurinn er mikill, en
jafnframt gleðjumst við yfir því að
nú skuli veikindum þínum og þján-
ingum vera lokið. Þú háðir hetjulega
baráttu gegn sjúkdómnum sem
lagðist svo þungt á þig og alltaf
barstu höfuðið hátt. Við áttum
kannski ekki eins margar stundir
saman og við hefðum kosið en
minningarnar um þær samveru-
stundir sem við áttum með þér
munum við alltaf geyma í hjörtum
okkar. Okkur finnst þú hafa verið
tekin burt frá okkur allt of snemma,
aðeins 61 árs að aldri, en vissan
um það að nú hefur þú öðlast eilíf-
an frið gefur okkur styrk.
Guð geymi þig, elsku amma okk-
ar.
Þínar
Sandra Dís, Eyrún
og Karen Dröfn.
í sumar er leið þurfti ég, ásamt
eiginmanni mínum, að dveljast um
hríð á Heilsustofnun NLFÍ í Hvera-
gerði. Meðal fjölmargra sjúkra sem
dvöldu þar sér til heilsubótar var
kona sem stendur upp úr í minning-
unni sakir einstakra mannkosta.
Hún kom til mín á fyrsta degi, heils-
aði og kynnti sig, og í samræðum
okkar í framhaldi af því kom í ljós
að hún þjáðist af krabbameini og
hlyti þaðan af ekki bót sinna meina.
Þessi kona var Hafdís Ingvarsdóttir
sem í dag er kvödd hinstu kveðju.
Hafdís var sárþjáð en mitt í eigin
þjáningu var enginn eins næmur á
þjáningar annarra og hún. Maður-
inn minn, þreyttur og hrelldur á
sálinni, var einn þeirra sem Hafdís
lét sér annt um. Hún nálgaðist hann
af næmni og kærleika þess sem
skilur mannssálina og hikar ekki
við að gefa af sjálfum sér. Ég fylgd-
ist með hvernig hún á sinn einlæga
og hispurslausa hátt dró hann örlít-
ið út úr þeirri skel sem áralöng
kvöl hafði lokað hann inni í. Saman
fóru þau í kapelluna, kveiktu á fjór-
um kertum og hún bað fyrir honum
og hans nánustu.
Við Hafdís heyrðumst síðast
skömmu eftir jól. Hún hringdi tii
að heyra hvernig okkur hjónum liði
og við áttum langt, yndislegt samtal
þar sem hún ítrekaði við mig það
sem hún sagði svo oft í sumar, að
láta ekki biturð og sorg lita líf okk-
ar heldur kærleikann og gleðina.
Ég er full þakklætis að hafa fengið
að þekkja Hafdísi og njóta návistar
hennar og lífssanninda. Aðstandend-
um hennar sendi ég innilegar sam-
úðarkveðjur og bið guð að blessa
þá hvern og einn. Mig langar að
enda þessar línur á eftirlætisljóði
eftir Einar Benediktsson.
Eitt bros - getur dimmu í dagsljós breytt
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt
aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leynist strengur í bijósti sem brast
við biturt andsvar, gefíð án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka.
Bíbí og Tom Ilolton.
+ Kristjana Guð-
mundsdóttir
hjúkrunarkona
fæddist á ísafirði
5. janúar 1927.
Hún lést á Land-
spítalanum 23. jan-
úar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Aðalheiður
Guðmundsdóttir
og Guðmundur
Björnsson kaup-
maður.
Hinn 29. desem-
ber 1956 giftist
Kristjana Guð-
mundi Tryggvasyni lækni, f.
10. janúar 1931. Börn þeirra
eru Alma, f. 18. maí 1957,
myndlistarkennari, býr í
Garðabæ, og Gunnar, f. 11.
júlí 1960, flugvélvirki, búsett-
ur í Danmörku.
Útför Kristjönu fór fram í
kyrrþey.
Að loknu gagnfræðaskólaprófi
hóf Kristjana nám í húsmæðra-
skóla ísafjarðar, en 19 ára gömul
innritaðist hún í Hjúkrunarkvenna-
skóla íslands og lauk þaðan prófi.
Að því loknu hóf hún nám í blóð-
rannsóknum, sen nýlega var farið
að kenna við Landspítalann og
Háskóla Islands.
Við kynntumst ungar á ísafirði
og hélt sá kuningsskapur áfram
þar sem við bjuggum saman á efstu
hæð Landspítalans,
ásamt öðrum nemum,
en þar var þá heima-
vist.
Eftir að hún giftist
Guðmundi hófu þau
búskap í Bogahlíð 17.
Á heimili þeirra eyddu
margar okkar frídög-
um, sem í minningunni
eru ógleymanlegar
ánægjustundir. Guð-
mundur var einn af
þeim sem flest var til lista lagt.
Hann lék á píanó af mikilli snilld
og málverkin sem prýddu heimili
þeirra voru máluð af honum sjálf-
um.
Árið 1958 fluttu þau til Svíþjóð-
ar, þar hélt hún áfram við rann-
sóknarstörf, en Guðmundur tók
sérgrein í skurðlækningum. Þarna
bjuggu þau í átta ár, eða þar til
Guðmundur dó aðeins 32 ára gam-
all.
Þá kom hún heim með börnin,
starfaði fyrst á Sjúkrahúsi ísa-
Qarðar, en flutti síðar suður og
keypti íbúð á Háaleitisbraut 28,
þar sem hún bjó börnum sínum
gott heimili.
Fyrir sunnan hóf hún störf hjá
rannsóknastofu Krabbameinsfélags
íslands og vann þar í áraraðir,
ásamt störfum á fleiri sjúkrahúsum.
Við sem þekktum Kristjönu náið
vissum að hún átti lengi við mikla
vanheilsu að stríða. Kristjana kom
síðast til mín skömmu fyrir jól.
Sagði hún mér þá að hún væri
komin með krabbamein í lungun.
Vafalaust höfum við báðar hugsað
það sama, að dagar hennar væru
brátt taldir. Ég kveð Kristjönu og
þakka henni fyrir tryggð og vin-
áttu sem aldrei bar skugga á.
Börnum hennar, systkinum og
öðru skyldfólki sendi ég innilegar
samúðarkveðjur.
Jóhanna Hrafnfjörð.
Skilafrestur
minningargreina
Eigi minningargrein að birtast
á útfarardegi (eða í sunnudags-
blaði ef útför er á mánudegfy
er skilafrestur sem hér segir: I
sunnudags- og þriðjudagsblað
þarf grein að berast fyrir há-
degi á föstudag. í miðviku-
dags-, fimmtudags-, föstudags-
og laugardagsblað þarf greinin
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrir birtingar-
dag. Berist grein eftir að skila-
frestur er útrunninn eða eftir
að útför hefur farið fram, er
ekki unnt að lofa ákveðnum
birtingardegi.
Ef þú kaupir þvottavél.
án þess að skoða AEG þvottavélar.
Lavamat 9205
AEG
Lavamat 6955
AEGlŒuSE!l3
AEG þvottavélar eru
á um það bil
27.000 íslenskum
heimilum.
•
AEG þvottavélar
eru á tvöfalt fleiri heimilum.
er næst algengasta
þvottavélategundin.
•
Yfir 85% þeirra sem
eiga AEG þvottavél,
mundu vilja kaupa AEG aftur.
Hvað segir þetta þér
um gæði AEG þvottavéla?
Eða AEG yfirteitt?
...er það eins og
ferð til Egyptalands
án þess að skoða
I fjr ár Sh
Gerð sn.pr. mín. Staðgr.
LAVAMAT 508 850 sn. 66.500,-
LAVAMÁT 9205 700- 1000 sn. 79.500,-
LAVAMAT 9451 700- 1200 sn. 91.900,-
LAVAMAT 6955 700- 1500 sn. 106.900,-
BRÆÐURNIR
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
u
m
s
m
n
n
Þriggja ára
ÁBVRGÐÁ ÖLLUM
ÞVOTTAVÉLUM
Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Blómsturvellir,
Hellissandi. Guöni Hallgrímsson, Grundarfiröi. Ásubúð.Búðardal. Vestfiröir: Geirseyrarbúöin,
Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvik.Straumur.ísafiröi.Norðurland: Kf.Steingrímsfjaröar.Hólmavík.
Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúö.Sauðárkróki. KEA
by99'ngavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvík. KEA, Siglufirði Kf. Þingeyinga, Húsavílc.Urð,
Raufarhöfn. Austuriand: Sveinn Guðmundsson, Egilsstööum. Kf. Vopnfiröinga,
Vopnafirði.Verslunin Vík, Neskaupsstað. Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfirði. KASK, Höfn.
Suöurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergs,
Kirkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavik. Rafborg,
Grindavík.
MIWNIGAR
KRISTJANA
GUÐMUNDSDÓTTIR