Morgunblaðið - 02.02.1997, Page 52
52 SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLENSKIR sjónvarpsáhorfend-
ur muna vafalaust vel eftir grín-
istanum Dave Allen, sem sagði
helst ekki brandara nema þeir
fjölluðu um kirkjuna eða kynlíf.
Oft hvort tveggja. Enda var Al-
len ákaflega umdeildur. A sjö-
unda áratugnum varð að klippa
út brandara sem hann sagði um
írska jarðarför í „Ed Sullivan
Show“ vegna þess að orðið „la-
vatory“ eða klósett kom fyrir.
Þegar hann tók viðtal við Pet-
er Cook og Dudley Moore í ástr-
alska sjónvarpinu árið 1967 voru
auglýsingahléin farin að fara svo
í taugarnar á honum að hann tók
þáttaframleiðandann i bakaríið í
beinni útsendingu og var bannað-
ur í áströlsku sjónvarpi i eitt ár
fyrir vikið.
Algjörlega siðblindur
Árið 1971 fékk hann sinn eigin
þátt á BBC „Dave Allen At
Large" og byrjaði að henda gam-
an að Mary Whitehouse og ka-
þólsku kirkjunni. Þegar hann lét
páfann dansa og fækka fötum í
einum þættinum lýsti Whiteho-
use honum sem „algjörlega sið-
blindum".
Meira að segja árið 1990, þeg-
ar hann var löngu hættur með
þættina „Dave Allen At Large“,
tókst honum að hneyksla almenn-
ing í Bretlandi. Þá notaði hann
orðið „fuck“ siðla kvölds í þætti
á BBC og hafa aldrei borist fleiri
kvartanir til sjónvarpsstöðvar-
innar heldur en eftir það. Vakti
ALLEN segir stoltur að hann sé sestur í helgan stein vegna
þess að hann sé letihaugur.
þetta uppátæki einnig umræðu á
breska þinginu.
Óþarfa leynd yfir kynlífi
„Ég hef aldrei lagt mig í líma
við að hneyksla fólk,“ segir Al-
len. „Hins vegar hef ég alltaf
kunnað að meta gamanmál sem
snertir viðkvæma strengi í fólki,
t.d. hvað varðar trúarbrögð. Ég
sótti kaþólskan skóla á Irlandi
og þar var tuggið ofan í okkur
að við mættum ekki skopast að
trúarbrögðum. Þess vegna var
það einmitt það fyrsta sem mér
datt í huga þegar ég byrjaði á
þáttunum."
Allen segir að það sama sé
uppi á teningnum með kynlíf:
„Ég hef aldrei þolað þá leynd
sem hvílir yfir kynlífi. Enginn
má segja neitt. Ég hef alltaf stað-
ið í þeirri trú að maður eigi að
tala hreint út og segja: „Hún var
með fallegan rass,“ eða „Hún er
með alveg dásamleg bijóst.“
Orðinn hálfgerður forngripur
Að sögn Allens er mjög auð-
velt að vekja hlátur með því að
fjalla um kynlíf. Hann segir
ástæðuna vera þá að þar séu all-
ir frekar óöruggir um eigin getu.
Samt eigi kynlífið að vera full-
komið. Þess vegna sé best að
segja brandara til að létta spenn-
una.
Núorðið er mesta breytingin á
gamanefni Allens sú að hann
fjallar meira og meira um það
að eldast. „Sem er skiljanlegt,"
segir hann, „vegna þess að ég
er sjálfur orðinn hálfgerður
forngripur. Ég þarf að búa við
að vera orðinn gráhærður, sjónin
er farin að daprast, hár vex úr
eyrunum og ég er kominn með
ístru.
Hundar kunna ekki að lesa
Stundum sé ég sjálfan mig í
búðarglugga og hugsa með sjálf-
um mér: „Hvað er þetta kauðska
gamalmenni að glápa á.“ Síðan
geri ég mér grein fyrir að ég er
að horfa á sjálfan mig. Það er
hræðileg tilfinning. En það kem-
ur sér vel fyrir grínista vegna
þess að það víkkar sjóndeildar-
hringinn."
Allen segist byggja gamanmál
sín að mestu á flónsku náung-
ans. Hann nefnir sem dæmi fal-
legan lystigarð hinumegin göt-
unnar við heimili hans. Þangað
fari fólk með hundana sína, sem
skiti um allan garðinn. Það hafi
orðið til þess að reistur var hund-
akamar.
„Þetta var útikofi með áletr-
uninni: „Hundakamar“,“ segir
Allen. „Eina vandamálið var það
að hundar kunnu ekki að lesa.
Svo þeir héldu bara áfram að
skíta i sandkassann þar sem
börnin léku sér.“
^0 DAVE Allen eins og hann leit út á sjónvarpsskjánum á áttunda
áratugnum.
1 .............................
Fataefni og gluggatjaldaefni
30-50% afsláttur við kassa
Vinnið gegn fíla-
penslum og bólum
Dúkar, diskamottur og handklæði
30-50% afsláttur við kassa
i, 50x90 á 77 kr.
i, 70x130 á 160 kr,
silicol skin
Sjlicol skin
i, 150 kr. metrinn
Viðurk@nnd lausn víð húðvandamálum
Endurteknar rannsóknir hafa staðfest árangur Silicol skin
í baráttunni gegn fílapenslum, bólum og feitri húð.
íslenskar leiðbeiningar fylgja. Fæst í flestum apótekum.
búðirnar
MYNDBOND/KVIKMYIMDIR/UTVARP-SJONVARP