Morgunblaðið - 04.02.1997, Síða 1
104 SIÐURB/C
28. TBL. 85. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Tvöfaldur
norskur
sigur
NORÐMENN fóru vel af stað á
heimsmeistaramótinu í alpa-
g-reinum sem hófst með risasvigi
karla í Sestriere á Italiu í gær.
Atle Skárdal sigraði og varð um
leið fyrstur Norðmanna til verja
HM-titil í alpagreinum. Landi
hans, Lasse Kjus, varð annar. A
myndinni er Skárdal að renna
sér til sigurs.
■ Aftur / B12
Mótmælaganga 80.000 stjórnarandstæðinga stöðvuð í Belgrad
Ungmenm ráð-
ast á lögreglu
Belgrad. Reuter.
TUGIR reiðra ungmenna lögðu til
atlögu við serbnesku öryggislög-
regluna í miðborg Belgrad eftir að
hún hafði stöðvað mótmælagöngu
80.000 stjórnarandstæðinga í gær.
Kvöldið áður höfðu um 150 manns
særst í hörðustu átökunum sem
hafa blossað upp í serbnesku höfuð-
borginni frá árinu 1991 þegar
Slobodan Milosevic forseti sendi
skriðdreka á götumar til að kveða
niður mótmæli lýðræðissinna.
Um 500 lögreglumenn, með
hjálma, skildi og kylfur, stöðvuðu
mótmælagönguna þegar stjórnar-
andstæðingarnir ætluðu að ganga
inn á aðalgötuna í miðborginni.
Yfirmaður lögreglunnar sagði við
einn leiðtoga stjórnarandstöðunn-
ar, Zoran Djindjic, að hún hygðist
ekki beita valdi nema á hana yrði
ráðist. Djindjie bað fólkið um að
fara heim til að koma í veg fyrir
átök.
„Við skulum berjast gegn glæp-
um stjórnarinnar með brosum og
söngvum,“ sagði annar leiðtogi
stjórnarandstöðunnar, Vuk
Draskovic.
Flestir urðu við áskomn leiðtog-
anna og fóru á brott en um 200
ungmenni tóku að kasta steinum
og flöskum að lögreglumönnunum.
Þeir höfðu sig ekki í frammi í fyrstu
en réðust síðan að ungmennunum,
sem lögðu á flótta. Nokkur þeirra
náðust og vom barin og handtekin.
Sjónarvottar sögðu að lögreglu-
mennirnir hefðu barið alla sem urðu
á vegi þeirra.
Ottast neyðarlög
Djindjic skoraði á stjórnandstæð-
ingana að beita ekki ofbeldi þar
sem slíkt gæti orðið til þess að
Milosevic setti neyðarlög til að
kveða mótmælin niður.
Vesna Pesic, annar stjórnarand-
stöðuleiðtogi, kvaðst óttast að árás
lögreglunnar í fyrrakvöld væri fyr-
irboði neyðarlaga. Hún sagði að
Sósíalistaflokkur Milosevic kynni
að setja lögin til að koma í veg
fyrir að dómstólar gætu úrskurðað
að Zajedno, bandalag stjórnarand-
stöðuflokka, hefði farið með sigur
af hólmi í borgarstjómakosningum
í nóvember.
■ 150 manns særast í átökum/23
Reuter
SERBNESKIR sljórnarandstæðingar á 80.000 manna mótmæla-
göngu í miðborg Belgrad í gær.
00
Benazir Bhutto talin bíða ósigur í þingkosningum í Pakistan
Nawaz Sharif segir flokk
sinn stefna í stórsignr
íslamabad. Reutcr.
Reuter
STUÐNINGSKONUR Nawaz Sharifs, fyrrverandi forsætisráð-
herra Pakistans, fagna sigri eins af frambjóðendum Pakist-
anska múslimabandalagsins í kosningunum í gær.
NAWAZ Sharif, fyrr-
verandi forsætisráð-
herra Pakistans, sagði
í gærkvöldi að flokkur
sinn stefndi í stórsigur
í þingkosningunum sem
fóru fram í gær. Leið-
togar Þjóðarflokks
Pakistans, flokks
Benazir Bhutto, fyrr-
verandi forsætisráð-
herra, sökuðu yfirvöld
um stórfelld kosninga-
svik, en formaður al-
þjóðlegrar eftirlits-
nefndar sagði að kosn-
ingarnar hefðu verið
fijálsar og lýðræðisleg-
ar.
56,5 milljónir manna voru á kjör-
skrá en margir mættu ekki á kjör-
stað, sumir vegna þess að nú er
föstumánuður múslima, ramadan,
og aðrir af því að þeir treysta ekki
leiðtogum stjórnmálaflokkanna.
Sharif kvaðst „mjög ánægður"
með þær kosningatölur sem lágu
fyrir í gærkvöldi. „Svo virðist sem
við höfum fengið góðan meiri-
hluta,“ sagði hann, en vildi ekki
lýsa yfir sigri fyrr en úrslitin lægju
fyrir í dag.
Farooq Leghari forseti boðaði til
þingkosninganna eftir
að hafa vikið Bhutto frá
5. nóvember. Hann
sakaði stjórn hennar
um spillingu, frænd-
hygli og aftökur án
dóms og laga í Karachi
og hæstiréttur landsins
úrskurðaði í vikunni
sem leið að brottvikn-
ingin hefði verið rétt-
mæt.
Kvartað yfir
kosningasvikum
Þingmaðurinn Iqbal
Haider, einn af forystu-
mönnum flokks Bhutto,
ræddi við formann yfirkjörstjórnar
og kvartaði yfir stórfelldum kosn-
ingasvikum af hálfu yfirvalda. Sir
Malcolm Fraser, fyrrverandi forsæt-
isráðherra Ástralíu og formaður al-
þjóðlegrar eftirlitsnefndar, sagði
hins vegar að kosningarnar hefðu
farið lýðræðislega og tiltölulega frið-
samlega fram. „Við erum ánægð
með að þeir sem vildu kjósa gátu
gert það og kosið það sem þeir vildu
án nokkurrar kúgunar eða þvingun-
ar,“ sagði hann.
Sjö manns biðu bana í átökum í
tengslum við kosningarnar. Um
250.000 hermenn voru á varðbergi
vegna kosninganna, sem voru haldn-
ar undir eftirliti fulltrúa frá Banda-
ríkjunum, Evrópusambandinu,
Breska samveldinu og Suður-Asíu-
ríkjum.
Sharif lofaði að reyna ekki að
hefna sín á Bhutto vegna meintra
ofsókna á hendur flokki hans, Pak-
istanska múslimabandalaginu, þegar
hún var við völd. Hann kvaðst ekki
ætla að láta leiða hana fyrir rétt og
boðaði samstarf við hana og aðra
stjórnarandstöðuleiðtoga.
Nawaz Sharif
Farsími
upplýsir
morðmál
London. The Daily Telegraph.
HÆGT er að segja nákvæmlega
til um ferðalög GSM-farsíma-
notenda mörg ár aftur í tímann
með nýrri tækni, sem beitt verð-
ur í fyrsta sinn við breska morð-
rannsókn. Vonast lögreglan til
að fá meintan morðingja dæmd-
an á grundvelli þess að farsími
hans hafi verið á morðstaðnum
er ódæðið var framið og því
skilið spor eftir hann í tölvu
símafyrirtækis.
Þegar kveikt er á farsímum
eru þeir í raun og veru ferilrit-
arar sem afhjúpa hvar viðkom-
andi var hveiju sinni, jafnvel
þótt ekki hafi verið hringt úr
símanum eða í hann. Rafeinda-
merki frá honum, sem segja
nákvæmlega til um staðsetn-
ingu símtækisins, eru varðveitt
í tölvum símafyrirtækja allt að
tvö ár aftur í tímann vegna
innheimtu reikninga.
Hinn grunaði var ekki hand-
tekinn fyrr en um ári eftir
morðið. Þrætti hann þráfald-
lega fyrir að hafa átt hlut að
máli og sagðist hafa haldið sig
þann daginn víðs fjarri morð-
staðnum. Jafnframt sagðist
hann aldrei leggja farsímann
frá sér og urðu rafeindaboð frá
símanum, sem varðveitt eru í
tölvum Cellnet-símafyrirtækis-
ins, til þess að hægt var að
sýna fram á að hann sagði ósatt
um ferðir sínar morðdaginn.