Morgunblaðið - 04.02.1997, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýtt
Rafhlöður
með inn-
byggðum
orkumæli
NÝLEGA komu á markað Durac-
ell PowerCheck rafhlöður sem eru
með innbyggðum orkumæli. Ýtt
er þéttingsfast á tvo punkta á
rafhlöðunni í um 10 sekúndur og
þá sést hvort orkan er lítil eða
mikil. Best er að mæla rafhlöðuna
við stofuhita. Umboð fyrir rafhlöð-
umar hefur heildverslunin Hrísnes
ehf.
Moonboots
Spariskór
Verð: 995,-
Áð ur^495T-
Verð: 995,-
ÁðurJk495T-
Tegund: x 1122
Stærðir: 25-34
Litir:
Rauðir,
grænir
og bláir
Tegund: 4114
Stærðir: 20-34
Litir: Svartir, hvftir og rauðir
Leðurfóðraðir
Póstsendum samdægurs
v
Ioppskórinn
V/aUi \ >iA ln<-lAUr<4nr/-i ním
Veltusundi við Ingólfstorg, sími: 552 1212
Austurstræti 20, sími 552 2727
Nýtt
Islensk
hönnun á
barnafatnaði
BLANCO Y Negro er nafnið á
bamafatnaði sem farið er að fram-
leiða hér á landi ur svokölluðum
flísefnum. Hönnuður og framleið-
andi þeirra er Rannveig Pálsdótt-
ir. Bamafataverslanimar Engla-
börnin og Dýrðlingarnir selja fatn-
aðinn.
í fréttatilkynningu frá Rann-
veigu Pálsdóttur segir að hún sé
einnig með umboð fyrir fatamerk-
ingar frá fyrirtæki sem framleiðir
fatamerkingar fyrir ýmis þekkt
fyrirtæki erlendis. Fyrirtæki
Rannveigar er til húsa að Lauf-
engi 180.
Eigum mikið úrval af boddíhlutum í flestar gerðir bifreiða.
Nánari upplýsingar fást hjá sölumönnum okkar
ísíma 588 2550
BílavörubúSin
Ifararbroddi
SKEIFUNNI2,108 REYKJAVÍK SÍMI588 2550
Opið imi helgina Fisléttir raðgreiðslusamningar
ji.M ■ m m
Suöurlandsbraut 16 • 108 Rvk • Slmi 588 0500 • fax 588 0504
I Rýmum
I fyrir
nýjum i
taekjum I
Jólainnkaupin á fjölgreiðslum
eða greiðsludreifingu
Vextimir jafn-
vel hærri en
dráttarvextir
FORSVARSMENN greiðslukorta-
fyrirtækja segja upphæðimar
100.000-150.000 krónur algenga
á greiðslukortayfirlitum sem send
era til viðskiptavina um þessi
mánaðamót. Það er komið að
skuldadögum eftir jólin og hjá
mörgum er lítið í buddunni og góð
ráð dýr.
Óski korthafar eftir greiðslu-
dreifíngu eða fjölgreiðslum eins
og það er kallað líka eru sumir
bankar jafnvel með hærri vexti en
dráttarvexti á þeim lánum.
Að sögn Bergsveins Sampsted
markaðsstjóra hjá Eurocard eru
margir sem nýta sér möguleika á
greiðsludreifíngu og fá að borga
jólasteikina og gjafímar næstu sex
mánuðina.
„Vextirnir em fastir og venju-
lega um 15-16%. Segjum að
skuld nemi 120.000 krónum og
hún sé greidd upp á fjórum mán-
uðum með greiðsludreifíngu. Þá
er færslugjaldið 450 krónur og
með vöxtum nemur upphæðin
sem bætist við um 3.000 krón-
um.“
- En hvað ef upphæðin fellur í
vanskil?
„í fyrsta lagi er lokað fyrir notk-
un kortsins meðan korthafí er í
vanskilum. Vextir af greiðsludreif-
ingu em á hinn bóginn svipaðir
og ef skuldin fellur í vanskil. Það
sem bætist aukalega við hjá þeim
sem era í vanskilum með skuld
sína er innheimtubréf þriðja og
fjórða mánuðinn upp á 750 krónur
hvort bréf.
Bankinn ákveður
vextina
Hjá Visa fjármagna bankar og
sparisjóðir greiðsluskiptinguna.
Visa korthafar semja ævinlega við
sinn viðskiptabanka eða sparisjóð
og þá er það ákveðið hveijir fá
kort og með hvaða skilyrðum.
Leifur Steinn Elísson aðstoðar-
framkvæmdastjóri hjá Visa segir
að viðskiptavinum standi til boða
að dreifa greiðslum á allt að sex
mánuði með svokölluðum fjöl-
greiðslum. Hann segir það ákvörð-
un banka og sparisjóða hvaða
vextir séu teknir og nefnir að und-
anfarið hafí Landsbankinn tekið
15,90% vexti, Búnaðarbankinn
16,25%, íslandsbanki 15,95% og
Sparisjóðirnir 16,25% vexti. Þá
bætist einnig við færslugjald ef
um fleiri en tvo gjalddaga er að
ræða 145 krónur í hvert skipti og
ef greiðslunni er skipt í tvennt
kostar það 250 krónur. Falli upp-
hæðin í vanskil er dráttarvöxtum
beitt sem hafa að undanförnu ver-
ið 16%.
Sólmundur Kristjánsson for-
stöðumaður tékka-, og greiðslu-
kortadeildar í Landsbankanum
segir að venjulegum innheimtuað-
gerðum sé beitt við korthafa, van-
skilatilkynningar séu sendar til
korthafa og ábyrgðarmanns. Ef
viðskiptavinir semja um skiptingu
helst kort opið og viðkomandi er
í skilum við bankann. Um leið og
kort fer í vanskil er ekki hægt að
nota það.
Sent í innheimtu
til lögfræðings
Sólmundur segir ítrekun kosta
korthafa 250 krónur og síðan ef
ekki er greitt fyrir 18. þess
mánaðar sem borga átti fer út
aðvömn sem kostar 350 krónur
og hún er einnig send til ábyrgð-
armanns. Ef líður að næstu mán-
aðamótum og skuldin er enn
ógreidd og ekki búið að sinna til-
kynningum er korti lokað og þá
kemur lokaaðvörun. Að því búnu
fer skuldin í innheimtu hjá lög-
fræðingi og þá er kostnaðurinn
orðinn miklu hærri en greiðslu-
dreifíngarskuldin. Algengt er að
lögfræðingar taki milli 4.000 og
5.000 krónur fyrir fyrsta inn-
heimtubréf.
- Hversvegna eru vextir af
þessum lánum jafn háir og drátt-
arvextir?
„Bankar líta á fjölgreiðslulánin
sem neyslulán og þessvegna em
vextimir svona háir.“
Munar 360
krónum
- Segjum að korthafi sé með
120.000 króna skuld. Borgar sig
fyrir viðkomandi að geyma skuld-
ina til næstu mánaðamóta eða
semja um greiðsludreifingu?
„Geymi korthafi skuldina fram
að næstu mánaðamótum borgar
hann 1.600 krónur í vexti og ítrek-
un og aðvörunargjald sem eru 600
krónur. Samtals er þetta 2.200
krónur. Sé á hinn bóginn samið
um greiðsludreifíngu nemur upp-
hæðin 1.590 krónum og 250 krón-
um í færslugjald sem eru í allt
1.840 krónur. Munurinn er 360
krónur en kortið er þar að auki í
skilum."