Morgunblaðið - 04.02.1997, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FJÖLMENNT var í Félagsgarði í Kjós á laugardaginn þar sem haldinn var stofnfundur samtakanna SÓL í Hvalfirði.
Fjölmenni á stofnfundi Samtakanna óspillt land, SÓL, í Hvalfirði
„Mikill baráttuhugur í fólki“
HÁTT á þriðja hundrað manns
mættu á stofnfund samtakanna
SÓL í Hvalfirði, sem haldinn var í
Félagsgarði í Kjós á laugardaginn.
Skammstöfunin SÓL stendur fyrir
Samtökin óspillt land og er megin-
tilgangur þeirra að „berjast gegn
álveri á Grundartanga og annarri
mengandi stóriðju í Hvalfirði, svo
og að stuðla að náttúru- og um-
hverfisvernd," eins og segir í lögum
samtakanna.
Fundarmenn komu víða að, ekki
aðeins úr Kjós og Hvalfirði, heldur
einnig af höfuðborgarsvæðinu og
nágrenni þess, auk þess sem fund-
inum bárust skeyti með stuðnings-
yfirlýsingum víðsvegar að af land-
inu, að sögn Ólafs Magnússonar í
Ásgarði í Kjós, sem er einn stjórn-
armanna. „Hér standa allir saman
TR áfrýjar
til áfrýjun-
arnefndar
TRYGGINGASTOFNUN ríkisins
hyggst áfrýja nýlegum úrskurði
samkeppnisráðs, þess efnis að
samningur Læknaféiags Reykja-
víkur og Tryggingastofnunar um
sérfræðilæknishjálp frá 7. mars
1996 bijóti gegn samkeppnislög-
um, til áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála.
Samkvæmt níundu grein sam-
keppnislaga skal skrifleg kæra ber-
ast innan fjögurra vikna frá því
að aðila máls var tilkynnt um úr-
skurð. Úrskurður áfrýjunarnefnd-
arinnar skal liggja fyrir innan sex
vikna frá málskoti.
Kristján Guðjónsson, deildarstjóri
sjúkratryggingadeildar Trygginga-
stofnunar, segir að úrskurðinum
hafi enn ekki verið áfrýjað en það
muni verða gert áður en fjögurra
vikna fresturinn rennur út. Unnið
verður samkvæmt samningi Trygg-
ingastofnunar og Læknafélags
Reykjavíkur þangað til 1. apríl nk.,
en félagið hefur sagt upp samningn-
um frá og með þeim degi.
sem einn maður og mikill baráttu-
hugur í fólki,“ segir hann.
„Þingmenn Reyknesinga
eru hugsi“
Nokkrir þingmanna Reykjanes-
kjördæmis mættu á fundinn og að
sögn Ólafs var umhverfisnefnd Al-
þingis boðið sérstaklega. Hann seg-
ir það hafa valdið nokkrum von-
brigðum að formaður umhverf-
isnefndar sá sér ekki fært að mæta.
„Þingmenn Reyknesinga eru
greinilega orðnir nokkuð hugsi yfir
þessu. Mér sýnist þeir ekki eiga
auðvelt með samvisku sína í þessu
máli,“ segir Ólafur.
í ályktun sinni átelur fundurinn
stjórnvöld harðlega fyrir „óvönduð
vinnubrögð við mat á umhverfis-
áhrifum þar sem sjónarmið bænda,
TILKYNNT var um rán í mynd-
bandaleigu við Höfðatún á laugar-
dagskvöld. Um nóttina kom í ljós,
að ránið var að öllum líkindum
sett á svið af afgreiðslumanni
myndbandaleigunnar og félaga
hans. RLR telur málið nú upplýst
að fullu og er enginn í haldi vegna
þess.
Þegar lögreglan kom á vettvang
hins ætlaða ráns sagðist af-
greiðslumanninum svo frá að ung-
ur maður, 170-180 cm á hæð,
klæddur hvítum jakka og svörtum
buxum, hefði komið inn í leiguna
og haldið hnífi að hálsi sér. Því til
sönnunar sýndi hann rautt far á
hálsinum, sem hann sagði eftir
hnífinn. Hann hefði því látið ræn-
ingjann fá peninga úr kassa versl-
unarinnar og áætlaði eigandi
myndbandaleigunnar, sem kom á
sumarbústaðaeigenda og annarra
er meta að verðleikum náttúrugæði
Hvalfjarðarsvæðisins, hafa verið
sniðgengin svo að alls ekki verður
við unað.“
Skorað á ríkisstjórn, Alþingi
og Náttúruverndarráð
Samtökin skora á ríkisstjórn og
Alþingi að endurskoða þá „stór-
virkjana- og stóriðjustefnu sem iðn-
aðarráðuneytið og Landsvirkjun
reka með yfirgangi og metnaðar-
leysi gagnvart umhverfisvernd í
landinu. Sú stefna gengur vissu-
lega þvert á alla viðleitni til að
efla græna ferðaþjónustu, lífrænan
landbúnað og virðingu fyrir hinni
sérstæðu náttúru íslands," eins og
segir í ályktuninni. Fundurinn skor-
ar ennfremur á Náttúruverndarráð
vettvang, að það hefðu verið um
70-80 þúsund krónur.
Afgreiðslumaðurinn var svo mið-
ur sín eftir atburðinn að lögreglan
flutti hann á slysadeild, þar sem
hann naut áfallahjálpar, en að því
loknu fór hann til síns heima.
Gaf upp nafn sam-
særismannsins
Tæpum tveimur tímum eftir
ætlað rán stöðvuðu lögreglumenn
bifreið á Borgarvegi, þar sem öku-
maðurinn var grunaður um
ölvunarakstur. í bifreiðinni fundust
fíkniefni og farþegi reyndist vera
með á sér rúmar 64 þúsund krónur
í seðlum og skiptimynt. Hann svar-
aði til lýsingar afgreiðslumannsins
á ræningjanum og það vakti enn
frekari athygli Iögreglunnar að
hann gaf upp nafn og kennitölu
að lýsa yfir stuðningi við baráttu-
mál samtakanna.
Ólafur segir næstu skref í bar-
áttunni þau að efna til funda til
þess að kynna málstaðinn fyrir al-
menningi og einnig stendur til að
halda fund með forráðamönnum
ríkisstjórnarinnar. Þá verða stofn-
aðir nokkrir vinnuhópar og lögð
áhersla á að vinna á málefnalegan
hátt og kynna málið rækilega innan
stjórnkerfisins.
Hinn 18. febrúar nk. verður svo
haldin í Borgarleikhúsinu baráttu-
og styrktarsamkoma samtakanna.
„Við erum að leggja lokahönd á
undirbúninginn og munum kynna
dagskrána á allra næstu dögum.
Meðal listamanna sem þar koma
fram eru þeir Bubbi Morthens, KK
og Ríó Tríó,“ segir Ólafur að lokum.
afgreiðslumannsins, þegar hann
var spurður að nafni. Við nánari
eftirgrennslan kom í ljós að þessi
piltur og afgreiðslumaðurinn í
myndbandaleigunni höfðu verið
staðnir saman að verki við vafa-
sama iðju. Grunaði lögreglu þá að
þeir félagamir hefðu sammælst um
„ránið" og var afgreiðslumaðurinn
sóttur til Síns heima. Hann var þá
nýkominn þangað eftir áfallahjálp-
ina.
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að talið væri upplýst
að starfsmaður myndbandaleig-
unnar og félagi hans hefðu tekið
fé úr sjóðum fyrirtækisins og ætlað
að skýra hvarf peninganna með því
að rán hefði verið framið. „Málið
telst upplýst," sagði Hörður.
Trúar-
legri deilu
lauk með
ofbeldi
TVEIR menn frá Alsír voru
handteknir á gistiheimili
Hjálpræðishersins við Kirkju-
stræti um helgina. Annar
þeirra hafði þá stungið Líbýu-
mann með hnífi vegna deilna
um trúarbrögð. Mennirnir þrír
eru allir rétt um þrítugt.
Alsírmennirnir eru pólitískir
flóttamenn, sem hafa búið hér
á landi í sex mánuði og vonast
til að fá hér landvistarleyfi,
en Líbýumaðurinn kom til
landsins í nóvember. Starfs-
menn Hjálpræðishersins köll-
uðu á lögreglu vegna heiftar-
legra deilna þeirra og Líbýu-
mannsins og mun þetta ekki
vera í fyrsta skipti sem kast-
ast í kekki með þeim. Mennirn-
ir eru allir Múhameðstrúar, en
ýmist Shítar eða Súnítar.
Aðbúnaður í
skólaakstri í
athugun
UMBOÐSMAÐUR barna hefur
nú til skoðunar nokkrar ábend-
ingar sem embættinu hafa bor-
ist vegna aðbúnaðar barna í
skólaakstri.
Meðal þess sem bent hefur
verið á að víða sé ábótavant
er öryggi barna í skólabílum
og hæfni bílstjóra, auk þess
sem mörg dæmi eru um að
skólabörn þurfi að sitja í bíl
allt að og jafnvel lengur en
tvær klukkustundir á degi
hveijum.
Ragnheiður Harðardóttir,
félagsfræðingur hjá embætti
umboðsmanns barna, segir að
athygli hafi verið vakin á ýmsu
sem nauðsynlegt sé að hafa
meira eftirlit með.
Náði ekki
andanum eft-
ir hassreyk-
ingar
LÖGREGLAN var kölluð að
húsi í Reykjavík um helgina,
en 16 ára piltur reyndist vera
í andnauð vegna fíkniefna-
neyslu.
Þegar lögreglan kom á vett-
vang átti pilturinn mjög erfitt
um andardrátt. Hann viður-
kenndi að hafa reykt hass
skömmu áður.
Lögreglan kallaði á sjúkra-
bíl, en þegar læknir kom á
vettvang hafði bráð nokkuð
af pilti og mat læknirinn að-
stæður svo, að óþarfi væri að
flytja hann á slysadeild. Þess
í stað var hann fluttur á lög-
reglustöðina við Hverfisgötu
og gisti þar um nóttina.
I gæslu vegna
innbrota
RANNSÓKNARLÖGREGLA
ríkisins hefur handtekið mann,
sem grunaður er um fjögur
innbrot, þar á meðal í verslun-
ina Metró-Norðmann, en það-
an hurfu tölvur fyrir nokkru.
Maðurinn var farinn úr höf-
uðborginni þegar Rannsóknar-
lögreglan vildi hafa tal af hon-
um, en hann fannst úti á landi
og var sóttur þangað.
Ætlað rán í myndbandaleigu var samsæri um þjófnað
Þjófur fékk áfalla-
hjálp eftir „ránið“