Morgunblaðið - 04.02.1997, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Bætt úr brýnni þörf með kennslu í íslensku á Þórshöfn
*
Utlendingar
á skólabekk
Þórshöfn - í grunnskólanum á
Þórshöfn er jafn líflegt á
kvöldin sem á daginn því haf-
in er íslenskukennsla fyrir
útlendingana í plássinu.
Fréttaritari leit inn eitt kvöld-
ið og voru þá í kennslustund
Rússar, Pólverjar og Frakkar
ásamt nemanda frá Svart-
fjallalandi - allir að læra ís-
Iensku með hjálp kennaranna
Heiðrúnar Óladóttur og Erlu
Jóhannesdóttur.
Flestir útlendinganna vinna
hjá Hraðfrystistöð Þórshafnar
en einnig eru tveir pólskir
tónlistarkennarar og hjá véla-
verkstæðinu Þistli vinna fjórir
Pólveijar; rennismiðir og vél-
virkjar að mennt. Námið
gengur vel, að sögn kennar-
anna en Rússarnir standa þó
verr að vígi en hinar þjóðirnar
því stafagerð þeirra er önnur.
Aformað er að kennslustundir
verði alls um 70 og ljúki stuttu
fyrir páska.
Kennslan fer fram á fjöl-
breyttan og líflegan hátt og
ýmislegt er tekið fyrir; klukk-
an, stafrófið, tölur, dagar,
matur að ógleymdum söng -
en leikskólasöngurinn góði
„höfuð, herðar, hné og tær“
kemur þarna að góðum notum.
Málfræðin kemur einnig við
sögu. Að sögn kennaranna,
Heiðrúnar og Erlu, er þetta
mjög skemmtilegt verkefni,
nánast ævintýri og hópurinn
duglegur og vinnusamur. Það
kemur ekki á óvart því fólkið
þykir almennt duglegt og sam-
viskusamt í vinnu sinni hér á
Þórshöfn.
Á Þórshöfn voru samkvæmt
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
UTLENDINGAR í íslenskunámi ásamt kennurunum Erlu Jó-
hannesdóttur og Heiðrúnu Óladóttur.
íbúaskrá hinn 1. desember sl.
472 íbúar og eru útlendingar
um 7% íbúanna, Pólveijar
flestir eða fjórtán talsins. Það
var því orðin brýn nauðsyn að
þetta fólk fengi aðstoð við að
læra íslensku og komast þar
með betur inn í samfélagið hér
og samlagast því heldur en að
einangrast í sínum hópi vegna
tungumálaörðugleika.
Alltaf er hægt að sjá spaugi-
legu hliðina á málunum, ekki
síst á þorrablótum. í gaman-
málum á þorrablóti Þórshafn-
arbúa á dögunum var það haft
á orði að trúlega væri fljót-
legra að kenna þessum fáu
Islendingum, sem eftir eru í
þorpinu, pólsku eða rússnesku
heldur en að standa fyrir ís-
lenskunámskeiði!
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
MENNIN GARMIÐSTÖÐ rís í Hveragerði.
Menningar-
miðstöð rís
í Hveragerði
Hveragerði - Menningarmiðstöð
í Hveragerði er hýsa mun sýn-
ingarsal, ráðstefnuaðstöðu,
vinnustofu fyrir listiðnað, list-
munaverslun og veitingastofu er
nú nær fokheld. Það er Einar
Hákonarson myndlistarmaður og
fjölskylda hans sem standa að
byggingu hússins sem er stál-
grindarhús, rúmir 900 fermetrar
að stærð. Bygging hússins hófst
um mitt síðasta sumar og er
áætlað að starfsemi í húsinu geti
hafist 1. júní. Aðspurður sagðist
Einar byggja hugmynd sína um
einkarekna menningarmiðstöð að
mestu á erlendum fyrirmyndum.
„Menningarmiðstöðvar svipaðar
þessari eru til á Norðurlöndum.
Það er, einkareknar utan stór-
borgar. Samt er útfærsla mín á
menningarmiðstöðinni í Hvera-
gerði einstök þó víða væri leitað.
Þetta á að vera lifandi menning-
armiðstöð þar sem fólk getur
komið og notið þess að skoða það
sem hér verður til sýnis ásamt
því að njóta veitinga í fögru um-
hverfi.“
Húsið er staðsett við Austur-
mörk, rétt við hlið Eden. Aðal-
hönnuður hússins er Jón Róbert
Karlsson á teiknistofunni Arko
en byggingameistari er Guð-
mundur Hervinsson.
Fjárhagsáætlun ísafjarðarbæjar
samþykkt samhljóða
Ráðgert er að veija
217 milljónum króna
í framkvæmdir
ísafirði - Frumvarp að ijárhags-
áætlun ísafjarðarbæjar og stofn-
ana hans fyrir árið 1997, var sam-
þykkt samhljóða á fundi bæjar-
stjórnar sem haldinn var fimmtu-
daginn 30. janúar.
Mun þetta vera í fyrsta skipti
í langan tíma sem fjárhagsáætlun
bæjarfélagsins er samþykkt sam-
hljóða enda mun vorhugur hafa
verið í bæjarfulltrúum en sólin
sást í fyrsta skipti í bænum þann
dag og fengu því bæjarfulltrúar
jafnt og margir aðrir Isfirðingar
kaffí og rjómapönnukökur í tilefni
dagsins.
Skatttelg'ur bæjarins verða
718 milljónir króna
Skatttekjur bæjarsjóðs eru sam-
kvæmt áætluninni 718.482 millj.
króna og rekstrargjöld eru áætluð
573.132 miilj. króna. Tekjuaf-
gangur er því áætlaður 145.350
millj. kr. sem fara mun til fram-
kvæmda og afborgana lána.
Rekstrarútgjöld skiptast á eftir-
farandi hátt eftir málaflokkum.
Til yfírstjórnar bæjarfélagsins
fara tæpar 62 millj. kr., 80 millj.
fara til félagsþjónustu, 215 millj.
fara til fræðslumála, 15 millj. til
menningarmála og 40 millj. kr. til
íþrótta- og æskulýðsmála.
Til brunamála og almanna-
varna eru áætlaðar tæpar 12
millj., 55 millj. til hreinlætismála,
14 millj. til skipulags- og bygg-
ingamála, 7 millj. til gatna-, hol-
ræsa- og umferðarmála, 18 millj.
til almenningsgarða og útivistar,
800 þúsund kr. eru áætlaðar til
heilbrigðismála og rúmar 5 millj.
kr. eru áætlaðar til atvinnumála.
Til annarra óskilgreindra mála
fara rúmar 26 millj. 15 millj. kr.
eru á rekstaráætlun til almenn-
ingssamgangna og fjármagns-
tekjur og gjöld eru áætluð rúmar
44 millj. kr.
Áttatíu milljónir fara til
byggingar nýs leikskóla
Fjárfestingaráætlun fyrir árið
1997 gerir ráð fyrir framkvæmd-
um fyrir um 217 millj. kr. og veg-
ur þar þyngst bygging nýs leik-
skóla en í þá framkvæmd eru
áætlaðar 80 millj. kr. Þá er gert
ráð fyrir 50 millj. kr. til gatna-,
holræsa- og umferðarmála og 30
millj. kr. til uppbyggingar á Safna-
húsi bæjarfélagsins, þ.e. gamla
sjúkrahúsinu á ísafírði.
Lukkuridd-
arinn í Mý-
vatnssveit
Mývatnssveit - Leikdeild Ung-
mennafélagsins Mývetnings
frumsýndi írska gamanieikinn
Lukkuriddarann eftir J.M.
Synge í Skjólbrekku föstudags-
kvöldið 31. janúar.
Leikstjóri er Sigurður Hall-
marsson._ Þýðandi verksins er
Jónas Ámason. Undirleikari
séra Öm Friðriksson. Leikendur
voru ails þrettán og gerðu þeir
yfirieitt sínum hlutverkum ágæt
skil. Fjölmenni var og leiknum
mjög vel tekið. Önnur sýning
var sunnudaginn 2. febrúar og
þriðja sýning er áætluð þriðju-
daginn 4. febrúar kl. 21.
Egilsstaðir
3 fíkniefna-
málí janúar
LÖGREGLAN á Egilsstöðum
upplýsti þijú fíkniefnamál í jan-
úarmánuði. Það er meiri fjöldi
en áður eru dæmi um í einum
mánuði, að sögn Úlfars Jóns-
sonar varðstjóra.
í stærsta málinu var lagt
hald á 7 grömm af hassi á
Egilsstaðaflugvelli og maður
handtekinn.
í annað skipti var lagt hald
á um það bil gramm sem fannst
við húsleit og í þriðja málinu
var tekið gramm af hassi.
Hveragerði
Lýsa bæjar-
fulltrúa án
umboðs
STJÓRN Sjálfstæðisfélagsins
Ingólfs í Hveragerði hefur lýst
því yfir að á meðan bæjarfull-
trúar þess slíti ekki samstarfi
við H-listann í bæjarstjórn séu
þeir ekki á neinn hátt í umboði
Sjálfstæðisfélagsins Ingólfs
vegna starfa þeirra að bæjar-
stjórnarmálum í Hveragerði.
Fulltrúar félagsins hafa frá
25. ágúst sl. verið í meirihluta-
samstarfí við H-listann. Meiri-
hlutinn er settur saman af fjór-
um fulltrúum sjálfstæðismanna
og þremur fulltrúum H-lista og
er enginn í stjórnarandstöðu.
Stjórn Ingólfs telur því ekki
þörf á meirihlutasamstarfinu
og hefur ítrekað mælst til þess
við bæjarfulltrúana fjóra að
slíta því.
Gísli Páll Pálsson, forseti
bæjarstjómar og einn fulltrú-
anna fjögurra, segir að yfiriýs-
ingar stjórnar sjálfstæðisfé-
lagsins snerti hann ekki. „Með-
an málefnasamningurinn er
virtur af báðum aðilum teljum
við enga ástæðu til að slíta sam-
starfinu," segir Gísli Páll.
Snælandsskóli - 200 Kópavogur
GARÐYRKJUNÁMSKEIÐ
Heimilisgarðurinn Fjölgun og uppeldi plantna
Trjáklippingar Hönnun og skipulag garða
Leiðbeinendur: Hafsteinn Hafliðason og Björn Jóhannsson.
Innritun i símum:
564 1527, 564 1507 og 554 4391 kl. 18.00-21.00.