Morgunblaðið - 04.02.1997, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 27
FERMWGAMYNDIR
Qjósnujndastofa
(^uuuars úugimarssonar
Suöurveri, simi 553 4852
't' 13 0 i
Kínadagar V/
í Perlunni ^5-^
í tilefni 25 ára stjórnmálasambands
í slands og Kína verður efnt til
Kínadaga '97, sem hefjast nýársdag
skv. kínversku almanaki; 7. febrúar.
Málþing, vörusýning og
ýmsir listviðburðir
Málþing um samskipti íslands og Kina
í Perlunni föstudaginn 7. febrúar
kl. 11.30-16.25.
Efni: Samskipti á sviöi vísinda, stjórnmála,
menningar og lista, fjárfestinga, ferðamála og
viðskipta; 21. öldin - öld Kína o.fl.
Aðgangsevrir kr. 5000.-
liádegisverður innifalinn,
greiðist við innganginn.
Skráning og upplýsingar í síma 588 8910
á skrifstofu PÍS, Húsi verslunarinnar, 6. hæð.
Verið velkomin á vöru-
og listsýninguna
__ Gerið góð kaup á kínverskum vamingi.
Ýmsar uppákomur á dagskrá alla helgina.
Opin laugardag og sunnudag frá kl. 10 til 18.
Aðgangur ókeypis.
Ath: í tilefni Kínadaga 197 verður kínverskur
áramótamatseðill á borðum í veitingahúsi
Perlunnar!
Íslensk-kínverska viðskiptaráðið
Kínversk-íslenska menningarfélagið
Utanríkisráðuneytið
Frakkar með Ramsesar-æði
Bækur um Forn-Egypta hafa slegið hvert
sölumetið á fætur öðru í Frakklandi
HÚN var kölluð „ævisagna-
sprenging ársins, jafnvel aldar-
innar“. Verkið sem náði að
velta æviminningum Brigitte
Bardot og ævisögum Francois
Mitterrand úr sessi var um
Ramses II, faraó í Egyptalandi,
alls fimm bindi, eftir Christian
nokkurn Jacq. Er fyrsta bókin
kom út í október 1995 seldust
50.000 eintök fyrsta hálfa mán-
uðinn og salan á fyrstu fjórum
bindunum hefur farið yfir tvær
milljónir eintaka. Fimmta og
síðasta bindið, „Sous l’acscia
d’Occident", kom út fyrr í jan-
úar og fór salan hraustlega af
stað. Ef haft er í huga að önn-
ur ævisaga Ramsesar II var á
metsölulistanum í þrjá mánuði
í fyrrasumar, verk eftir Christ-
iane Desroches, eru engar ýkj-
ur að fullyrða að Frakkar eru
með Ramsesar-æði.
Rames II ríkti i 67 ár á 13.
öld f.Kr. og hlaut viðurnefnið
„hinn mikli“ á síðustu öld. Hann
er þekktastur fyrir hernaðar-
sigra sína á Hittítum og Líbýu-
mönnum og gríðarlegar bygg-
ingar. Gríðarstór stytta af hon-
um fannst nýlega við pýramíd-
ana í Giza, svo og grafhýsi fyr-
ir 53 syni hans.
Verk Jacq hefst þegar Ram-
ses er 14 ára og er búinn undir
að taka við af föður sínum.
Raktar eru stríðsfarir hans og
fjölmargar ráðagerðir fjand-
manna hans til að koma honum
frá völdum. Líklega verður
seint sagt að verk Jacq teljist
til merkra bókmennta, miklu
fremur til reyfara þar sem
setningar eru stuttar, stíllinn
einfaldur og söguþráðurinn
hlaðinn spennu. Franskt dag-
blað kallaði bækurnar „Dallas
og Dynasty í Egyptalandi" og
þekktur ritsljóri sagði einfald-
lega ekki hægt að leggja þær
frá sér.
Gagnrýnendur hafa hins
vegar haldið að sér höndum,
fjalla lítið sem ekkert um verk
Jacq. Hann hefur verið sakaður
um að taka sér skáldaleyfi og
fara frjálslega með staðreyndir
en hann byggir verk sín á
traustri og gríðarlega um-
fangsmikilli heimildarvinnu.
Hann á yfir 10.000 uppflettirit
og vitnar til ótal ritgerða og
bóka um tísku á tímum Forn-
Egypta, dýrahald og súlnaröð-
ina í Luxor, svo fátt eitt sé
nefnt. Raunar fullyrðir Jacq
að hann hafi viðað að sér efni
í bækurnar sl. aldarfjórðung
en hann heillaðist af Egypta-
landi hinu forna er hann var
13 ára. Er hann kvæntist, 17
ára gamall, fór hann í brúð-
kaupsferð til Egyptalands.
Hann lauk doktorsprófi í sagn-
fræði frá Sorbonne og hefur
gefið út fjölmargar bækur um
Egyptaland, sem flestar hafa
náð góðri sölu.
Ef til vill er skýringarinnar
að leita í því að Frakkar
hafa verið heillaðir af
Egyptalandi frá því að
Napóleon Bonaparte
vann frækinn hernaðar-
sigur þar 1798-99 og
hefur sá áhugi færst
í aukana á undan-
förnum árum.
Ferðamanna-
straumurinn frá
Frakklandi til
Egyptalands
hefur t.d. aukist
um 158% á sl.
ári. Hvers
Frakkar leita
þar skal ósagt
látið, ef til vill
er lausnina á
vanda nútímans
að finna í fortíð-
inni.
Fallegar og
vandaðar
gjafavörur á
frábæru verði
Listhúsinu (gegnt Hótel Esju), simi 568 3750.
HVERJIR eru þessir íslendingar? Brenndur leir og steypt gler.
Þannig birtist orðið íslendingar fyrst í rituðu máli (Grágás um 1250).
Islendingar
MYNPLIST
Ásmundarsalur
SKÚLPTÚR/HUGMYND
Borghildur Óskarsdóttir. Opið alla
daga frá 14-18. Lokað mánudaga.
Til 9. febrúar. Aðgangur ókeypis.
ALVEG má slá föstu, að vegir
leirlistarinnar séu órannsakanlegir,
í öllu falli hér á landi. Hver leirlistar-
konan á fætur annarri hefur vikið
af braut hefðbundinna gilda og á
vit innsetninga og hugmyndafræði,
svo sem menn hafa getað fylgst með
á undanförnum árum. Ekki skal
amast við því á nokkurn hátt, en
þess beðið í stóiskri ró hveiju fram
vindur.
Langt er síðan Borghildur Óskars-
dóttir tók stefnuna á hreinan skúlpt-
úr, og innsetningar í bland, þar sem
klár form ómengaðrar mótunar réðu
ferðinni og þeim raðað á ýmsa vegu
í tilfallandi rými. Þessu heldur hún
ótrauð áfram, en nú eru vísanirnar
nokkuð aðrar í þá veru að hún legg-
ur út af frásagnarlegu myndefni sem
skarar skjaldarmerki ríkisins, sem
Tryggvi Magnússon teiknaði lýð-
veldisárið 1944. Jafnframt spurning-
unni: „Hveijir eru þessir íslending-
ar?“ ennfremur upphafinu að skáld-
verkinu „Fegurð himinsins" eftir
Halldór Laxness, sem ritað var 10.
janúar 1940: „Þar sem jökullinn ber
við himininn hættir landið að vera
jarðneskt, en jörðin fær hlutdeild í
himninum, þar búa ekki framar nein-
ar sorgir og þessvegna er gleðin
ekki nauðsynleg, þar ríkir fegurðin
ein, ofar allri kröfu.“ Einneigin fylg-
ir listakonan framkvæmdinni úr
hlaði með því að vísa til Heims-
kringlu og hluta hennar er fjallar
um Harald Gormsson konung Dana,
er bauð kunnugum manni að fara
hamförum til íslands og freista, hvað
hann kynni segja honum. Sá fór í
hvals líki. En er hann kom til lands-
ins, fór hann vestur fyrir norðan
landið. Hann sá að fjöll öll og hólar
voru full af landvéttum, sumt stórt
en sumt smátt . . . Mun kaflinn
hafa verið kveikjan og innblásturinn
að rissi Tryggva Magnússonar.
Listakonan hefur markað mót úr
afmörkuðum hlutum skjaldarmerk-
isins á leirklumpa, sem er raðað í
kringum nokkra sérsmíðaða tré-
kassa, hvers umfang er í samræmi
við fyrirferð klumpanna, en á botni
þeirra eru svo hlutarnir í steyptu
gleri.
Þetta er afar vel mótaður og lif-
andi gjörningur, fjarri þó einungis
fyrir frásagnarlega þáttinn, enn síð-
ur að rýnirinn telst áróðursmaður
sérgildra sem hlutvaktra myndefna
er skara land og sögu. Heldur ein-
faldlega vegna verklagsins og út-
færslunnar í heild sinni. Sterk og
afmörkuð innsetning er fellur vel að
umhverfi sínu. Rýmið sjálft saga út
af fyrir sig, því Asmundarsalur hef-
ur aldrei viðkunnanlegri verið, eink-
um er hið hlutlausa trégólf saga út
af fyrir sig. Menn ímyndi sér bara
hvernig gljáandi parkettgólf, stáss-
legur marmari eða htjúfleiki á borð
við gólfið á Sólon Islandus hefði
dregið úr hrifmætti innsetningarinn-
ar.
í stuttu máli, hrein og tær inn-
setning sem skilar sér til skoðand-
ans, vekur til umhugsunar og kemur
honum við.
Bragi Ásgeirsson
Herrakulda-
skór
Verð: 2.995,
Áður:__Ór995^
|oppskórinn
Veltusundi við Ingólfstorg
sími: 552 1212
Tegund:2142
Stærðir: 40-45
Litur: Svartir
Loðfóðraðir
Póstsendum samdægurs