Morgunblaðið - 04.02.1997, Page 37

Morgunblaðið - 04.02.1997, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 37 . > > AÐSEMPAR GREIMAR Matur í skóla Laufey Steingrímsdóttir „I GRUNNSKÓLA skulu nemendur eiga kost á málsverði á skólatíma". Þessa skilmerkilegu klausu er að finna í fjórðu grein nýrra grunn- skólalaga frá árinu 1995. Raunar voru svipuð ákvæði í fyrri grunnskólalögum án þess að hátt væri um það haft eða lagabók- stafnum fylgt út í æsar. Nú þegar sveit- arfélög hafa tekið við rekstri grunnskólans og ný foreldraráð hafa tekið til starfa við hvern skóla gefst ef til vill lang- þráð tækifæri til að bæta aðstöðu nemenda og bjóða þeim hollan og góðan mat á skólatíma. Börn þurfa hádegismat Hvers kyns umræða um skóla- máltíðir hefur fram að þessu strandað á þeirri einföldu staðreynd að skólar þéttbýli hafa flestir verið tvísetnir og börn verið í skóla á mismunandi tímum. Nú er að verða breyting hér á, skóladag- urinn hefur lengst hjá yngri börnum og allflestir nemendur eru í skólanum fram yfir hádegi. Einhvern veginn þarf því að leysa matarmál nemenda, - svo mikið er víst að börn og unglingar þurfa hádegisverð ekki síður en annað fólk. Hvort nauðsynlegt er að bjóða ævinlega fullgilda heita máltíð í hádeginu er hins vegar önnur saga, að öllum líkindum er hægt að leysa þessi mál á einfald- ari hátt, þannig að flestum líki. Góð heit máltíð er að vísu besti kostur sem hægt er að hugsa sér, en á hinn bóginn er léleg heit máltíð síður en svo ákjósanlegur kostur. Á mörgum vinnustöðum er boðið upp á létta máltíð með smáréttum, súpu, brauði, salati, sýrðum mjólkurvörum o.s.frv., í staðinn fyrir þunga, heita máltíð. Svipað fyrirkomulag mætti hugsa sér innan skólans, raunar er þegar komin ágæt reynsla fyrir slíku framboði í nokkrum grunnskólum. skólans í þessum mál- um skipta þá megin- máli og geta jafnvel haft afdrifaríkar af- leiðingar fyrir heilsu unglinganna. Góð aðstaða til að matast skiptir miklu máli Meðal yngri nem- enda hefur lengi tíðk- ast að kennari lesi sögu meðan bömin matast í kennslustof- unni. Þannig hefur nestistíminn verið notaleg stund, bömin verið í umsjá kennara og ákveðinn tími ætlaður til mat- arhlés í stundaskrá. Þetta ágæta fýrirkomulag víkur þegar komið er í efri bekki og þá þekkist jafn- vel að nemendum sé hvorki ætlað- ur tími né veitt aðstaða til að matast. Gangar skólans eða sölu- skálar í nágrenninu em einu afdrepin sem þeim standa til boða. Það er greinilegt að í þeim skólum þar sem lítil eða engin aðstaða er fyrir nemendur til að kaupa mat og snæða í þokkalegu umhverfi em unglingar iðulega matarlitlir allt þar til skóla lýkur síðdegis eða seðja sárasta hungrið með sætind- um. Jafnvel þótt samlokur og ann- ar hoilur matur sé seldur um lúgu Grunnskólum landsins ber skylda til að veita nemendum sómasam- lega aðstöðu til að mat- ast, segir Laufey Stein- grímsdóttir, og hafa aukþess á boðstólum mat fyrir þá sem ekki koma með nesti að heiman. Hvað borðar íslensk æska? j I ! I j 1 En hvað vitum við um matar- æði barna og unglinga á íslandi? Árið 1992 stóð Manneldisráð fyrir ítarlegri könnun um land allt á mataræði æskufólks á aldrinum 10-15 ára. Þar kom m.a. fram að um 80% barna í þéttbýli undir 12 ára aldri koma ævinlega með nesti að heiman, þá oftast samloku og drykk, og allflest borða líka morgunverð áður en lagt er af stað í skólann. Annað er hins veg- ar upp á teningnum meðal nem- enda í efri bekkjum grunnskóla. Þar fækkar bæði nestispökkum og morgunverðum til muna, sér- staklega meðal stúlkna - jafn- framt því sem skóladagurinn leng- ist. Rúmur þriðjungur stúlkna í 9. bekk kemur þannig í skólann án þess að hafa borðað morgun- verð a.m.k. einu sinni í viku eða oftar. Könnunin sýnir líka að þeir sem sleppa oft morgunverði borða að jafnaði næringarsnauðara fæði það sem eftir lifír dags, þar er meira er um sælgæti og gosdrykki en minna af hollum mat. Það skal tekið fram að hér er ekki verið að hvetja til þess að morgunverður sé framreiddur í skólum landsins. Hins vegar skipta þessar niður- stöður nokkru máli þegar taka skal ákvörðun um matarframboð á vegum skólans. Það verður ein- faldlega að gera ráð fyrir því að hluti nemenda í efri bekkjum grunnskóla komi bæði matarlaus og nestislaus í skólann. Úrlausnir í sjálfum skólanum nægir það sjaldan í samkeppni við söluskála og bakarí í grennd við skóla ef aðstöðuna skortir til að setjast niður og vera með félögunum meðan borðað er. Notalegt afdrep innan veggja skólans þar sem nemendur geta komið saman og borðað í hádegishléi gerir greini- lega gæfumuninn. Lokaorð Á því leikur enginn vafí að grunnskólum landsins ber skylda til að veita nemendum sómasam- lega aðstöðu til að matast og hafa auk þess á boðstólum mat fyrir þá sem ekki koma með nesti að heiman. Samlokur, léttmjólk, sýrð- ar mjólkurvörur, ávextir og hrátt grænmeti, t.d. gulrætur, rófur og tómatar, eru lágmarksframboð í þessu efni. Þar fyrir utan eru heit- ar súpur, salöt og heitir smáréttir ákjósanleg viðbót, sérstaklega fyr- ir nemendur í efri bekkjum. Þar sem aðstaða er fyrir hendi, eins og víða í stijálbýli, er eðlilegt að bjóða heita máltíð í hádegi. Nauð- synlegt er að nemendup hafi líka aðgang að köldu drykkjarvatni og drykkjarmálum til að minnka að- sókn í sæta drykki. Hitt má ekki gleymast að hæfilega langt hlé og notalegt umhverfi til að matast innan skólans skiptir ekki minna máli en sjálfur matseðillinn. Höfundur er forstöðumaður Manneldisráðs. MINNINGAR GUÐRUN RAGNA VALGEIRSDÓTTIR + Guðrún Ragna Valgeirsdóttir fæddist á Höfn í Hornafirði 11. jan- úar 1923. Hún lést í Reykjavík 26. jan- úar síðastliðinn. Foreldrar Guðrún- ar Rögnu voru Val- geir F.G. Bjarnason og Sólveig S. Jóns- dóttir. Systur Guð- rúnar Rögnu eru Nanna Þóra, f. 11.1. 191?, d. 11.11.1939, Ingibjörg, f. 12.9. 1918, og Vilborg, f. 25.11. 1925. Guðrún Ragna giftist Hirti Guðjónssyni, trésmið. Börn Hjartar og Guðrúnar Rögnu eru: Þórveig, f. 28.7. 1944, starfsmaður við heilbrigðis- ráðuneytið, búsett í Reykjavik og á hún þijú börn; Pálína, f. 5.4. 1946, starfsmaður við sjúkrahúsið á Húsavík, gift Grétari Sigurðssyni og eiga þau fjögur börn; Valgeir Gunnar, f. 21.2. 1948, starfs- maður við öryggis- þjónustu á Höfn í Hornafirði, kvænt- ur Valdísi Ingi- björgu Harðardótt- ur og eiga þau þrjú börn; Guðjón, f. 5.12. 1949, starfs- maður við bón- og bílþvott í Reykjavík, en kona hans er Kristjana Jensdóttir og á hann tvær dæt- ur; Kristján Már, f. 1.11. 1951, trésmið- ur í Reykjavík, kvæntur Ingibjörgu Höskulds- dóttur og á hann fimm börn; Signý Ingibjörg, f. 5.10. 1955, húsmóðir í Reykjavík, og á hún fjögur börn; Hjörtur Ragnar, f. 16.3. 1958, starfsmaður Pósts og sima á Höfn í Hornafirði en kona hans er Nanna Gunnars- dóttir og eiga þau tvö börn. Útför Guðrúnar Rögnu verður gerð frá Laugameskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Öllum sem gráta arma þína réttu, elskaði faðir vert.u þeirra styrkur sjúkleikans bömum sára byrði léttu sendu þeim ljós í trúarefans myrkur. Kærleikur þinn af hjartans kærleik sprottinn hann er vor hjálp í lífsins nauðum drottin. (Guðrún frá Brautarhóli.) Nú þegar við kveðjum vinkonu og mágkonu setur okkur hljóð. Þó ekki komi okkur á óvart andlát hennar eftir undanfarin veikindi. Þó held ég að við séum aldrei viðbúin að missa vin eða sætta okkur við dauðann, þó við vitum að þetta er leiðin okkar allra og allt líf sem fæðist hér á jörðu deyr. En ekki er það að gangan hérna megin grafar sé ávallt þrautalaus eða dans á rósum. Við þökkum fyrir lífið, fyrir vini og skyldmenni, að fá að njóta ná- vistar við þá. Ein af þeim var Guðrún Valgeirsdóttir. Hún fædd- ist á Höfn í Hornafirði. Þar voru bernskuárin í faðmi góðrar fjöl- skyldu í því ægifagra héraði. Hvergi skín sól heitar og hvergi blæs vindurinn kaldar ofan af jökl- um og fjallaskörðum sem svo fal- legt er að horfa til. Þarna kynntist Gunna Hirti frá Viðborði, sem varð maðurinn henn- ar. Saman áttu þau börnin Þór- veigu, Valgeir, Pálínu, Guðjón, Kristján, Ingibjörgu og Hjört. Hún hugsaði vel um fjölskyldu sína og hélt þeim vel saman. Það var um margt að hugsa því auðvit- að bættist í hópinn, tengdabörn, barnabörn og barnabamabörn. Hún átti sínar hugsjónir og það var að hlúa að fólki. Það var alltaf mannmargt í kringum hana og þau hjón bæði enda félagslynd og fram úr hófí greiðasöm og gestrisin. Fjölskylda Hjartar fór ekki var- hluta af því þegar komið var í heimsókn til Hornafjarðar, alltaf tilbúin að skreppa að skoða æsku- stöðvarnar og gera manni ferðina skemmtilega. Man ég vel kátínu hennar í einni slíkri ferð þegar Hjörtur og Hlíf skriðu inn í fjárhús- hellinn á Viðborði og þóttust þar finna fjalir úr jötu frá því þau ól- ust þar upp. Þá hló hún dátt, enda var Gunna gamansöm og glettin, glaðvær hlátur hennar og bros hlýjaði manni alltaf um hjartaræt- urnar. Eitt sem mér fannst líka ein- kenna þessa sterku konu var að þegar hún talaði þá varð að svara, það þýddi ekkert að koma sér hjá því. Eldhúsið hennar Gunnu á Höfn var ekkert fullkomið af innrétting- um eða tækjum en þar var mikið eldað og bakað og það var sama hve margir komu í mat, alltaf var nóg og alltaf þessi íslenski kjarn- góði matur. Stundum fannst manni ýmislegt framandi svo sem selspik- ið og kjötið sem feðgarnir og aðrir Hornfirðingar stýfðu úr hnefa! Kleinurnar, þær bestu sem hægt var að fá, stórar, mjúkar og matar- miklar. Hún veitti þetta allt af rausn og ánægju og það var tilfell- ið, hún nestaði mann líka út. Gunna bar mikla umhyggju fyr- ir fólki og þar á ég skuld að gjalda því fáir hefðu hjálpað betur upp á mig og mína þegar þess þurfti með. Ef hún komst ekki sjálf til aðstoðar þegar höfði varð ekki lyft frá kodda sendi hún bara Hjört sinn og hann bjargaði börnum og búi í „Grænu höllinni“. Þær voru ófáar ferðirnar sem Gunna fór út „á sand“ um varptím- ann og sótti björg í bú. Þetta var ekki bara matbjörg heldur ferðalag og alltaf dreif hún einhvern með sér til að taka þátt í lífinu, komast í snertingu við náttúruna og upp- fylla þá athafnaþrá sem var henni í blóð borin. Margar ferðirnar var skroppið út í Flatey á Mýrum, að Hoffelli og Borg og inn í Lón. Þetta voru sældarferðir með Gunnu. Það var undarlegt hve athafna- þrá hennar var mikil, unninn lang- ur vinnudagur utan heimilis sem innan. Tími gafst til hannyrða sem og annars. Nú seinni árin prjónaði hún og heklaði á smáfólkið sitt. Af þessu sést að hlutur Gunnu í lífinu var býsna stór. Flutningur frá Höfn til Reykja- víkur fyrir fáum árum hlýtur að hafa tekið á þau hjón þó ekki væri fjargviðrast yfir því. Það er ekkert létt fýrir fullorðið fólk að flytja al- veg í nýtt umhverfi, burtu frá þeirri náttúru sem hentaði þeim ágæt- lega. En þau höfðu góða aðlögunar- hæfileika og undu sér vel í Miðtún- inu þrátt fýrir veikindastríð. Þau gerðu þó ýmislegt til tilbreytingar til að létta sér upp og veit ég að ferðimar með Bergmálshópnum austur að Hlíðardalsskóla vora þeim góðar. Þegar við fjölskylda Hlífar, syst- ur Hjartar, kveðjum hana nú, þessa Fylgstu meb í Kaupmannahöfn Morgunblabib fæst á Kastropflugvelli og Rábhústorginu fHutðimhlahih -kjarni málsinsl hetju hversdagsins, þá er söknuður yfír of stuttri samveru og þakklæti fyrir góða samveru, elsku og tryggð efst í huga. Eftir er tóm sem ekki verður fyllt en við höfum margs að minnast og margt lært af Guðrúnu Valgeirsdóttur. Hirti, sem misst hefur mest, eig- inkonu sína og félaga til margra ára, vottum við dýpstu samúð. Ég veit að hann verður studdur af börnunum sínum og systrum á þessum erfiðu stundum. Fjölskyldan öll, dýpstu samúðar- kveðjur. Guð styrki ykkur því hann j leggur líkn með þraut. Veri Guðrún Valgeirsdóttir Guði falin og kært kvödd. Pálína Tómasdóttir. t Látin er í Reykjavík fyrrverandi tengdamóðir mín, Guðrún Ragna Valgeirsdóttir, eftir langt og erfitt helstríð. Ég sem rita þessar línur kynntist þeim hjónum Guðrúnu og manni hennar Hirti Guðjónssyni er ég kvæntist elstu dóttur þeirra árið 1962. Þau voru bæði fædd í Austur-Skaftafellssýslu og bjuggu þar mest allan búskap sinn, lengst af á Höfn í Hornafirði og eignuðs- ut þau sjö börn er öll lifa móður sína. Ég ætla ekki að rekja sevifer- il hennar né þeirra, heldur einung- is að þakka henni fyrir allar S ánægjulegu stundirnar er við átt- um saman, hlýhug hennar, hjálp- semi og vinarþel til mín og minna er aldrei bar skugga á. Það þurfti stefnufestu, hugrekki og sjálfsafneitun að koma upp stór- um bamahópi í þá daga sem nú til dags og sérstaklega þar sem húsbóndinn gekk aldrei heill til skógar, þjáðist mjög af asma sem hamlaði honum oft frá vinnu. Guð- rún varð því að leggja sinn skerf til vinnu utan heimilisins jafnframt 1 því að sinna heimilisstörfum á mannmörgu heimili. Faðir minn sagði er hann minntist verka henn- ar: „Það kemst enginn í fötin henn- ar Guðrúnar,“ er þau mál bar á góma. Guðrún var ein þeirra mörgu sem vinna störf sín í kyrrþey, sem sjaldan er getið um en allir njóta ávaxtanna af verkum þeirra. Boð- beri er skærast skín, sem yljar upp umhverfi sitt til verndar íslensku mannlífi. Ég vil gera orð systur hennar, Ingibjargar, að mínum er hún rit- aði til mín um jólin: „Já, lífið geng- ur sinn vanagang, menn koma og fara, en sumir menn eru birtugjaf- ar, hlaðnir einhveiju dularfullu ljós-' magni sem yljar og gleður alla er umgangast þá. Systir mín Gunna bar slíkt með sér hvert sem leið hennar lá.“ Nú er hún horfin sjónum okkar yfír móðuna miklu, til þess heims er hún trúði á, þangað sem allir hverfa til fyrr eða síðar. Trú, von og kærleikur voru hennar aðals- merki. Ljósgeisli augna þinna er slokkn- aður. En megi það Ijós, sem þú tendraðir í brjóstum barna þinna, vina og samferðamanna, verða að gróðursprota fyrir betra lífi á þess- ari jörð frá þeirri moldu er allir eru sprottnir frá. v Hirti Guðjónssyni, eftirlifandi bömum þeirra og öðrum aðstand- endum, sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Hún á góða heimkomu vísa. „Hvíl í friði mæta móðir.“ Eyjólfur Magnússon. JIIIIIIIXII, Grfidrykkjur * P E R L A N Slmi 562 0200 iiiiiiiiiir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.