Morgunblaðið - 04.02.1997, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 45
I
I
I
>
)
)
>
>
>
»
■
-
5
i
J
9
I
I
9
i
I
f
Linsan 25 ára
SUS álykt-
ar um
ÁTVR
„STJÓRN Sambands ungra sjálf-
stæðismanna fagnar þeim hugmynd-
um sem koma fram í nýrri stefnu-
mótaskýrslu sljómar Áfengis- og tób-
aksverslunar ríkisins. Tillögur stjórn-
arinnar fela í sér að stigin verða
ákveðin skref í fijálsræðis- og um-
bótaátt í málefnum fyrirtækisins og
verslun með áfengi og tóbak hér á
landi,“ segir í ályktun stjómar.
„SUS hefur ítrekað lýst þeirri
stefnu sinni að ríki eigi alfarið að
hætta fyrirtækjarekstri og koma á
heilbrigðu samkeppnisumhverfi á
þessu sviði. Stjóm SUS hvetur því
ríkisstjómina að leggja niður ÁTVR
og afnema ríkiseinokunina.
Núverandi haftafyrirkomulag er
hvort tveggja í senn óskynsamlegt
og óréttlátt. Það er til dæmis óþol-
andi að sveitarfélög skuli áram sam-
an, jafnvel áratugum saman, þurfa
að bíða eftir því að forsvarsmönnum
einokunarfyrirtækisins þóknist að
setja þar upp áfengisútsölur, jafnvel
þótt þau fullnægi öllum skilyrðum
fyrir uppsetningu slíkra verslana.
Sömuleiðis er það óviðunandi fyrir
innflutningsfyrirtæki að eiga allt und-
ir duttlungum forsvarsmanna ÁTVR.
Einokunarverslun og opinber höft era
sá arfur frá gamalli tíð sem síst er
ástæða að halda í og hagsmunir al-
mennings kalla á breytingar þegar í
stað.
Viðbrögð Framsóknarflokksins við
þessum tillögum era óskiljanleg og
lýsa best því að sá flokkur er enn á
ýmsum sviðum í fjötram fortíðar.“
Hressingar-
ganga í
Reykjavík
FERÐAFÉLAG íslands stendur fyrir
hressingargöngum frá Mörkinni 6,
félagsheimili Ferðafélagsins, og verða
þær farnar annan hvem þriðjudag
yfir vetrarmánuðina og oftar ef áhugi
er mikill.
Þetta era stuttar göngur þar sem
gengið verður í 1 klst. um eitthvert
af útivistarsvæðum borgarinnar; er
fyrsta gangan nú á þriðjudagskvöldið
4. febrúar kl. 20 og er farið um Soga-
mýri í Elliðaárdal.
Ferðafélagið vill með göngunum
hvetja almenning til að hreyfa sig
reglulega og mæta síðan í aðrar ferð-
ir félagsins en Ferðafélagið skipu-
leggur hátt í þijú hundrað styttri og
lengri ferðir yfir árið og í flestum
þeirra skipa útivera og gönguferðir
hæstan sess.
Að lokinni göngu kl. 21-22 er
opið hús í félagsheimilinu og verður
þar hægt að nálgast ferðaáætlun
Ferðafélagsins 1997.
Björgunarhundamynd
Ekki á vegum
björgunar-
sveita
MORGUNBLAÐINU hefur borist eft-
irfarandi athugasemd frá Kvik-
myndafélaginu Pamelu vegna at-
hugasemdar frá Björgunarhundasveit
íslands í blaðinu 31. janúar sl.
„Kvikmyndafélagið Pamela stóð að
gerð fræðslu- og heimildarmyndar um
leitarhunda og naut þar góðrar sam-
vinnu einstaklinga og ýmissa félaga
um land allt sem tengjast hundabjörg-
un. Þar á meðal félaga úr Leitarhund-
um Slysavamafélags íslands. Verkið
naut einnig stuðnings fjölda fyrir-
tækja sem gerðu mögulegt að fram-
kvæma það og nú er í undirbúningi
bæklingur með frekari fróðleik um
hundabjörgun. ..
Myndin er hins vegar ekki gerð á
vegum Björgunarhundasveitar ís-
lands eða Leitarhunda Slysavamafé-
lagsins og bera þessi félög enga fjár-
hagslega ábyrgð á verkinu. Tilefni
athugasemdar Björgunarhundasveit-
arinnar er óljóst, hvort sem það er
vegna gerðar myndarinnar og inni-
halds, aðstandenda, faglegrar þekk-
ingar eða málefnisins.“
Fræðslufund-
ur um snjó-
flóðahættu
BJÖRGUNARSKÓLI Landsbjargar
og Slysavamafélags Islands stendur
fyrir opnum fræðslufundi um mat á
snjóflóðahættu fyrir ferða- og fjalla-
menn í Reykjavík fimmtudaginn 6.
febrúar. Athugið breytta dagsetn-
ingu. Fundurinn verður haldinn í húsi
Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykja-
vík við Flugvallarveg.
Markmið námskeiðsins er að veita
þátttakendum dýpri skilning á eðli
snjóþekjunnar, breytingum á henni
og kynna mönnum rétt leiðarval með
tilliti til snjóflóðahættu. Einnig verður
fyallað um notkun snjóflóðaýlna.
Allir þeir sem ferðast mikið að
vetri til, hvort sem er gangandi, á
vélsleðum eða á öðram farartækjum
era hvattir til að mæta. Þátttökugjald
er 1000 kr. og er fræðslurit um mat
á snjóflóðahættu innifalið í þátttöku-
gjaldinu.
Á ÞESSU ári heldur gleraugna-
verslunin Linsan upp á 25 ára
afmæli sitt. Linsan er stofnuð
árið 1972 af þeim hjónum Berg-
steini Stefánssyni og Eddu Ní-
els. í 25 ár hefur Linsan boðið
upp á helstu nýjungar á sviði
gleraugna, segir í fréttatil-
kynningu.
Til að auka enn þjónustuna
hefur Linsan nú hafið sölu á
snertilinsum. Myndin var tekin
við opnun linsudeildar þar sem
SAMTÖK Samvinnuverslana og
Áfengishópur Félags íslenskra
stórkaupmanna hafa sent frá sér
ályktanir þar sem breyttum við-
horfum í rekstri ÁTVR er fagnað.
í ályktun samvinnuverslana seg-
ir: „Það er skoðun stjórnar SSV
að tímabært sé að leyfa sölu á
bjór og léttum vínum í dagvöru-
verslunum. Það er réttlætismál að
allir íbúar geti gengið að sömu
þjónustu hvar sem þeir búa á land-
inu. Ljóst er að verslanir í smærri
byggðarlögum hafa átt undir högg
að sækja. Til staðar eru vel búnar
verslanir með hæfu starfsfólki.
Enginn efast um gildi þess fyrir
íbúa á minni stöðum að hafa greið-
an aðgang að dagvöruverslun.
Nauðsynlegt er að auka verslun
mátun á snertilinsum fer fram
með aðstoð nýjustu tækni.
Daníel Edelstein, sjóntækja-
fræðingur, sér um mátun á lins-
unum, Daníel er lengst til
vinstri á myndinni en með hon-
um eru Sigrún R. Bergsteins-
dóttir, Ragnheiður Guðnadótt-
ir, Bjarni Jóhannesson, sjón-
tækjafræðingur, Brigitte Lút-
hersson, Kristbjörn Olafsdóttir
og eigandinn Edda Níels.
þeirra verslana sem vilja þjóna
fámennari byggðarlögum. Eitt af
þeim verkefnum sem þær geta tek-
ið að sér er sala á bjór og létt-
víni,“ segir í ályktuninni. _
í ályktun svonefnds Áfengis-
hóps Félags íslenskra stórkaup-
manna er lýst yfir ánægju með þau
breyttu viðhorf sem átt hafa sér
stað í rekstri ÁTVR með tilkomu
stjórnar stofnunarinnar. „Hópur-
inn fagnar þeim vindum fijálsræð-
is sem nú virðast leika um sali
stofnunarinnar og lýsa sér bæði í
þeirri viðleitni að kanna á hlutlæg-
an hátt viðhorf viðskiptavina til
starfsemi stofnunarinnar og ekki
síður að leggja þau viðhorf til
grundvallar breytingum á starf-
semi hennar."
Hestamenn
ræða sýningar
sumarsins
HROSSARÆKTARSAMTÖK Suð-
urlands gangast fyrir fræðslufundum
þessa dagana þar sem Kristinn Huga-
son ræðir sýningarhaldið á komandi
sumri. Páll Imsland flytur erindi um
rannsóknir sem hann hefur gert á lit-
föróttum hrossum, erfðum og ein-
kennum. Þá munu þeir Kristinn
Guðnason formaður samtakanna og
Jón Vilmundarson framkvæmdastjóri
ræða og kynna starf samtakanna í
nútíð og framtíð.
í kvöld verður fundur á Hótel Sel-
fossi og hefst hann klukkan 21 . Á
morgun, miðvikudag, verður fundur
í félagsheimili Fáks á Víðivöllum og
hefst sá fundur klukkan 20.30.
Fyrirlestur í
guðfræðideild
DR. ESHETU Abete, rektor presta-
skóla lúthersku kirkjunnar í Eþíópíu,
EECMY, flytur opinberan fyrirlestur
í boði guðfræðideildar Háskóla ís-
Iands, fimmtudaginn 6. febrúar nk.
kl. 10 í Háskólakapellunni.
Fyrirlesturinn sem verður fluttur á
ensku nefnist: „Theological education
in the Ehtiopian Evangelical Church
Mekane Yesus.“ EESMY er lútherska
kirkjan sem stofnuð var upp úr starfí
lútherskra kristniboðsfélaga í Eþíópíu
og hafa íslenskir kristniboðar starfað
þar á hennar vegum. Dr. Abete hefur
kennt við prestaskóla EECMY und:
anfarin ár og er nú rektor skólans. í
vetur hefur hann kennt við Kristni-
boðsháskólann í Ijellhaug í Osló.
Fræðslukvöld
um fötlun
FFA, fræðsla fyrir fatlaða og að-
standendur, sem Landssamtökin
Þroskahjálp, Sjálfsbjörg, Styrktar-
félag lamaðra og fatlaðra og Styrkt-
arfélag vangefinna standa að, heldur
fræðslukvöld fyrir afa og ömmur fatl-
aðra bama þriðjudaginn 4. febrúar
kl. 20 í sal Félags íslenskra hjúkran-
arfræðinga, Suðurlandsbraut 22.
Steingerður Sigurbjömsdóttir,
bamalæknir á Greiningar- og ráðgjaf-
arstöð ríkisins mun fjalla um mismun-
andi fötlun. Á eftir verður kaffi,
umræður og fyrirspumir. Skráning
þátttöku er hjá Landssamtökunum
Þroskahjálp.
Hjálpræðisherinn
Samkomur
í vikunni
ÞAU hjónin Anne og Daníel Óskars-
son era nú stödd á íslandi en tæp tvö
ár eru liðin frá því þau héldu af landi
brott til Norður-Noregs þar sem þau
nú gegna forystuhlutverki innan
Hj álpræðishersins.
Þau hjónin hafa haldið samkomur
í Reykjavík um helgina og munu
áfram halda samkomur í Herkastal-
anum á þriðjudag, miðvikudag og
fímmtudag kl. 20.30. Síðan fara þau
norður til Akureyrar þar sem þau
munu hafa samkomur á hemum,
Hvannavöllum 10, föstudag og laug-
ardag kl. 20.30 og á sunnudag kl.
17. Öllum er heimill aðgangur.
LEIÐRÉTT
Starfsheiti leiðrétt
í FRÉTT í sunnudagsblaðinu um
ljóðaflutning með tali og táknum í
Listaklúbbi Leikhúskjallarans stóð
að Jóhanna Þorvaldsdóttir væri for-
stöðumaður Samskiptamiðstöðvar-
innar. Jóhanna er þar deildarstjóri,
en forstöðumaður er Valgerður Stef-
ánsdóttir. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Rangt föðumafn
í MYNDARTEXTA í sunnudagsblað-
inu er Brynhildur Björnsdóttir rang-
lega sögð Daníelsdóttir. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
Úr dagbók lögreglunnar
Olvun, fíkniefni,
innbrot o g árásir
31. janúar til 3. febrúar.
AF BÓKUNUM helgarinnar era
25 innbrot, 10 þjófnaðir, 17 eign-
arspjöll og 3 líkamsmeiðingar. Af-
skipti voru höfð af 40 manns vegna
ölvunar á almannafæri og vista
þurfti 51 í fangageymslunum um
helgina, bæði vegna þess og ann-
arra mála. Talsvert var kvartað
yfir hávaða og ónæði, eða 34 sinn-
um. Flest tilvikanna vora vegna
hávaða frá fólki að næturlagi í íjöl-
eignahúsum. Þá var tilkynnt um
10 mál vegna heimilisófriðar. í
tveimur þeirra hafði eiginkona eða
sambýliskona verið beitt ofbeldi.
Fjórtán ökumenn, sem stöðvaðir
voru, era granaðir um ölvunarakst-
ur og 11 vora kærðir fyrir að aka
gegn rauðu ljósi, utan þeirra sem
nýgangsettar eftirlitsmyndavélar
stóðu að slíkum brotum. Tilkynnt
umferðaróhöpp urðu 36 talsins.
Meiðsli á fólki urðu í 4 tilvikum.
Fíkniefni komu við sögu í fjóram
málum helgarinnar.
Innbrot í bfla, sumarbústaði,
íbúðir og fyrirtæki
í innbrotum um helgina var
m.a. brotist inn í bifreiðir við Sel-
braut, Skipholt og Fjarðarsel. Brot-
ist var inn í sumarbústaði við
Rauðavatn, íbúð við Vitastíg, bíla-
leigu í Skeifunni, hús og þijár
verslanir við Laugaveg, fyrirtæki
við Laugaveg og Drafnarfell, kjóla-
leigu við Faxafen, sölutum við
Langholtsveg, geymslu við Laugar-
nesveg, hárgreiðslustofu við Berg-
staðastræti, þjálfunaraðstöðu við
Seljaveg, hús við Bókhlöðustíg, hús
við Ægisíðu, skóla við Skólabraut
og verslun við Skipholt.
Lögreglumenn fluttu mann á
lögreglustöð vegna gruns um með-
höndlun fíkniefna sl. fóstudag. Þá
tóku lögreglumenn á eftirlitsferð í
Elliðaárdal á föstudag (jftir manni
er tengst hefur fíkniefnamálum.
Þeir handtóku manninn. Skammt
frá staðnum fannst plastpoki sem
innihélt u.þ.b. 75 g af amfetamíni.
Á laugardag var bifreið ekið á
staur við Vesturlandsveg. Flytja
þurfti einn aðila á slysadeild með
sjúkrabifreið.
Undir morgun á laugardag tóku
menn á grænum Benz upp pilt í
Tryggvagötu, óku honum inn á
Holtaveg, börðu hann þar og hentu
honum út. Um minniháttar áverka
reyndist vera að ræða. Þá braut
maður rúðu í biðstöð SVR við
Hafnarstræti snemma á sunnu-
dagsmorgun. Hann var handtekinn
í Bankastræti. Reyndist maðurinn
þá vera skorinn á hendi og var því
fluttur á slysadeild en síðan til vist-
unar í fangageymslu.
í húsleit lögreglunnar í húsi við
Vitastíg á sunnudag var lagt hald
á þýfí og fíkniefni.
Silast áfram á vinstri akrein
Þegar umferð er mikil er hvim-
leitt að sjá ökumenn silast áfram
á vinstri akrein tveggja akreina
akbrauta eða fleiri. Okumönnum,
sem ekki vita, er bent á að vinstri
akreinin er ætluð til framúrakst-
urs. Þeir eiga að öllu jöfnu að halda
sig hægra megin nema þeir vilji
nýta vinstri akreinina til fra-
múraksturs eða ef ætlunin er að
beygja til vinstri á næstu gatna-
mótum. Ökumenn þurfa að taka
sig verulega á í þessu máli ef
umferðin á að geta gengið greið-
legar fyrir sig.
í framhaldi af umfjöllun um rán
í verslunum er rétt að minna eig-
endur sölutuma og myndbanda-
leigna, sem opnar eru frameftir á
kvöldin, að huga sérstaklega að
aldri afgreiðslufólks og hvemig
staðið er að varðveislu innkomunn-
ar. Þá er þeim og bent á að koma
sér upp eftirlitsmyndavélabúnaði
eða gera aðrar þær ráðstafanir er
aukið geta öryggi starfsfólks.
Löggæslumyndavélar við um-
ferðarljósastýrð gatnamót vora
teknar í notkun í borginni sl. föstu-
dag. Reykjavíkurborg hafði sett
upp þennan búnað í samstarfí við
dómsmálaráðuneytið og Umferðar-
ráð og afhent lögreglunni hann til
umsjónar og reksturs. Markmiðið
með starfrækslu myndavélanna er
að draga úr líkum á akstri gegn
rauðu ljósi og reyna þannig að
fækka umferðarslysum á gatna-
mótum. Rétt er að minna á að
myndir verða einungis teknar af
þeim sem bijóta af sér. Aðrir verða
látnir afskiptalausir.
Samtök samvinnu-
verslana o g stór-
kaupmenn fagna