Morgunblaðið - 04.02.1997, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF TIL BLAÐSINS
„í fjarlægð“
Frá Sigríði Schiöth:
SAGAN af Ijóðinu „Þig, sem í fjar-
lægð fjöllin bak við dvelur" lag
Karls O. Runólfssonar tónskálds við
ofangreindan söngtexta er sérlega
'! vinsælt og mjög oft flutt, bæði á
konsertum og
einnig í fjölmiðl-
um. Mjög er á
reiki hvaða höf-
undur texta er
tilgreindur. Oft
er nafnið „Ces-
ar“ notað en
stundum er
nefnt nafnið
Valdimar Hólm
Hallstað, - sem
er hið rétta og
P vil ég nú segja söguna um tilurð
ljóðsins eftir frásögn höfundarins
sjálfs.
Þegar Berklahæli Norðurlands
tók til starfa 1927 í Kristnesi fylltist
það brátt af berklasjúklingum, því
eins og kunnugt er, var þessi skæði
sjúkdómur mjög útbreiddur á norð-
urlandi. Féll þar margt ungmennið
J í blóma lífsins af völdum þessa
i skæða sjúkdóms.
Árið 1932 kom á hælið ungur
| maður frá Húsavík, Valdimar Hólm
Hallstað að nafni. Hann var prýði-
lega hagmæltur og var sí og æ að
yrkja vísur og smákvæði og sagðist
hann ekki hafa alltaf skeytt um að
setja nafn sitt við kveðskapinn. Voru
þessar vísur vinsælar og skrifaðar
upp af sjúklingum og starfsfólki inn-
an veggja hælisins.
Um tíma lá þar á hælinu fyrri
kona Karls 0. Runólfssonar tón-
I
skálds, Margrét Sigurðardóttir og
lést hún í mars 1934. Þau hjón voru
búsett hér í bæ um nokkurra ára
skeið. Hún starfrækti hársnyrtistofu
en Karl var tónlistarkennari og lék
oft fyrir dansi í hljómsveit með
Gunnari Sigurgeirssyni píanókenn-
ara og fleirum. Ungi maðurinn frá
Húsavík náði heilsu á ný, fluttist í
sína átthaga og lifði þar langa ævi.
Þar starfrækti hann fornbókaverslun
og lést þar fyrir nokkrum árum.
Árin 1976-1983 var ég, undirrit-
uð, búsett á Húsavík. Var ég ráðin
þar organisti og söngstjóri við Húsa-
víkurkirkju.
Þar var mér sögð sú saga að áður-
nefndur Valdimar væri höfundur
ljóðsins „Þig, sem í fjarlægð..“. Gerði
ég mér ferð heim til hans og fékk
að heyra söguna beint frá honum
sjálfum.
Sagðist hann hafa orðið undr-
andi, er hann frétti að ljóðið hans
væri komið á prent, við lag Karls
0. Runólfssonar og textahöfundur
þar nefndur „Cesar“.
Tvær konur/sem verið höfðu á
hælinu samtímis honum, en fengið
bata, vöktu athygli hans á málinu,
því þær kunnu ljóðið og vissu sann-
leikann.
Sagðist hann. hafa látið kyrrt
liggja enda ekki auðvelt að leiðrétta
þetta, en allir sem vissu þetta, sögðu
frá þessu, svo þetta komst í hámæli
á Húsavík og þar um kring.
Tilgáta mín er sú, að tónskáldið
Karl 0. Runólfsson hafi fundið ljóðið
í eftirlátnum munum eiginkonu
sinnar og ekki vitað hver höfundur-
inn var og þessvegna sett undir
nafnið „Cesar“. Lag og ljóð fara vel
saman og er þessvegna svo vinsælt
sem raun ber vitni.
Ofurlitla breytingu sagði Valdimar
mér, að Karl hefði gert á ljóðinu, og
set ég hér leiðréttingu „Heyrirðu ei
- þig hjartað kallar á -? Heyrirðu
ei storm, er kveðju mína ber“?
Finnst mér tími til kominn að birta
sannleikann í þessu máli og að hinn
látni heiðursmaður eigi ljóðið sitt.
Hann gaf út nokkrar ljóðabækur,
en kunni ekki við að birta þetta ljóð,
sem komið var á prent undir öðru
nafni.
Vil ég mælast til þess, að fram-
vegis verði nafn hans tilgreint, ef
flytja á „í fjarlægð" - lag eftir
Karl O. Runólfsson, ljóð eftir Valdi-
mar Hólm Hallstað.
SIGRÍÐUR SCHIÖTH,
Akureyri.
Gœðavara
Gjdfavara — inalar- og kafTislell.
Allir veróflokkar.
L.
Heimsfrægir hönnuóir
m.a. Gianni Versate.
VERSLUNIN
Langavegi 52, s. 562 4244.
BÍINAÐARBANKI
ÍSLANDS
ALMENNT SKULDABREFAUTBOÐ
Heildarnafnverð útgáfu:
Útgefandi:
Flokkur bréfa:
Ávöxtunarkrafa á söludegi:
Gjalddagar:
Verðtrygging:
Sölutímabil:
Skilmálar:
Uppgreiðsluákvæði:
Söluaðili:
Umsjón með útboði:
Skráning:
6.000.000.000 kr.
Búnaðarbanki íslands, Austurstræti 5, Reykjavík
kt. 490169-1219.
96/5: 5 ára eingreiðslubréf, vaxtalaus: Allt að 1.000 mkr.
95/15: 15 ára árgreiðslubréf, 5,25% fastir vextir. Allt að 2.000 mkr.
95/25: 25 ára árgreiðslubréf, 5,25% fastir vextir. Allt að 3.000 mkr.
Ávöxtunarkrafa 5 ára bréf: 5,75%
Ávöxtunarkrafa 15 og 25 ára bréfa: 5,70%
96/5 einn gjalddagi 1. júlí 2001.
96/15 árlegir gjaldd. afborgana og vaxta 1. júlí ár hvert í fyrsta sinn 1.7.97.
96/25 árlegir gjaldd. afborgana og vaxta 1. júlí ár hvert í fyrsta sinn 1.7.97.
Bréfín eru verðtryggð miðað við vísitölu neysluverðs.
1. febrúar 1997 til 31. desember 1997.
Lágmarksupphæð er að nafnvirði 100.000 kr. í flokki 96/5, en að lágmarki
1.000.000 kr. í öðrum flokkum.
Útgefandi getur greitt upp flokka 96/15 og 96/25 frá og með 1.7.2001.
Búnaðarbankinn Verðbréf og útibú Búnaðarbankans.
Búnaðarbankinn Verðbréf.
Sótt hefur verið um skráningu á Verðbréfaþingi íslands.
Útboðs- og skráningarlýsing vegna ofangreindra skuldabréfa liggur frammi
hjá Búnaðarbankanum Verðbréf.
BÚNAÐARRANKINN
VERÐBRÉF
Hafnarstræti 5, 101 Reykjavík, sími 525-6050, myndsendir 525-6059
Aðili að Verðbréfaþingi Islands.
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 47