Morgunblaðið - 04.02.1997, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ
48 ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997
HEF OPNAÐ LÆKNASTOFU í SÍÐUMÚLA 7
TÍMAPANTANIR í SÍMA 568 6200 VIRKA DAGA KL. 13-17,
NEMA FÖSTUDAGA KL. 13-15.
KARL ANDERSEN,
sérgrein: Lyflækningar og hjartasjúkdómar.
Cdáú&dtélcvt
Ef þig vantar vandaða og fallega
eldhússtóla þá skaltu koma til okkar
því við eigum til svo fjölbreytt úrval
af eldhússtólum á hagstæðu verði.
-Sjón er sögu ríkari-
Verlð velkomln
Komið í stærstu
húsgagnaverslun
landsins. Hjá okkur
eru næg bílastæði
og alltaf heitt kaffi
á könnunni. tsst (j|)
HÚSGAGNAHÖLUN
Bíldshöfði 20-112 Rvík - S:587 1199
I DAG
SKAK
llmsj&n Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á
Hoogovens mótinu í Wijk
aan Zee í Hollandi sem
var að ljúka. Spánverjinn
Miguel Illescas—Cordoba
(2.635) hafði hvítt og átti
leik, en Alexander Oní-
sjúk (2.580), Úkraínu var
með svart.
35. Rxb5+! — axb5 36.
Hc6+ - Ke7 (Eða 36. -
Kd7 37. Bxb5+) 37. He6+
- Kd8 38.
Hxe8+ - Kxd8
39. h5 og svartur
gaf þetta von-
lausa endatafl, því
hann tapar mann-
inum til baka.
Heimamaður-
inn Jeroen Piket
missti flugið á
lokasprettinum og
Rússinn Valery
Salov marði sigur.
Hann tapaði fyrir
Piket í fyrstu um-
ferð. Lokastaðan
varð:
1. Valery Salov, Rússlandi
8 72 v. af 13 mögulegum,
2. -4. Jeroen Piket, Hol-
landi, Alexander Onísjúk,
Úkraínu og Ivan Sokolov,
Bosníu 8 v., 5. Alex Yermol-
insky, Bandarílqunum 7 v.,
6.-7. Julio Granda Zunjiga,
Perú og Jan Timman, Hol-
landi 6 72 v., 8.—11. Viktor
Kortsnoj, Sviss, Joel Lauti-
er, Frakklandi, Nigel Short,
Englandi og Loek Van
Wely, Hollandi 6 v„ 12.
Miguel Illescas—Cordoba,
Spáni 5 72 v„ 13. Predrag
Nikolic, Bosníu 5 v. 14. Igor
Glek, Rússlandi 4 v.
HVÍTUR leikur og vinnur.
Með morgunkaffinu
<Ht----
ÉG ætla að fá það sem þér
fannst svo dýrt að þú
varðst alveg skelfingu
lostinn.
dottið f hug að ég sæti
hér f tvo tíma og
horfði bara á þennan
(jóta hvfta vegg, eða
hvað?
unnið hér f 16 ár án
þess að fá launahækk-
un, en það er einmitt
ástæða þess að þú hef-
ur verið hér f vinnu f
16 ár.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: laugaÞmbl.is
Refadráp
KLARA er með fyrir-
spum vegna refamálsins
þar sem hjónin á Hær-
ingsstöðum eru ákærð
vegna refadráps. Hún
spyr hver sé munurinn á
því máii og hinu þegar
ungir drengir sem drápu
mink með steini voru í
fjölmiðlum hylltir sem
hetjur.
Þakkir
UM þessi mánaðamót,
þegar ég hætti starfí við
afgreiðslu heimtauga hjá
RR, vil ég minnast þeirra
ótalmörgu sem ég hef
haft samskipti við síð-
ustu tæp tuttugu ár. Ég
hef eignast að vinum
flesta þá sem byggt hafa
hús og breytt, þar eru
bæði verktakar, eigendur
verslana og iðnaðarhúsa,
starfsmenn opinberra
stofnana að svo
ógleymdum fast að tíu-
þúsund almennum hús-
byggjendum.
Mér er mikið þakklæti
í huga. Ég hlakka til að
halda vináttu við fólk um
ókomin ár og verð áfram
starfsmaður RR.
Helgi Ormsson,
deildarfulltrúi.
Tapað/fundið
Lyklar
fundust
BÍLLYKLAR fundust í
Trönuhjalla 15, Kópa-
vogi, 28. janúar. Á lykla-
kippunni er m.a. lykill að
Subaru og er lyklakippan
merkt með símanúmeri
sem virðist vera í Finn-
landi. Upplýsingar í síma
554-5537.
Til ömmu
frá Úrsúlu
HLUTUR með þessari
áletrun fannst í Mjódd-
inni í ágúst sl. Hlutaðeig-
endur hafí samband í
síma 565 7888.
Gleraugu
fundust
NETT kvenmannsgler-
augu með gullsnúru fund-
ust í Austurstræti sunnu-
daginn 2. febrúar. Upp-
lýsingar í síma 551 4706.
COSPER
NEI, það er ekkert partí hér, en ég fann
þijár vískíflöskur.
Víkveiji skrifar...
HVAÐ er að verða um sam-
keppnina á milli olíufélag-
anna? í frétt hér í blaðinu í fyrra-
dag kemur fram, að benzínverð
er hið sama hjá þeim öllum. Ef
ekið er um Evrópulönd kemur í
ljós, að benzínverð er breytilegt
frá einni stöð til annarrar. Hvers
vegna ekki hér?
Nú geta olíufélögin ekki lengur
borið það fyrir sig, að þau verði
að kaupa alla olíu og benzín frá
Rússlandi vegna viðskiptasamn-
inga íslendinga við Rússa. Nú
koma þessar vörur annars staðar
frá. Hvers vegna er engin raun-
veruleg verðsamkeppni á milli
þessara félaga? Ekki kaupa þau
vöruna frá sama aðila?
Þegar Olíufélagið keypti u.þ.b.
þriðjung hlutafjár í Olís var sú
skýring gefin að með því mundi
takast að ná hagkvæmari inn-
kaupum vegna þess að keypt væri
inn í meira magni. Þess sjást eng-
in merki að neytandinn njóti góðs
af því. Verðið er það sama hjá
Olíufélaginu og Olís annars vegar
og Skeljungi hins vegar.
Er öll verðsamkeppni úr sög-
unni eftir að sú ógnun blasti ekki
lengur við að Irving-feðgar hæfu
hér olíu- og benzínsölu? Hvað veld-
ur?
XXX
HINGAÐ til hafa talsmenn
fijálsrar samkeppni haldið
því fram, að með frelsi í viðskipt-
um mundi verðlag verða hag-
kvæmast fyrir neytandann vegna
þess, að hinir útsjónarsömu inn-
flytjendur og seljendur vöru og
þjónustu mundu ná betri innkaup-
um en aðrir. Ætla hefði mátt, að
það sama mundi gerast hér, þegar
þeirri kvöð var létt af olíufélögun-
um að kaupa nánast alla olíu og
benzín frá Rússlandi. En það virð-
ist ekki hafa gerzt.
Talsmenn olíufélaganna verða
að útskýra fyrir viðskiptavinum
sínum, hvernig beri að skilja þetta
kerfi. Þeir verða að útskýra fyrir
viðskiptamönnum sínum hvað
valdi því að þeir eru með nákvæm-
lega sama verð. Eru þeir enn að
kaupa þessa vöru saman frá sama
aðila? Eru þeir enn að flytja vör-
una inn saman með sömu skipum?
Eru þeir enn með sömu álagn-
ingu, öll fyrirtækin þijú? Er
ómögulegt að koma fijálsri sam-
keppni og eðlilegum viðskipta-
háttum á í olíu- og benzínviðskipt-
um?
xxx
F SVARIÐ er að þau keppi
innbyrðis í þjónustu, þá er
það ekki nóg. Það er vissu-
lega rétt að þjónusta er betri og
meiri á benzínstöðvum en áður.
Það er líka rétt að viðskiptavinir
eiga nú kost á því að kaupa ýmiss
konar matvöru á benzínstöðvum.
Þetta er allt af hinu góða en skýr-
ir hins vegar ekki kjarna málsins:
Hvers vegna er sama benzín-
og olíuverð hjá olíufélögunum
þremur?