Morgunblaðið - 04.02.1997, Page 60
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Handtekinn vegna láts Hlöðvers S. Aðalsteinssonar
Játar að hafa skotið
í átt að hinum látna
UNGUR Hafnfirðingur, 24 ára
gamall, játaði við yfirheyrslur hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins í gær-
kvöldi að hafa skotið úr byssu í
áttina að Hlöðveri S. Aðalsteins-
syni, 55 ára gömlum Hafnfirðingi,
aðfaranótt 29. desember sl., á víða-
vangi skammt frá Krýsuvíkurvegi.
Hlöðver fannst látinn morguninn
eftir með skotsár af völdum hagla-
byssu og aðra áverka, sem þóttu
minniháttar. Þórir Oddsson vara-
** rannsóknarlögreglustjóri ríkisins
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi að að baki þessa máls
lægi geysiviðamikil rannsókn fjölda
rannsóknarlögreglumanna, og m.a.
hefði verið sent sýni til DNA-rann-
sóknar í Noregi.
Hlöðver S. Aðalsteinsson var ein-
hleypur og búsettur við Álfaskeið í
Hafnarfirði. Hann fór að heiman frá
sér um klukkan fjögur aðfaranótt
sunnudagsins 29. desember sl. á
jeppabifreið sinni Lada Sport, hvítri
^ að íit, árgerð 1994. Vegfarandi kom
v að honum látnum við Krýsuvíkuveg
um klukkan 10.30 um morguninn.
Jeppinn fannst síðar um daginn við
Heijólfsgötu í Hafnarfirði, allfjarri
þeim stað sem Hlöðver fannst á.
Samkvæmt niðurstöðu krufningar
urðu nokkrir samverkandi þættir
valdir að dauða Hlöðvers, svo sem
mikill blóðmissir vegna skotsárs á
handlegg eftir haglabyssu, lost-
ástand af völdum blóðmissis, auk
þess sem staðfest var að Hlöðver
hafði verið veill fyrir hjarta.
Sýni send til DNA-rann-
sóknar í Noregi
Umfangsmikil rannsókn hófst
þegar í stað. Fljótlega var Hafnfirð-
ingurinn ungi handtekinn, því í ljós
kom að á heimili Hlöðvers var tæki
sem skráir símtöl, og voru nokkur
símtöl skráð þeirra á milli. Maður-
inn neitaði alfarið að vita nokkuð
um ferðir Hlöðvers um nóttina og
var honum sleppt. Til stóð að óska
eftir gæsluvarðhaldi yfir manninum
en hætt var við það.
í fórum unga mannsins fannst
haglabyssa. Umfangsmikil og ein-
stæð rannsókn tæknideildar RLR
hefur leitt í ljós að högl sem fund-
ust á vettvangi voru úr byssunni.
Loks fundust sýni í bíl Hlöðvers
sem send voru til DNA-rannsóknar
í Noregi. Bárust munnlegar niður-
stöður fyrir helgi og staðfestar nið-
urstöður bárust RLR í gær. Sam-
kvæmt þeim eru yfirgnæfandi líkur
á því að ungi maðurinn hafi verið
í jeppa Hlöðvers heitins.
Ungi maðurinn var handtekinn
um klukkan 16 í gær eftir að niður-
stöður DNA-rannsóknarinnar lágu
fyrir. í gærkvöldi játaði hann síðan
að hafa farið með Hlöðver á bíl
hans um nóttina og hleypt úr byss-
unni í áttina að honum. Að því
búnu ók hann brott á bifreið Hlöð-
vers. Ekki liggur fyrir hver var
ástæða þess að ungi maðurinn
hleypti af byssunni í áttina að Hlöð-
ver. Hann verður yfirheyrður áfram
í dag. RLR mun ennfremur í dag
gera kröfu um gæsluvarðhald yfir
manninum.
Forsætisráðherra um þátttöku í Evrópska myntbandalaginu
Ekki hagur af aðild
DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra
telur að íslendingar hafi ekki hag
af því að gerast aðilar að Evrópska
myntbandalaginu. Þetta kom fram í
svari forsætisráðherra við fyrirspurn
Kristínar Ástgeirsdóttur, þingmanns
Kvennalista, á Alþingi í gær. Kristín
fagnaði afstöðu forsætisráðherra og
tók undir hana.
„Það yrði til þæginda fyrir okkur
sem ferðamenn ef af myntbandalagi
yrði í Evrópu," sagði Davíð. „Það
gæti líka að mörgu leyti verið þægi-
legt fyrir okkur í viðskiptum, hins
vegar gæti verið að samkeppnin yrði
erfiðari á einhveijum sviðum. Það
blasir hins vegar við í mínum huga
að það er algerlega klárt að ísland
hefur ekki hagsmuni af því að ger-
ast aðili að myntbandalaginu."
Davíð benti á að andstaða væri
við myntbandalagið meðal almenn-
ings í Evrópu, til dæmis í Þýska-
landi og Svíþjóð, en útilokaði þó
ekki að af því yrði. Hann sagði að
EFTA-ríkin væru að heija könnun á
áhrifum myntbandalags á EFTA sem
heild, en einnig hefði Seðlabankinn
þegar hafíð athugun á áhrifum þess
fyrir ísland sérstaklega.
Morginblaðið/Golli
A fömum vegi í Fagradal
465 mál á fimm árum vegna meintrar kynferðilsegrar misnotkunar
50 böm þyrftu árlega á sér-
hæfðri meðferð að halda
Ráðherra um sam-
einingu VES og ESB
Aukaaðild
ekki haldið
áfram
- > HALLDOR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segist ekki hafa trú á að
ísland yrði áfram aukaaðildarríki
Vestur-Evrópusambandsins ef VES
yrði sameinað Evrópusambandinu.
Þetta kom fram í máli ráðherrans á
fundi samtaka ungra miðjumanna á
Norðurlöndum (NCF).
„Samband VES við ESB hefur
orðið tilefni heitra umræðna, þar sem
mörg ESB-ríki hafa áhuga á að VES
verði sameinað ESB,“ sagði Halldór.
„Afstaða íslands til málsins er alveg
skýr: Við erum andvígir því að VES
verði hluti af ESB. Varðveita verður
* stofnanalegt sjáifstæði VES. Ég held
að aukaaðild okkar yrði ekki haldið
áfram, ef VES rynni inn í ESB.
Verkefni VES á fyrst og fremst að
vera að bæta NATO upp og styrkja
möguleika bandalagsins á að gæta
sameiginlegs öryggis okkar með því
að leggja áfram áherzlu á tengsiin
, yfir Atlantshafíð."
■ Ekki árásarbandalag/31
BARNAVERNDARNEFNDIR hafa
á síðastliðnum fímm árum fengið
465 mál til meðferðar vegna meintr-
ar kynferðislegrar misnotkunar og
eiga þar hiut að máli 560 böm yngri
en 16 ára. í einhveijum tilvikum eru
þolendur fleiri en einn vegna sama
ofbeldismanns. Þetta kom fram á
Alþingi í svari félagsmálaráðherra
við fyrirspum Jóhönnu Sigurðar-
dóttur um kynferðislega misnotkun
á börnum.
Talið er að ekki færri en 50 börn
þyrftu árlega á sérhæfðri meðferð
að halda vegna kynferðisofbeldis,
en að sögn félagsmálaráðherra er
ekki hægt að fullyrða að öllum böm-
um sem hafa orðið fyrir kynferðis-
legu ofbeldi sé tryggður stuðningur
og meðferð af hálfu opinberra aðila.
Engin hópmeðferð stendur þessum
bömum til boða og áfallameðferð
og langtimameðferð er sjaldnast
skipulögð af bamaverndarnefndum,
enda séu lagaskyldur á því sviði
óljósar. Þá séu biðlistar hjá bama-
og unglingageðdeild Landspítalans.
Um 50% mála fá
Iögreglurannsókn
I svari félagsmálaráðherra kemur
m.a. fram að úrskurðað hefur verið
í um 10 málum af hálfu bamavernd-
amefnda og mun þeim öllum hafa
verið skotið til fullnaðarúrskurðar
Barnavemdarráðs. Álykta megi að
bamaverndarnefndir kæri til lög-
reglu í um 30-40% af heildarfjölda
þeirra mála sem þær hafa til með-
ferðar, en ætla megi að hlutfall
þeirra mála sem fái lögreglurann-
sókn sé mun hærra, eða um 50%,
þar sem fleiri aðilar en bamavernd-
amefndir geti verið kærendur, t.d.
aðstandendur bams.
Ríkissaksóknari hefur birt ákæru
í 45 málum á síðastliðnum fímm
árum eða í rúmlega þriðjungi þeirra
mála sem til hans var vísað af RLR
eða einstökum lögregluembættum á
tímabilinu, og er vitað að sakfelit
hefur verið í að minnsta kosti 30
málanna.
Nær undantekningarlaus
forgangur
Hjá mörgum stærri sveitarfélög-
um landsins er beitt ákveðnum að-
ferðum við könnun mála vegna
meintrar kynferðislegrar misnotk-
unar á börnum og nær undantekn-
ingarlaust hafa slík mál forgang og
eru sérstök teymi sérfræðinga víða
kölluð til. Langoftast er um að ræða
samstarf við lögreglu og heilbrigðis-
stofnanir, og á stærri stöðum er
sérstök aðstaða til viðtala og mynd-
bandsupptökutæki fyrir hendi, en
slík aðstaða auðveldar bami yfir-
heyrslu og dregur úr þörf á endur-
tekningu vitnisburðar.
í svari félagsmálaráðherra kemur
fram að ekki fari undantekninga-
laust fram leit til að ganga úr
skugga um hvort grunaður maður
hafi í fórum sínum klámefni eða
hafí dreift slíku efni, en lögregluyf-
irvöld geri það komi fram tilefni til
slíks. Búast megi við breytingu á
þessu í ljósi nýrra ákvæða í hegning-
arlögum um bann við vörslu barna-
kláms er tóku gildi um síðastliðin
áramót.
Svar félagsmálaráðherra byggist
að mestu leyti á upplýsingum frá
Barnaverndarstofu sem í tilefni fyr-
irspurnarinnar gerði sérstaka könn-
un á þeim þáttum sem spurt var
um. Leitað var til allra barnavernd-
arnefnda og þeirra félagsmála-
nefnda sem fara með bamaverndar-
mál, og ennfremur var aflað upplýs-
inga hjá Barnaverndarráði, sýslu-
mannsembættum, Lögreglunni í
Reykjavík, Rannsóknarlögreglu rík-
isins og embætti Ríkissaksóknara.