Morgunblaðið - 26.03.1997, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Hafið um-
hverfis Island
HAFIÐ umhverfis ísland er heiti á
fyrirlestri sem dr. Unnsteinn Stef-
ánsson flytur við Háskólann á Ak-
ureyri næstkomandi laugardag, 29.
mars kl. 14 í húsnæði háskólans við
Þingvallastræti.
í fyrirlestrinum fjallar Unnsteinn
um ástand sjávar á íslenskum haf-
svæðum og lýsir helstu sjógerðum
og ráðandi straumkerfum. Greint
verður frá árstíða- og langtíma-
breytingum og áhrifum mismunandi
veðurskilyrða á þessar breytingar.
Þá mun Unnsteinn skýra frá niður-
stöðum nýlegra rannsókna á nær-
ingarskilyrðum og frjósemi íslenskra
hafsvæða í tengslum við lóðrétta
blöndun.
Unnsteinn Stefánsson lauk meist-
araprófi í efnafræði frá Wisconsin-
háskóla 1946, hann lagði stund á
haffræði næstu ár og varði doktors-
ritgerð um hafið norðan íslands, við
Kaupmannahafnarháskóla, 1962.
Hann hefur starfað við rannsóknir
við ýmsa háskóla vestanhafs og sem
sérfræðingur í hafrannsóknum við
Menningar- og fræðslustofnun Sam-
einuðu þjóðanna. Hann var skipaður
prófessor í haffræði við Háskóla ís-
lands 1975. Hann hefur skrifað þijár
bækur á íslensku og eftir hann hef-
ur birst fjöldi greina og ritgerða um
haffræði í alþjóðlegum tímaritum.
Unnsteinn dvelst nú við ritstörf í
Davíðshúsi.
MESSUR
AKUREYRARKIRKJA: Ferming-
arguðsþjónustur kl. 10.30 og
13.30 á skírdag. Fyrirbænamessa
kl. 20.30. Bænaefnum má koma
til prestanna. Ath. tímann. Lestur
Passíusálma hefst í Akureyrar-
kirkju kl. 12 föstudaginn langa.
Björn Steinar Sólbergsson leikur
á orgel kirkjunnar á klukkutíma
fresti meðan á lestri stendur, en
hann tekur um fimm klukkutíma.
Messa á Hlíó kl. 16. Kór aldraðra
syngur. Stjórnandi Sigríður Schi-
öth. Altarisganga kl. 18. Hátíðar-
messa kl. 8 á páskadagsmorgun.
Kór Akureyrarkirkju syngur og
Björg Þórhallsdóttir einsöngvari
kemur fram. Hátíðarguðsþjónusta
kl. 11. Barna og unglingakór
kirkjunnar syngur ásamt félögum
úr Kór Akureyrarkirkju. Hátíðar-
guðsþjónusta á Fjórðungssjúkra-
húsinu kl. 11. Hátíðarguðsþjón-
usta á Seli kl. 14. Hátíðarguðs-
þjónusta í Miðgarðakirkju í
Grímsey annan dag páska kl. 14.
Sr. Hannes Örn Blandon sóknar-
prestur á Syðra-Laugalandi mess-
ar. Hátíðarguðsþjónusta sama
dag kl. 17 í Minjasafnskirkjunni.
Mömmumorgunn, krílamessa frá
kl. 10 til 12 miðvikudaginn 2.
apríl.
GLERÁRKIRKJA: Fermingar-
messur kl. 10.30 og 13.30 á skír-
dag. Messa kl. 20.30. Guðsþjón-
usta föstudaginn langa kl. 14.
Hátíðarmessa kl. 8 á páskadags-
morgun. Léttur morgunverður að
messu lokinni. Barnastarf kl. 11.
Helgistund á Skaflinum í Hlíðar-
ijalli kl. 12. Fermingarmessa kl.
10.30 annan dag páska. Kyrrðar-
stund þriðjudaginn 1. apríl kl.
18.10.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Gol-
gatasamkoma kl. 20.30 föstudag-
inn langa. Upprisusamkoma kl. 8
á páskadagsmorgun. Morgun-
verður á eftir. Fagnaðarsamkoma
kl. 20 sama dag.
HÚSAVÍKURKIRKJA: Föstu-
guðsþjónusta kl. 17 föstudaginn
langa. íhugun píslargöngu Jesú
Krists í máli og tónum. Svavar
Jónsson leikari les úr Passíusál-
munum. Kirkjukórinn syngur
Litaníu sr. Bjarna Þorsteinssonar.
Hátíðarguðsþjónústa kl. 8 á
páskadagsmorgun. Guðsþjónusta
í Miðhvammi kl. 10 og á sjúkra-
húsinu kl. 10.45. sama dag.
KAÞÓLSKA KIRKJAN; Eyrar-
landsvegi 26, Messa kl. 18 á skír-
dag. Tilbeiðsla Altarissakrament-
is verður eftir messu og stendur
til kl. 24. Öllum velkomið að koma
og biðjast fyrir. Messa föstudag-
inn langa kl. 15, laugardaginn 29.
mars kl. 23, páskadag kl. 11 og
annan í páskum kl. 11.
ÓLAFSFJARÐARKIRKJA:
Messa á skirdagskvöld fellur nið-
ur. Krossljósastund kl. 21. föstu-
daginn langa. Hátíðarguðsþjón-
usta kl. 8 á páskadag. Helgistund
á skíðasvæðinu kl. 13.15 sama
dag. Hátíðarguðsþjónusta á Horn-
brekku kl. 14 annan í páskum.
RAUFARHAFNARKIRKJA:
Fermingarmessa á skírdag kl. 14.
Helgistund föstudaginn langa kl.
11, hátíðarguðsþjónusta kl. 14 á
páskadag.
SJÓNARHÆÐ; Hafnarstræti 63,
Almenn samkoma kl. 17 á skir-
dag. Efni Baráttan í Getsemane.
Almenn samkoma á föstudaginn
langa kl. 17. Efni: Orð krossins.
Unglingafundur á laugardag, 29.
mars kl. 20.30. Almenn samkoma
kl. 17 á páskadag kl. 17. Efni:
Upprisa mín og þín.
íslistaverk
sýnd á Ráð-
hústorginu
SÝNING á íslistaverkum eftir Völ-
und Snæ Völundarson verður á
Ráðhústorgi á Akureyri í dag, mið-
vikudaginn 26. mars og hefst hún
kl. 16. Völundur Snær ætlar af því
tilefni að höggva Akureyrarkirkju
út í ís og geta þeir sem leggja leið
sína á torgið fylgst með honum að
störfum.
Það er Kaupfélag Eyfirðinga sem
stendur fyrir sýningunni og sagði
Elís Árnason að það væri liður í
að skapa stemmningu í miðbænum
vegna páskanna en fjöldi ferða-
manna er í bænum og heimamenn
eru einnig á þönum um bæinn.
Völundur hefur undanfarið verið
að höggva út íslistaverk sín í húsa-
kynnum Kjötiðnaðarstöðvarinnar,
Morgunblaðið/Kristján
en hann notar rúmlega 100 kílóa
klaka í hvert listaverk. Hann var
að fínpússa nokkur þeirra þegar
ljósmyndari Morgunblaðsins leit við
í gær.
Morgunblaðið/Kristján
Loðnunót
Þorsteins EA í salt
ÞORSTEINN EA, nótaskip Sam-
herja hf. á Akureyri landaði full-
fermi af loðnu, rúmlega 1000
tonnum, í Krossnesi í fyrrinótt
úr sínum síðasta túr á vertíðinni.
Þorsteinn EA hefur landað 35.200
tonnum á vertíðinni sem hófst 1.
júlí í fyrra og þar af um 23.000
tonnum frá áramótum.
Þorsteinn Ingvarsson, kokkur
á Þorsteini, segir að vertíðin hafi
gengið vei en þó hafi tíðarfarið
verið heldur leiðinlegt. I gær var
verið að hífa loðnunótina í land
og hún söltuð ofan í gám í orðsins
fyllstu merkingu. Skipið heldur á
grálúðuveiðar nk. laugardag og
er stefnan sett á Hampiðjutorgið
út af Vestfjörðum. Ráðgert er að
skipið verði á grálúðuveiðum í
mánaðartíma en haldi svo til síld-
veiða i Síldarsmugunni í maí.
Ekið á
litla
stúlku
EKIÐ var á fjögurra ára
stúlku sem var á leið norður
yfir Kaupvangsstræti móts
við hús númer 24 síðastliðinn
laugardag.
Stúlkan var flutt á slysa-
deild Pjórðungssjúkrahússins
á Akureyri, en betur fór en á
horfðist og reyndust meiðsl
hennar minniháttar.
Sama dag datt kona á stétt
við verslunarmiðstöðina
Kaupang við Mýrarveg. Hún
kvartaði undan eymslum í
fæti og var flutt með sjúkra-
bifreið á slysadeild til að-
hlynningar.
Skautasvell-
ið opið um
páskana
SKAUTASVELLIÐ á Akur-
eyri verður opið alla páska-
dagana frá kl. 13 til 16. og
frá 19 til 21. Nú eru síðustu
forvöð að fara á skauta á
þessum vetri, en svellinu verð-
ur lokað eftir páska.
Aðsókn að skautasvellinu
hefur verið góð í vetur, en
lauslega er áætlað að um átta
þúsund manns hafi rennt sér
á skautum á svellinu frá því
opnað var í nóvember síðast-
liðnum. Þar að auki hafa fjöl-
margir sótt æfingar, bæði í
íshokkí og listhlaupi.
Messur
LAUFÁSPRESTAKALL:
Guðsþjónusta skírdagskvöld
kl. 20.30. í Grenivíkurkirkju.
Altarisganga. Guðsþjónusta
föstudaginn langa ki. 14. Alt-
arisganga. Helgistund með
altarisgöngu annan dag
páska í Laufáskirkju kl. 20.30
fyrir væntanleg fermingar-
börn og fjölskyldur þeirra.
Hátíðarguðsþjónsta páskadag
kl. 14. Altarisganga.
Bókamarkaður Félags
íslenskra bókaútgefenda
Morgunblaðið/Kristj&n
UNNENDUR góðra bóka, jafnt ungir sem aldnir, hafa gaman af
því að grúska í bókunum sem boðnar eru á markaðnum.
Góð viðbrögð
BÓKAMARKAÐUR Félags ís-
Sinfóníuhljóm-
sveit Norðurlands
Carmina
Burana flutt
í kvöld
SINFÓNÍUHUÓMSVEIT Norður-
lands ásamt um 150 manna kór
og eingöngvurunum Ásdísi Höilu
Ásgeirsdóttur og Michael Jóni
Clarke flytja Carmina Burana eftir
Carl Orff í Iþróttaskemmunni á
Akureyri í kvöld, miðvikudags-
kvöldið 26. mars kl. 20.30. Stjórn-
andi er Guðmundur Óli Gunnars-
son.
í hljómsveitinni eru um 60 hljóð-
færaleikarar. Kórinn samanstend-
ur af fimm kórum í Eyjafirði,
Kirkjukór Grenivíkurkirkju, Kór
Dalvíkurkirkju, Kór Laufás- og
Svalbarðssókna, Kór Tónlistar-
skólans á Akureyri og Samkór
Svarfdæla.
Verk eftir
rússnesk tónskáld
Auk hins þekkta verks Carmina
Burana verður einnig flutt þekkt
hljómsveitarverk eftir fjögur
rússnesk tónskáld, Hátíðarforleik-
ur eftir Shostakovich, þáttur úr
svítunni Rómeó og Júlía eftir Pro-
kofiev, úr Eldfuglinum eftir Stra-
vinsky og Sverðdansinum eftir
Khachaturian.
lenskra bókaútgefenda hefur
verið opnaður á Akureyri en
hann stendur yfir til mánudags-
ins 7. apríl næstkomandi. Hann
er í Hafnarstræti 93, annarri
hæð, þar sem áður var Vöruhús
KEA. Að venju er fjölbreytt úr-
val bóka á markaðnum eða vel
yfir 10 þúsund bókatitlar. Þar
má finna ævisögur, skáldsögur,
spennusögur, handbækur,
ferðabækur, myndabækur, ætt-
fræðint, og matreiðslubækur svo
eitthvað sé nefnt.
Viðbrögðin við bókamarkaðn-
um á Akureyri hafa alltaf verið
góð og að sögn Björn Eiríkssonar
bókaútgefanda hjá Skjaldborg
hefur markaðurinn einnig farið
mjög vel af stað að þessu sinni.
Bókamarkaðurinn verður op-
inn um páskana, en þó er lokað
föstudaginn langa og páskadag.
Markaðurinn er opinn frá kl. 10
til 19.