Morgunblaðið - 06.07.1997, Page 2

Morgunblaðið - 06.07.1997, Page 2
2 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Frestun á sölu hlutabréfa Áburðarverksmiðjunnar Niðurstaðan mikil vonbrigði, segir talsmaður Gufuness ehf. SÖLU hlutabréfa í Áburðarverksmiðjunni hefur verið frestað. Tveir aðilar gerðu tilboð í hlutabréf- in þegar þau voru boðin út. Sá sem átti hærra tilboðið var Gufunes ehf., sem bauð 725 milljónir í bréfín. Lægra tilboðið átti hópur sem í voru nokkrar afurðasölur bænda, veitustofnun Reykja- víkurborgar, Bændasamtök íslands og eignar- haldsfélag Álþýðubankans. Bauð síðari hópurinn 617 milljónir í bréfin. Áfall fyrir einkavæðingu „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur,“sagði Gunnar Þór Gíslason, talsmaður Gufuness ehf. „Það var leitað um víðan völl að kaupendum og mér finnst skrýtið að hærra tilboðinu skuli ekki hafa verið tekið.“ Hvaða skýringu hefur þú á þessari ákvörðun? „Ég óttast að þeim sem fara með þessi mál hafi ekki fundist við nógu spennandi og við heyrðum reyndar í tvígang að hinir aðilarnir þættu æski- legri kaupendur. Ríkið sýndi engan áhuga á að ræða við okkur eftir að útboðið hafði farið fram. Það virtist ekki áhugi á einkaaðilum í þennan rekstur. Þetta er því visst áfall fyrir einkavæð- ingu í landinu." Þorgeir Hlöðversson, kaupfélagsstjóri á Húsa- vík og talsmaður hópsins sem stóð að lægra tilboð- inu í Áburðarverksmiðjuna, sagðist ekki hafa neinar efnislegar athugasemdir við ákvörðun stjómvalda. Frá upphafi hafi verið ljóst að einka- væðingarnefnd gæti hafnað báðum tilboðunum eins og hún hafi i raun gert. Skilmálum breytt Áður en síðasta útboð var gert hafði verðbréfafyrirtækið Handsal hf. metið verk- smiðjuna á milljarð en bæði tilboðin sem bárust voru vel undir þeirri upphæð. Þá hefur komið fram vilji stjórnvalda til að áfram verði starfrækt áburðarverksmiðja í Gufu- nesi, en það var ekki gert að skilyrði í útboðinu. Báðir tilboðsaðilar gerðu stjórnvöldum grein fyrir því að þeir myndu standa að áframhaldandi rekstri Áburðarverksmiðjunnar. „Það er mjög brýnt að málefni áburðarverksmiðjunnar skýrist sem fyrst. Við, fyrir hönd áburðarseljenda, höfum mikinn áhuga á að reka Áburðarverksmiðjuna áfram og bjóða áburð til framleiðenda á lágu verði," sagði Þorgeir Hlöðversson, kaupfélags- stjóri. „Við höfum lýst því yfir að við ætlum að reka Áburðarverksmiðjuna áfram sé þess nokkur kost- ur,“ sagði Gunnar Þór Gíslason. „Ríkið hefur rekið verksmiðjuna undanfarið með tapi og hefur sýnt að það er ekki fært um að standa fyrir áfram- haldandi rekstri. Með því að fresta sölunni heldur ríkið áfram taprekstrinum og rýrir þar með verð- mætin enn frekar. Okkur finnst skrýtið að einka- aðilum skuli ekki vera leyft að spreyta sig á rekstrinum." Morgunblaðið/Gísli Blöndal OFT hafa myndast langar biðraðir í brottfararsal Flugstöðvar Leifs Eirikssonar, en með fjölgun innritunarborða ættu þær að styttast. Innritunarborðum hefur verið fjölgað í Flugstöð Leifs Eiríkssonar Hægt að afgreiða 800 farþega á klukkutíma SEX ný innritunarborð hafa verið tekin til notkunar í brottfararsal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á undanförnum dögum og eru innrit- unarborðin því orðin tuttugu tals- ins. Að sögn Trausta Tómassonar aðstoðarstöðvarstjóra Flugleiða, er gert ráð fyrir því að með þessari fjölgun verði hægt að innrita um átta hundruð farþega á klukkutíma, í stað um 560 áður. Þetta muni því stytta töluvert þær biðraðir sem oft myndast í brottfararsalnum á álags- tímum, snemma morguns og seinni part dags. Morgunblaðið hefur haft spurnir af farþegum sem hafa verið óánægðir með þær biðraðir sem stundum myndast við símainnritun- arborðin, á meðan engar biðraðir eru við önnur. Svarar Trausti því til að sú staða hafi hæglega getað komið upp, einkum þegar verið var að innrita í flug, þar sem íslending- ar voru í meirihluta, því þeir noti símainnritun mjög mikið. En hann telur þó að þeir sem innrita sig í síma bíði yfirleitt mun skemur en hinir. ÓVENJU rólegt var á höfuðborg- arsvæðinu aðfaranótt laugar- dagsins, að sögn lögreglunnar, enda lögðu margir höfuðborg- arbúar land undir fót um heig- ina. Almennt gekk umferðin vel. Talsverð ölvun var í Þórsmörk en engin meiriháttar óhöpp. Landníðsla í Þórsmörk Um 3.000 manns voru í Þórs- mörk aðfaranótt laugardagsins. Talsverð ölvun var þar, en að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli, var hún ekki meiri en búist var við. Að sögn Péturs Aðalsteinsson- Trausti segir ennfremur að það geti valdið töfum við símainnritun- arborð þegar farþegar hafi af ein- hverri ástæðu gefið upp rangan töskuíjölda við innritun eða þá að þeir hafí ekki tekið eftir því við inn- ritun, hvort þeir ættu að fara að símainnritunarborði eitt eða tvö, en frá því í vetur hefur verið hægt að innrita sig á tveimur símainnritunar- borðum. I fyrra tilfellinu þarf sá sem afgreiðir við borðið að fara aftur inn í tölvuna og lagfæra töskufjöldann, en í seinna tilfellinu þarf að leita að brottfararspjaldi og töskumiðum á hinu afgreiðsluborðinu. Þetta hafi ar, skálavarðar í Langadal, er Þórsmörk ekki jafnvinsæl fyrir helgarsukk og áður. Þetta vill þó brenna við eina til tvær helg- ar á sumri. „Fyrsta helgin í júlí er ekki fyrir þá sem vi|ja njóta náttúrunnar hér í Þórsmörk og það þyrfti að gera mun meira til að sporna við ölvuninni hér, því þetta er landníðsla,“ sagði Pétur. Töluverð rigning var í Þórs- mörk aðfaranótt laugardagsins. „Veðrið gerði það að verkum að fólk var með rólegasta móti. Gróðurinn fer hins vegar miklu verr þegar blautt er í veðri og subbuskapurinn er meiri,“ sagði óneitanlega tafir í för með sér. Aðspurður hvort ekki hafi komið til greina að fjölga símainnritunar- borðum enn frekar, þegar ljóst var hve margir innrituðu sig í síma, segir Trausti að það geti verið svo- lítið erfitt í framkvæmd, m.a. vegna þess að þegar borðum væri fjölgað, væru meiri líkur á því að fólk gleymdi því á hvaða símainnritunar- borð það ætti að fara, sem myndi svo aftur leiða til þess að afgreiðslu- fólk þyrfti sífellt að vera að hlaupa á milli borða til þess að leita að brottfararspjöldum. Á hinn bóginn segir hann að ekki sé endilega leng- Pétur, „það er ekki ofsagt að það taki gróðurinn nokkrar vikur að jafna sig,“ sagði Pétur. Engin meiriháttar óhöpp voru í Þórsmörkinni eftir fyrstu nótt- ina og taldi Pétur það einstaka heppni. Hann sagði að töluvert væri til dæmis um glannaskap í kringum Krossá en nokkuð mikið er í ánni um þessar mundir. Landsmótið gengur vel Að mati mótshaldara voru um 5.000 manns við setningu lands- móts UMFÍ í Borgarnesi á föstu- dagskvöld. Að sögn Kristmars Ólafssonar, framkvæmdastjóra, ur þörf á því að leysa þetta vanda- mál, því brottfararsalurinn hafi ver- ið stækkaður það mikið að undan- förnu. „Upphaflegt markmið símainn- ritunarinnar, fyrir tveimur árum, var fyrst og fremst að létta álagið í brottfararsalnum, en umferðin um salinn var farin að aukast það mik- ið að það var orðið erfitt að koma flugvélunum í loftið á réttum tíma, en með fjölgun innritunarborða má segja að þessi vandi sé leystur," segir hann. Auk þess var farin sú leið fyrir tveimur árum, að sögn Trausta, að bjóða farþegum upp á svokallaða hótelinnritun til að minnka álagið í brottfararsalnum og hafi sú leið gefist mjög vel. En hægt er að inn- rita sig á Hótel Loftleiðum um 23 tímum fyrir brottför og fá þar brott- fararspjaldið og töskumiðana í hend- ur. Á flugvellinum er síðan hægt að fara með töskurnar að hvaða innrit- unarborði sem er. „Flugfélög eru í auknum mæli farin að bjóða upp á slíka hótelinnritun og að mínu viti er það besta þjónustan." gistu um 500 manns í almennum tjaldbúðum fyrstu nóttina en um 2-3.000 manns i keppnisbúðun- um. „Það er erfitt að gera sér grein fyrir heildarfjölda gesta enda dreifist mótið á allstórt svæði, allt upp á Hvanneyri og Akranes," sagði Kristmar, „svo stoppa margir hér á leið sinni annað.“ Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi gekk umferðin kringum landsmótið vel. Lögreglan sagði að eitthvað hefði verið um smápústra aðfara- nótt laugardagsins og allar fangageymslur fullar. Fargjaldalækkun til frambúðar? ►Fijáls samkeppni í innanlands- flugi hefur leitt til lækkunar á flugfargjöldum. /10 Philippe Seguin tekur völdin hjá gaullistum ►Hægrimenn í Frakklandi eru í vanda eftir kosningarnar fyrir mánuði. /12 Beint upp í ioftið ►Nýlega var loftnetsmastrið á Gufuskálum, hæsta mannvirki á íslandi, málað. /20 Atgervisflótti eða nýtækifæri? ►íslendingar erlendis geta mögu- lega opnað heimalandinu ný tæki- færi ef landsmenn eru tilbúnir að læra eitthvað af þeim. /22 Eitt úr er ekki lengur nóg ►í Viðskiptum/Atvinnulífi á sunnudegi er rætt við Þuríði Magn- úsdóttur og Björn Árna Ágústsson í úra- og skartgripaversluninni Meba. /24 B ► 1-32 Afganar studdir á fætur ►inga Margrét Róbertsdóttir sjúkraþjálfari var í Afganistan að hjálpa fólki sem bæklast hafði af völdum jarðsprengna. /1,16 Enginn býður þeim upp í dans ►Þriðjungur nemenda fellur frá framhaldsskólanámi. Oddur Al- bertsson segir frá því hvaða leiðir hann telur árangursríkastartil að laða nemendur að námi á ný. /2 Gengið hef ur verið nærri Soginu ►Ólafur K. Ólafsson verslunar- maður hefur verið með annan fót- inn á Sogsbökkum í þijátíu ár. /14 FERÐALÖG ► 1-4 Galdrar, rekavlður og rólegheit ►Strandasýsla er ákjósanlegur áfangastaður fyrir ferðamenn og nær helstu þéttbýlisstöðum en marga grunar. /2 Alltaf eitthvað nýtt ►Heimsókn í Legoland er alltaf skemmtileg og sífellt bætast við ný tæki og byggingar. /4 BÍLAR_____________ ►1-4 Á 800 hestafla bílum ►Kappakstursíþróttin er gríðar- lega vinsæl t Bandaríkjunum. /2 Reynsluakstur ►Renault Laguna Nevada 2.0 reynsluekið. /4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak Brids 42 Leiðari 28 Stjömuspá 42 Helgispjall 28 Skák 42 Reykjavikurbrét 28 Fðlk í fréttum 44 Skoðun 30 Bió/dans 45 Minningar 31 Útv./sjónv. 50,54 Myndasögur 40 Dagbók/veður 55 Bréttil blaðsins 40 Gámr lOb Hugvekja 42 Mannlífsstr. lOb ídag 42 Dægurtónl. 12b INNLENDAR Fh kÉTTIR: 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6 Olvun í Þórsmörk en rólegt í borginni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.