Morgunblaðið - 06.07.1997, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 1997 9
Tveir menn sýknaðir
af fjárdráttarákæru
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
sýknaði á fimmtudag tvo menn, sem
ákærðir höfðu verið fyrir ijárdrátt,
með því að hafa sem eigendur og
stjórnendur tölvufyrirtækis í Reykja-
vík notað í þágu hlutafélagsins rúm-
lega 9,5 milljónir króna, sem Ríkis-
kaup lögðu fyrir mistök inn á reikn-
ing fyrirtækisins.
Mennirnir tveir stofnuðu tölvufyr-
irtæki í félagi við þriðja mann í júlí
1993. Var annar hinna ákærðu
framkvæmdastjóri og sá hann um
innkaup, hinn var í tæknilegum
verkefnum og sá þriðji maðurinn um
bókhald, fjármál, sölumennsku og
gerð tilboða.
Fyrirtækið átti hagstæðasta til-
boðið í útboði Ríkiskaupa á 130 tölv-
um fyrir heilbrigðisráðuneytið vegna
Félags heyrnarlausa. Samkvæmt
útboðinu átti að kaupa tölvur fyrir
samtals rúmlega 10,5 milljónir
króna.
Fyrirgreiðsla gegn yfir-
lýsingu frá Ríkiskaupum
í apríl 1995 var, að beiðni fyrir-
tækisins, fengin yfirlýsing hjá Ríkis-
kaupum um að greiðslur vegna við-
skiptanna yrðu lagðar inn á reikning
í eigu bankans. I júní og júlí voru
afhentar tölvur fyrir rúmlega 9,5
milljónir króna og framvísað reikn-
ingum fyrir þá upphæð. Andvirði
reikninganna var lagt inn á reikning
fyrirtækisins í Búnaðarbankanum í
stað þess að leggja það á hinn reikn-
inginn. í október 1995 hafði bankinn
samband við Ríkiskaup og óskaði
eftir efndum samkvæmt staðfesting-
unni frá í apríl um greiðslur inn á
reikning bankans. Hann hafði áður
krafið fyrirtækið um greiðslu á þess-
ari fyrirgreiðslu og fyrirtækið vísað
á Ríkiskaup, sem töldu sig hafa efnt
samninginn með því að greiða fyrir-
tækinu andvirði hans og væri það
því fyrirtækisins að annast uppgjör
lánafyrirgreiðslu við bankann, enda
fyrirgreiðslan veitt út á umrædd við-
skipti og andvirðið skv. samkomu-
lagi bankans og fyrirtækisins átt að
renna tii uppgjörs á fyrirgreiðsl-
unni. Fyrirtækið hafi í staðinn ráð-
stafað greiðslunum í rekstur fyrir-
tækisins en ekki til uppgjörs á lán-
inu.
Annar ákærðu bar fyrir dómi að
hann hafi ekki vitað um skjalið frá
Ríkiskaupum fyrr en á fundi í Bún-
aðarbankanum í september 1995.
Þriðja manninum í fyrirtækinu, sem
sá um íjármál þess, hafi þá verið
vikið frá störfum.
Fyrirtækið afsalaði
sér ekki greiðslunum
í dómsniðurstöðum segir að fyrir-
tækið hafi verið eigandi þeirra
greiðslna, sem áttu að koma frá
Ríkiskaupum vegna sölu fyrirtækis-
ins á tölvum til ríkisins. Yfirlýsing
Ríkiskaupa til bankans hafi verið
einhliða yfirlýsing frá þeirri stofnun
um að hún mundi leggja greiðslurn-
ar inn á reikning í eigu bankans,
en henni fylgdi ekkert afsal af hálfu
fyrirtækisins á eignarrétti þess á
greiðslunum „en skilyrði Qárdráttar
er, að menn dragi sér fjármuni eða
önnur verðmæti, sem þeir hafi í
vörslum sínum og annar maður sé
eigandi að.“ „Þegar af þessari
ástæðu verða ákærðu sýknaðir ai
ákæru um fjárdrátt og þar með ai
broti á 1. mgr. 247. gr. almennrí
hegningarlaga."
Ríkissjóður var dæmdur ti
greiðslu sakarkostnaðar. Dómim
kvað upp Sverrir Einarsson héraðs
dómari.
-----» ♦ ♦------
Brenndist í
gassprengingu
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sótti
mann með brunasár á Þingvelli
snemma í gærmorgun og flutti hann
til Reykjavíkur. Að sögn lögreglunn-
ar á Selfossi var maðurinn að skipta
um kúta við gastæki inni í tjaldi
þegar óhappið varð og hann brennd-
ist.
Þyrlan lenti við Borgarspítalann
en maðurinn var síðan fluttur á gjör-
gæsludeild á Landspítalanum. Að
sögn sérfræðings þar var í gærmorg-
un ekki búið að meta meiðsl manns-
ins til fulls en líðan hans var stöðug,
hann var ekki í lífshættu og áætlað
að hann færi í aðgerð seinna í gær.
Vatteruðu vestin
komin aftur
Verð kr. 3.800
TÆKIFÆRISGJAFIR
ANDLITS- OG SKOPMYNDIR
ca
c
ca
3
■D
E
>.
<D
O
Gunnar Júlíusson grafískur hönnuður og myndskreytir
Komdu á óvart og gefðu personulega
gjöf sem slær í gegn.
Nánari uppl. í vs: 511 4300 alla virka daga
Símboði: 845 3441
Kaffi- & matarhlaðborð
ALLA SUNNUDAGA
Sumardagskráin 19 9 7
Sunnudaga
Kaffihlabborö frá kl. 14-17 og matarhlaöborb frá 18:30.
Mánudaga, þríbjudaga og mibvikudaga
Veitingasalir lokaöir nema pantaö sé fyrir hópa.
Fimmtudaga, föstudaga og laugardaga
Nyr oq spennandi SÉRRÉTTA-SEÐILL oq réttir daasins.
Fimmtudaga og föstudaga eropnað kl. 16, laugardaga og sunnudaga kl. 12.
Skíðaskálinn Hveradölum
Veitingahús og veisluþjónusta frá 1935. Boröapantanir í síma 567-2020, fax 587-2337.
Eddufelli 2,
sími 5571730.
nes Elíasson
hársnyrtimeistari
hefur hafið störf á
Hársnyrtistofunni Daibraut.
Hann býður alla gamla og nýja
viðskiptavini velkomna.
NYRTISTPFAN |IW DALBRAUT
Sími 568 6312
Lokað mánadag
Útsalan hefst
á þriðjadag
Aukaferðir \ sólina
^ ^ A fl Vegna mikillar sölu og frábærra
| T I undirtekta höfum við ákveðið að
■ bjóða aukaferðir í sólina í ágúst.
f Ip Vl Framlengdu sumarblíðuna með því
um að bregða þér suður á bóginn,
aðstaðan er frábær.
Verðill kemur skemmlilega á évarl!
Mallorca
22. júlí Örfá sæti laus
29. iúlí Örfá sæti laus
12. ágúst 1 eða 2 vikur Aukasæti
19. ágúst 3 vikur Aukasæti
26. ágúst 2 vikur Aukasæti
Portúgal
15. júlí 3 vikur Örfá sæti laus
5. ágúst 3 vikur Aukasæti
26. ágúst 2 vikur Aukasæti
Samvimnifsrlír-Laiiðsj/ii
Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 569 1010 • Símbréf 552 7796 og 569 1095 Telex 2241 • Innanlandsferðir S. 569 1070
Hótel Sögu við Hagatorg • S. 562 2277 • Símbrét 562 2460 Halnarfjörður: Bæjarhrauni 14 • S. 565 1155 • Simbréf 565 5355
Ketlavík: Hatnargötu 35 • S. 421 3400 - Símbréf 421 3490 Akranes: Breiðargötu 1 »S. 431 3386 • Simbrét 431 1195
Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S, 462 7200 • Símbréf 461 1035 Vestmannaeyjar: Vestmannabraut38>S. 481 1271 * Símbréf 481 2792
ísafjörður: Hafnarstræti 7 • S. 456 5390 • Simbréf 456 5392 • Einnig umboðsmenn uin land alll • Heimasiða: www.samvinn.is
QATLAS^
EUROCARD