Morgunblaðið - 06.07.1997, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 1997 11
I
’SLANDSFLUG reið á vaðið
með því að tilkynna um mikla
lækkun á fargjöldum í innan-
landsflugi, skömmu áður en
lög um frjálsa samkeppni í innan-
landsflugi tóku gildi. Omar Bene-
diktsson, framkvæmdastjóri, sagði
þetta vissulega gert í kynningar-
skyni og til að laða að nýja við-
skiptavini. Hann taldi of snemmt
að fullyrða það að ekki yrði hvikað
frá því verði sem nú gildir. „Þetta
fer alveg eftir viðbrögðum markað-
arins,“ sagði Ómar.
„Hvert sem verðið verður í fram-
tíðinni, þá held ég að það sé aug-
ljóst, miðað við viðbrögðin sem við
höfum fengið, að það verður veru-
leg lækkun á innanlandsfargjöld-
um frá því sem var í júní.“
En er nógu góð nýting á vélum
íslandsflugs til að standa undir
þessu lága verði?
Ómar sagði vikudagana ólíka
með tilliti til nýtingar á farþega-
sætum og fyrsta vikan rétt hálfnuð
þegar við hann var rætt. Síðastlið-
inn fimmtudag var nýtingin slétt
70% og horfur á því að hún yrði
meiri á föstudag. Ömar sagði gert
ráð fyrir því í rekstraráætlunum
að nýtingin yrði á bilinu 60-100%
í einstökum flugum. „Við þurfum
að meðaltali 70% nýtingu til þess
að þetta gangi upp,“ sagði Ómar.
Hann sagði þetta ekki vegið meðal-
tal, heldur bókuð sæti. Hin endan-
lega reikningsniðurstaða er fengin
með því að margfalda flogna vega-
lengd með farþegafjölda, þess
vegna er mikilvægt að hafa góða
nýtingu á löngu flugleiðunum.
Ómar sagði að miðað við fréttir
frá keppinautinum um að hann
merkti engan samdrátt, þá væri
þegar búið að fjölga í hópi flugfar-
þega. Miðað við bókanir
hjá íslandsflugi í júlí, að
frádregnum þeim fjölda
sem þeir áttu að venjast
á þessum tíma, væri þeg-
ar búið að stækka mark-
aðinn um 5.000 manns.
íslandsflug á eina 46 sæta ATR-
42 flugvél og þrjár 19 sæta Dorn-
ier. Auk þess leigir það eina ATR-
42 vél til viðbótar. ATR vélarnar
eru 8 ára gamlar. Þá er félagið
með þrjár minni vélar sem aðallega
eru notaðar til leiguflugs.
Ómar segir að við það að flug-
markaðurinn opnist gefist tæki-
færi til að nýta flugflotann betur.
„Það hjálpar okkur að dreifa fjár-
magnskostnaði og afskriftum á
fleiri flugtíma. Við erum með
lægra kostnaðarverð á hveija flug-
stund en keppinauturinn.“_
Ómar telur að flugfloti íslands-
Framhaldið ræðst af
viðbrögðum markaðarins
Talsmenn íslandsflugs segja að sætanýtingin þurfi að
vera um 70% til að lækkað verð standi undir sér. Full-
trúi Flugfélags íslands er varkár og segir of snemmt að
spá um framhaldið.
Fáir hafa
grætt á áætl
unarfluginu
flugs sé hagkvæmari í rekstri
en flugfloti Flugfélags ís-
lands, bæði vegna minni
reksturskostnaðar og lægri
fjármagnskostnaðar. ATR
flugvélin er minni og léttari
en Fokker 50 og tekur fjórum
farþegum minna. Hún kemst
af með minni mótora og eyð-
ir að sögn Ómars um 15-20%
minna eldsneyti en Fokker
50.
Einfalt skipurit
íslandsflug flýgur á 9 staði
innanlands og 6 sinnum í
viku til Grænlands með Páll
ferðamenn. Fimm nætur í Halldórsson
viku eru flognar vöruflutn-
ingaferðir til Englands. Þessir
flutningar hófust 1994 og hefur
umfang þeirra stöðugt vaxið síðan.
Samningar um þessar ferðir hafa
nýlega verið framlengdir, að sögn
Ómars.
Tekjur íslandsflugs koma að
megninu til úr þremur rekstrar-
þáttum, áætlunarferðum (30%),
vöruflugi (30%), leiguflugi (30%)
og 10% frá annarri starfsemi á
borð við viðhaldsþjón-
ustu, sölu varahluta og
annað sem tengist
rekstri flugskýlis.
Hjá íslandsflugi vinna
nú um 90 starfsmenn.
Þar af eru flugmenn 25,
flugvirkjar og aðstoðarmenn í flug-
skýli eru 20, í afgreiðslu og hlað-
deild eru um 20 og á skrifstofu
15 starfsmenn. Auk þess vinna um
10 umboðsmenn félagsins víða um
land. í stað flugfreyja og flugþjóna
er fólk sem hlotið hefur þjálfun sem
öryggisverðir og gegnir jafnframt
öðrum störfum hjá félaginu.
Að sögn Ómars framkvæmda-
stjóra er skipurit íslandsflugs ein-
falt. Auk hans eru fjórir með
stjóratitil. Tveir þeirra vinna jafn-
framt önnur störf, flugrekstrar-
stjórinn er jafnframt flugmaður og
tæknistjórinn flugvirki. „Hér er
Ómar
Benediktsson
samhentur hópur af fólki sem þess
vegna hleypur í önnur störf,“ sagði
Ómar.
Sértilboð vegna tímamótanna
Flugfélag íslands (FÍ) lækkaði
verð um 51% á 20 þúsund sætum
nú í júlí, skömmu eftir að íslands-
flug kynnti fargjaldalækkun sína.
Páll Halldórsson, framkvæmda-
stjóri FÍ, sagði að viðbrögð við
þessu tilboði hefðu verið mjög góð
en of snemmt að segja til um hvort
og þá hvert framhaid yrði á far-
gjaldatilboðum af þessu tagi. „Við
gáfum út að þetta yrði eingöngu
í júlí, en ef viðbrögðin verða þau
sömu út mánuðinn, þá er inni í
myndinni að við endurskoðum þá
ákvörðun," sagði Páll. „Við
hugsuðum þetta sem sértilboð í
tilefni tímamótanna. Þetta eru
mjög iág fargjöld."
Páll var spurður að því hvort
hann teldi að þetta tilboð og lækk-
að fargjaldaverð hjá íslandsflugi
benti til þess að fargjaldalækkun
í innanlandsflugi væri komin til
að vera. Hann taldi að einhver
þrýstingur yrði áfram á fargjöldin.
„Það verður mögulega einhver
lækkun, en ég er viss um að hún
verður í því formi að fólki standi
til boða ákveðinn sætafjöldi á mjög
hagstæðu verði, einhver til-
boð.“
Páll sagði of snemmt að
segja um hvort verðlækkunin
leiði til fjölgunat' flugfar-
þega. „Undanfarin ár höfum
við séð fjölgun flugfarþega.
Við rekjum það meðal annars
til lægri fargjalda, þá á ég
sérstaklega við stéttarfé-
lagafargjöldin. Sú verðlækk-
un hefur náð til hluta mark-
aðarins sem ekki notaði flug-
ið mikið áður.“ Páll sagði
einnig að hluta fjölgunar
flugfarþega mætti rekja til
markaðssetningar erlendis.
Greitt með Fokkerum
Flugfélag íslands notar aðallega
fjórar 50 sæta Fokker 50 flugvélar
og þtjár 19 sæta Metro vélar í
áætlunarflugið. Fokker vélarnar
eru fimm ára gamlar, tvær Metro
vélarnar glænýjar og sú þriðja kom
notuð frá Flugfélagi Norðurlands.
Að sögn Páls er meðalaldur þessa
flota rétt undir 5 árum. Allar þess-
ar vélar eru með jafnþrýstibúnaði
og geta flogið ofar veðrum. Auk
fyrrgreindra véla á félag-
ið tvær 19 sæta Twin
Otter, sem nánast ein-
göngu eru notaðar í sér-
verkefni í Grænlandi.
Fokker flugvélarnar ____
eru leigðar af Flugleiðum
með áhöfn. Flugmennirnir eru því
starfsmenn Flugleiða. „Þetta er
svokölluð blautleiga og er sam-
bærileg við það þegar Flugleiðir
hafa leigt flugvélar til Maersk Air
í Danmörku og Skyways í Sví-
þjóð,“ sagði Páll.
Tveir heimildarmenn, sem rætt
var við um nýja stöðu í innanlands-
fluginu, nefndu að Fokker véiarnar
hefðu reynst innanlandsflugi Flug-
leiða þungar í skauti. Þær hefðu
verið keyptar á kaupleigu þegar
þær voru í toppverði og leigan
miðaðist við það. Það breytti litlu
þótt nýtt merki væri málað á stél-
ið. Að sögn Páls koma kaupkjör
Flugleiða á Fokker vélunum Flug-
félagi Islands í sjálfu sér ekki við.
FI leigði vélarnar á markaðsverði
af Flugleiðum. En eru þá Flugleið-
ir ef til vill að greiða með vélunum?
„Já, kannski eitthvað í einhveij-
um tilfellum," sagði Páil.
Á sínum tíma stóð val Flugleiða
á milli Fokker 50, ATR-42 og De
Havilland Dash-8, í stað Fokker
F-27 Friendship flugvélanna.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að þá hafí þau sjónarmið heyrst
innan Flugleiða að heppilegra væri
að kaupa fleiri og smærri vélar til
innanlandsflugs. Er Fokkerinn of
stór fyrir innanlandsflugið?
„Nei, hann er af hentugri stærð
fyrir stærri staðina, Akureyri, Eg-
ilsstaði, ísafjörð og Vestmannaeyj-
ar. Eins er nauðsynlegt að hafa
öflugar vélar í vetrarveðrum. Auð-
vitað er Fokkerinn í stærra lagi
fyrir minni staðina og þess vegna
höfum við verið að bæta við minni
vélum til að ná meiri hagkvæmni
á þeim stöðum," sagði Páll.
Spurning um heildarnýtingu
Páll sagði erfítt að slá því fram
hvað þyrfti mikla sætanýtingu til
að endar næðust saman. „Þetta
er ekki einfalt mál, er aðeins átt
við áætlunarflug eða leiguflugið
með? Þetta er spurning um heildar-
nýtingu á flotanum. Gróft áætlað
þarf meðalsætanýting að vera ná-
lægt 65%, en þetta er frekar
óábyrg áætlun því svo margir
þættir spila þarna inn í.“
Páll segir að stærsti hluti tekna
Flugfélags Norðurlands hafi komið
úr leiguflugi og sérverkefnum, en
sá þáttur hafi ekki vegið þungt
hjá innanlandsdeild Flugleiða. Með
sameiningunni hafí verið sóst eftir
þekkingu FN á leigu-
flugi, auk þess sveigjan-
leika sem felst í því að
hafa minni vélar til flugs
á fáfarnari staði.
_____ FÍ flýgur einnig til
Grænlands, Færeyja og
þaðari til Skotlands. Farnar éru
allt upp í 14 ferðir á viku til Græn-
lands og sumar þeirra eru í sam-
vinnu við Grænlandsflug.
í síðustu viku var gengið frá
rammasamningi við Ríkiskaup um
fraktflutninga innanlands og nær
samningurinn til um 400 fyrir-
tækja. „Við leitum leiða til að
skjóta fleiri stoðum undir rekstur-
inn,“ sagði Páll. „Áætlunarflug
eins og hér hefur verið stundað
hefur verið erfitt. Þjónustustigið
er mjög hátt, hér er mikil ferða-
tíðni miðað við stærð markaðarins.
Fáir hafa grætt á því einu.“
Þegar búið að
stækka
markaðinn
Efasemdarraddir
heyrast einnig
TALSMENN flugfélaganna tveggja bera sig
vel en ýmsum finnst undarlegt að hægt sé
að lækka verðið svo mikið fyrirvaralaust.
Efasemdarmennirnir, er yfirleitt vilja ekki
láta nafns síns getið, spyija hvort hagnaður-
inn verði svo mikill að nýja dæmið gangi upp.
„Þegar bornar eru saman flugvélategund-
irnar og fleiri atriði sýnist mér að Islands-
flug hafi vinninginn ef hugað er að rekstrar-
kostnaði,“ sagði einn af heimildarmönnum
Morgunblaðsins úr flugheiminum. „Þetta
eru kannski ekki alveg jafnöflugar eða ný-
tískulegar vélar og Fokkerinn en fjármagns-
kostnaðurinn er varla nema þriðjungur af
því sem Flugfélagið þarf að greiða.
Það getur samt verið varasamt að vekja
svona miklar væntingar. Það _er erfitt að
sjá hvernig ný fargjaldastefna Islandsflugs,
yfir 50% lækkun sem kynnt var með miklum
látum og sigurmerkjum, getur gengið upp.“
Mikil kollsteypa
„Þetta er mikil kollsteypa. Ef þetta stend-
ur ekki nema í nokkrar vikur er verr farið
en heima setið, menn geta grafið undan
sjálfum sér. Það er auðvitað til í dæminu
að þeir fari þá leið síðar að láta nægja að
bjóða nokkur sæti á kostakjörum, þeir geta
fyllt þau og síðan verða aðrir farþegar að
greiða meira. Þá geta þeir sagt að kostaboð
séu enn í gangi. Mæti einhver of seint verð-
ur hann að fara með næstu vél en það er
erfitt að spá um viðbrögð íslenskra farþega
við slíkri stefnu.
Sætanýting virðist í fljótu bragði þurfa
að vera 80-90% hjá íslandsflugi til að end-
ar nái saman hjá þeim og samkvæmt síð-
ustu fréttum er hún alls ekki svo góð.“
Stærð markaðarins
„En hversu stór er markaðurinn? Sumir
segja að þessi nýja samkeppni geti orðið
vítamínssprauta fyrir þá staði á landsbyggð-
inni, þar sem menn eru hættir að fljúga
reglulega en ég hef enga trú á því. Menn
benda á þriggja stunda regluna svonefndu,
að fólk fljúgi frekar milli staða ef aksturinn
tekur meira en þijár stundir, að hún gæti
dottið upp fyrir. En þá má ekki gleyma að
við eigum eftir að sjá viðbrögð rútubílstjóra
við nýju flugfargjöldunum.
Málið er að þótt fargjöld séu lækkuð geta
menn ekki gengið út frá því að farþegum
íjölgi í sama hlutfalli. Það er ákveðinn hóp-
ur sem þarf að ferðast með flugi. Einhver
aukning hlýtur að verða á fjöldanum,
kannski 5% eða þar um bil en þeir eru ekki
margir sem fljúga bara til þess að fljúga!“
Annar heimildarmaður efaðist einnig um
að verðlækkunin gæti staðist til lengdar.
Hann benti þó á að á sínum tíma hefði verð-
lag á farmgjöldum lækkað mjög á ákveðnum
leiðum þegar Cargolux hóf að bjóða þjón-
ustu á þeim. Sú lækkun hefði haldist.
Hann taldi Fokker-vélar Flugfélagsins
ekki vera jafnhagkvæmar í rekstri og ATR-
vélar íslandsflugs. „Munurinn er fyrst og
fremst á fjármagnskostnaði, hvort um er
að ræða leigu eða lán skiptir litlu eða engu
um hlut hans af daglegum rekstrarkostn-
aði. Flugleiðir sömdu á sínum tíma um leigu
á Fokker-vélunum sem er langt umfram
almennt markaðsverð þegar menn leigja
þessar vélar eða svipaða farkosti núna.
Þeir sömdu þegar verðið var í hámarki,
eftirspurnin var óvenjumikil. Tímasetningin
virðist hafa verið óheppileg.
Islandsflug nýtur þarna forskots því að
mér skilst að þeir leigi sínar vélar á mun
lægra verði. Ymsir aðrir þættir, viðhald,
tryggingar og þess háttar, eru sennilega
svipaðir. Fokkerinn eyðir nokkru meira
eldsneyti en ber aðeins fleiri farþega. Verði
framboð á sætum of mikið nýtist meiri
flutningsgeta hans þó lítið.
Ég tel að yfirbyggingin sé þyngri hjá
Flugfélaginu, þetta virðist hins vegar vera
ailt mjög straumlínulagað hjá íslandsflugi.
Hvað það varðar stendur síðarnefnda félag-
ið mjög vel að vígi. Og þótt samningar við
nýja flugmenn séu sagðir vera á sömu nót-
um eru enn menn á sínum gömlu Flugleiða-
kjörum hjá Flugfélagi íslands. Þetta og
dýrari stjórnun hlýtur að vera nokkur
baggi.“
Rekstrarlegar
forsendur
„Frá rekstrarlegu sjónarmiði tel ég því
að íslandsflug hafi augljóslega betri að-
stöðu. Þeir þurfa hins vegar mjög góða
sætanýtingu eigi þetta bara að standa í járn-
um, 70% eða meira. Ef þeir ná ekki því
takmarki verður þetta spurning um það
hvor sé öflugri peningalega, geti fjármagnað
tapið lengur. Ég myndi nú álíta að stóri
bróðir í Vatnsmýrinni væri með dýpri vasa
en Islandsflug. Hann getur leitað yfir flug-
brautirnar í aðalstöðvarnar og fengið þar
lán.
Persónulega er ég þeirrar skoðunar að
alls ekki sé útilokað að félögin tvö samein-
ist. Þeir áttu í viðræðum áður en þetta fór
allt af stað. Einhverra hluta vegna slitnaði
upp úr þeim og þeir eru nú komnir út í
samkeppni. Ég get ímyndað mér að eitthvað
gerist þegar harðna tekur á dalnum hjá
báðum, hvort sem það verður samruni, sam-
starf eða þeir skipta kökunni einhvern veg-
inn óformlega á milli sín með samkomulagi
bak við tjöldin. Láta þeir báðum fyrirtækjun-
um blæða út? Það fínnst mér ólíklegt."