Morgunblaðið - 06.07.1997, Síða 22

Morgunblaðið - 06.07.1997, Síða 22
22 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Brottf lutningur Islendinga Atgervisflótti eða UNDANFARIÐ hafa oft heyrst raddir um að æ fleiri íslend- ingar virðist kjósa að setjast að erlendis og flestir þekkja ein- hvern, sem er nýfluttur. Tölur um brottflutning staðfesta þennan orð- róm. Danmörk er vinsælasta landið. íslendingur, búsettur í Danmörku, segir að landar hans séu haldnir ein- hverri Danmerkurglýju og haidi að lífið þar sé leikur einn. Margir hafa áhyggjur af brottflutningnum og talað er um „atgervisflótta". En reynsla annarra þjóða sýnir að ís- lendingar erlendis gætu skapað tækifæri fyrir umsvif á eða tengd íslandi, sem ella standa ekki til boða, því Islendingar erlendis beina iðu- lega kröftum og þekkingu í heima- hagana. En til að nýta íslenska krafta erlendis þarf að vera skilning- ur og vilji á_íslandi að nota sér þá. Hið brýnasta væri að íslendingar færu að svara bréfum segja margir og íslendingur, sem erlendis frá hef- ur skapað ný atvinnutækifæri heima fyrir, segir að tortryggni heima- manna gagnvart þeim, sem koma með reynslu og fé frá útlöndum, sé niðurdrepandi. Enn streymi á mölinn — en nú a erlenda möl tækifæri? Tölur sýna að fleiri íslendingar flytja á brott en oft áður. Sigrún Davíðsdóttir heldur því þó fram að íslendingar erlendis geti opnað landinu ný tækifæri ef heimamenn eru tilbúnir að læra eitthvað af þeim. á nýja staðnum í lítilli íbúð, meðan fjölskyldan býr enn í heimalandinu, svo þangað er farið um helgar og í fríum. I viðskiptalífi og stjórnsýslu þarf yfirleitt ekki að spyijast lengi fyrir til að hitta fjölskyldur, sem lifa aðskildar. Það verður þó vart í bráð, sem það verður fýsilegt að búa á íslandi og starfa erlendis, því það horfir öðruvísi við að fara ótt og títt milli staða, þar sem flogið er á milli á klukkustundar fresti, þótt flugtíðni sé mun meiri nú en fyrir áratug milli íslands og útlandanna. Píanó- leikarinn Vladimir Askenazy reyndi þetta einna fyrstur og gafst upp. Enn sem komið er búa aðeins örfáir íslendingar bæði á íslandi og erlend- is, þótt þeir séu til. Aður flutti fólk í hallæri, hvort sem voru vesturfaramir eða þeir sem fluttu á mölina eða til Svíþjóðar á áttunda áratugnum, þegar lítið var um vinnu á Íslandi. Núna er ekkert hallæri á íslandi, enda er það ekki fyrst og fremst kaupið, sem fólk segist flýja, heldur sækist það í fjöl- breyttari atvinnutækifæri og meira svigrúm. Þetta bendir til breyttra aðstæðna og breyttra viðmiðana. Hverjir fara? Bættar samgöngur fyrr á öldinni nýttust ekki aðeins til að tengja landsbyggðina betur saman, heldur auðvelduðu fólki að flytjast úr dreif- býli í þéttbýli. Vegalengdir skruppu saman. Þetta er kunn saga, en spurningin er hvort annað þrep flutningsins á mölina sé ekki að renna upp; nú flytur fólk ekki úr afdölum í þéttbýli, heldur frá íslandi til útlanda. Vegalengdir utan íslands hafa skroppið saman og og ferðirnar eru ódýrari en áður. Fjarlægðin frá heimalandinu mæld í kílómetrum skiptir ekki öllu máli, heldur hve dýrt sé að fara í heimsókn til ís- lands og hve langan tíma ferðin taki. Eftir því sem fyrirtæki hafa dreift sér víðar og eftir því sem fleiri hjón vinna úti og meta vinnuna mikils hefur aukist að hjón vinni hvort á sínum staðnum. Annað vinnur kannski í Kaupmannahöfn, en hitt í Málmey. Algengt er það ekki, en þekkist þó að annað hjónanna vinni í Stokkhólmi og hitt í Kaupmanna- höfn og svo eru það auðvitað hinir fjölmörgu Evrópubúar, sem farnir eru að vinna í Brussel. Þó flestir flytji fjölskylduna með sér er þó nokkur hópur, sem hreiðrar um sig Morgunblaðið/HKF STRIKH) i Kaupmannahöfn. íslendingar sem ffy+fa utan fara helst til Danmerkur. Þýskur tónlistarmaður, sem kynntist íslendingum við nám er- lendis fyrir um tveimur áratugum, segir að þeir hafi verið eins og svampar, sem vildu sjúga allt í sig til að flytja með sér heim. Þótt ís- lensku vinirnir hafi verið hæfileika- fólk, sem hefði hæglega fengið vinnu í Þýskalandi, hvarflaði ekki annað að þeim en að fara aftur heim og vinna þar. íslenskur sagnfræðingur, sem stundaði nám í útlöndum, segir það ekki hafa hvarflað sér að ílengj- ast erlendis, þótt honum líkaði vist- in, því hann vildi starfa þar sem hann væri heima og ekki eins og gestur. Sömu söguna er að segja um ótal marga aðra íslenska námsmenn, sem hafa farið til náms erlendis. Þeir höfðu, og hafa auðvitað margir enn, í huga að nýta námið í þjóðfélagi, sem þeir eru tengdir nánum böndum. Gallinn við þessa heimfýsi hefur þó iðulega verið að fólk hefur farið heim beint frá prófborðinu og ekki haft nægilega reynslu á sínu sviði, en þar sem vantaði fólk heima flaug það beint inn í störf, þar sem smá reynsla hefði nú kannski ekki sakað. Áður en hugtakið símenntun var AÐ VINNA landi og þjóð vel er ekki útdauð hugsun og Róbert S. Róbertsson er einn af þeim, sem hefur ísland og tengslin heim bak við eyrað, þótt hann starfi hjá fjár- mála- og ráðgjafarfyrirtæki í Kaup- mannahöfn. Róbert hefur komið víða við eftir stúdentsprófið.Hann var skiptinemi í Hollandi í hálft ár og hálft ár í Þýskalandi og dvaldi svo á Kýpur í eitt ár við ferðamálanám á vegum alþjóðasamtaka flugfélaga og ferðaskrifstofa. Síðar lá leiðin til Los Angeles, þar sem hann var í tvö ár við kvikmyndanám, áður en hann hélt heim á leið og stofnaði fyrirtæk- ið Rauða dregilinn með félögum sín- um. Fyrirtækið er nú þriggja ára og hefur sérhæft sig í tví- og þrívídd- arhönnun fyrir kvikmyndir og sjón- varp og þar líta menn björtum aug- um á framtíðina. Reynslan af fyrirtækjarekstri beindi áhuganum í þá átt og Róbert ákvað að fara í alþjóðlega viðskipta- fræði í Danmörku. Til Kaupmanna- hafnar kom hann fyrir tíu mánuðum o g hafði enga vinnu meðan hann beið eftir að skólinn hæfíst. í gegn- um íslenska félaga komst hann í kynni við eiganda fyrirtækis, sem „UNGMENNAFÉLAGSANDINN SITUR í MANNI" hefur sérhæft sig í samruna og yfir- töku stórfyrirtækja og fjármögnun ýmissa stærri verkefna. í upphafi hjálpaði hann til með tölvumál, en fyrir tilviljun kom hann með ábend- ingu að kaupanda að fyrirtæki. Eig- andinn fékk áhuga og Róbert fékk vinnu. Góöur orðstir nauösynlegur Fyrirtækið starfar á vettvangi, sem vart er til á íslandi nema í mjög smáum stíl. „Það eru ekki til fyrir- tæki á íslandi, sem hafa sérhæft sig sérstaklega í samruna og yfirtöku fyrirtækja og fjármögnun þeirra verkefna, enda erfitt að reka þess konar fyrirtæki á íslandi. Fyrsta verkefnið, sem ég aðstoðaði við, var upp á 6000 milljónir íslenskra króna. Hér eru núllin alltaf einum til tveim- ur fleiri en það sem maður átti að venjast á íslandi. Til að komast af á þessu sviði er nauðsynlegt að skipta við stórfyrirtæki, því það er nokkurn veginn sama fyrirhöfnin að ganga frá samningi vegna stórs eða lítils fyrirtæk- is. Fyrirtækið tekur því oftast aðeins að sér sölu meðalstórra og stórra fyrirtækja, nema eitt- hvað sérstakt sé. Vinn- an byggist mest á að hnýta saman sambönd og því skiptir miklu máli að hafa komið sér upp traustum sambönd- um við aðila, sem þekkja heimamarkað sinn vel.“ En einum mun á ís- lensku og dönsku viðskiptalífí hefur Róbert þó tekið eftir. „Hér skiptir góður orðstír miklu meira máli en heima og skapar trúnaðartraust. Á íslandi yppta menn bara öxlum þótt þeir eigi í viðskiptum við einhveija, sem hafa miður góðan orðstír. Bak- grunnur væntanlegs viðskiptaaðila er sjaldn- ast kannaður nægilega, en hérna þykir það sjálfsagt mál að efna- hagsskýrsla seinustu ára sé lögð fram og ýmar aðrar upplýs- ingar.“ Það liggur mikil und- irbúningsvinna að baki samruna eða yfirtöku hjá fyrirtækjum. „Þetta gengur mikið út á samningatækni og að vera vel undirbúin, eins og í skák. Það gildir það sama hér og í skákinni að það þarf að sjá marga leiki fram í tímann. Þar við bætist svo upplýs- ingaöflun og þar kemur mín þekking að gagni.“ Það ríkir alveg sérstakt andrúms- loft í fyrirtækjum af þessu tagi. Þagmælska er gulls ígildi og þeir Róbert $. Róbortsson ný fundið upp og það varð ódýrara að halda sambandi erlendis gat svo far- ið að þeir, sem í upphafi voru kannski ágætlega menntaðir, höfðu síðan ekki tækifæri tii að halda sér við í sinni grein. Kosturinn var auð- vitað sá að fólk fór þó heim og nýtt- ist þar. Núna virðist viljinn til að snúa strax heim að loknu námi minnka, því æ algengara virðist að námsfólk spreyti sig á störfum í framhaldi af námi erlendis. Eins og glögglega sést af meðfylgjandi viðtölum þá er það einmitt þetta, sem leiðir til þess að fólk dregur heimferð eða hættir við hana, því erlendis bjóðast tæki- færi, sem gefast ekki heima fyrir. Svo eru það líka aðrir, sem fara utan upp úr þurru og ekki af því að nám hafí verið undanfari að brott- flutningnum. í þessum hópi er ekki aðeins langskólagengið fólk, heldur einnig iðnaðarmenn og lítið menntað fólk, samanber þá, sem hafa farið til Jótlands í fískvinnslu. Það er því blandaður hópur, sem flyst burtu, og spennandi verkefni fyrir félagsfræð- inga og aðra sérfræðinga að kort- leggja hvaða breytingar séu hér á ferðinni og af hveiju. Fólk flytur til landa eins og Danmerkur og Svíþjóð- ar þar sem er mikið atvinnuleysi, því meðaltal um atvinnuleysi þýðir ekki endilega að það sé alls staðar ómögu- legt að fá vinnu. Það er kannski at- vinnuleysi í Kaupmannahöfn, en nóga vinnu að hafa á Jótlandi. Þótt áhyggjur yfir brottflutningi hafi einkum beinst að missi lang- skólagenginna er það ekki síður áhyggjuefni að missa þá sem vinna önnur störf, því eins og ítalskt mál- tæki segir þá eru allir til gagns en enginn ómissandi. Af hverju flytur fólk? Það halda allir að maður flytji vegna kaupsins og að maður hafí það svo gott í útlöndum, segir einn brottfluttur íslendingur. Aðspurðir nefna íslendingar erlendis sjaldnast kaupið fyrst, heldur miklu frekar fjölbreyttari störf eða störf, sem ekki er að finna heima fyrir. Það eru einfaldlega fjölbreytilegri tæki- færi og meira svigrúm sem lokka. íslendingar eru svo vanir að fá að heyra frá útlendingum hvað allt sé alveg óskaplega dýrt á íslandi, en það segir kannski ekki alla sög- una að bera aðeins saman fá einstök atriði. Fyrir tæpum þremur áratug- um var hneyklast á því í þýsku blaði sem koma við sögu þurfa iðulega að skrifa undir þagnarsamninga. Oft er hættulegt að hafa vitneskju um upplýsingar og iðulega hefur komið til lögsókna á þessu sviði viðskipta, þegar fyrirtæki hafa álitið að skað- legum upplýsingum hafí verið lek- ið.„Það er eins gott að venja sig á að tala svolítið loðið,“ segir Róbert kankvís. Hóskólinn í fórónlegu fjórsvelti Eigandi fyrirtækisins, sem Róbert starfar hjá, hafði varla heyrt ísland nefnt, þegar Róbert tók þar til starfa og þótt hann hafí sambönd og full- trúa um allan heim var ísland ejn- faldlega ekki á kortinu hans. „Á íslandi hefur fískurinn lengi verið nánast eini iðnaðurinn og það var lika það, sem eigandinn hélt,“ segir Róbert. „Þessi mynd stenst þó sem betur fer ekki alveg lengur og margt í geijun, sérstaklega í upplýsinga- tækni. Svo er skemmtilegt að sjá hversu mikil útrás er orðin í íslensk- um sjávarútvegi og það ætti að ýta undir, því þetta er það sem við erum bestir í og kunnum." Róbert hefur áhuga á að halda

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.