Morgunblaðið - 06.07.1997, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 06.07.1997, Qupperneq 24
24 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Það er augljóst að bifvélavirki þarf annað úr við vinnu sína á daginn heldur en þegar hann fer í samkvæmi í hvítri skyrtu um kvöldið. keypt eins og kararaellur. Svo er líka til það sem ég kalla ilmvatna- úr. Það eru þau sem merkt eru fatahönnuðum, sem farnir eru að nota nöfnin sín til að selja aðrar vörur. Þeir láta aðra framleiða úrin fyrir sig og í þessum tilvikum þarf að skoða sérstaklega gæði úranna. Sumir hönnuðanna hafa lagst æði lágt í þessum viðskiptum, en fólk áttar sig ekki alltaf á þessu. Mörg þessara úra eru aftur á móti ágæt, til dæmis úrin frá Dior og Pierre Cardin sem við höfum verið að selja. Við tökum þau ekki inn í verslunina fyrr en við höfum skoð- að úrverkin vel.“ Umsvifin aldrei meiri þökk sé Kringlunni Viðskiptin ganga vel um þessar mundir og segja þau Þuríður og Bjöm að umsvifin hafi aldrei verið meiri. Þau þakka það meðal annars því að hafa flutt í Kringluna, en áð- ur hafði verslunin verið á Baróns- stíg og Laugavegi. „Við vorum þau fyrstu sem keyptu verslunarhúsnæði í Kringl- unni þegar hún var opnuð fyrir tíu árum,“ segir Bjöm. „Það var aldrei neinn efi hjá okkur um þá ákvörð- un. Þar réð meðal annars veðrátt- an á Islandi og bílastæðamál. Það skiptir líka máli hvað húsið er stórt og dregur marga að. I hverri viku fara hér um áttatíu þúsund manns, margir koma til dæmis af lands- byggðinni til að versla og dvelja hér daglangt en fara svo beint | heim.“ Björn segist hafa reynt að knýja í gegn breytingar á Laugaveginum 1 í samstarfi við aðra kaupmenn þar áður en ákveðið var að flytja í - Kringluna. „Við héldum fundi með borgaryfirvöldum og kynntum ýmsar hugmyndir um hvemig leysa mætti bflastæðavandamálið. Til dæmis lögðum við til að strætis- vagnar væm í stöðugum ferðum á Laugavegi og Hverfisgötu með I mörgum viðkomustöðum og að t bflahús væm reist báðum megin við Laugaveginn. Það var árang- ’ urslaust og þess vegna stukkum við strax á það að flytja í Kringluna þegar það bauðst. Það er mjög gott sem gert hefur verið á Laugaveg- inum nýlega og sem stefnt er að að gera, en það hefði bara átt að gera það fyrir löngu.“ Fjölskyldan hefur öll starfað í ; versluninni Meba er fjölskyldufyrirtæki og j ekki er útlit fyrir annað en að svo verði áfram, því þrjú böm þeirra hjóna hafa öll unnið í versluninni. „Eldri dóttirin starfar sem gull- smíðalærlingur hérna, sonurinn hefur unnið í afleysingum frá því að hann var lítill og yngri dóttirin og tengdadóttir okkar vinna í af- leysingum í sumar,“ segir Bjöm. i Loks má nefna að móðir Þuríðar, Unnur Benediktsdóttir, starfaði lengi í versluninni eftir að börn | þeirra Magnúsar vora orðin upp- komin. Alls em sjö full störf í versluninni, meðal annars starfar þar gullsmiður og úrsmiður. Meba verður fimmtíu ára á morgun, mánudag. Afmælin verða reyndar fleiri í sumar, þrjátíu ár verða síðan Bjöm hóf störf í versl- uninni og í ágúst era tíu ár síðan J hún flutti í Kringlunni. Hálfrar ald- ar afmælinu verður fagnað með 20% afslætti á öllum vörum í þess- ari viku. eflir Helgo Þorsteinsson ÞAÐ FER vel saman að selja úr og skartgripi, segja hjónin Þuríður Magnúsdóttir og Bjöm Ami Agústsson, eigendur verslun- arinnar Meba í Kringlunni. Hvort tveggja era skrautmunir, þó að úr- in hafi að auki annað hlutverk, og veltan í þessum tveimur greinum er svipuð hjá Meba. „Hingað koma stundum sjötugir menn með fermingarúrin sín og hafa aldrei átt neitt annað. Yngri kynslóðin á mörg úr, eitt fyrir hvert tækifæri. Það er augljóst að bifvélavirki þarf annað úr við vinnu sína á daginn heldur en þegar hann fer í samkvæmi í hvítri skyrtu um kvöldið. Hann þarf sterkt stálúr sem hentar í vinnuna og spariúr fyrir önnur tækifæri." Tískan hefur að sögn Björns einnig áhrif á sölu úranna. „Konur era jafnvel farnar að eiga jafnmörg úr og armbönd. Svo era líka til þeir sem safna úrum. Það jókst gríðar- lega með tilkomu Swatch-úranna. Þau era til í ótal gerðum og sumar era gerðar í tengslum við ákveðna viðburði, til dæmis eram við með til sölu „Fifth Element“-úr, kennd við samnefnda bíómynd sem nú er ver- ið að sýna. Menn leggja mikið á sig til að eignast ákveðin Swatch-úr og við höfum fengið hringingar er- lendis frá frá söfnuram sem era að leita að einhverju sérstöku," segir Bjöm. Vann í Meba frá bamsaldri Þuríður er dóttir Magnúsar E. Baldvinssonar úrsmiðs, sem stofn- aði verslunina Meba fyrir fimmtíu árum. Tíu eða ellefu ára gömul fór hún að hjálpa föður sínum við af- greiðslu í versluninni og við að búa til öskjur undir söluvörurnar. Sautján ára fór hún að vinna í fullu starfi og fljótlega fór hún að taka þátt í innkaupum. Björn hóf kennaranám en hætti 'því og fór út í úrsmíðina, meðal höfum það fram yfir aðra að við er- um fagmenn og getum því veitt upplýsingar um það af hverju sum úr era ódýrari en önnur. Auðvitað era gæðin í samræmi við verðið.“ Samkeppnisfær við útlönd „Okkar aðal er að við eram fag- menn og sjáum um alla viðgerðar- þjónustu," segir Þuríður. „Við er- um líka samkeppnisfær í verði, bæði við aðrar verslanir hérlendis sem selja úr og við verslanir er- lendis. Aðalatriðið er að sömu hlut- ir séu bornir saman til að átta sig á verðmun." Björn segir að nokkuð sé um að útlendingar kaupi úr hjá Meba, enda hafi samanburður við til dæmis England, Danmörku, Þýskaland og Sviss leitt í ljós _að verðið sé hagstætt hér á landi. „Eg held að það sé jafnvel orðið minna um það en áður að íslendingar versli í útlöndum, því fólk er farið að gera sér grein fyrir að það fái jafn góða vöru eða betri hér á landi, á sambærilegu verði og á betra verði. Eitt vandamálið við það að kaupa úr erlendis er að þjónustuna og ábyrgðina vantar og það er ekki víst að við getum gert við úr af tegund sem eram ekki með.“ Björn segir nokkuð um það að komið sé með eftirlíkingar af þekktum úram til viðgerðar í versl- uninni. „Þetta era aðallega úr keypt erlendis og yfirleitt keypt fyrir h'tinn pening, þannig að skað- inn er ekki mikill þótt ekki sé hægt að gera við þau. Það er þó eitthvað um að eftirlíkingar séu seldar hér á landi, til dæmis í Kolaportinu." Karamellu- og ilmvatnsúr Engin ein tegund af úram er ráðandi hjá Meba. „Við erum með allt frá Omegaúram, sem kosta frá fimmtíu þúsund krónum og endast í nokkrar kynslóðir, til sportúra á meðalverði, til dæmis Seiko og Casio, og niður í QQ-úrin sem eru vmsrapn/ArwNNUiíF Á SUNNUDEGI ► Þuríður Magnúsdóttir og Björn Árni Ágústsson tóku við úra- og skartgripaversluninni Meba af stofnanda hennar og föður Þuríðar, Magnúsi E. Baldvinssyni, fyrir nokkrum árum. Þuríður hóf snemma störf í versluninni, en Björn útskrifaðist sem úrsmiður úr Teknisk skole Ringsted í Danmörku árið 1972. Verslunin verður fimmtíu ára á morgun. YNGRI kynslóðin þarf úr fyrir hvert tækifæri. annars fyrir áeggjan tengdaföður síns. Hann hóf nám í Iðnskólanum í Reykjavík en ákvað að fara frekar til útlanda í sérhæfðan skóla. Hann útskrifaðist úr danska úrsmíða- skólanum, Teknisk skole Ringsted. Magnús var iðnmeistari hans heima á íslandi. Björn hóf fyrst störf hjá Meba árið 1967. Árið 1976 komu þau Björn og Þuríður inn í rekstur búðarinnar og fyrir um þremur áram tóku þau alveg við, þegar Magnús hætti störfum. Kvóti á klukkunum Fyrstu tvö árin var Meba til húsa á Barónsstíg. Þaðan flutti hún á Laugaveg 12 og árið 1975 á Laugaveg 8. Árið 1987 flutti hún í Kringluna þar sem hún er enn. Fyrir fimmtíu áram, þegar versl- unin var stofnuð, versluðu nær ein- göngu úrsmiðir með úr og klukkur. „Það var kvóti á innflutningi á úr- um og þegar auglýst var að ný sending væri komin í verslun myndaðist strax biðröð,“ segir Björn. „Uppúr 1970 breyttist markaðurinn. Nú era úr seld á bensínstöðvum og í byggingar- vöraverslununum og víðar. Úrsmiðir hafa orðið að gera upp við sig hvort þeir vildu keppa á markaðnum með ódýrastu úrin, sem kosta þúsund krónur eða svo. Við ákváðum að fara út í það og leyfa fólki að velja. Við úrsmiðirnir Morgunblaðið/Jim Smart ÞURIÐUR Magnúsdóttir og Björn Árni Ágústsson, eigendur úraverslunarinnar Meba í Kringlunni. EITT ÚR ER EKKI LENGUR NÓG

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.