Morgunblaðið - 06.07.1997, Síða 26

Morgunblaðið - 06.07.1997, Síða 26
26 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIR/Stj örnubíó, Sambíóin og Laugarásbíó hafa tekið til sýninga eina af stór- myndum sumarsins, Men in Black, með Tommy Lee Jones og Will Smith í aðalhlutverk- um. Leikstjóri er Barry Sonnenfeld og meðal framleiðenda er Steven Spielberg. OFUHETJURNAR í Men in Black eru eitt best varðveitta leyndarmál mannkynsins. K (Tommy Lee Jones) og J (Will Smith) eru svartklæddir og leynilegir starfsmann bandarískrar ríkisstofnunar sem hefur fullt af fjárveitingum en er samt ekki til opinber- lega. Verkefni stofnunarinnar er að hafa eftirlit með ferð- um geimvera og farartækja frá öðrum hnöttum til og frá jörðinni og fylgjast með þessum gestum meðan á dvöl þeirra hér á jörðinni stendur. Félagarnir svartklæddu eru besta, síðasta og raunai- eina vopnið sem mannkynið get- ur gripið til þegar slettist upp á vinskapinn milli mann- kynsins og vitsmunavera frá öðrum hnöttum. Skyndilega lenda K og J í hringiðu stórhættulegrar ráðagerðar sem hryðjuverkamaður úr öðru sólkerfi (Vincent D’Onfrio) hefur á prjónunum en hann er kominn til jarðar til þess að sitja um líf tveggja sendimanna enn annarra sólkerfa. Til þess að koma í veg fyrir alheims- styrjöld í bókstaflegri merkingu og gjöreyðingu jarðar- innar þurfa hinir svartklæddu að finna hryðjuverkamann- inn, sem hefur tekið á sig gervi jarðarbúa. Sem sagt: framundan er enn einn venjulegur vinnudagur hjá K og J. Aðstandendur myndarinnar um hina svartklæddu eru m.a. leikstjórinn Barry Sonnenfeld, leikstjóri Get Shorty og myndanna um Addams fjölskylduna, og framleiðendur Óskarsverðlaunahafinn Tommy Lee Jones var einn þeirra sem fyrst gengu til liðs við framleiðenduma og tók að sér að leika í myndinni, löngu áður en handritið sem Ed Solomon skrifaði eftir sögu Cunninghams leit dagsins ljós. Hann segir að sér hafi líkað sagan og að sig hafi langað til að taka þátt í að gera kvikmynd eftir vísinda- skáldsögu sem hefði yfirbragð ævintýra og gamansemi. Tommy Lee Jones hefur slegið hressilega í gegn sem kvikmyndaleikari á undanfömum árum og árið 1993 hlaut hann óskarsverðlaun fyrir leik sinn í inyndinni um Flótta- manninn, The Fugitive, með Harrison Ford í aðalhlut- verki. Tommy Lee Jones lék fyrst í kvikmynd árið 1970 (skömmu eftir að hann lauk BA-prófi í ensku frá Harvard þar sem hann deildi herbergi á heimavist með A1 Gore núverandi varaforseta Bandaríkjanna). Lítið fór fyrir kappanum í mörg ár. Þótt han ynni leiksigra í Eyes of Laura Mars (1978), Coal Miner’s Daughter (1980), The Executioner’s Song (1982) og fleiri myndum varð hann ekki stjarna fyrr en 1992-1994. Fyrst sló hann í gegn í aukahlutverki í Steven Seagal myndinni Under Siege og ári síðar lék hann aðalhlutverk í mynd Oliver Stones, Heaven and Earth, og vann sama ár Óskarsverðlaunin fyrir Flóttamanninn. í kjölfarið fylgdu stórmyndirnar The Client, Natural Bom Killers og Batman og vinsældir TOMMY Lee Jones og Will Smith. Geimverur á hverju götuhorni era Walter F. Parkes og Laui'ie MacDonald ásamt sjálf- um Steven Spielberg. Það vora MacDonald og Parkes sem keyptu árið 1992 kvikmyndaréttinn að teiknimynda- sögu eftir mann að nafni Lowell Cunningham um svart- klædda eftirlitsmenn með verum frá öðrum hnöttum. Það sem þau hrifust af var að í sögunni var baráttan við geim- verur og annarra heima kvikindi hversdagslegur veruleiki tveggja venjulegra manna. Það sem þykir gera flestar teikni- myndasögur athyglisverðar era ein- hverjar furðuverur, ekki venjulegar manneskjur,“ segir Walter F. Park- es. Sögumar um Men in Black byggjast hins vegar á þessum tveimur ótrúlega kúl“ löggæslu- mönnum, sem nota mannlegan styrk og óvenjulega tækni til þess að berjast við geimverur." Framleiðendumir, sem era yfir- menn kvikmyndadeildar fyrirtækis Steven Spielbergs, DreamWorks (Spielberg tók sjálfur þátt í framleiðslu myndarinnar og fékk m.a. Will Smith til þess að vera með í verkefninu), töldu hins vegar að húmorinn í teiknimyndasögum Cunn- inghams væri of dökkur og yfirbragðið of skuggalegt og þess vegna tóku þeir þá Hollywood-legu ákvörðun að létta yfir öllu og reyna að færa sér sérstaklega í nyt þá möguleika sem þeir töldu að efnið byggi yfir til þess að sýna léttleika og gamansemi. í því skyni réðu þeir leik- stjórann Barry Sonnenfeld. „Barry hefur sérstaka kímnigáfu og einstakt næmi fyr- ir því hvemig koma eigi húmor til skila á hvíta tjaldinu auk þess að hafa ákaflega sjónrænan st£l,“ segir MacDon- ald. „Hann er gamanmyndaleikstjóri sem reiðir sig ekki á að hafa brandara til að segja heldur kann að koma fyndn- um aðstæðum og atvikum til skila.“ Þegar Sonnenfeld las handritið að MiB í fyrsta skipti segist hann strax hafa teldð eftir því að þar leyndust miklir möguleikar á fyndinni sögu og auk þess sá hann í handritinu tækifæri til að leikstýra öðru vísi mynd en hann hefði nokkra sinni áður gert. „Mér líkaði vel hvað þetta var skynsamleg saga. Ég hef alltaf haft fyrir því djúpa sannfæringu að við mennimir höfum ekki nokkra hugmynd um það hvað er á seyði í alheiminum. Það höfð- aði til mín að geta gert mynd þar sem þetta var tekið sem gefið mál og reynt að koma því áleiðis til heimsins að kannski vitum við ekkert í okkar haus.“ Sonnenfeld ákvað líka að láta breyta upphaflegum handritsdrögum þannig að í staðinn fyrir að sagan gerðist vítt og breitt um Bandaríkin yrði hún sviðsett að lang- mestu leyti í heimaborg hans, New York. „Ég leit svona á þetta: ef það era geimverar á jörðinni þá mundu þær velja sér að búa í New York borg. Þar mundu þær falla inn í hópinn því að það er fullt af fólki í New York sem lítur út fyrir að vera-og er senni- lega-komið frá öðram sólkerfum.“ Framleiðandinn Parkes hnykkir svo á hug- myndum leikstjórans þegar hann lýsir sýn sinni á myndina og vonum sínum um áhrif hennar á áhorfendur: „Myndin kallar fram spumingar um hvort við í raun og vera hrærumst mitt í einhverjum allt öðram raunveruleika sem við þekkjum ekkert til og vitum ekkert af.“ fhlutverk löggæslumannanna K og J voru valdir leikararnir Tommy Lee Jones og Will Smith. Jones leikur löggæslumanninn K, lífsreyndan mann sem starfað hefur hjá stofnuninni leynilegu frá stofnun hennar og fær það verkefiii að þjálfa nýjan félaga sem er hinn ótrúlega djarfi og glöggi fyrrverandi löggumaður í New York, James Edwards (Will Smith) sem fær nafnið J þegar hann gengur til liðs við stofnunina. SMITH og Jones leika K og J, lög- gæslumenn, sem beijast 5 daga í viku við óvini utan úr geimi. Tommy Lee jukust jafnt og þétt og launatékkinn hans varð feitari og feitari. Tommy Lee Jones er frá smábæ í Texas þar sem pabbi hans var verkamaður í olíuiðnaðinum. Strákurinn vann um skeið með pabba sínum áður en hann fékk íþrótta- styrk til þess að nema við Harvard háskóla. Hann býr enn í Texas þegar hann er ekki að vinna við kvikmyndir og á þar stóran bú- garð. Mótleikari Tommy Lee Jones, Will Smith, á allólíkan bakgrunn. Hann hefur náð miklum vinsældum síðastliðin tvö ár fyrir leik sinn í myndunum Bad Boys og Independence Day og er nú sann- kölluð stórstjama vestanhafs. Fyrstu skref sín á listabrautinni steig Will Smith sem rappari-prins- inn í dúóinu DJ Jazzy Jeff And The Fresh Prince. Tvíeykið starfaði frá 1986 og seldi óteljandi plötur og hlaut fjölda verðlauna; persónutöfr- ar Will Smiths áttu mestan þátt í vinsældum sveitarinnar og svo fór að NBC sjónvarpsstöðin bjó til sjónvarpsseríu fyrir Will Smith undir heitinu The Fresh Prince of Bel Air og gekk hún vikulega í sjónvarpi í 6 ár. Smith sneri sér að kvikmyndaleik árið 1995 með Bad Boys, sem varð ein tekjuhæsta mynd þess árs, og síðan kom Independence Day : fyrra og sló öll met. Nú er að sjá hvort Men in Black vinnur sömu afrek en aðeins er liðin rúm vika írá því að hún var fram- sýnd í kvikmyndahúsum í Bandaríkj- unum. I helsta aukahlutverki MiB er hin glæsilega Linda Fiorentino, sem leikur réttarlækni sem aðstoðar K og J við að kryfja til mergjar ráðgátur þær sem geimverurnar era. Linda er ógleyman- leg þeim sem sáu myndina The Last Seduction. Þá er þama Vincent D’Onfrio sem leikur aðalóvininn úr geimnum og gamla hetjan Rip Tom leikur Zed, yfirmanninn hjá dularfulla geimverueftirlit- inu þar sem allir starfs- mennirnir ganga í svört- um fotum. LINDA Fiorentino er f aukahlutverki sem réttarlæknirinn Laurel. WILL1 Smith með geimveru f fanginu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.