Morgunblaðið - 06.07.1997, Síða 33

Morgunblaðið - 06.07.1997, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ1997 33 Steinar og Kata í austurbænum. Lýður og Steinar hefðu áreiðan- lega orðið merkir fræðimenn ef þeir hefðu lagt það fyrir sig. Þeim var gefin óvenju mikil greind og nutu virðingar sveitunga sinna og allra sem þekktu þá. Og þeir voru góðir bændur, verklagnir og hag- sýnir en engu að síður ólíkir um margt. Steinar var ör í skapi, söng- maður, félagslyndur og hláturmild- ur. Hann söng sálma í kvöldmjöltum og bölvaði kúnum hressilega milli versa ef þær spörkuðu. Lýður var aftur á móti dulur og hægur. Hann flýtti sér aldrei og vann öll sín verk jafnt og þétt en náði samt að af- kasta meira en allir aðrir. Ég man alltaf hvað hann var fljótur að grafa skurði og moka heyi í blásarann. Og aldrei spörkuðu kýrnar þegar hann mjólkaði þær. Lýður var ekki allra, eins og sagt er, en þeir sem fengu tækifæri til að kynnast honum náið bundust honum tryggðarböndum. Hann var hlýr og traustur og átti sinn þátt í því mikla aðdráttarafli sem vestur- bærinn í Hlíð hafði fyrir fjölda fólks. Að vísu var það Guðbjörg sem sá fyrir fjörinu og eldaði besta mat í heimi með heimatilbúinn ís á sunnu- dögum og jarðarber sem hún rækt- aði í rabbarbaragarðinum. En Lýð- 1 ur var kletturinn sem þetta mikla | gósenland byggðist á. Og raunar gat hann verið mjög orðheppinn og launfyndinn. Já, hann hafði afskap- lega fínan og dálítið írónískan hú- mor. Ég hitti hann skömmu eftir að Guðbjörg dó fyrir rúmum tveim- ur árum og spurði hvort hann ætl- aði nú að búa einn í Gautlandinu. „Já, já,“ sagði Lýður „Ég geri það. Grímsbær er þarna rétt hjá. Alltaf nóg að éta.“ Og svo hló hann í I gegnum nefið. Lýður hafði gaman af að stúdera | tungumál og las auðvitað dönsku reiprennandi sem kom sér afar vel fyrir kornungt fólk sem var ekki enn búið að ná valdi á þeirri tungu. Einhverjar bestu æskuminningar mínar eru þegar Lýður las fyrir okkur krakkana, Óla, Ellu og mig, Andrés önd og þýddi jafnóðum yfir á íslensku. Það var yfírleitt eftir Ihádegi þegar hann lagði sig á mjó- an dívan inni í baðstofu eftir matinn og við bræður lágum sitt hvoru I megin við hann en Ella sat á gólf- inu. Við þrjú höfðum mikla samúð með Andrési, þessum einstaka hrakfallabálki, en Lýður hafði mest gaman af Jóakim frænda, „af því hann er svo flinkur að græða,“ sagði hann og hló í gegnum nefíð. En Lýður var ekki aðeins tungu- málamaður, heldur var hann líka | stærðfræðingur af guðs náð og afar snjall skákmaður. Eg held að hann I hafi verið lítið gefínn fyrir skáld- | skap en hann las níðþungar stærð- fræðibækur, sem kenndar voru við verkfræðideild Háskólans, sér til ánægju og yndisauka. Og eftir að þau Guðbjörg brugðu búi og fluttu í bæinn sagði hann nokkrum ung- mennum til í stærðfræði, þar á meðal mér sem hef aldrei verið sleipur í stærðfræðinni og ekki í j skákinni heldur. Þegar ég var í Ilandsprófi strandaði ég einu sinni sem oftar á einhverju óskiljanlegu | orðadæmi en skrifaði það upp og sendi til Lýðs. Nokkrum dögum síð- ar fékk ég bréf þar sem hann sýndi mér hvernig mætti reikna dæmið á þijá mismunandi vegu. Þetta varð til þess að hámenntaður stærð- fræðikennarinn fékk óbilandi, en algjörlega óverðskuldaða trú á mér því honum hafði aldrei hugkvæmst nema ein lausn á dæminu. Skörp greind er reyndar lítils æ virði ef ekki kemur til mannúð og ■ af henni átti Lýður nóg þótt hann legði ekki í vana sinn að flíka til- finningum sínum. Og nú þegar komið er að leiðarlokum fínnst mér ég hafí aldrei endurgoldið alla þá elskusemi sem Lýður og Steinar, Guðbjörg og Kata auðsýndu mér og mínu fólki. En ég er viss um að við öll sem nutum þeirra forrétt- 8 inda að dvelja hjá þeim lengur eða H skemur höfum orðið betri mann- a eskjur. Og einhvem veginn hlýtur ™ það að skila sér áfram. Hjálmar Sveinsson. HAKON ARNAR HÁKONARSON + Hákon Arnar Hákonarson fæddist á Húsavík 19. ágúst 1956. Hann varð bráð- kvaddur í Reykja- vík 27. júní síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Há- teigskirkju 4. júlí. Með hlýhug og sökn- uði langar mig að minn- ast frænda míns Arn- ars, með eftirfarandi kafla úr Spámanninum: Þá sagði kona ein: Talaðu við okkur um gleði og sorg. Og hann svaraði: Sorgin er gríma gleðinnar. Og lindin, sem er upp- spretta gleðinnar, var oft full af tár- um. Og hvernig ætti það öðruvísi að vera? Þeim mun dýpra sem sorg- in grefur sig í hjarta manns, þeim mun meiri gleði getur það rúmað. Er ekki bikarinn, sem geymir vín þitt, brenndur í eldi smiðjunnar? Og var ekki hljóðpípan, sem mildar skap þitt, holuð innan með hnífum? Skoð- aðu hug þinn vel, þegar þú ert glað- ur, og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmædd- ur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. Sum ykkar segja: „í heimi hér er meira af gleði en sorg,“ og aðrir segja: „Nei, sorg- irnar eru fleiri." En ég segi þér, sorgin og gleðin ferðast saman að húsi þínu, og þegar önnur situr við borð þitt, sefur hin í rúmi þínu. Þú vegur salt milli gleði og sorgar. Jafn- vægi nærð þú aðeins á þínum dauðu stundum. Þegar sál þín vegur gull sitt og silfur á metaskálum, hlýtur gleðin og sorgin að koma og fara. Inga. Nú, dögum eftir skyndilegt frá- fall Arnars Hákonarsonar, er manni enn brugðið. Hvernig má annað vera? Vart þremur dögum fyrir andl- átið ræddum við saman um flugið og væntanlega flugferð okkar út á land. Félaga mínum og mér rétti hann nýgert nafnspjald sem hann af hagleik hafði sett saman í tölv- unni sinni. Flest virtist leika í lyndi, annað var ekki að sjá. Arnari kynntist ég fyrir meira en fimmtán árum í tengslum við út- varpsrekstur fijálsra en ólöglegra útvarpsstöðva í verkfalli opinberra starfsmanna. Lögin höfðu eitthvað við þetta að athuga en þeim var nú fljótlega breytt. Arnar sá um tækni- hlið útvarpssendinganna, ég og fleiri lásum fréttir, skrifaðar af björtustu pennum hægrimanna þess tíma o.s.frv. Sameiginlegur áhugi á stjórnmálum og félagslífi sameinaði okkur. Ásetningur Arnars var í anda riddarans hugdjarfa, nema hvað vindmyllur okkar daga voru og eru raunverulegar. Arnar hélt til Ameríku í flugnám í virtasta skóla þeirra þar og stóð sig með sóma. Arnar var gleðimaður á flesta lund og góður félagi í góðum félagsskap. Það fór ekki af honum þó svo að hann hefði afneitað Bakk- usi. Eftir að Arnar kom frá Ameríku hélst með okkur góður vinskapur. Margt horfði til betri vegar, hann búinn að fjárfesta í snoturri íbúð í Norður- mýrinni, starfaði við einkakennslu í flugi ásamt tölvuvinnslu í hjáverkum og tengslin við vini og frændgarð í góðri rækt. Það er því með söknuði að ég kveð góðan og traustan vin um leið og ég votta dætrum hans, foreldr- um og systrum samúð mína. Ólafur Als. Dagurinn hófst eins og hver ann- ar sumardagur, tvísýnt um veður og vangaveltur um hvað gera skyldi um komandi helgi. En það dimmdi skyndilega þennan föstudag á skrif- stofum okkar á Suðurlandsbraut 46, þegar Arnar félagi okkar hné skyndilega og fyrirvaralaust niður og var allur á augabragði. Við sem eftir stöndum reynum að skilja lögmál lífsins; hvernig á því getur staðið að þessi létti og hressi félagi okkar, sólbrúnn og hraustlegur, skuli horfinn á brott aðeins liðlega fertugur að aidri, í blóma lífsins, án þess að hafa kennt sér minnsta meins. Við fáum ekki svör við þeim hugrenningum. En eftir situr í huga okkar minning um hressan og skemmtilegan félaga sem ætíð var tilbúinn að veita aðstoð væri hennar óskað. Að leiðarlokum kveðjum við Adda með hlýhug og söknuði. Samúðar- kveðjur sendum við dætrum hans, foreldrum, systrum og öðrum ástvin- um. Blessuð sé minning hans. Daníel Jón Helgason, Friðgeir Guðjónsson, Gylfi Reykdal, Haukur Már Haraldsson, Hilmar Victorsson, Jón Þórir Frantzson. Þegar ég frétti um lát Adda frænda kom það eins og þruma úr heiðskíru lofti. Maður á besta aldri í toppformi og lék á als oddi. Þegar þessar línur eru skrifaðar vakna ýmsar minningar um Adda frænda. Fyrst man ég eftir þegar ég dvaldist á heimili Adda frænda á Húsavík þegar við vorum fimm ára gamlir. Eftir að Addi og fjölskylda fluttust til Reykjavíkur var samgangurinn miklu meiri, ég man allar ferðirnar í Hjarðarland á Moskanum hans Hákonar pabba hans Adda. Þegar tölvan mín bilaði og Addi frændi frétti það kom hann óbeðinn og lag- færði hana. Ekki hætti hann fyrr en hann var búinn að stækka minnið, búa til heimasíðu o.fl. Ekki taldi hann eftir sér að sitja kvöld eftír kvöld og aðstoða. „Ég er ekki jafnfús til farar og vindurinn, samt verð ég að kveðja,“ segir Kahlil Gibran. Kæri Addi frændi, hafðu þökk fyrir allt, brosið, húmorinn og vin- skapinn við mig og mína fjölskyldu. Við sendum samúðarkveðjur til dætra þinna, foreldra og systra. Þinn frændi og vinur. Gestur, Anna og börn. LEGSTEIMAR Marmari ♦ Granít ♦ Blágrýti ♦ Gabbró íslensk framleiðsla MOSAIK Hamarshöfdi 4 - Reykjavik sími: 587 1960 -fax: 587 1986 + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma og langamma, INGA HAFDÍS HANNESDÓTTIR, Aragerði 7, Vogum, sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugar- daginn 28. júní sl., verður jarðsungin frá Kálfa- tjarnarkirkju miðvikudaginn 9. júlí kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Karítas eða Krabbameins- félag íslands. Helgi Axel Davíðsson. Árný Helgadóttir, Stefán S. Sigurðsson, Margrét Helgadóttir, Hanna Helgadóttir, Davíð Helgason, Vilborg Helgadóttir, Baldur Georgsson, Kristján Kristmannsson, Bára Einarsdóttir, Sigurjón Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, sonur og afi, SIGURÐUR HANNES JÓHANNSSON brunavörður, Hamarsbraut 14, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 8. júlí kl. 13.30. Sigurbjörg Hilmarsdóttir, Vilborg Áslaug Sigurðardóttir, Kristján Valby Gunnarsson, Guðrún Karla Sigurðardóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Sigurður Kristinn Lárusson, Kristjana Ósk Sigurðardóttir, Vilborg Áslaug Sigurðardóttir, Jóhann Sigmundsson og barnabörn. Guðbjörg Helga Sigurbjörnsdóttir, Lind Ebbadóttir, Jón Ólafsson, Sigurveig Ebbadóttir, Haraldur Hansson, Gerður Ebbadóttir, Benedikt Ó. Sveinsson, barnabörn og fjölskyldur þeirra. + Útför SIGRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Karlsskála, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð Kópavogi, föstudaginn 27. júní síðastliðinn, fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 7. júlí kl. 13.30. Þeir sem vildu minnast hennar, vinsamlega látið hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð njóta þess. Fyrir hönd afkomenda, synir og tengdadætur. + Kæru ættingjar og vinir! Alúðar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ALBERTS FINNBOGASONAR, fyrrverandi bónda frá Erpsstöðum, Dalasýslu, Álfheimum 36, Reykjavík. Guðs blessun fylgi ykkur öllum. Elísabet Benediktsdóttir, Anna Margrét Albertsdóttir, Hildiþór Kr. Ólafsson, Guðrún Albertsdóttir, Páll Björnsson, Svanhildur Albertsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.