Morgunblaðið - 06.07.1997, Side 39

Morgunblaðið - 06.07.1997, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ1997 39 h i I I J J j I J : J I I i i í Morgunblaðið/Amaldur VEIÐIMAÐUR þenur köstin í Þverá í Borgarfirði þar sem veiði hefur gengið nokkuð vel það sem af er. Hörkuganga í Laxá í Kjós VEIÐI hefur tekið vel við sér í Laxá í Kjós síðustu daga og kröftugar göngur hafa skilað sér með vaxandi straumi. Mest er um mjög vænan smálax að ræða, en stórir laxar eru enn í bland og enn eru menn að sjá nokkra mjög stóra fiska í ánni. Mikil eftirvænting er með yfir- standandi straum og gera marg- ir því skóna að með honum komi fyrstu vísar þess hvort vertíðin verði gjöful eða í slakari kantin- um. „Þetta hefur verið mjög skemmtilegt og smálaxinn er þetta 6-7 pund. Ég veit ekki hvort maður eigi að kalla þetta smálax lengur. Ólafur Helgi Ólafsson fyrrum veiðivörður við Laxá segir að hann hafi ekki séð Laxá jafn líflega í byrjun júlí í áraraðir. Hann veit hvað hann syngur í þeim efnum, alinn upp á bökkum árinnar,“ sagði Ásgeir Heiðar leigutaki Laxár í Kjós í gærmorgun. Þá voru komnir um 220 laxar á land, vatnsmagn í ánni var gott og taldi Ásgeir Heiðar fulla ástæðu til bjartsýni með framhaldið. „Mér sýnist að Laxá sé á leið upp úr öldudal síðustu sumra,“ bætti hann við. Smálax sýnir sig aðeins „Þetta er búið að vera mjög dauft, en við fengum tvo smá- laxa fyrir neðan Æðarfossa í gærmorgun og misstum þrjá. Það var eins og eitthvert líf væri að kvikna og vonandi verð- ur framhald á því,“ sagði Orri Vigfússon í gærmorgun, en hann var við veiðar í Laxá í Aðaldal. Voru komnir að hans sögn um 80 laxar á land. Misjafnt á hálendinu Mjög misjöfn silungsveiði hefur verið í hálendisvötnum það sem af er sumri. Það er stöðugur straumur veiðimanna inn á gólf til Ingólfs Kolbeins- sonar í Vesturröst og auk þess selur verslunin veiðileyfi í sum þekktari hálendisvatnanna. Ing- ólfur sagði það sameiginlegt með Þórisvatni, Kvíslaveitum, Köldukvísl og Veiðivötnum að mjög léleg veiði hefði verið. „Kaldakvíslin er alltaf dyntótt, en á hinum stöðunum kvarta menn hreinlega yfir því að þeir sjái lítið af fiski. Mig grunar auk þess að dagar Þórisvatns gætu senn verið taldir sem veiðivatns þar sem stækkun virkjunarlóna mun að öllum líkindum grugga vatnið upp fyrr eða síðar,“ sagði Ingólfur. Veiði hefur verið afburðagóð í vötnum á Arnarvatnsheiði. Fiskur var örlítið tregur í fyrstu, en ræst hefur úr því. Bestu fréttirnar berast frá Arnarvötn- unum báðum, Úlfsvatni, Reykjavatni, Veiðitjarnarlæk, Austurá og Hlíðarvatni. Fleiri vötn eru á þessum slóðum og gefa öll vel, en veiði er þó háð veðri; í roki gruggast hin grunnu vötn upp. Afar góð skot hafa og komið í hinum ýmsu vötnum á Skaga og hafa menn verið að taka tugi fiska á skömmum tíma þegar best lætur. Risi í Stóru-Laxá Veiðimaður að nafni Þórir Hlynur Þórisson gerði góða ferð á efsta svæði Stóru-Laxár fyrir skömmu. Víða var fisk að sjá og dró Þórir tvo stóra, 14 og 16 punda úr Hólmahyl. Þar setti hann síðan í mikið ferlíki sem sleit hjá honum gilda línu eftir hálftíma glímu. Vitni á árbakk- anum báru að fiskurinn hefði alls ekki getað verið undir 30 pundum og sennilega nokkru þyngri. jj Djass á Café í Au Lait DJASSTRÍÓ Árna Heiðars leikur á Café Au Lait í kvöld, sunnu- dagskvöld, kl. 22. Meðlimir tríósins eru að vanda Tómas R. Einarsson á kontra- bassa og Matthías Hemstock á trommur auk Árna Heiðars sem leikur á Fender-Rhodes píanó að 3 þessu sinni. Munu þeir félagar 1 leika þekkta djassstandarda auk 1 frumsamins efnis eftir píanóleik- arann. APOTEK OPIÐ ÖLL KVÖLD VIKUNNARTIL KL 21 00 HRINGBRAUT 1 19, VIÐJLHÚSIÐ. í i ( - kjarni málsins! SUMARHÚS í LANDI KLAUSTURHÓLA - GRÍMSNESI Til sölu og sýnis núna um helgina J þetta fallega sumarhús, Brekkuhúl- ar, í landi Klausturhóla í Grímnesi. Húsið er á hektara eignarlandi og er , í dag 37 fm með mikla möguleika á ' ' stækkun. Kait vatn er í bústaðnum J og komið rafmagn í landið. Sérstak- i lega vel frágengið hús. Búið að J rækta upp lund við húsið. i VERÐ AÐEINS 2,5 MILLJÓN KRÓNA. LÁRA VERÐUR Á STAÐNUM SUNNDAG i UPPL. I' SÍMA 899-1931 kl 13-16 j LEIÐIN: keyrt er eins og að Minni- Borg. Ca 9 km frá Þrastalundi er beygt inn | BÚRFELLSVEG og keyrt austur ca 2,5 km. þangað til komið er að skilti merktu KLAUSTURHÓLL þar er beygt inn og keyrt um EFTRI VEG ca 800 metra, þar er = land á hægri hönd merkt BREKKUHÓLAR (er númer 24) en skiltið er máð. V. Húsakaup, Suðurlandsbraut 52 v/Faxafen, s. 568 2800. FASTE I6NASALA N FINNBOGI KRISTJÁNSSON LÖGG. FASTEIGNASALI Síðumúli 1, sími 533 1313 OPIÐÍDAG FRÁ KL. 12-14 Stigahlíð Um er að ræða 257 fm hús með góðum stofum og möguleika á sér fbuð í kjallara. Hentug sólverönd í suður, svalir útaf hjónaherbergi með tröppum niður í garð, Upplagt er að hafa sundlaug í garðinum. Bilskúr fylgir. Húsið þarfnast smávægilegra lagfæringar. Stutt er í alla skóla, verslanir og heilsugæslu. Njálsgata Björt og falleg 62 fm ris íbúð með sér inngangi. Allt nýtt! Nýjar innréttingar, nýtt eldhús og bað, Hér þarft þú ekkert að gera, bara flytja inn. Ákv. 2,2 millj. byggsj. Verð 5,5 Alfholt Um er að ræða 140 fm efri sérhæð í tvibýli með 4 svefnh., sóistofu, búr og þvottahúsi innaf eldhúsi o.fl. Skipti koma til greina á minni eign í Kópavogi. Áhv. 2,3. Gott sérbýli óskast, heist með aukaherb. eða aðstöðu með sér inngangi, sem gæti hentað sem nuddstofa. Vesturbær eða Þing- holtin er óskastaðsetning, tilbúinn að ath. aðrar staðsetningar ef að- staða er góð. Verð allt að 9 millj. Skráðu húsnæðið þitt hjá Leigulistanum þér að kostnaðarlausu. Með aðeins einu stmtali er húsnæðið þitt komið á skrá hjá okkur og þar með ert þú komin(n) í samband við fjölda leigjenda. Skráðu íbúðina núna áður en hún losnar og komdu (veg fyrir að hún standi auð og arðlaus. Skráning í síma 511-1600 L EIGULISTINN LEIGUMIÐLUN Skipholti 50B. • 105 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.