Morgunblaðið - 06.07.1997, Page 40

Morgunblaðið - 06.07.1997, Page 40
40 SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ BREF HL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Dýraglens Ferdinand List kontra handverk Frá Helga Ásmundssyni: LIST og handverk eru þættir sem að áliti undirritaðs ætti glögglega að skilja að þegar listrænt mat er lagt á verk listamanns. Gott hand- verk er aðalsmerki nytjalistar og var stétt handverksmanna áber- andi hér á öldum áður en það voru ekki hinir eiginlegu listamenn, hinsvegar voru dæmi þess að lista- menn höfðu handverksmenn í vinnu við gerð stærri verka svo sem veggmyndir (freskur), meistarar eins og Leonardo Da Vinci, og gera enn, t.d. Erró. Myndhöggvar- ar njóta þá oft í dag aðstoðar þeirra sem kallaðir hafa verið vandalaus- ir handverksmenn og er þá átt við faglærða iðnaðarmenn við út- færslu stærri verka og eru þá lista- menn hinir eiginlegu hugmynda- smiðir. Þannig byggir list öðru fremur á innsæi og vinnu listmanna ætlað að standa sem sjálfstæð verk en ekki skoðast sem minjagripir þó að sú framleiðsla beri að mörgu leyti vott um gott handverk á Is- landi í dag. Annað ber fyrst og fremst vott um viðhorf íhaldsamrar borgarastéttar sem lítur á list sér til eignar eða sem hveija aðra heimilisprýði meðan listsköpun er í dag hveijum listamanni áskorun og persónuleg ögrun. Má segja að þetta sem orðið er þrálát klisja í skrifum Braga Ás- geirssonar um núlistir beri hans eigin listsköpun síst vott því að í upphafi listferils síns safnaði hann ýmsu tilbúnu smádóti gjarnan á fjöruferðum og kom fyrir á mynd- fleti, nokkuð sem þykir allra hefð- bundnasta listviðhorfi jafnvel til storkunar. í dag málar hann gjarn- an á masonít plötur og fylgir þar ekki hinni aldagömlu akademísku hefð málverksins um að mála á striga. Má því spytja sig hveijum hann sé í rauninni að þóknast með slíkum skrifum. Má benda á að margir af þekkt- ustu listamönnum síðustu áratuga eru öðru fremur þekktir fyrir per- sónulegan stíl en lítt fágað hand- bragð, leyfi ég mér að nefna Míró og aðra þá sem á sínum tíma voru kenndir við fijálsa og óheflaða tján- ingu, svokallaða expression, en í anda þeirrar stefnu máluðu jafnvel íslenskir listamenn nokkuð samtíma fyrrnefndum listrýni og listamanni. Virðingarfýllst. HELGIÁSMUNDSSON, Ljósheimum 22, Reykjavík. Lykill að landinu Frá Jóni Ögmundi Þormóðssyni: AF GÓÐUM viðtökum að dæma kunna Iandsmenn vel að meta hina endurskoðuðu Vegahandbók á ferðalögum sínum um landið. Af því tilefni virðist rétt að spyija hvort menn ættu ekki að benda erlendum vinum sínum og öðrum útlendingum, er ferðast um landið, á að athuga gildi bókarinnar í nýju ensku útgáfunni, The Visit- or’s Key to Iceland, eða nýju þýsku útgáfunni, Island Atlas. Bækurn- ar, eins margþættar og þær eru, sýnast geta orðið þeim útlending- um, er áhuga hafa á landinu, ómet- anlegur ferðafélagi. Þær eru mjög handhægar og gagnorðar og taka fram þeim bókum um ferðaiög er- lendis er ég hef kynnst. JÓN ÖGMUNDUR ÞORMÓÐSSON, Laugarásvegi 29, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. HORNIÐ Á LÆKJARTORGI Til leigu er verslunarhúsnæði í Lækjargötu 2, hornið við Lækjartorg. Húsnæðið er laust nú þegar. Upplýsingar veittar í síma 562 1088 á skrifstofutíma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.