Morgunblaðið - 06.07.1997, Síða 56
Si ma b a n ki
560 6060
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBI^tCENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆH 1
SUNNUDAGÚR 6. JÚLÍ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Starfsmenn skortir til
verklegra framkvæmda
Rugluðust
á vatni og
O vodka
LÖGREGLAN á Egilsstöðum
fékk í fyrrinótt að reyna gest-
risni Snigla nokkurra, sem
halda mót í Végarði í Fljótsdal.
Þeir ætluðu að þiggja af þeim
heitt kakó, sem er blandað
þannig að kakódufti er hrært
út í heitt vatn. Lögreglumönn-
um þótti kakóið fullsterkt enda
reyndust gestgjafarnir hafa
ruglast á vatni og vodka!
Ökumaður á þrítugsaldri velti
jeppabifreið sem hann ók innan-
bæjar á ísafirði snemma í gær-
morgun. Maðurinn slapp með
minniháttar meiðsl en bfllinn er,
að sögn lögreglu, töluvert
skemmdur. Maðurinn, sem var
einn í bflnum, er grunaður um
ölvun við akstur.
VERKLEGAR framkvæmdir eru
miklar í landinu um þessar mundir
og víða vantar fólk í vinnu. Að sögn
Páls Sigurjónssonar, forstjóra Is-
taks, hefur fyrirtækið aldrei haft
jafn mikil verkefni framundan í 27
ára sögu þess.
Fyrirtækið hefur bætt við tölu-
verðu af fólki, bæði tímabundið og
til frambúðar, og segir Páll að það
hafi gengið nokkuð vel fram til
þessa. Það gæti þó átt eftir að breyt-
ast. Hann nefnir sérstaklega miída
aukningu tæknimanna, íjöldi verk-
fræðinga hjá fyrirtækinu hafi nær
tvöfaldast síðustu tvö misseri.
Sum stærstu verkefna Istaks
vinnur fyrirtækið í samstarfí með
öðrum. Páll segir helstu verkefnin
vera Hvalíjarðargöng, steypuvinnu
hjá Norðuráli á Grundartanga, að-
komugöng og stöðvarhús á Sultar-
tanga, viðgerð flugskýlis á Keflavík-
urflugvelli og byggingu Engjaskóla
í Reykjavík. Páll segir fyrirtækið
vera með næg verkefni fram yfir
aldamót.
Vantar smiði
og múrara
Haraldur Sumarliðason, formaður
Samtaka iðnaðarins, segir óhætt að
segja að allt sé í fullum gangi. Hann
segir að starfsmannaskortur sé far-
inn að gera vart við sig í ýmsum
greinum. Nú vanti t.d. bæði trésmiði
og múrara og jafnvel pípulagninga-
menn.
Hann segir stærri fyrirtæki vera
í stórum verkefnum sem verði í
gangi áfram og þau geti ráðið menn
til lengri tíma en mörg hinna smærri
séu í útboðsverkefnum sem taki
stuttan tíma og þau reyni að tryggja
sér mannskap meðan þau verkefni
séu unnin.
Hann segir eitthvað um yfirborg-
anir, eins og alltaf gerist þegar keppt
sé um vinnuafl, en hins vegar hafi
menn lært það af kreppunni að þeir
vilji frekar hafa öryggi en fá ein-
hveijar krónur aukalega í nokkrar
vikur.
Haraldur segir vinnuna í vor hafa
farið af stað í líkingu við það sem
menn þekki frá fyrri tíð. Menn hafi
verið vanir að það yrði alltaf nóg
að gera á vorin en það hafi einfald-
lega ekki gerst í fyrra og árið þar
áður. Það hafí hins vegar gerst núna
og þótt margir hafi ekki verkefni
nema fram á haust þá séu menn
bjartsýnni en áður um að vinnan
detti ekki niður strax aftur.
Haraldur segir að íbúðasala sé að
aukast en þó ekki alls staðar á land-
inu. Mest breyting sé á suðvestur-
horninu en á landsbyggðinni sé lítið
að gerast í þeim efnum, jafnvel þótt
þar sé talsvert um framkvæmdir
víða. Það sé helst á Akureyri sem
eitthvað sé byggt af íbúðum.
Morgunblaðið/Kristján
ÞURÍÐUR Steindórsdóttir fylgist með slökkviliðsmönnum að störfum í gærmorgun. Vatnselgnum
fylgdi mikill sandur og drulla eins og sést á myndinni.
Stórtjón í kjallaraíbúð á Akureyri
Heyrði lækjarnið
úr svefnherberginu
STÓRTJÓN varð í kjallaraíbúð í
tvíbýlishúsi við Lönguhlíð 15 á
Akureyri í gærmorgun. Rör við
brunahana framan við húsið fór
í sundur, með þeim afleiðingum
að vatn flæddi í íbúðina og fylgdi
vatninu mikill sandur og drulla.
Ibúarnir, Tobías Sigurðsson og
Þuríður Steindórsdóttir, vöknuðu
*upp við vondan draum um kl. 6.30
í gærmorgun. „Ég heyrði lækj-
arnið úr svefnherberginu," sagði
Þuríður. Þegar þau opnuðu fram
á gang blasti við þeim heldur
óyndisleg sjón. Gamall niðurgraf-
inn kyndiklefi í austurhluta húss-
ins tók við mesta vatninu og því
flæddi það ekki um alla íbúðina.
' Vatnsmagnið framan við útidyrn-
ar var hins vegar svo mikið að
þau Tobías og Þuríður treystu sér
ekki til að fara þá leið út úr hús-
inu og þurftu að skríða út um
glugga á norðurhlið hússins.
Tveir menn frá Slökkviliði Akur-
eyrar komu fljótlega á staðinn
með vatnssugur en töldu strax
ástæðu til kað alla eftir frekari
mannskap og búnaði. Eftir að
búið var að loka fyrir vatnið í
götunni gekk nokkuð vel að
hreinsa það upp en eftir var mik-
ið af sandi og drullu.
Tóbías og Þuríður fluttu inn í
íbúð sína í janúar sl. og hafa ver-
ið að taka hana í gegn frá þeim
tíma. Sigurður Sigurðsson
slökkviliðsmaður sagði að stór-
tjón hefði orðið á íbúðinni, m.a. á
milliveggjum og gólfefnum.
MALBIKIÐ á gangstéttinni
hrundi niður í kringum
brunahanann, eftir að öllum
jarðvegi skolaði burtu.
Ekki urðu skemmdir í nærliggj-
andi húsum en mikið vatn flæddi
einnig inn á lóð við húsið númer
13 og mátti litlu muna að þar
flæddi einnig inn í hús.
Rétta átti í máli norska loðnuskipsins
Skipstjóri ákærð-
ur fyrir fölsiin
LÖGREGLURANNSÓKN og yfir-
heyrslur vegna meintra brota norska
loðnuskipsins Kristian Ryggefjord
héldu áfram í Vestmannaeyjum í
gær og samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins var talið fullvíst að
sýslumaður myndi gefa út ákæru á
hendur skipstjóra skipsins vegna
meintra brota á ákvæðum hegning-
arlaga og reglugerðar um loðnuveið-
ar í íslenskri lögsögu að afloknum
yfirheyrslum upp úr hádegi í gær.
Taka átti málið fyrir í Héraðsdómi
Suðurlands í Eyjum kl. 17 í gær en
ekki verður tekin ákvörðun um hvort
skipinu verður sleppt gegn trygg-
ingu fyrr en búið er að rétta í málinu.
Rangar stað- og
tímasetningar
Lögregluyfírvöld í Vestmannaeyj-
um höfðu skipið i haldi meðan á
rannsókn málsins stóð og var skip-
stjórinn Einar Evröy færður til
skýrslutöku í gærmorgun ásamt
túlki og lögmanni sínum. Sýslumað-
ur hafði þá einnig farið yfír skýrslu
skipherra Landhelgisgæslunnar um
hin meintu brot skipstjórans.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins voru að lokinni rannsókn
allar líkur taldar á að skipstjóranum
yrði birt ákæra fyrir að hafa m.a.
falsað afladagbækur, brotið reglur
um tilkynningar, gefið rangar til-
kynningar og ekki virt reglur um
tilkynningar inn og út úr landhelgi.
Oddmund Bye, formaður Norges
Fiskarlag, sagðist í samtali við
Morgunblaðið í gær hafa fengið
fregnir af að Landhelgisgæslan hefði
tekið Kristian Ryggefjord fyrir brot
á reglum um fiskveiðar. Bye sagði
að hér væri um að ræða lögreglu-
mál sem myndi væntanlega hafa
sinn framgang í íslenska réttarkerf-
inu, en hann kvaðst myndu fylgjast
með gangi þess.
Hugmyndir um olíuhreinsistöð á íslandi
35-40 milljarða
kr. fjárfesting
VERÐI hugmyndir um að reisa olíu-
hreinsistöð hér á landi að veruleika
er ljóst að um yrði að ræða mikla
fjárfestingu sem gæti numið um
hálfum milljarði bandaríkjadala eða
35-40 milljörðum íslenskra króna,
skv. upplýsingum Halldórs Asgríms-
sonar utanríkisráðherra.
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að rússneskir og bandarískir aðilar
hafa sýnt þessu máli áhuga, en það
er þó skammt á veg komið. „Það
er um það bil eitt ár síðan þetta
mál kom upp og menn hafa talið
sjálfsagt að skoða það. Það er hins
vegar ljóst að þetta er á algeru frum-
stigi og engin ákvörðun hefur verið
tekin um málið,“ segir Halldór.
Aðspurður staðfesti Halldór að
komið hefði til tals að umrædd
hreinsistöð yrði reist á Austfjörðum
ef af þessu verður. „Það sem er
áhugavert við þetta mál er að með
því að hreinsa olíu hér á landi myndi
verð á þessum afurðum lækka mikið
og tiltölulega lítil mengun er af slíkri
hreinsistöð. Hins vegar fylgir því
vissulega hætta að flytja hráolíu til
landsins. Siglingaleiðin til Austur-
lands er víða mjög hrein og lítið um
sker eins og til dæmis fyrir utan
Seyðisfjörð," segir Halldór.
„Við höfum talið sjálfsagt að
skoða kosti og galla þessa máls. Það
er enginn vafi á því að það myndi
styrkja þéttbýlið á Austuriandi og
grundvöll fyrir jarðgangagerð á milli
byggðarlaga að fyrirtæki á borð við
þetta risi,“ sagði hann.