Morgunblaðið - 03.09.1997, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C/D
198. TBL. 85. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Gaddafí
óttast
innrás
Túnisborg. Reuter.
MUAMMAR Gaddafi Líbýu-
leiðtogi varaði þegna sína við
því í gær, að vestræn ríki
horfðu löngunaraugura til Líb-
ýu og hefðu jafnvel innrás á
prjónunum.
Kom þetta fram í ræðu, sem
Gaddafi flutti í gær þegar þess
var minnst, að hann hefur ver-
ið einráður í landinu í 28 ár.
„Vestræn ríki vantar sól-
skin fyrir sólarorkuver og ekk-
ert land í heimi snýr betur við
sólu en Líbýa. Sandur er hrá-
efni og hann er hvergi betri en
í landi voru. Vesturlandamenn
gætu líka ráðist á ykkur vegna
vatnsmelónanna, sem eru
frammúrskarandi, og þeir sjá
ofsjónum yfír ströndinni. Líb-
ýsku döðlumar eru svo óvið-
jafnanlegar, að þær gætu orðið
þeim tilefni til yfirgangs og
ekki skulum við gleyma
kameldýi-inu, sem getur lifað
lengi án vatns og gefur af sér
frábæra mjólk,“ sagði Gaddafi
í ræðu sinni í líbýska sjónvarp-
inu.
Einvígi
Karpovs og
Kasparovs?
Genf. Reuter.
GARRY Kasparov, heimsmeistari í
skák, og hatrammur keppinautur
hans til margra ára, Anatolí Kar-
pov, hafa samþykkt að heyja ein-
vígi um heimsmeistaratitilinn í
Compiegne skammt utan Parísar í
næsta mánuði. Svissneska dagblað-
ið Journal de Genéve greindi frá
þessu í gær.
I forsíðufrétt sagði blaðið frá því
að þessi tvö stórstirni skákíþrótt-
arinnar myndu hefja 22 skáka ein-
vígi 21. október nk., með þeim skil-
mála að sá sem stæði uppi sem sig-
urvegari hlyti 10 milljónir franskra
franka (um 120 milljónir króna).
Reuter
MIKILL mannfjöldi safnaðist saman fyrir framan Buckingham-höll í gær til að votta Díönu prinsessu virðingu sína. Svo var einnig við heimili henn-
ar í Kensington-höll og við St. James-höll þar sem lík hennar stendur uppi fram að útförinni á laugardag.
Einnar mínútu þögn í Bretlandi er prinsessan af Wales verður jarðsett á laugardag
Búist við að gífurlegur
mannfjöldi kveðii Díönu
London. Reuter.
BRESKA konungsfjölskyldan hvatti landa sína í gær til að minnast
Díönu prinsessu með einnar mínútu þögn þegar hún verður borin til
grafar á laugardag en búist er við, að milljón manna eða fleiri muni
varða strætin, sem líkfylgdin fer eftir. Hneykslan og reiði einkenna
viðbrögð Breta við fréttum frá Frakklandi um að ökumaður bifreiðar
þeirra Díönu og Dodis A1 Fayeds hafi verið drukkinn þegar slysið
varð og það hafi hugsanlega átt ekki minni þátt í því en eftirför ljós-
myndara. Franskur dómari ákvað í gær, að mál þeirra allra yrðu
rannsökuð vegna hugsanlegrar ákæru um manndráp en auk þess er
hafin formleg rannsókn á því hvort ljósmyndararnir hafi brotið frönsk
lög um að láta aðstoð við slasað fólk sitja fyrir öllu öðru.
Kínverskur ráðgjafi hvet-
ur til stjornmálaumbóta
Peking. Reuter.
HÁTTSETTUR ráðgjafi Jiangs
Zemins, formanns kínverska komm-
únistaflokksins, hvatti í gær til auk-
inna stjórnmálaumbóta vegna há-
værra krafna almennings um að fá
að láta skoðanir sínar í ljós um leið
og lífsgæði ykjust vegna efnahags-
umbóta.
,Áframhaldandi hröð þróun kín-
versks efnahags verður í skjóli póli-
tískra umbóta," sagði Liu Ji í viðtali
við opinberu, kínversku fréttastof-
una. „Annars er ekki að vita hverjar
afleiðingarnar yrðu,“ sagði Liu, en
orð hans eru með því opinskáasta
sem heyrst hefur á undanförnum ár-
um um nauðsyn stjórnmálaumbóta.
Orð Lius voru samhljóða ræðu
sem Jiang hélt í maí sl., en ekki var
gerð opinber nema að hluta, þar
sem hann hvatti til stjórnmálaum-
bóta. Það orð hafði verið bannorð
um árabil vegna þeirra endurminn-
inga sem það vakti um tilraunir til
aukins frjálsræðis á síðari hluta ní-
unda áratugarins sem enduðu með
blóðbaði á Torgi hins himneska frið-
ar 1989.
Tímanna tákn
Liu sagði að stjórnmálaumbætur
væru tímanna tákn og nauðsynlegt
væri fyrir Kínverja að fylgjast með
ef þeir ætluðu að geta veitt sífellt
efnaðri og menntaðri þjóð lífsham-
ingju. „Þegar fólk hefur nóg að bíta
og brenna og menningarstaðan
batnar mun það vilja láta skoðanir
sínar í ljós,“ sagði Liu sem er vara-
forseti Kínversku félagsvísindaaka-
demíunnar, einnar helstu þekking-
armiðstöðvar landsins.
Sagði Liu að vegna þessa yrði að
auka veg lýðræðislegs sósíalisma
um leið og 15. flokksþing kommún-
istaflokksins, sem hefst 12. septem-
ber, héldi áfram sósíalískri þjóðfé-
lagsmótun og efnahagslegu um-
bótastarfi. „Við verðum að auka
umbætur í stjórnkerfinu," sagði
Liu.
Verslanir og bankar munu verða
lokuð á laugardag og öllum íþróttavið-
burðum hefur verið aflýst í virðingai--
skyni við „prinsessu fólksins". Þús-
undir manna vottuðu henni sína
hinstu virðingu í gær við heimili henn-
ar í Kensington-höll og í St. James-
höll þar sem lík hennar liggur fram að
útfórinni í Westminster Abbey.
Minningarsjóður um Díönu
Talsmaður Buckingham-hallar til-
kynnti í gær, að stofnaður hefði verið
sjóður til minningar um Díönu og yrði
veitt úr honum til þeirra hjálparstofn-
ana, sem hún hefði starfað fyrh'.
Franskur dómari hefur fyiárskip-
að rannsókn á því hvoi't ljósmyndar-
arnir sjö, sem eltu bifreið Díönu og
A1 Fayeds nóttina örlagaríku, hafi
átt einhvern þátt í slysinu og þar
með gerst sekir um manndráp af gá-
leysi. Þá vofir einnig yfii' þeim
ákæra fyrir að hafa brotið frönsk lög
með því að gera ekkert þeim til
hjálpar eftir slysið.
Vantrú og reiði
Fréttin um, að ökumaður bifreið-
arinnar hafi verið drukkinn er hins
vegar Bretum og fleirum nýtt áfall
og eiga margir erfitt með að trúa
því, að sjálft djásnið í bresku kon-
ungsfjölskyldunni skuli hafa látið líf-
ið af þeim sökum ekki síður en
vegna ágengni ljósmyndaranna.
„Ölvunarakstur varð henni að ald-
urtila _ ekki frægðin“ var aðalfyrir-
sögnin 1 breska dagblaðinu The
Independent en að sögn frönsku
lögreglunnar var ökumaðurinn með
þrisvar sinnum meira áfengismagn í
blóði en leyfilegt er.
Sérfræðingar segja, að hugsan-
lega hefðu þau Díana og A1 Fayed
lifað slysið ef, hefðu þau verið með
bflbelti en í frönsku blöðunum er
fullyrt, að þau hafi verið bíl-
beltalaus. Segja þeir einnig, að hefði
reyndur maður úr konunglega líf-
verðinum fylgt Díönu, hefði þessi
voðaatburður aldrei átt sér stað.
Hillary Clinton við útförina
Díana verður lögð til hinstu hvflu
við hlið föður síns í grafreit á ættar-
óðali Spencer-fjölskyldunnar í Alt-
horpe í Mið-Englandi. Er búist við,
að milljón manns eða jafnvel millj-
ónir muni fylgjast með líkfylgdinni,
fleiri en nokkru sinni síðan um
300.000 manns komu út á göturnar
1965 til að kveðja Winston
Churchill, forsætisi’áðherra Bret-
lands á stríðsárunum.
Útför Díönu verður ekki á vegum
breska ríkisins og því verður ekki
formlega um að ræða fulltrúa er-
lendra ríkja við athöfnina. Búist er
samt við fyrirfólki víðs vegar að og
tilkynnt hefur verið, að Hillai-y, eig-
inkona Bills Clintons Bandaríkjafor-
seta, og Bernadette Chirac, eigin-
kona Jacques Chiracs, forseta
Frakklands, verði viðstaddar.
■ Ljósmyndarar/18