Morgunblaðið - 03.09.1997, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 03.09.1997, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997 29 rafírði og Önundarfirði Öryggismálaráðstefna Norðurlandaráðs nýjung í landbúnaði sem við viljum halda áfram með,“ sagði hún. „Okkur vantar alla reynslu annarra af að fást við snjó svo dæmi sé tekið en erfiðlega hefur gengið að nálgast þær upplýsingar hjá Vega- gerðinni og auðvitað eigum við eft- ir að fá gagnrýni ef í ljós kemur að skjólbeltið veldur sköflum á veg- inum svo dæmi sé tekið en við munum þá taka á því.“ Arnlín sagði að helstu veðurfars- legu vandamálin væru lágur sumar- hiti, fyrst og fremst vegna hafgolu og vindstrengja, langvarandi þurrk- ar snemma sumars og snjófarg á vetrum. Sagði hún að gert væri ráð fyrir að gróðursetning við íbúðar- hús veitti þeim skjól og drægi úr hitunarkostnaði. Með túnjöðrum yrðu sett niður skjólbelti sem meðal annars munu hafa þau áhrif að uppskeran eykst auk þess sem möguleikar á að rækta fleiri teg- undir myndu aukast. Áhrif veðurs og vinda Morgunblaðið/Kristín Gunnarsdóttir rmaður Skógræktarfélags Dýra- íógum. jörðum og svæðum og ákvarðanir teknar um gerð skjólbeltakerfa. Voru tekin fyrir tvö tilraunasvæði, Bakkaþorþ í Dýrafirði og bærinn Tröð í Önundarfirði og er fyrirhug- að að gróðursetja 2,5 km löng skjól- belti eða svokallaða snjófangara á þessum tveimur jörðum næsta vor. „Ég er búin að tala við allflesta bændur, sem hafa „Bændur þurfa beitarhólf fyrir lambfé á vorin og á ég þá við lítið skýlt hólf, þar sem lömbunum líður vel og hægt er að fylgjast með þeim. Þá þarf beitargirðingu fyrir fé á haustin og það verður annað hólf, þannig að grunnur að skipu- lagi við bæi er þörf búsins,“ sagði hún. „Þegar ákvörðun er tekin um hvar á að planta er tekið tillit til veðurs og vinda og höfum við unn- ið með Haraldi Olafssyni veður- fræðingi að könnun á áhrifum vinda á einstaka staði með tilliti til snjó- söfnunar og hvernig skuli bregðast við. Það hefur komið verulega á óvart hversu erfitt er að afla upplýs- inga um veður á svæðinu, einfald- lega vegna þess hversu fjölskrúðugt það er. Við Tillit verður sýnt verkefninu mikinn tekið til veð- Þurfum þv' að leggja áhuga,“ sagði hún. „Ég urs Qq vinda mikla vinnu * að átta okk- er bóndi og bý á Ströndum 9 ur á staðbundnum að- og var með sauðfé og stæðum. Verið er að þekki hvernig sá búskapur gengur fyrir sig. Ég hef því fullan skilning á þörfum bænda.“ Tré fyrir búpening og búendur Arnlín sagði að markmið Skjól- skóga hefði frá upphafi verið skil- greint þannig að skógræktin hefði þann tilgang helstan að þjóna þeim búskaparháttum sem fyrir eru á svæðinu. Ekki væri um að ræða tré eða búpening heldur tré fyrir bú- pening og búendur. Sagði hún að í raun væri hér um nýjung að ræða í landbúnaði sem mikill áhugi væri fyrir að halda áfram með en til þess skorti fé. „Þetta er í raun útbúa reiknilíkan af dæmigerðum dal til að fá fram almennar upplýs- ingar en vinnan með Haraldi snýst um að útfæra reikniaðferðina í nægilega lítinn skala. Svona vind- líkan er hvergi til hér á íslandi og raunar hvergi í heiminum eftir því sem við best vitum.“ Arnlín benti á að Skjólskóga- verkefnið væri ekki einungis at- vinnuskapandi heldur gæti það haft gífurleg áhrif á skilyrði til landbún- aðar ef vel tækist til. „Munurinn verður svo mikill að líkja má við að verið sé að færa bændum aukinn kvóta fyrir utan fegrun og skjól fyrir aðra landsmenn,“ sagði hún. Breytt öryggisliug'- tak efst á baugi Breytt öiyggishugtak var til umræðu á örygg- ismálaráðstefnu Norður- landaráðs í Helsinki í síð- ustu viku. Olafur Þ. Stephensen segir að Norðurlöndunum gefíst nú ný tækifæri til sam- starfs á nýjum sviðum öryggismála, þar sem ólík afstaða til NATO hamli ekki umræðum. STARF Atlantshafsbandalagsins að almannavörnum er dæmi um útvíkkun öryggishugtaksins. Hér eru hermenn frá Litháen á al- mannavarnaæfingu Friðarsamstarfs NATO, Samverði ’97, sem haldin var hér á landi í sumar. BREYTT öryggishugtak var mjög til umræðu á ráð- stefnu Norðurlandaráðs um öryggismál á Norður- löndum og nærsvæðum þeirra, sem haldin var i Helsinki í síðustu viku. í umræðum á ráðstefnunni kom skýrt fram að menn einblína nú ekki leng- ur á vamargetu og hernaðarmátt, þegar rætt er um öryggismál, heldur marga aðra þætti, til dæmis um- hverfismál, lýðræði og mannréttindi, efnahagslegan ójöfnuð, þjóðern- isspennu, skipulagða glæpastarfsemi og fleira. Með ákveðinni illkvittni mætti auð- vitað halda því fram að áherzlan á breytt og útvíkkað öryggishugtak á ráðstefnu Norðurlandaráðs hafi eink- um þjónað þeim tilgangi að þurfa ekki að ræða hina ólíku afstöðu nor- rænu ríkjanna til varnarbandalaga, sem á sínum tíma útilokaði allar umræður um öryggismál á vettvangi ráðsins. Geir H. Haarde, formaður utanríkismálanefndar Alþingis og leiðtogi íhaldsmanna í Norðurlanda- ráði, skar sig til dæmis úr hópnum með því að tala beinskeytt um rökin fyrir NATO-aðild Svíþjóðar og Finn- lands, enda fékk hann skammir fyrir hjá finnskum og sænskum þing- mönnum. En við skulum frekar líta svo á að víðtækara og flóknara öryggis- hugtak veiti Norðurlöndunum tæki- færi til að leggja í sameiningu sitt af mörkum til öryggismála í Norður- Evrópu, þrátt fyrir ólíkar skoðanir á því hvernig bezt sé að haga vörnum sínum. Fijóar umræður um þetta nýja svið samstarfsins gætu jafnvel hleypt nýjum krafti í Norðurlanda- samstarfið á komandi árum og gert það tilgangs- og árangursríkara. Hans Hækkerup, varnarmálaráð- herra Danmerkur, orðaði það svo á ráðstefnunni að Norðurlandasam- starfið væri nú orðið „heilsteyptara“ þegar varnar- og öryggismálavíddin hefði bætzt við. Svíþjóð og Finnland í nánu samstarfi við nýtt NATO Ekki má heldur gleyma því að Atlantshafsbandalagið hefur sjálft breytt skilgreiningu sinni á öryggis- hugtakinu. Bandalagið leggur nú mikla áherzlu á friðargæzlu, kreppu- stjórnun og tryggingu lýðræðis og stöðugleika um alla Evrópu þótt kjarninn í öryggishugtakinu, varnir landsvæðis NATO-ríkjanna, standi óhaggaður. Þetta, ásamt öðrum þátt- um, hefur gert Svíþjóð og Finnlandi kleift að taka upp náið samstarf við NATO og öll norrænu ríkin hafa til dæmis tekið þátt í friðargæzlu í Bos- níu. Norðurlöndin taka líka öll þátt í Friðarsamstarfi NATO, sem er „meira en áætlun um hernaðarsam- starf’, eins og Norman Ray, aðstoð- arframkvæmdastjóri bandalagsins, sagði á ráðstefnunni. Ray orðaði það svo að Friðarsamstarfið væri „fjár- festing í friðsamlegri þróun álfunnar í framtíðinni." Athyglisvert var að heyra skoðan- ir Björns von Sydow, varnarmálaráð- herra Svíþjóðar, á Friðarsamstarfinu, en hann hljómaði nánast eins og tals- maður NATO: „Ég tel að Friðarsam- starfið sé einmitt gott dæmi um það hvemig alþjóðlegt samstarf -------- um tryggingu öryggis hef- ur þróazt. Þegar NATO bauð til Friðarsamstarfsins árið 1994 töldu margir að það væri annars vegar bara biðstofa fyrir þá, sem vildu vera með í NATO en fengju það ekki og hins vegar að það myndi ekki hljóta neina sérstaka þýðingu. Þessi gagnrýnend- ur hafa sannarlega haft rangt fyrir sér!“ Hernaðarleg meðul ekki í fyrsta sæti Von Sydow beindi, eins og margir aðrir ræðumenn á ráðstefnunni, sjón- um sinum einkum að Eystrasalts- svæðinu. Hann benti á að þar væru ríki, sem hefðu mjög ólíka stöðu í öryggiskerfi Evrópu; NATO-ríki, ríki utan hernaðarbandalaga, ríki sem hefðu sótt um aðild að NATO, ríki sem bandalagið hygðist hefja viðræð- ur við — og loks stórveldið Rússland. Þrátt fyrir það væra mörg tækifæri til samstarfs og Norðurlöndin bæru ábyrgð á að gera þetta gamla átaka- svæði kalda stríðsins að friðsamleg- um, öruggum og velmegandi hluta Evrópu. „Hernaðarlegu meðulin eru hér ekki í fyrsta sæti, heldur mun samstarf á sviði viðskipta, menning- armála, umhverfísmála og orkumála fyrst og fremst færa okkur nær þessu markmiði. í gegnum borgaralegt (civilt) samfélag getum við ------- tryggt langtímaforsendur friðsamlegrar þróunar,” sagði Von Sydow. Halldór Ásgrímsson ut- anríkisráðherra tók mjög í sama streng er hann ávarpaði ráð- stefnuna. Hann sagði að hernaðar- máttur gæti vissulega tryggt öryggi en það öryggi, sem Norðurlandabúar sæktust eftir væri ekki eingöngu byggt á hernaðarmætti, þótt hann vildi ekki gera lítið úr mikilvægi hemaðarlegra þátta. Mikilvægi lýðræðis og mannréttinda Halldór nefndi sérstaklega trygg- ingu mannréttinda og lýðræðis. „Það er löngu viðurkennd staðreynd að víðtæk mannréttindabrot geta ógnað friði og öryggi á alþjóðlegum vett- vangi. Af því leiðir að virðing fyrir mannréttindum eykur öryggi,“ sagði Halldór. „Fólk, sem getur valið eigin ríkisstjórn, er ólíklegt til að grípa til ofbeldis gagnvart þeirri ríkisstjórn vegna þess að það hefur aðrar að- ferðir til að losna við hana eða hafa áhrif á gerðir hennar með því að nota tjáningarfrelsi sitt. Lýðræðis- ríki, þar sem mannréttindi og réttur einstaklingsins er tryggður og virtur, hafa kerfi til að taka á óánægju. Af sömu ástæðu er fólk, sem býr við slíkar aðstæður ólíklegt til að grípa til ofbeldis gagnvart öðram ríkjum, af því að það er sátt við það sem ----------------- það hefur. Þessir þættir Heilsteyptara eru Því augijósiega í þágu Norðurlanda- öryKK>s“ Halldór fjallaði einnig samstarf um mikilvægi efnahags-* þróunar í öryggismálum og hugsanleg áhrif gífurlegs munar á velmegun fólks, annars vegar á milli vesturs og austurs í Evrópu og hins vegar innan sumra þjóðfélaga. „Það verður að vera visst efnahags- legt jafnvægi innan þjóðfélaga til að koma í veg fyrir átök. í þessu sam- bandi ber að leggja áherzlu á að mannréttindi eru ekki algerlega tak- mörkuð við borgaraleg og pólitísk réttindi, heldur taka þau einnig til efnahagslegra og félagslegra rétt- inda og virðing fyrir mannréttindum og efnahagsþróun eru því samtengd- ar,“ sagði utanríkisráðherra. Bæði Halldór og Paavo Lipponen, forsætisráðherra Finnlands, lögðu ^ mikla áherzlu á þátt umhverfisvernd- ar í öryggismálunum, ekki sízt varn- ir gegn mengun sjávar, þótt þar tal- aði Lipponen um Eystrasalt en Hall- dór um Norðurhöf. Einblínt á Eystrasaltið og meginland Evrópu Áherzlan á Eystrasaltið og svæðin austan og sunnan Skandinavíu í umræðum á ráðstefnunni — sem átti að fjalla um Norðurlönd og nær- svæði þeirra — vakti raunar blaða- --------- mann frá íslandi til um- hugsunar um það hvort þar væri enn eitt dæmið um þá hættu, sem Halldór _________ Ásgrímsson hefur vakið athygli á, að Norður-Atl- antshafið og öryggishagsmunir ís- lands gleymist í öryggismálaumræð- unni í nágrannalöndum okkar. Fulltrúi NATO á ráðstefnunni, Norman Ray, ræddi til dæmis aðal- lega um ástand mála í austri og suðri. Hann fjallaði jafnframt um endur- skoðun herstjórnarkerfis NATO og nauðsyn þess að NATO-kerfið „end- urspeglaði raunveruleikann í hinu nýja öryggisumhverfi í Evrópu“ en eins og greint var frá hér í blaðinu fyrir stuttu hefur sú endurskoðun- meðal annars haft í för með sér kröf- ur um að eyjaherstjórnir á Atlants- hafi verði aflagðar. Aðspurður í ráðstefnulok hvað honum hefði fundizt um skort á umræðum um öryggi á Norður-Atl- antshafí sagði Geir H. Haarde hins vegar: „Þar er okkar málum vel borg- ið.“ r Lýðræði og mannréttindi í þágu friðarins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.