Morgunblaðið - 03.09.1997, Blaðsíða 14
I
14 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
ÞÁTTTAKENDUR á námskeiði fyrir unga ökumenn sem haldið
var í Stykkishólmi. Á myndinni með þeim er Sesselja Pálsdótt-
ir, umboðsmaður Sjóvá-Almennra í Stykkishólmi.
Abyrgð ungra ökumanna
Stykkishólmi - Sjóvá-Almennar
buðu ungum ökumönnum á aldrinum
17-20 ára upp á dagsnámskeið laug-
ardaginn 30. ágúst. Þátttakendur
voru úr Stykkishólmi, Grundarfirði
og Búðardal.
Leiðbeinendur á námskeiðinu voru
Sigurður Helgason frá Umferðarráði
og Einar Guðmundsson og Sumarliði
Guðbjömsson frá Sjóvá-Almennum.
Tilgangur með námskeiðinu er að
fræða þennan hóp um þá ábyrgð sem
fylgir því að vera óreyndur ökumað-
ur. Ungir ökumenn eiga oftar aðild
að umferðaróhöppum en aðrir aldurs-
hópar. Tjónatíðni hjá þessum hópi er
meiri og alvarleg slys algengari hjá
þeim.
Að fræðsluerindum loknum var
unglingunum skipt í hópa og átti að
skila tillögum um hvernig draga
mætti úr tveimur algengustu tegund-
um tjóna hjá ungum ökumönnum,
aftanárkeyrslur og þegar bakkað er
á bíl. Eins vom þeir beðnir um að
lýsa góðum ökumanni. Kom fram hjá
þeim að það þarf að sýna þolinmæði
og tillitssemi í umferðinni. Þátttak-
endur fá tveggja bónusflokka hækkun
á bflatryggingum á sínu nafni og eiga
þeir sem ekki eiga enn bifreið þessa
hækkun inni til betri tíma.
Tuttugu til þijátíu útlendingar væntanlegir til starfa
Mikill skortur á vinnu-
afli í Stykkishólmi
Stykkishólmi - Mjög gott ástand
er í atvinnumálum í Stykkishólmi
og vantar fólk tilfinnanlega til
vinnu að sögn Einars Karlssonar,
formanns Verkalýðsfélags Stykk-
ishólms. Enginn er á atvinnu-
leysisskrá og er Einar mjög
ánægður með það. Auglýst hefur
verið eftir fólki.
Hörpudiskvertíðin hófst í byijun
ágúst og við það skapast mikil
vinna í landi hjá vinnslunum sem
vinna hörpudiskinn. Þá hefur verið
mikið að gera hjá íshákarli sem
vinnur beitukóng. Hefur verið
mjög erfitt að fá fólk til starfa og
þegar skólar byija hverfa ungling-
arnir sem hafa bjargað málunum
fram til þess. Auglýst hefur verið
eftir fólki hér innanlands með litl-
um árangri. í Stykkishólmi er
gott að fá húsnæði. Bæði hefur
Stykkishólmsbær verið að auglýsa
lausar íbúðir og eins eru hús til
sölu svo hægt er að taka á móti
fólki sem vill flytja hingað.
Nú eru á leiðinni til Stykkis-
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
EINAR Karlsson, formaður Verkalýðsfélags Stykkishólms.
hólms á milli 20 og 30 útlendingar
til vinnu. Flestir þeirra koma frá
Póllandi og einnig frá Færeyjum.
Búist við góðri þátt-
töku 1 Brúarhlaupinu
Selfossi - Mikill áhugi er fyrir Brú-
arhlaupi Selfoss sem fram fer næst-
komandi iaugardag 6. september.
Skráning hófst í seinustu viku og
hafa nú þegar skráð sig þátttakend-
ur víðs vegar af iandinu þó flestir
frá_ Selfossi og nágrannabyggðum.
í þessari viku geta keppendur
skráð sig í Kjarnanum í KÁ síðdeg-
is fimmtudaginn 4. sept. og eftir
hádegi föstudaginn 5. sept. Búist
er við líflegri skráningu og fólki
bent á að vera snemma á ferðinni.
Á höfuðborgarsvæðinu er unnt að
skrá sig á skrifstofu UMFÍ að Fells-
múla 26. Afhending númera verður
í Tryggvaskála laugardaginn 6. sept.
frá kl. 10-13.
Að þessu sinni er boðið upp á
tvær hjólreiðalengdir fyrir hjólreiða-
fólk, 5 og 12 km. Lengri leiðin ligg-
ur svonefndan Votmúlahring og er
að hluta á malarvegi. Boðið er upp
á 12 km og 5 km hjólreiðar, 2,5 km,
5 km og 10 km hlaup og 21 km
hálfmaraþon.
Mikil áhersla er lögð á breiða
þátttöku í hlaupinu en það er fyrir
aila aldurshópa sem vilja gera sér
glaðan dag með því að ganga,
skokka, hlaupa eða hjóía á Selfossi
6. september.
Morgunblaðið/Sig. Fannar
HLAUPALEIÐIN hefur verið merkt. Hér leggja þrír af starfs-
mönnum hlaupsins hönd á verkið, Kári Jónsson yfirræsir, Gísli
Á. Jónsson yfirtímavörður og Óskar Sigurðsson brautarstjóri.
Minnisvarði um
Fjalla-Eyvind
á Hveravöllum
Selfossi - Sunnan- og norðan-
menn áttu fund á Hveravöllum
á höfuðdegi þar sem rædd var
sú hugmynd að reisa Eyvindi
Jónssyni og Höllu Jónsdóttur
minnisvarða á Hveravöllum.
Fyrr í sumar var stofnuð svo-
kölluð Fjalla-Eyvindarnefnd um
málið á fundi á Selfossi og eru
upphafsmenn þessa Ögmundur
Jónsson í Vorsaæ í Ölfusi og
Guðni Ágústsson alþingismaður
á Selfossi. Auk nefndarmanna
mættu til Hveravalla oddvitar
tveggja hreppa í Húnaþingi og
listamaðurinn Magnús Tómas-
son sem hefur verið ráðinn til
verksins.
Á fundinum var rætt al-
mennt um staðsetningu lista-
verksins og taldi Jóhann Guð-
mundsson, oddviti Svínavatns-
hrepps, sem fer með deiliskipu-
lag á svæðinu, að vel mætti
koma listaverkinu fyrir innan
þess deiliskipulags sem nú er
unnið að. Sr. Hjálmar Jónsson,
alþingismaður og fulltrúi norð-
anmanna í Fjalla-Eyvindar-
nefndinni, ræddi um Fjalla-
Eyvind og las upp kvæði sem
afi hans orti um kappann. Þá
skýrði Guðni Ágústsson frá til-
drögum þess að í þetta verk var
ráðist og eftir það var farið í
vettvangskönnun um svæðið þar
sem oddvitarnir Jóhann Guð-
mundsson og Erlendur Eysteins-
son, oddviti í Torfalækj-
arhreppi, leiddu gesti um stað-
inn.
Fjölmenn nefnd
í Fjalla-Eyvindarnefndinni
eru auk frumkvöðlanna Guðna
Ágústssonar og Ögmundar í
Vorsabæ, Gísli Einarsson, odd-
viti Biskupstungna, en það er
sá hreppur sem á land að Hvera-
völlum og fer með fjallskil á því
svæði, Loftur Þorsteinsson, odd-
viti Hrunamanna, en Fjalla-
Eyvindur var sem kunnugt er
Hreppamaður og þar hafa
skyldmenni Eyvindar búið til
þessa dags. Loftur er bóndi í
Haukholtum og er frændi Ey-
vindar. Diðrik Sæmundsson,
Morgunblaðið/Sig. Fannar
FRÁ vettvangskönnun leiðangursmanna.
bóndi á Friðarstöðum í Hvera-
gerði, er í nefndinni og er sér-
stakur fulltrúi Ögmundar í
Vorsabæ en Ögmundur er kom-
inn á tíræðisaldur og komst ekki
á Hveravelli.
Jón Gunnar Ottósson, oddviti
Stokkeyrarhrepps, er í einnig í
nefndinni og einnig þau Ásborg
Arnþórsdóttir, ferðamálfulltrúi
uppsveita Árnessýslu, Bjarni
Harðarson, fjölmiðlafulltrúi
nefndarinnar, Páll Lýðsson frá
Litlu Sandvík, Hjörtur Þórarins-
son, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri Samtaka sunnlenskra
sveitarfélaga, einnig fram-
kvæmdastjóri verkefnisins og
sr. Hjálmar Jónsson, alþingis-
maður og fulltrúi norðanmanna.
SR. Hjálmar Jónsson las
kvæði sem afi hans orti um
Fjalla-Eyvind.
Skólasetn-
ing á Eyr-
arbakka og
Stokkseyri
Eyrarbakka - Stofnað hefur
verið byggðasamlag um
rekstur grunnskólanna á Eyr-
arbakka og Stokkseyri. Skól-
arnir hafa verið sameinaðir
þannig að 1. til 5. bekkur
sækir nám sitt til Stokkseyrar
en 6. til 10. bekkur sækir
skóla á Eyrarbakka.
Skólabíll verður í förum
eftir því sem þörf er á. Að-
stoðarskólastjórar verða á
hvorum stað, á Stokkseyri
Sigurður Einar Jóhannesson
og Birgir Edwald á Eyrar-
bakka. Skólastjóri er Arndís
Harpa Einarsdóttir. Nemend-
ur eru alls 160 í vetur.
Skóli á Eyrarbakka
frá árinu 1852
Árið 1852, hinn 25. októ-
ber, var Barnaskólinn á Eyr-
arbakka settur í fyrsta sinn.
Þá var Stokkseyrarhreppur
óskiptur og skólinn því fyrir
allan hreppinn. Strax frá upp-
hafi fór kennsla fram bæði á
Stokkseyri og Eyrarbakka, en
þó helmingi minni á Stokks-
eyri.
Sjálfstæður skóli var settur
á Stokkseyri hinn 17. október
1878 og voru því um skeið
tveir barnaskólar í hreppnum,
Stokkseyrarhreppi var skipt
fyrir réttum 100 árum og var
þá stofnaður Eyrarbakka-
hreppur, sem haldið hefur upp
á afmælið með ýmsu móti í
sumar.
Horfið aftur
til upphafsins
Skólinn heitir nú Barna-
skólinn á Eyrarbakka og
Stokkseyri. Segja má að nú
sé aftur horfið til upphafsins
í skólamálum á Eyrum, nema
hvað nú verður jafnræði í
kennslunni á báðum stöðum.
Setning skólans fór fram í
íþróttahúsinu á Stokkseyri að
viðstöddu fjölmenni.
Þeir koma til með _að vinna hjá
Rækjunesi, Sigurði Ágústssyni og
Skipasmíðastöðinni Skipavík.