Morgunblaðið - 03.09.1997, Qupperneq 4
I
4 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997__________________________________________________________MORGUNBLAÐIÖ
FRÉTTIR
Lítið í ám og lækjum undir Heklu
Oft verið talið
undanfari gosa
ÓVENJU lítið vatnsmagn er nú í
ám og lækjum undir Heklu og
segir Ófeigur bóndi Ófeigsson í
Næfurholti, einum efsta bæ í
Landsveit, að svo hafi verið í allt
sumar, fyrravetur og jafnvei á
síðasta sumri. Hann segir að menn
hafi bæði fyrr og síðar talið
minnkandi vatnsmagn geta verið
undanfara Heklugosa.
Breytileg vatnsstaða tengd
landrisi og sigi
„Þetta hefur verið tengt en
menn hafa ekki getað tímasett
slíka tengingu því oft hefur vatnið
verið farið að aukast aftur þegar
kom að gosi,“ segir Ófeigur en
vísindamenn hafa síðustu tvö til
þrjú árin verið að mæla og skrá
vatnsmagn á þessu svæði. Ofeigur
segir breytilega vatnsstöðu eitt-
hvað tengda landrisi og sigi og að
í gömlum heimildum komi fram
að þornað hafi í ám og minnkað
í vötnum í stórgosum.
„Þetta gerðist 1947 og hefur
gerst í gosunum á síðustu árum
en ekki þannig að sjá megi
ákveðna tímasetningu út frá því
hvenær tekur að minnka, ekki síst
af því að 1991 var þetta komið
upp aftur þegar gaus.“
Gæti tengst úrkomu
Á þessu svæði er eingöngu um
bergvatnsár að ræða, vatn sem
kemur undan hraununum. Segir
Ófeigur að þessar breytingar á
grunnvatnsstöðu geti einnig
tengst úrkomu.
Vísindamenn eru með kvarða í
lækjum að sögn Ófeigs og munu
gera ýmsar mælingar áfram og
bendir hann á að mæla þurfi slík-
ar breytingar um langan tíma og
yfir eitt gostímabil áður en hægt
sé að finna út reglu ef hún á ann-
að borð kemur í Ijós. Hann segir
mánuði ogjafnvel ár hafa liðið frá
því vatnsmagnið minnkar og þar
til gos hafa komið.
Morgunblaðið/Kristinn
Röð fyrir framan Rimaskóla
FYRSTI almenni skóladagurinn
að ioknu sumarfríi hófst hjá
grunnskólanemendum í gær.
Þessir krakkar í 2. bekk B í
Rimaskóla höfðu komið sér fyrir
í einfaldri röð og biðu spenntir
eftir að komast inn í kennslu-
stofuna þegar ljósmyndara bar
að garði, en í bekknum eru
„rúmlega 20 hressir og kátir
nemendur", eins og Helgi Árna-
son, skólastjóri Rimaskóla, orð-
aði það.
Rimaskóli er næstfjölmenn-
asti grunnskóli Reykjavíkur og
sækja hann nú 723 nemendur.
Af þeim eru 107 nemendur að
hefja nám í 1. bekk. Foldaskóli
er hins vegar fjölmennasti
grunnskóli Reykjavíkur með
819 skráða nemendur.
Bygging skrifstofuhúsnæðis við Skúlagötu
Oánægja vegna
breytinga á
skipulagi
Ný hjúkr-
unardeild
í Víðinesi
næsta ár
HJÚKRUNARDEILD fyrir aldr-
aða verður opnuð í Víðinesi um
mitt næsta ár í húsnæði sem þar
hefur verið ónotað um skeið, að
sögn Þóris Haraldssonar, aðstoðar-
manns heilbrigðisráðherra. Meðal
þess sem er til skoðunar varðandi
starfsemi sjúkrahúsa í framhaldi
af skýrslu VSÓ er framtíð Vífíls-
staða og hvaða starfsemi ástæða
sé til að þar fari fram.
Þórir segir að til skoðunar sé
hvort grundvöllur sé fyrir rekstri
lungnadeildar og húðsjúkdóma-
deildar á Vífilsstöðum eða hvort
hagkvæmara væri að flytja þá
starfsemi annað og nýta húsnæðið
á Vífilsstöðum í öðru skyni. Hann
vildi ekki ræða að svo stöddu hvaða
nýting hússins kæmi til greina.
Á Víðinesi hefur um skeið stað-
ið ónotuð deild og Þórir segir að
nú sé ákveðið að um mitt næsta
ár taki þar til starfa hjúkrunar-
deild fyrir aldraða. Um verður að
ræða aukningu á hjúkrunarrými
en upplýsingar um áætlaðan kostn-
að og fjölda rúma lágu ekki fyrir
í gær.
Hvaðan þeir sjúklingar koma
sem lagðir verða inn á nýju deild-
ina á Víðinesi liggur ekki fýrir, að
sögn Þóris.
ÓÁNÆGJU hefur gætt meðal íbúa
við sunnanverða Skúlagötu með
breytingar sem gerðar voru á skipu-
lagi frá 1985 vegna skrifstofubygg-
ingar sem nú er að rísa á Skúlagötu
17. Umhverfisráðuneytinu barst í
sumar stjórnsýslukæra frá nokkrum
eigendum fasteigna við Skúlagötu
en ráðuneytið telur sig skorta laga-
heimild til að fella skipulagsákvarð-
anir varðandi lóðina úr gildi.
Samkvæmt upplýsingum Mar-
grétar Þormar hjá Borgarskipulagi
var samkvæmt upphaflega staðfestu
skipulagi frá 1985 gert ráð fyrir fjór-
um tveggja og þriggja hæða húshlut-
um á umræddri lóð, en því skipulagi
var síðan breytt af ráðherra þannig
að húshlutarnir raðast öðruvísi en
upphaflega var gert ráð fyrir. Tveir
húshlutanna eru tveggja hæða og
tveir eru þriggja hæða en allir eru
þeir með risi sem getur verið tvær
hæðir og sagði Margrét að vart hefði
orðið óánægju íbúa við Skúlagötu
með hæð húsanna.
„Þær tvær hæðir sem talað er um
á skipulaginu eru einungis þær hæð-
ir sem eru fyrir neðan þakið. Þá var
tilfærslan á húsunum talin minni-
háttar breyting en það eru ekki allir
sammáia um það hvað telst minni-
háttar breyting," sagði hún.
Að sögn Huga Ólafssonar deild-
arstjóra í umhverfisráðuneytinu
barst ráðuneytinu stjómsýslukæra í
júlí sl. frá tilteknum eigendum fast-
eigna við sunnanverða Skúlagötu
um að breytingarnar sem gerðar
voru á skipulaginu frá 1985 hefðu
ekki verið óverulegar. í svari ráðu-
neytisins segir að það telji að endan-
legt mat á því hvort um óverulega
breytingu á staðfestum skipulags-
uppdrætti sé að ræða eða ekki sé í
höndum skipulagsstjórnar ríkisins
og því bresti ráðuneytið lagaheimild
til að fella skipulagsákvarðanir borg-
arstjórnar og skipulagsstjómar rík-
isins úr gildi. Því geti ráðuneytið
ekki stöðvað framkvæmdir sem
hafnar séu á grundvelli gerðs skipu-
lags né tekið afstöðu til þess hvort
fresta megi réttaráhrifum bygging-
arleyfísins, nema með því móti að
byggingarleyfið verði kært sérstak-
lega.
Að sögn Bjarna Þórs Jónssonar,
Iögfræðings hjá byggingarfulltrú-
anum í Reykjavík, hefur embættinu
ekki borist kæra vegna byggingar-
leyfísins.
H O N D A 1 V 1 C| |
5 - D Y R A
meö 115 hestafla VTEC
vél og tveimur
[ ^ \ vT loftpúðum
Argrrö 19(J8 1.480.000,- IWJ HONDA
Gæslu-
varðhald
staðfest
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur
um gæsluvarðhald yfír fjórum
mönnum sem eru grunaðir um inn-
flutning á miklu magni af E-töflum.-
Héraðsdómur úrskurðaði menn-
ina í gæsluvarðhald til 8. október
en þeir kærðu þann úrskurð til
Hæstaréttar. Hann staðfesti úr-
skurðinn.
Morgunblaðið/Kristinn
EIRÍKUR og Björg gáfu sér tíma til að hittast í gær skömmu
áður en Eiríkur fór á fund með samninganefnd sveitarfélaga.
Forystumenn grunnskólakennara
og leikskólakennara eru hjón
Bömín stundum
þreytt á kjaramálum
KENNARASAMBANDIÐ og Fé-
lag íslenskra leikskólakennara eiga
í harðri kjarabaráttu við viðsemj-
endur sína. Formenn stéttarfélag-
anna, Eiríkur Jónsson og Björg
Bjamadóttir, eru hjón. Leikskóla-
kennarar hafa boðað verkfall 22.
september og Eiríkur segir ekki
útilokað að kennarar taki ákvörðun
um verkfall í þessari viku.
Eiríkur sagði það tilviljun að
grunnskólakennarar og leikskóla-
kennarar væru í kjarabaráttu á
sama tíma. Á bak við þetta væri
ekki hemaðaráætlun sem samin
hefði verið við eldhúsborðið á heim-
ili þeirra hjóna.
„Við leikskólakennarar mótuð-
um kröfugerð okkar í maí 1996
og þar var sett niður talan 110
þúsund kr. í byrjunarlaun. Þegar
í Ijós kom að Kennarasambandið
yrði í kjarabaráttu á sama tíma
veltum við leikskólakennarar því
fyrir okkur hvaða áhrif það gæti
haft á aðgerðir okkar ef t.d. verk-
fall bæri upp á sama tíma. Það
gæti dregið úr áhrifum verkfalls
fyrir báða hópana," sagði Björg.
Eiríkur sagði að meðal kennara
væri rætt um hvort boða ætti verk-
fa.ll. Langan tíma tæki að boða og
láta greiða atkvæði um verkfall
og þess vegna gæti það ekki kom-
ið til framkvæmda fyrr en í fyrsta
lagi að áliðnum október. Björg
gæti því alveg verið róleg.
Alag- á fjölskylduna
Björg og Eirikur sögðu að kjara-
mál væm mikið rædd á heimilinu
þessa dagana. Þó samningavið-
ræður gengju hægt gerðist eitt-
hvað á hveijum degi sem þyrfti
íhugunar við. Þau viðurkenndu að
bömin á heimilinu væru stundum
hálfþreytt á kjaraumræðum for-
eldranna og það hefði komið fyrir
að þau hefðu beðið um að skipt
væri um umræðuefni.
Björg sagði að þessu starfi
fylgdi talsvert álag á gölskylduna.
Sunnudagsbíltúramir yrðu oftar
en ekki að víkja þegar boðaður
væri samningafundur. Fjölskyldan
hefði komist í gott frí í sumar og
það mætti því segja að þau væru
búin að búa sig undir komandi
átök. Talsvert hefur verið rætt um
sameiningu kennarafélaganna og
leikskólakennarar munu e.t.v.
koma að þeim viðræðum. Eiríkur
og Björg vom spurð hvort þau
sæju fram á að þau myndu gegna
stöðu formanns og varaformanns
í nýju kennarafélagi eða hvort þau
myndu kannski keppa um for-
mannsembættið. Þau litu brosandi
hvort á annað og sögðu bæði að
það kæmi ekki til greina.