Morgunblaðið - 03.09.1997, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997 11
FRÉTTIR
HILMAR Magiiússon lengst t.h. og fjölskylda hans með 40 laxa sem hópurinn veiddi á miðsvæðunum
í Langá á tveimur dögum fyrir skömmu.
Róast í Rangánum
VEIÐI hefur róast nokkuð í Rang-
ánum, eystri áin hefur oftar en
ekki verið skoluð að undanförnu og
ytri áin dauf. Það eru þó að reytast
laxar á land báðum megin að sögn
Þrastar Elliðasonar leigutaka Ytri-
Rangár. Þá segir hann að sjóbirt-
ingur sé farinn að sýna sig í Ytri-
Rangá, mest fyrir neðan Ægissíðu-
foss og einna álitlegasta laxasvæðið
nú sé það ólíklegasta, eða urriða-
svæðið fyrir ofan Árbæjarfoss.
„Það eru komnir um það bil 1.450
laxar úr Eystri-Rangá og tæplega
1.000 laxar úr Ytri-Rangá og
Hólsá. Það er lítið að ganga í árnar
eins og er og í Ytri-Rangá hefur
verið einna líflegast á urriðasvæð-
inu, eða svæði 3. Mikill lax hefur
gengið á svæðið og lagst einkum á
svokölluðu Heiðavaði og í ármót-
umn Rangár og Bjallalækjar. Lítið
veiddist þar framan af, þetta var
barið talsvert mikið, en álagið hefur
minnkað þar nema um helgar og í
gærkvöldi fór ég t.d. þangað með
útlending og hann fékk þrjá laxa
og missti tvo. Samkvæmt teljaran-
um í Árbæjarfossi eru komnir á
annað þúsund laxar á svæðið og
mér sýnist að milli 60 og 70 hafi
veiðst þar síðustu tvær vikurnar eða
svo,“ sagði Þröstur í gærdag. Séu
Rangárnar taldar saman eins og
hefur verið fyrir síðustu sumur, eru
þær efstar yfir landið með nærri
2.450 laxa. Engin á mun skáka því
í sumar, svo lítið er eftir af vertíð-
inni og veiði lokið eða að Ijúka í
þeim ám sem næstar koma, Norð-
urá og Þverá.
Næstar í röðinni
Veiði er nú lokið í Norðurá og
þar er legið yfir veiðibókum. Loka-
tala er ekki orðin opinber, en hún
liggur nærri 1.870 löxum. Þetta er
ívið lakara en í fyrra, er áin gaf
1.960 laxa. Kunnugir telja að áin
hefði staðið undir tölu síðasta sum-
ars og jafnvel meiri veiði í sumar
ef ekki hefðu komið til tíð vatnsveð-
ur sem spilltu veiðum svo sólar-
hringum skipti.
Veiði er lokið í Þverá og lýkur í
Kjarrá 8. september. Að sögn Jóns
Ólafssonar, eins leigutaka árinnar,
eru komnir rúmir 1.500 laxar á
land. Jón sagðist ekki búast við
miklum tíðindum síðustu dagana í
Kjarrá, fískur væri orðinn leginn
og latur að taka agn. Þetta er samt
sem áður meiri veiði en í fýrra, er
áin gaf rétt rúmlega 1.400 laxa.
Héðan og þaðan
Skot kom í Hofsá og það svo um
munaði er þýski listmálarinn Bernd
Koberling og hópur hans var þar
að veiðum fyrir fáum dögum. Yfir
100 laxar voru dregnir á þurrt á
þremur dögum. Góð ganga kom í
ána á sama tíma og skilyrði voru
góð. Annars hefur veiði verið mjög
slök í Hofsá í sumar. Dæmi er um
að hópur hafi aðeins náð einum
laxi á tæpri viku. Lýsa þessi dæmi
laxveiði í hnotskurn.
Milli 50 og 60 laxar hafa veíðst
í Breiðdalsá í sumar og hefur verið
þokkalegur reytingur síðustu daga.
Þröstur Elliðason er leigutaki árinn-
ar og sagði hann þetta stefna í
svipaða veiði og í fyrra er milli 80
og 90 laxar veiddust. „Sá er þó
munurinn nú og þá að menn sjá
miklu meiri lax í ánni í sumar. Það
hefur hins vegar verið mjög blautt
á Austfjörðum í sumar og áin oft
illveiðandi vegna mikils vatns-
magns,“ bætti Þröstur við.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík
Rætt um próf-
kjör í október
STJÓRN Fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík tekur í
næstu viku ákvörðun um hvort hún
leggur fram tillögu fyrir fulltrúa-
ráðsfund um að haldið verði próf-
kjör fyrir borgarstjórnarkosning-
arnar í vor. Baldur Guðlaugsson,
formaður fulltrúaráðsins, segir að
ef prófkjör verði haldið séu mestar
líkur á að það verði haldið í októb-
ermánuði.
Ýmis sjónarmið innan
stjórnarinnar
Baldur Guðlaugsson sagði að
stjórnin hefði að undanförnu rætt
um hvernig ætti að standa að upp-
stillingu á framboðslista flokksins
fyrir komandi borgarstjórnarkosn-
ingar. Fram hefðu komið ýmis
sjónarmið, en menn væru að þok-
ast í átt að niðurstöðu.
Stefnt væri að því að stjórn full-
trúaráðsins yrði búin að móta til-
lögu í næstu viku og að hún yrði
lögð fyrir fulltrúaráð sjálfstæðisfé-
laganna í vikunni á eftir.
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykja-
vík hefur yfirleitt haldið prófkjör
fyrir kosningar á tímabilinu októ-
ber til janúar. Fyrir síðustu alþing-
iskosningar var haldið prófkjör í
október, en fyrir síðustu borgar-
stjórnarkosningar var haldið próf-
kjör í janúar.
Nauðsyn að frambjóðendur
fái góðan tíma
Baldur sagði að innan stjórnar
fulltrúaráðsins hefði verið rætt um
að halda hugsanlegt prófkjör í
október.
Baldur sagði stjórnina sammála
um að æskilegt væri að taka
tímanlega ákvörðun um röðun á
lista. Nauðsynlegt væri að fram-
bjóðendur hefðu góðan tíma til
að undirbúa kosningabaráttuna. í
sveitarstjórnarkosningum byggð-
ist stefnumörkun mikið á fram-
bjóðendum, öfugt við alþingis-
kosningar þar sem meira væri
byggt á ályktunum landsfundar
flokksins.
Lj ósmyndasafn
Reykjavíkur
Nýr for-
stöðumað-
ur ráðinn
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu meirihluta menningarmála-
nefndar Reykjavíkur um að ráða Sig-
uijón Baldur Hafsteinsson forstöðu-
mann Ljósmyndasafns Reykjavíkur
í stað Guðnýjar Gerðar Gunnarsdótt-
ur, sem hefur afsalað sér stöðunni.
í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálf-
stæðisflokks segir að í annað sinn
sé gengið framhjá mjög hæfum um-
sækjanda um starf forstöðumanns.
Á fundi menningarmálanefndar í júní
hafi meirihluti nefndarinnar mælt
með Einari Erlendssyni. Meirihluti
borgarráðs hafí ákveðið að hundsa
þá tillögu og ráða einstakling sem
nú hafi afþakkað stöðuna. Bent er á
að Einar hafi háskólamenntun á
þessu sviði auk víðtækrar reynslu
af stjórnun og rekstri fyrirtækis, þar
sem nýjustu tækni er beitt við skrán-
ingu, varðveislu og nýtingu ljós-
myndaefnis. Sterk fagleg rök mæli
með ráðningu hans í starfið. Tekið
er fram að með þessari afstöðu sé
ekki verið að kasta rýrð á þann
umsækjanda sem meirihluti borgar-
ráðs hefur ákveðið að ráða.
Sjónvarpsdeild Ríkisútvarpsins
Fimm sækja um starf
framkvæmdastjóra
FIMM hafa sótt um stöðu fram- Hólmgeir Baldursson, Ingólfur
kvæmdastjóra sjónvarpsdeildar Hannesson og Steinþór Ólafsson.
Ríkisútvarpsins. Umsóknarfrest- Samkvæmt útvarpslögum ræð-
ur um stöðuna rann út á mánu- ur menntamálaráðherra fram-
dag, 1. september. kvæmdastjóra að fenginni um-
Umsækjendurnir fimm eru Ás- sögn útvarpsstjóra og Útvarps-
dís Olsen, Bjarni Guðmundsson, ráðs.
200 VIÐBOTARSÆTI
Á TILBOÐSVERÐI
nánudaga frá
London
í
á kr.
19.990
Flug og hótel
24.990 kr.
London - vinsælasta borg Evrópu
Londonferðir Heimsferða hafa fengið ótrúlegar undirtektir
Og hundruðir sæta hafa nú selst til þessarar vinsælustu borgar Evrópu.
Nú eru fyrstu ferðimar að seljast upp enda höfum við aldrei boðið jafn
ótrúlega hagstæð kjör og nú í vetur með beinum flugum okkar til
mestu heimsborgar Evrópu. Glæsilegt úrval gististaða í boði, spennandi
kynnisferðir, besta verslunarborg Evrópu og íslenskir fararstjórar
Heimsferða tryggja þér ánægjulega dvöl í heimsborginni sem á þriðja
þúsund íslendinga heimsóttu á vegum Heimsferða síðasta vetur.
Bökaðu strax og tryggðu þér tilboðsverðið.
Verðfrákr. 19.990
Flugsæti til London með flugvallasköttum,
flug frá mánudegi til fimmtudags.
Verðfrákr. 24.990
M.v. 2 í herbergi, Crofton Hotel, 3 nætur.
brottför á mánudögum.
Verðfrákr. 29.990
M.v. 2 í herbergi Crofton Hotel, 4 nætur,
frá fimmtudegi til mánudags.Innifalið flug,
gisting, skattar og íslensk fararstjórn.
Fáðu
bœklinginn
sendati.
Ferðir
í vetur
2. október
uppselt
6. október
9. október
13. október
16. október
20. október
23. októbcr
27. október
30. október
3. nóvember
6. nóvember
örfá sæti
10. nóvember
13. nóvember
17. nóvember
20. nóvember
24. nóvember
27. nóvember
Austurstræti 17,2. hæö • Slmi 562 4600