Morgunblaðið - 03.09.1997, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997 17
Bætt afkoma hjá SÍF hf. á fyrri árshelmingi
Hagnaður nam 94
milljónum króna
HAGNAÐUR af rekstri Sölusam-
bands íslenskra fiskframleiðenda
(SÍF) og dótturfélaga nam 94 millj-
ónum króna á fyrri árshelmingi.
Ekki liggur fyrir endurskoðað árs-
hlutauppgjör fyrir sama tímabil síð-
astiiðins árs en rekstur SÍF sam-
stæðunnar skilaði 117 milljóna
króna hagnaði allt árið. Hagnaður
SÍF hf. án rekstrarárangurs dóttur-
félaga nam 103,7 milljónum króna
á fyrri árshelmingi, samanborið við
65,8 milljónir á sama tímabili í fyrra,
samkvæmt óendurskoðuðu innra
uppgjöri, og jókst hagnaðurinn milli
ára því um 38 milijónir eða 58%.
Rekja má batnandi afkomu til
lækkunar á kostnaði hjá SÍF hf. og
betri afkomu dótturfélaga fyrstu sex
mánuði ársins, samanborið við sama
tímabil í fyrra. Heildarveltan fyrstu
sex mánuði þessa árs nam 5.684
milljónum króna eða um 55% af
heildarveltu síðasta árs.
Gunnar Örn Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri SÍF, segist vera sáttur
við árangurinn enda hafi áætlanir
gengið eftir og gott betur. „í upp-
hafi ársins hafi verið gert ráð fyrir
144 milljóna króna hagnaði á árinu
en eftir fyrstu sex mánuðina hafi
hann verið 16 milljónum króna hærri
en sú áætlun gerði ráð fyrir. Selt
magn fyrstu sex mánuðina er 9%
meira en í fyrra og það hjálpaði einn-
ig til að þær verðlækkanir á salt-
fiski eftir páskahátíðina urðu ekki
að þessu sinni. Gengissig Evrópu-
myntar gagnvart íslensku krónunni
höfðu ekki teljandi áhrif á tekjur
SIF hf. þar sem öll viðskipti fyrir-
tækisins eru í erlendri mynt.“
Gunnar segir að bjartsýni ríki um
rekstur SÍF hf. og dótturfélaga á
síðari hluta ársins enda séu söluhorf-
ur á saltfiskmörkuðum góðar.
„Birgðir af saltfiski eru litlar, bæði
í markaðs- og framleiðslulöndum.
Hagkvæmni í flutningum hefur verið
aukin á árinu með kaupum á flutn-
ingaskipinu Hvítanesi og mun það
skila sér í afkomu SÍF og dótturfé-
laga á síðari hluta ársins. Að jafn-
aði gengur rekstur dótturfélaga bet-
ur á síðari hluta ársins og að þessu
samanlögðu má reikna með að hagn-
aður ársins verði meiri en áætlanir
sýna,“ segir Gunnar.
STEINAR WAAGE
r
S K O V E R S L U N
5% STAÐGREIÐSLUAFSLATTUR • POSTSENDUM SAMDÆGURS
STEINAR WAAGE ^
/
STEINAR WAAGE
• 'SOVF R s ru N
SÍMI 568 9212
YCjffm : |p|i!p ' ~tB|
/ - m
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Starfsmenn auglýsingastofunnar Nonna og Manna eftir sameininguna.
Nonni og Manni og
Sjöundi himinn sameinast
GENGIÐ hefur verið frá samningi
um sameiningu auglýsingastof-
anna Nonna og Manna og Sjöunda
himins. Sameinaða stofan sem
rekin verður undir nafni Nonna
og Manna verður með alls 16
starfsmenn, en þar af koma tólf
manns frá Nonna og Manna og
fjórir frá Sjöunda himni.
Jón Sæmundsson, fram-
kvæmdastjóri stofunnar, segir
samningaviðræður hafa staðið
yfir i sumar. Með sameiningunni
verði til ein öflugasta auglýsinga-
stofa landsins sem geti boðið
heildarlausnir í markaðs- og aug-
lýsingamálum. Báðar stofurnar
hafi fengið fjölda viðurkenninga
og verðlauna í hönnunar- og hug-
myndasamkeppnum.
Hann segir ennfremur að báðar
stofurnar hafi eflst mjög frá
stofnun þeirra og unnið fyrir
mörg af stærstu fyrirtækjum
landsins. Meðal stærstu viðskipta-
vina stofunnar séu nú Póstur og
sími, Tæknival, Lýsing, Happ-
drætti Háskóians, Toyota-umboð-
ið, Landsvirkjun, Útflutningsráð,
Osta- og smjörsalan, Pharmaco,
Samtök iðnaðarins, Kópavogsbær
og Bifreiðaskoðun. Stofan er til
húsa í Þverholti 14.
Hagnýtt og markvisst nám í nútíma markaðsfræðum
Námsgreinar:
• Stjórnun og sjálfstyrking
• Stefnumótun, greining og áætlanagerð
• Markaðsrannsóknir
• Neytendamarkaður og kauphegðun
• Greining á keppinautum
■ Markaðshlutun og staða
• Vöruþróun
• Líftími vöru
Markaðsstefnur fyrir alþjóðaviðskipti
Söluráðar
Sölutækni og sölustjórnun
Auglýsingar og samskipti við fjölmiðla
Lotus Notes sem markaðstæki
Internetið sem markaðstæki
Gæða- og þjónustustjórnun
Kcnnt er á mánudags- og miðvikudagskvöldum f rá kl. 18oo til 2200
og á laugardagsmorgnum frá kl. 900 til 1300. Námskeiðið byrjar
22. sept. og lýkur 13. des. samtals 144 klukkustundir
Kennarar á þessu námskeiði:
Semunáur Hihttiimoo
iilíraíinfur og létojvrriiböjéri
EinarBjamason
S5ki- og irorkð&v»3aafi
Kari f riðriksson
fomWumaíur rtfsktyww og
(rarnl.drikUr Hji l4nt»k.r*stolnun
Ingvar jónsson
TíMibfwri NTV
R»kilrarhi|lraiðiiigur
Nýi tfilvu- &
vifiskiptaskélinn
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirðl - Sími: 555 4980 - Fax: 555 4981
Tölvupóstfang; skoli@rrtv.is - Heimasíða: www.ntv.is
FÉjjk ' J®! ■ m I flf fp |§| * f/ n I 1 M | jms II 1 ; 1/1
5 M i| 3 Kt mm m m m mi g' H §p1)
|: ™ fpjf wjmw - 1 4*1 mm\