Morgunblaðið - 03.09.1997, Page 36

Morgunblaðið - 03.09.1997, Page 36
- 36 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997 MINNIIVIGAR MORGUNBLAÐIÐ Bróöir minn, SIGURÐUR HANNESSON, síðast til heimilis á Elliheímilinu Grund, lést mánudaginn 25. ágúst á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. Guðfinna Hannesdóttir. Ástkær móðir okkar, SESSELJA SIGURÐARDÓTTIR, Sunnuvegi 23, er látin. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hafþóra Bergsteinsdóttir, Sigurður Bergsteinsson, Sigurberg Bragi Bergsteinsson, Albert Ebenezer Bergsteinsson. + Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, STEFÁN G. GUÐLAUGSSON húsasm íðameista ri, Kirkjulundi 6, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju Garðabæ á morgun, fimmtudaginn 4. septeber kl. 13.30. Blóm eru vinsamlega afökkuð, en þeim sem vildu minnsast hans, er bent á Hjartavernd eða Heilavernd. Arndís Magnúsdóttir, Jóhanna Hauksdóttir, Örlygur Oddgeirson, Magnús Stefánsson, Elín Eyjólfsdóttir, Guðlaugur Stefánsson, Kristjana Guðjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KJARTAN EINARSSON, Túngötu 64, Eyrarbakka, verður jarðsunginn frá Eyrarbakkakirkju föstu- daginn 5. september kl. 14.00. Jónína Kjartansdóttir, Einar Kjartansson, Bryndís Kjartansdóttir, Brynja Matthíasdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LILJA SVEINBJÖRNSDÓTTIR SCHOPKA, Droplaugarstöðum, sem lést 28. ágúst sl., verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 5. sept- ember kl. 13.30. Lilja A.K. Schopka, Sverrir Schopka, Margrét Schopka, Ragnhildur M. Cate, William Cate, Ottó Schopka, Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir, Sigfús Schopka, Helga Skúladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum samúð og hlýhug vegna andláts EINARS ARNALDS. Kristín Arnalds, Jónas Finnbogason, Matthildur Arnalds, Thulin Johansen og barnabörn. ÞÓRA MARTEINSDÓTTIR + Þóra Marteins- dóttir fæddist í Merkinesi í Höfnum hinn 18. maí 1946. Hún lést í Reykja- vík 23. ágúst síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Mar- teinn Guðbjartur Guðmundsson, myndhöggvari, f. 16.7. 1905 í Merki- nesi í Höfnum, d. 23.7. 1952 í Reykja- vík, og Kristín Bjarnadóttir píanó- kennari og bóka- vörður, f. 4.7.1907 í Reykjavík, d. 10.9. 1975 í Reykjavík. Al- systkin Þóru eru Steinunn Sig- ríður, leirkerasmiður, f. 18.2. 1936 í Reykjavík, Guðrún Ásta, skrifstofumaður, f. 8.11. 1938, og Bjarni arkitekt, f. 30.12. 1942 í Reykjavík. Hálfsystir þeirra samfeðra var Randi Arn- gríms sem er látin. Þóra giftist Einari Jóhanni Gíslasyni, framkvæmdasljóra, 24. desember 1945, hinn 28.8. 1965. Foreldrar Einars eru Gísli Gunnar Björnsson, bifvélavirki, f. 26.12. 1917, og Sig- rún Einarsdóttir, húsmóðir, f. 16.7. 1918. Börn Þóru og Einars eru Sigrún, f. 25.11. 1964, maki Páll Bergþór Guð- mundsson, tölvun- arfræðingur, f. 12.9. 1966, Kristín Anna, f. 25.8. 1971, maki Sigurður Stefánsson, sölumaður, f. 8.5.1970, og Mar- teinn, nemi, f. 8.12. 1974, unn- usta Edda Margrét Hilmars- dóttir, nemi. Barnabörn Þóru og Einars eru tíu. Einar Jóhann átti eitt barn fyrir hjónaband, Óskar, flugvirkja, f. 3.9. 1964, maki Björk Ólafsdóttir. Útför Þóru fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. í bljúgri bæn og þökk til þín sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig og lýstu mér um ævistig. Ég reika oft á rangri leið, sú rétta virðist aldrei greið. Ég geri margt sem miður fer og man svo sjaldan eftir þér. Sú ein er bæn í brjósti mér: Ég betur kunni þjóna þér. Því veit mér feta veginn þinn að verðir þú æ drottinn minn. Þegar ég minnist Þóru Marteins- dóttur, tengdadóttur minnar, koma fram allar þær hugljúfu minningar sem ég á frá okkar kynnum og gleymast aldrei. Elsku Þóra mín, þú varst mér alltaf eins og góð dóttir. Meðfæddir eiginleikar hennar voru góðar gáfur, fáguð framkoma og snyrtimennska. Stjúpsyni sínum var hún jafngóð sínum eigin börn- um. Þóra og Einar, maður hennar, byggðu upp heimili sitt í fallegum og listrænum stíl. Þar var tekið fagnandi á móti vinum og kunningj- um svo þar var gott að koma. Mig langar að minnast á nokkrar samvei’ustundir af mörgum sem ég átti með Þóru: Einn sólbjartan góð- viðrisdag fórum við út í Viðey. Við litum fyrst inn í kirkjuna og geng- um síðan á Heijarkinn að minnis- varða Skúla Magnússonar, landfóg- eta. Ég segi: „Nú skulum við horfa á undurfagra náttúruumgjörð Við- eyjar, því betra skyggni er ekki fáanlegt." Þegar við höfðum horft góða stund segir Þóra: „Ég vissi ekki að svona margbreytileg nátt- úrufegurð væri svona rétt við bæj- ardyrnar." Þóra átti ekki langt að sækja það að kunna að meta og njóta náttúrufegurðar og tónlistar þar sem foreldrar hennar voru Marteinn Guðmundsson mynd- höggvari og Kristín Bjarnadóttir píanókennari. Þóra lék einnig á píanó. Eins var það þegar ég fór með henni í Hveragerði að velja blómin í garðhúsið við heimili fjölskyldunn- ar. Hún var svo smekkleg í litavali og hvað passaði saman, sem ég sá enn betur þegar hún var búin að gróðursetja blómin. Margar ógleymanlegar gleði- stundir átti ég með Þóru og fjöl- skyldu hennar í sumarhúsi þeirra í Merkinesi. Þar ríkti gleðin. Hjónin spiluðu bæði á gítar og mikið var sungið. Nú hefur Þóra Marteinsdóttir sagt skilið við hið jarðneska líf sem býður bæði upp á gleði og sorg. Hún kvaddi lífið í frelsarans Jesú nafni. Blessuð sé minning hennar. Sigrún Einarsdóttir. Oft er lífið bjart og elskulegt og við viljum njóta hverrar stund- ar. En stundum, jafnvel þegar best lætur, syrtir skyndilega að. Núna er himinn þungbúinn og tilveran dapurleg því frænka mín hún Þóra Marteinsdóttir, ung og hæfileika- rík glæsikona, er horfin frá okkur. Mæður okkar Þóru voru systurn- ar Anna og Kristín Bjarnadætur Sæmundssonar fiskifræðings. Anna giftist Einari Guðnasyni, pró- fasti í Reykholti, en Kristín átti Martein Guðmundsson, mynd- höggvara, frá Merkinesi í Höfnum. Við, börn Önnu, erum þtjú og ól- umst upp í Reykholti í Borgar- firði. Börn Kristínar voru fjögur og ólust upp í Þingholtsstræti 14. Ég, sem þetta skrifa, er elstur frændsystkinanna en Þóra var yngst. Á milli okkar voru 12 ár. Vegalengdin á milli Reykjavíkur og Reykholts var ekki til trafala. Fjölskyldan í Þingholtsstrætinu kom oft í Reykholt og Reykholts- ijölskyldan fór oft suður, og þegar langskólaganga okkar sveita- krakkanna hófst vorum við að sjálfsögðu heimagangar í Þing- holtsstrætinu. Ávallt fannst okkur við vera heimafólk þar enda kær- leikar á miili fjölskyldnanna. Árið 1950 hóf ég nám í Mennta- skólanum í Reykjavík og að sjálf- sögðu bjó ég þá í Þingholtsstræt- inu. Þá var Þóra fjögurra ára. Við urðum strax mjög góðir vinir. Þóra var afskaplega fallegt og skemmti- legt barn og við ræddum margt því auðvelt var að tala við hana eins og við fullorðna manneskju. Ég er ekki alveg viss um hvort hún var fjögurra eða fimm ára þegar ég kenndi henni mannganginn, en hún var eldfljót að skilja hið flókna kerfi skákarinnar. Innan skamms var hún farin að tefla við fullorðið fólk og gekk vel. Ég áttaði mig því smám saman á að hún var í senn fluggáfuð og afar fjölhæf. í íjóra vetur var ég til heimilis í Þing- holtsstrætinu og þann fimmta í fæði þótt ég hefði húsnæði annars staðar, og ég naut þess öll árin að fylgjast með Þóru, því alltaf voru hæfileikar hennar að koma í ljós. Svo breyttist lífið þegar ég flutti á Gamla Garð því éftir það var ég ekki lengur daglegur gestur í Þing- holtsstrætinu. í stað þess kom ég oft í eftirmiðdagskaffi, en þá var ávallt opið hús hjá Kristínu, móður- systur minni, og oft glatt á hjalla. En lífið gekk áfram sinn gang og þegar háskólanáminu hér heima lauk urðu ferðirnar í Þingholts- strætið færri en samt gat ég fylgst með Þóru, frænku minni og vin- konu. Litla, sæta og greinda stelp- an breyttist í gullfallega stúlku og svo glæsilega konu. Hún gekk í skóla í Reykholti og í Reykjavík en giftist svo ung jafningja sínum í glæsileik og gáfum, Einari Gísla- syni, framkvæmdastjóra og aða- leiganda ET flutningafyrirtækis- ins. Eftir lát Kristínar, móður Þóru, fluttust ungu hjónin svo í Þing- holtsstræti 14. Börn þeirra eru þijú auk eldra barns Einars og allt virtist leika í lyndi. En það syrti að þegar Þóra varð fyrir al- varlegu slysi, en eftir það náði hún sér aldrei til fulls og líklegt er að þau meiðsl hafi tekið sig upp og ráðið úrslitum þegar hún varð fyr- ir öðru minna slysi. Það er sárt að horfa á bak nánu skyldmenni og vinkonu í blóma lífs: ins. Mér finnst tjón mitt mikið og óbætanlegt en enn sárara er það systkinum, börnum og barnabörn- um Þóru. Okkur langar til að geta spurt um og skilið réttlæti drottins en við getum ekki fengið svör. En við getum beðið guð um að taka ástvinu okkar til sín og leiða hana inn á vegu ljóssins og á fund ást- vina hennar sem farnir eru á und- an henni. Við hjónin og börnin okkar send- um þér, Einar, og fjölskyldu þinni, svo og öðrum aðstandendum, okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Bjarni Einarsson. Kæra tengdamóðir. Engri manneskju hef ég kynnst sem sannaðist betur á að sitt er hvort gæfa og gjörvileiki. Líf þitt var sannarlega langt frá því að vera alltaf dans á rósum. En þrátt fyrir margar erfiðar stundir leiftrar samt skært minningin um hinar góðu. Nú er við kveðjumst finn ég svölun í huggunarríkum og um- burðarlyndum ljóðlínum Richards Beck. Dæmdu eigi breyskan bróður, bijóttu ei hið veika strá; lyftu heldur hönd til varnar hveijum þeim, sem aðrir smá. Allt er líf af einum stofni, örlög tvinnuð min og þín. Undir sora og synda hjúpi sólhrein perla tíðum skín. Hver fær lesið letur hjartans, leynirúnir innra manns? Hver er sá, er kannað geti, kafað sálardýpi hans? Margt í hafsins hyljum djúpum hulið er, sem enginn leit. Margt í sálum manna leynist meira og betra en nokkur veit. Skammt vér sjáum, blindir blínum báðum augum, látum hægt. Hví skal myrða menn í orðum? Margt er hulið, dæmum vægt. Auðlegð hjartans enginn reiknar eða sálarfátækt manns. Hvar er vog, er vegið geti vonir eða sorgir hans? Ég kynntist dóttur þinni sumar- ið 1985 og man alltaf eftir því er ég sá þig fyrst. Við Sigrún vorum að koma að utan og þú komst til að sækja dóttur þína. Ég hugsaði með mér, eftir að við höfðum verið kynnt, hve glæsileg þú værir, stolt og reist. Við náðum strax vel sam- an enda kannski bæði svolítið dul og því þurftum við ekki mörg orð til að tjá okkur. Það sem einkenndi Þóru öðru fremur var skynsemi, ákveðni, skapfesta, gegnheiðarleiki, fölskvaleysið að viðbættu því hve dul hún var. Hún hafði yndi af öllu sem tengdist náttúrunni og einatt var fæðingarstaður hennar, Merkines í Höfnum, henni ofarlega í huga. En elsku Þóra, kveðjuorðin skulu ekki vera háfleyg og vonandi ekki væmin því ég veit að þú hefðir ekki kært þig um slíkt. Því þakka ég þér reynslurík kynni og bið um að þú verðir falin í vörslu góðrar forsjónar um ókomin ár. Sofðu rótt. Þú varst vinur minn. Tengdaföður mínum og öðrum aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð. Páll Bergþór Guðmundsson. Við hjónin vorum harmi slegin er vinur okkar, Einar Gíslason, til-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.