Morgunblaðið - 03.09.1997, Qupperneq 44
44 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Matgerð og matgerð
Sólberja- og
rifsberjahlaup
Oft tölum við um sólber og rífsber í sömu
andránni segir Kristín Gestsdóttir enda
eru þetta einu runnamir sem bera góða
uppskeru hér á landi.
JÁ, og það mikla uppskeru ef
runnunum er vel sinnt. Sólber
gera mun meiri kröfur til hita og
raka en rifsber og þurfa lengri
vaxtartíma og meiri sól. Þegar
snemma haustar ná sólberin oft
ekki að þroskast. Oft er þessum
tveimur runnategundum ekki
sinnt sem skyldi, en varla má
búast við góðri berjatekju af runn-
um í svelti og óhirðu. Runnana
þarf að klippa og gæta þess að
sól skíni á þá og að þeir standi á
skjólgóðum stað. Sjálfsagt er að
láta eldri greinar víkja fyrir þeim
yngri. Sólber eru mjög C-vítamín-
auðug, 170 mg í hundrað grömm-
um, og afar ljúffeng í sultu, hlaup
og alls konar kökur og ábætis-
rétti að ógleymdum hinum fræga
líkjör Cassis. Búa má til mjög Ijúf-
fenga hollustudrykki úr sólbeij-
um. Rifsberjahlaup þekkja flestir
og rifsbeijasaft er mjög góð. í
rifsbeijum er mun minna C-vítam-
ín en í sólberjum eða 25 mg í 100
grömmum. Á haustin tek ég alltaf
nokkrar fallegar rifsbeijagreinar
og.frysti til að nota sem skraut á
osta, kökur og ábætisrétti. Ég set
engan sykur á berin en raða þeim
í einfalt lag í öskju með loki. Þið
sem plantið tijám við sumarhúsin
ykkar eða í skógarreiti ættuð að
planta rifsbeija- og sólbeijarunn-
um innan um annan gróður, það
eykur fuglalíf og fátt er yndis-
legra en þrastarsöngur að vori.
Tvær fyrri uppskriftirnar í dag
eru úr bók minni 220 gómsætir
ávaxta- og beijaréttir.
Sólbeijahlaup
__________2 kg sólber________
2 dl vatn
1 kg sykur í hvem lítra vatns
1. Þvoið sólberin, takið allt lauf
úr en stilkarnir mega vera í. Sjóð-
ið berin með vatninu í potti við
hægan hita í 10 mínútur. Hellið
á grisju og látið renna vel af
þessu. Kreistið síðan grisjuna.
Setjið safann í pott ásamt sykri,
1 kg sykur móti lítra af safa.
2. Sjóðið við hægan hita í 15
mínútur. Látið suðuna koma upp
undir hlemmi, takið þá hlemminn
af og takið tímann frá því að suð-
an kemur upp. Sjóðið krukkur
með skrúfuðum lokum, sjóðið lok-
in líka. Hvolfið á hreint stykki,
snúið strax við og hellið sjóðandi
hlaupinu í þær. Hafið krukkurnar
fleytifullar og skrúfið lokin strax
á. Lofttæming verður í krukkun-
um, en innihaldið sígur örlítið
saman um leið og það kólnar.
Merkið með innihaldi og dagsetn-
ingu.
Rifsbeijahlaup
2 kg rifsber
____________1 dl vatn__________
1 kg sykur móti lítra af saft
______(má vera heldur meira)___
1. Þvoið rifsberin, takið allt
lauf frá en tínið berin ekki af'
greinunum. Setjið í pott ásamt
vatni og sjóðið við hægan hita í
45 mínútur. Hellið á grisju, látið
standa þar í 4-5 klst. kreistið þá
grisjupokann út í safann. Geymið
hratið og notið í saft.
2. Setjið safa ásamt sykri í
pott og sjóðið í loklausum potti
við hægan hita í 15 mínútur eftir
að suðan kemur upp.
3. Hellið í krukkur, sjá aðferð-
ina í næstu uppskrift á undan.
Loks kemur hér mjög auðveld
uppskrift að rifsbeijahlaupi.
Þrisvar sinnum sjö
sulta
_____________Rifsber____________
______________vatn______________
1.200 g sykur í hvern lítra af safa
1. Þvoið berin, takið frá lauf
en látið stilkana vera með. Setjið
í pott, þrýstið örlítið niður. Hellið
sjóðandi vatni á svo að rétt fljóti
yfir. Látið sjóða í 7 mínútur eftir
að suðan kemur upp. Hellið á
grisju, kælið talsvert en kreistið
þá grisjuna.
2. Setjið safann í pott og látið
sjóða. Setjið helming sykurs út í
og sjóðið í 7 mínútur, setjið þá
hinn helminginn út í og sjóðið í
aðrar 7 mínútur. Hellið í krukkur,
sjá aðferð í uppskriftinni að sól-
beijahlaupi hér að framan.
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Fyrirspurn
til Bónuss
KONAN mín var að bíða
í röð í Bónus í Hafnarfirði
í gær, mánudaginn 1.
september. Fyrir framan
hana var útlendingur, lík-
lega Rússi. Var hann ekki
með nóg á sér af íslensk-
um peningum til að borga
fyrir vöruna og þurfti
hann að skipti 100 dollara
seðli. Það var farið í ein-
hver plögg við kassann til
að athuga gengið og var
seðillinn seldur á 6.000
kr. en gengisskráning
hans er nálægt 7.200 kr.
Hvernig í ósköpunum
stendur á þessari gengis-
skráningu hjá Bónus? Er
Bónus að gera sér mat úr
saklausum útlendingum?
Gylfi Baldursson.
Orð í tíma
skrifuð
ÉG VIL hvetja fólk til að
lesa ágæta grein eftir
Bergsvein Birgisson, „Að-
för að þjóðmenningu", í
Morgunblaðinu 30. ágúst
sl. Þar eru orð í tíma skrif-
uð. Nú er svo komið að
ungum mönnum er gert
nánast ókleift að eignast
bát eða komast á sjó vegna
hagræðingarkjaftæðis, og
svo þarf að eiga ómælt fé
til kvótakaupa. Það gleym-
ist að ungu mennirnir
þurfa að vera með eldri
sjómönnum til að læra á
veiðarfærin og sjómennsk-
una, með sama áframhaldi
hverfur þessi útvegur,
kunnáttan týnist, þessi
þróun bítur í skottið á sér.
Nú er svo komið að víða í
höfnum á landsbyggðinni
eru engir bátar við
bryggju, þeir eru annað-
hvort komnir í kvótasögina
eða á brennuna. Kannski
má spyija í framhaldi af
tali um vonleysið og til-
gangsleysið sem ungt fólk
býr við í dag. Er þetta því
til framdráttar? A hveiju
lifir þessi þjóð? Svari nú
hvar fyrir sig.
Axel B. Eggertsson,
Flyðrugranda 4, Rvík.
Tapað/fundið
Karlmannsfrakki
týndist
KARLM ANN SFRAKKI,
stór og grængráleitur,
Læðu vantar
heimili
GULLFALLEG, tinnu-
svört, fjögurra mánaða
gömul læða, þarf að eign-
ast gott heimili sem allra
fyrst. Áhugasamir dýra-
vinir eru beðnir að hringja
í síma 551-3269.
Garpur
er týndur!
SVARTUR köttur af Ori-
ental-kyni hvarf af Leifs-
götu 25 sl. fímmtudag. Þeir
sem vita hvar hann er, eða
hafa orðið hans varir, eru
vinsamiegast beðnir um að
hafa samband í síma
552-6359 eða láta Kattholt
vita. Gaipur er alveg ein-
týndist 19. júlí sl. frá Hlé-
garði. Hefur líklega verið
tekinn í misgripum. Þeir
sem hafa orðið varir við
frakkann vinsamlega hafí
samband í síma 566-8476
eða 854-9011.
stakur köttur og við söknum
hans sárt. Síðast sást hann
í fylgd með svart-hvítum
kettlingi heimilislausum.
Garpur er eymamerktur en
ekki með neina ól. Góð fund-
arlaun í boði.
Dýrahald
SKÁK
llmsjön Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp í deilda-
keppni Skáksambands Is-
lands í vor. Gunnar
Björnsson (2.015), Taflfé-
laginu Helli, B-sveit, hafði
hvítt og átti leik, en Svein-
björn Sigurðsson (1.605),
UMSE, B-sveit, var með
svart.
Byijunin var ítalski leik-
urinn: 1. e4 - e5 2. Rf3 -
Rc6 3. Bc4 - Bc5 4. c3 -
Rf6 5. d4 - exd4 6. cxd4
- Bb4+ 7. Rc3 - Rxe4 8.
0-0 - Bxc3 9. d5 - 0-0?
10. bxc3 - Rd6 11. Bd3 -
Re7 og nú höfum við stöð-
una á stöðumyndinni:
12. Bxh7+ - Kh8? (Svart-
ur varð að reyna 12. -
Kxh7 13. Rg5+ - Kg6 14.
Dg4 - f5 15. Dg3 - f4 16.
Dg4 - Kh6 17. Bxf4 -
Hxf4 18. Dxf4 - Kg6 þótt
vörnin verði mjög erfið.)
13. Bc2 - Rdf5 14. Rd4
- g6 15. Bxf5 og svartur
gaf þessa vonlausu stöðu.
Skákin er í nýjasta tölu-
blaði tímaritsins Skákar.
Meðal helsta
efnis er seinni
hluti deilda-
keppninnar
síðasta vetur,
Guðmundar
Arasonar
mótið, fram-
hald á ítar-
legri umflöll-
un þeirra 111-
uga Jökuls-
sonar og Jó-
hanns Hjart-
arsonar um
Ólympíu-
skákmótið í
Jerevan o.fl.
HVÍTUR leikur og vinnur.
Hlutavelta
ÞESSAR duglegu stelpur
héldu hlutaveltu nýlega
til styrktar Rauða krossi
Islands og varð ágóðinn
1.015 krónur. Þær heita
Anna Lind Pálmadóttir,
Anna Björg Daníelsdótt-
ir, Iðunn Líf Gunnars-
dóttir, Hulda Kristín
Guðmundsdóttir og Sig-
urlaug Ása Pálmadóttir.
Diana Ósk Arnardóttir
vann einnig að hlutavelt-
unni en gat ekki verið
með á myndinni.
Víkveiji skrifar...
EGAR viðrar jafn vel og gert
hefur hér á suðvesturhorninu
að undanförnu, er ísland sannkölluð
paradís, að mati Víkveija. Í liðinni
viku átti Víkveiji ásamt fjölskyldu,
góða daga á Laugarvatni, í einstak-
lega yndislegu veðri. Laugarvatn
og allt umhverfi þess er sérdeilis
fallegur og skemmtilegur staður að
sækja heim í slíku veðri. Víkverji
tók sérstaklega eftir því, hversu
Laugvetningar leggja mikla áherslu
á góða umgengni og halda stað sín-
um sérlega hreinlegum og vistleg-
um. íþróttamannvirkin á staðnum
eru til fyrirmyndar, íþróttavöllur,
sundlaug og glæsilegt íþróttahús
bjóða upp á aðstöðu eins og hún
best gerist hér á landi og er það
vel við hæfi, að mati Víkveija, þar
sem á Laugarvatni eru íþróttakenn-
araefni framtíðarinnar menntuð og
búin undir lífsstarfið. Þau eru ekki
svo ýkja mörg árin, frá því að
íþróttakennaraefnin í íþróttakenn-
araskóla íslands á Laugarvatni
höfðu aðstöðu til íþróttaiðkunar í
örlitlum íþróttasal, sem er sam-
byggður gamla Héraðsskólanum á
Laugarvatni og sundmennt sína
sóttu þau í kjallarann á sama húsi,
í örsmáa innilaug, sem nú er ekki
lengur notuð. Því hefur á skömmum
tíma orðið gjörbylting til hins betra
á því hvernig búið er að íþrótta-
kennaraefnunum.
xxx
EIR eru ófáir sem renna við í
ísbúðum í sunnudagsbíltúrn-
um og bjóða fjölskyldunni upp á
ís, ekki síst að sumri til. Þannig
eru ísáhugamenn áhugasamir um
að bera saman verð og gæði á ísn-
um, og sumir eru orðnir hinir ágæt-
ustu sérfræðingar í ísfræðum
landsmanna. ísbúðin í Álfheimum
hefur gjarnan fengið jákvæða
dóma hjá viðskiptavinum sínum,
bæði fyrir verð og gæði íssins sem
þar er á boðstólum. Víkveiji má
til með að skipa í fyrsta gæðaflokk
ísnum sem boðið er upp á í Tjald-
miðstöðinni á Laugarvatni. Hann
er afar bragðgóður, vel úti látinn
og verðinu er stillt í hóf. Enda
heyrði Víkveiji á tal Laugvetninga,
sem sögðu óhikað að ísinn í Tjald-
miðstöðinni risi undir nafngiftinni
„Landsins besti“ rétt eins og pyls-
urnar góðu í miðbænum „Bæjarins
bestu“.
XXX
UNG OG áhugasöm andlit blasa
við í röðum árla morguns
þessa dagana, þegar ekið er hjá eða
gengið framhjá skólalóðum höfuð-
borgarinnar, enda er skólastarf al-
mennt að hefjast þessa dagana. Ef
Víkveija misminnir ekki, þá munu
ekki líða margir dagar þangað til
áhuginn í ungu andlitunum er horf-
inn með öllu og við hefur tekið svip-
ur leiða og þreytu. Víkveiji hefur
oft hugleitt hversu dapurlegt það
er, að áhugi og tilhlökkun nemend-
anna ungu hverfur með svo skyndi-
legum hætti, og sést að líkindum
ekki aftur fyrr en að ári liðnu og þá
í jafnskamman tíma.