Morgunblaðið - 03.09.1997, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 03.09.1997, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3010, NETFANG MBL@CENTRUM.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Matarkista sj ófuglanna Miklar aflaheimildir • fluttar á næsta ár TÆPLEGA sjö þúsund þorsk- ígildistonn féllu niður óveidd við ný fiskveiðiáramót, sem gengu i gildi síðastliðinn mánudag, 1. september. Auk þess voru rúmlega 20.000 þorskígildistonn flutt yfir á þetta fiskveiðiár. Langmest munar um ufsann, en af um 28 þúsund tonna aflamarki í ufsa á nýliðnu fiskveiði- ári, féllu um þrjú þúsund tonn niður óveidd og á árinu var rúmlega 11.500 tonnum breytt yfir í aðrar tegundir. Sé litið tO annarra fisktegunda, féllu 853 tonn niður óveidd af ýsu um nýliðin kvótaáramót, 629 tonn af skarkola, 479 tonn af hörpudiski, 369 tonn af úthafsrækju, 244 tonn af steinbít, 132 tonn af grálúðu, 113 tonn af karfa, 99 tonn af innfjarðar- rækju, 94 tonn af humri, 80 tonn af þorski og 11 tonn af langlúru. Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu hafa ekki allar millifærsl- ur vegna nýafstaðins fiskveiðiárs skilað sér að fullu, en samkvæmt yf- irliti í gær, hafði 1.139 tonnum af skarkola, 420 tonnum af steinbít og 160 tonnum af þorski verið breytt yf- h- í aðrar tegundir. Þegar á hinn bóg- inn skoðað er hvaða tegundir njóta mestra vinsælda, slær karfinn öll met, en samtals hafa rúm 8.500 tonn verið millifærð frá ýmsum tegundum yfir í karfa. ■ Verulegar/Cl RAIJÐUR flekkur sem sást í gær á sjónum milli lands og Þrídranga, vestur af Vestmannaeyjum, er lík- lega ljósáta. í fyrstu var talið að flekkurinn eða rákin, sem er um 3-4 km að lengd, væri einhvers konar þörungar og var jafnvel ótt- ast að þeir kynnu að vera eitraðir. Kristinn Guðmundsson, sjávarlíf- fræðingur hjá Hafrannsókna- stofnun, flaug yfir svæðið síðdegis í gær. Hann sagði að starfsfélagi sinn í Vestmannaeyjum hefði siglt í gegnum svipaðan flekk fyrr í sumar og þá var mikið af fugli í honum, líkt og nú. „Fuglagerið bendir til að þetta sé ljósáta og fuglinn hefur því fundið sannkall- aða matarkistu. Ástæða þess að flekkurinn myndast hlýtur að vera sú, að þarna séu straumskil, þar sem vatnsmassar mætast. Þar myndast röst og ljósátan safnast saman, því dýrin leita upp þegar straumurinn sem þau berast með sekkur.“ 1 Hagnaður SÍF eykst um 58 af hundraði HAGNAÐUR SÍF hf. án rekstrarárangurs dótturfélaga nam 103,7 milljónum króna á fyrri árshelmingi, en var 65,8 milljónir á sama tímabili í fyrra, samkvæmt óendurskoð- uðu innra uppgjöri, og jókst hagnaðurinn milli ára því um 38 milljónir eða 58%. Rekja má batnandi afkomu til lækkunar á kostnaði hjá SÍF hf. og betri afkomu dótt- urfélaga fyrstu sex mánuði ársins, samanborið við sama tímabil í fyrra. Heildarveltan fyrstu sex mánuði þessa árs nam 5.684 milljónum króna eða um 55% af heildarveltu síðasta árs. ■ Hagnaður/16 Si* : -‘VS" ÁV.. . Morgunblaðið/RAX " Óku á 130-140 kflómetra hraða við barnaskóla TVEIR ökumenn mældust aka á 130 til 140 kílómetra hraða við Hofsstaðaskóla í Garðabæ í síðustu viku. Mælingar stóðu í rúman sólar- hring og reyndust 88% ökumanna aka yfir leyfilegum hámarkshraða, sem er 50 km á klst. A þeim 27 tímum, sem mælingin stóð, var skráður hraði 2.860 bíla á austurleið á Bæjarbraut, fram hjá Hofsstaðaskóla. Hraðatakmörkunin er máluð á götuna og yfir götunni hangir borði sem á stendur: „Byrj- endur í skóla, byrjendur í umferð- inni“ til að minna ökumenn á að fjöldi sex ára barna er nú að taka sín fyrstu skref í umferðinni á leið í skólann. í Hofsstaðaskóla stunda 6-11 ára börn nám. Skelfilegar niðurstöður Niðurstöður mælinganna voru á þá leið að 124 bifreiðar óku hraðar en 90 km á klst., 22 voru á bilinu 100-110 km hraða, 5 á bilinu 110-120, 4 á bilinu 120-130 og loks tveir á bilinu 130-140 km hraða. Ofsaaksturinn var aðallega á tíma- bilinu milli hádegis og kvölds, þ.e. á miðjum degi. Eiríkur Bjarnason, bæjarverk- fræðingur í Garðabæ, lét mæla hraðann á götunni. Hann segir nið- urstöðurnar skelfilegar. „Besti möguleikinn til að stöðva ökuníð- inga er að setja myndavélar ásamt hraðamælingatæki í lögreglubíla og sekta tilfinnanlega enda á enginn ökumaður að geta verið óhultur ef hann lætur sér detta í hug að brjóta svona af sér í umferðinni,11 segir Ei- ríkur. „Það hefur nokkuð verið rætt um að koma myndavélum fyrir á fyrir fram ákveðnum stöðum en ég tel takmarkað gagn vera að því. Ökumenn myndu snarlega aðlaga sig aðstæðunum og fara sínu fram annars staðar.“ Eiríkur Bjarnason sagði þennan vanda alls ekki bundinn við Garða- bæ. „Lögregla alls staðar á landinu verður að beita sér gegn þessu. Stundum virðist manni sem yfirvöld hafi sætt sig við að hafa misst tökin á umferðinni. Eiríkur sagði að sér þætti hins vegar neyðarúrræði að setja hraða- hindranir á góða vegi. „Það er miklu nær að koma á aga í umferðinni þótt með þvingunum sé.“ Tuttugu ára áætlun um Skjólskóga Heildarkostnaður um 227 milljónir SKJÓLSKÓGAR er nýtt umhverf- isverkefni sem heimamenn hafa ákveðið að ráðast í í Dýrafirði og Önundarfirði. Markmiðið er að auka arðsemi ræktunar í landbúnaði og gefa möguleika á nýjum fram- leiðslugreinum. Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður við verkefnið verði 227,4 milljónir og að verkið verði unnið á 20 árum. Með Skjólskógum er átt við rækt- un skjólbelta á bújörðum, ræktun í og við þorp, við skóla, í sumarbú- staðabyggðum, áningarstöðum ferðamanna og við opinberar bygg- ingar í sveitum. Meðal annars er gert ráð fyrir að með ræktun við íbúðarhús megi lækka hitunar- kostnað og skýla íbúum og búfé. Jafnframt að stýra megi skafla- myndun við bústaði og samgöngu- æðar ásamt því að gefa gaum að möguleikum á einhvers konar að- stoð við snjóflóðavarnir með trjá- gróðri. Samkvæmt áætlun um Skjól- skóga er gert ráð fyrir að heildar- kostnaður verði rúmar 227,4 millj- ónir og að verkið verði unnið á 20 árum. Árlegur kostnaður yrði því rúmar 11 milljónir og er gert ráð fyrir að opinberir aðilar leggi til 97% eða 11 milljónir en landeigend- ur 400 þús. á ári. Til þessa hefur verkefnið verið styrkt af heima- mönnum, Framleiðnisjóði landbún- aðarins, Skeljungssjóði og Um- hverfissjóði verslunarinnar. Að auki hefur Skógrækt ríkisins lagt verk- efninu lið með ráðgjöf sérfræðinga. ■ Bætir/28 Fjárlagagerðin Ríkisfjár- málanefnd gengur frá frumvarpi RÍKISSTJÓRNIN fjallaði um fjár- lagafrumvarp næsta árs á fundi sín- um í gær og fól ríkisfjármálanefnd sem skipuð er fjórum ráðherrum - formönnum og varaformönnum rík- isstjórnarflokkanna - að hnýta saman nokkra lausa enda í frum- varpinu og ganga endanlega frá því til prentunar. Þingflokkur sjálfstæðismanna veitti ráðherrum flokksins umboð til að ganga frá frumvarpinu á fundi sínum í seinustu viku og þingflokkur framsóknannanna afgreiddi frum- varpið með sama hætti sl. mánudag. Fjárlagafrumvarpið er fyrsta þingskjal sem lagt verður fram þeg- ar Alþingi kemur saman 1. október. Fjárhæðir breytast ekki Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra sagði í gær að þau örfáu atriði sem ólokið væri hefðu engin áhrif á fjárhæðir í frumvarpinu. Kvaðst hann eiga von á að fjármálaráð- herra fengi endanlegt umboð ráð- herranefndarinnar á föstudaginn til að flytja frumvarpið í nafni ríkis- stjórnarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.