Morgunblaðið - 30.10.1997, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Undanþága veitt
fyrir hóstasaft
með efedrín
Morgunblaðið/Júlíus
PARADRYL með efedríni er hóstasaft sem fæst án lyfseðils í
lyfjabúðum og í ÓBH með noskapíni er einnig efedrín en mixtúr-
an er eingöngu seld gegn lyfseðli.
í LYFJAVERSLUNUM er seld
hóstasaftin Paradryl sem inniheld-
ur efedrín en Lyfjaeftirlit ríkisins
hefur varað við neyslu á ákveðnu
afbrigði af megrunarlyfinu Herba-
life, sem inniheldur efedrín og
önnur óæskileg efni og farið fram
á opinbera rannsókn á dreifingu
og sölu á megrunarlyfinu. Guðrún
S. Eyjólfsdóttir forstöðumaður
Lyfjaeftirlits ríkisins, leggur
áherslu á að Paradryl með efedr-
íni sé lyf með markaðsleyfi á Is-
landi og að fyrir mörgum árum
hafi verið veitt undanþága, sem
heimili sölu á Paradryl hóstasaft
í lausasölu í lyfjaverslunum. Það
sé aftur á móti óheimilt að dreifa
efedríni af óþekktum gæðum eins
og í ákveðnum tegundum af
Herbalife, þar sem lyfið gæti
reynst skaðlegt t.d. fólki með of
háan blóðþrýsting.
Að sögn Guðrúnar er efedrín
Alþýðubandalagsmenn
á Norðurlandi vestra
Styðja
sameigin-
legt fram-
boð vinstri
manna
AÐALFUNDUR kjördæmisráðs
Alþýðubandalagsins á Norðurlandi
vestra hefur lýst yfir stuðningi við
viðræður Margrétar Frímannsdótt-
ur, formanns flokksins, við aðra
flokka á vinstri væng stjómmál-
anna. í fréttatilkynningu segir að
fundurinn, sem haldinn var 25.
október síðastliðinn, hafi tekið
undir þau sjónarmið formannsins
að málefni skuli látin ráða í af-
stöðu flokksins til samfylkingar í
næstu alþingiskosningum.
Kjördæmisþing Norðurlands
eystra lýsti því yfir fyrir skömmu
að ekki væri raunhæft að gera ráð
fyrir sameiginlegu framboði vinstri
manna fyrir næstu alþingiskosn-
ingar. „Það er dálítið annað hljóð
í þeim enda hafa þingmennirnir
hver sína skoðunina á þessu,“ seg-
ir Jóhann Svavarsson, fráfarandi
formaður kjördæmisráðs Alþýðu-
bandalagsins á Norðurlandi vestra.
„Þeir ráða þessu auðvitað ekki,
heldur hinn almenni kjósandi, en
stefnan markast að nokkru leyti
af þeirra skoðun.“
Aðalfundurinn á Norðurlandi
vestra lýsti yfir stuðningi við hug-
myndir formannsins um gjaldtöku
fyrir afnot af helstu auðlindum
þjóðarinnar og við kröfur sjómanna
um að allur landaður fiskur fari á
fiskmarkað.
Samstarf gegn sókn
að lífskjörum
Fundarmenn samþykktu einnig
að hvetja til samstarfs stjómarand-
stöðuflokkanna og verkalýðshreyf-
ingarinnar gegn sókn ríkisstjórn-
arinnar að lífskjörum almennings.
Þeir mótmæltu niðurskurði í heil-
brigðismálum og hvöttu til þess
að fundnar yrðu leiðir til að jafna
lífskjör í landinu, meðal annars
með jöfnun orkukostnaðar, og til
þess að atvinnutækifærum kvenna
yrði fjölgað.
eftirritunarskylt lyf í vissum til-
vikum og lyfseðilskylt í öðrum en
undantekningin er hóstasaftin
Paradryl. „Og eins og öll lyf þá
er efedrín hættulegt sé það ekki
notað af varkárni og af þeim sem
það þola,“ sagði hún. „Almennt
séð er efedrín ekki notað nema
því sé ávísað með lyfseðli. í lyfja-
búðum er sérmenntað fólk sem á
að spyijast fyrir og greina þarfir
sjúklingsins. Paradryl hóstasaftin
er veitt við þurrum hósta og sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem ég
hef aflað er þessari hóstasaft ekki
haldið frammi í apótekum heldur
er mælt með öðru.“
Öll lyf hættuleg
ef notkun er röng
Guðrún benti á að öll lyf væru
hættuleg ef þau væru ekki rétt
notuð, gæðin væru ekki eins og
þau ættu að vera eða ef ekki
Hraða-
myndavél
tekin í
notkun
EMBÆTTI ríkislögreglusU’óra
hefur flutt til landsins ratsjá
með myndavél til hraðamæl-
inga í umferðinni og ætlunin
er að fá fleiri slíkar myndavél-
ar til landsins á næstunni.
Skráðum eiganda bíls er sent
sektarboð, hafi bíllinn verið
myndaður á meiri hraða en
leyfilegt er. Ef annar var öku-
maður þegar myndin var tekin
ber eigandanum að upplýsa
hver það var.
Lögreglumenn reyndu tækið
í umferðinni í Kópavogi í gær
og nítján ökumenn mega búast
við kærum og sektarkröfu í
pósti í kjölfarið.
Nýja ratsjármyndavélin
starfar þannig að Iögreglu-
menn þurfa ekki annað en að
stilla hana, svo geta þeir hallað
sér aftur í sætunum í lögreglu-
bílnum meðan hún myndar
sjálfkrafa þá sem fara yfir
hámarkshraða.
væri farið eftir leiðbeiningum.
Þetta ætti einnig við um t.d. höf-
uðverkjatöflur.
Lyfjaeftirlitið hefur að sögn
Guðrúnar fjallað um ýmis afbrigði
af Herbalife sl. tíu ár og í ár
mest um afbrigði sem framleitt
er fyrir norrænan markað og
meðal annars er selt í Svíþjóð. Það
afbrigði innihaldi ekki efedrín eða
önnur lyf. Sagði hún að sú vara
væri öðruvísi samsett en margt
af því sem komið væri í umferð
ÍSLENSKA stærðfræðafélagið
verður 50 ára föstudaginn 31.
október. Af því tilefni boðar félag-
ið til afmælisfundar í hátíðarsal
Háskóla íslands. Fundurinn hefst
kl. 15 og lýkur kl. 17. Heiðurs-
gestur á fundinum verður Sigurð-
ur Helgason, prófessor við
Massachusetts Institute of Techn-
ology, og mun hann halda fyrir-
lestur sem nefnist Rúmfræði og
raunveruleiki og hefst kl. 15.45.
Áður mun Jón Ragnar Stefánsson
flytja erindi sem nefnist Stærð-
fræðafélag í hálfa öld.
Sigurður Helgason varð sjötug-
ur hinn 30. september síðastliðinn.
Af því tilefni boðar íslenska
stærðfræðafélagið til málþings
honum til heiðurs og verður það
haldið í Odda, hugvísindahúsi
Háskólans, laugardaginn 1. nóv-
ember. Málþingið he/st kl. 9.15
og heldur þá Gestur Ólafsson fyr-
irlestur um verk Sigurðar. Síðan
munu fjórir aðrir stærðfræðingar
haida fyrirlestra um efni sem
hér á landi þó svo heiti vörunnar
væri svipað.
„Það er erfitt að greina þarna
á milli og ekki er hægt að ætlast
til að almenningur geti metið
hverskonar efni verið er að taka
inn og verður því að trúa þeim
sem við þá talar,“ sagði hún. „Það
eru alveg hreinar línur að efedrín
er lyf og ef verið er að flytja inn
og dreifa vöru, sem inniheldur
efedrín þá er það brot á lyíjalögum
og óheimilt."
tengjast áhugasviði Sigurðar inn-
an stærðfræðinnar. Kl. 11 talar
Sigmundur Guðmundsson um til-
vist harmónískra mótana frá
breiðgerum rúmum, kl. 13.30 tal-
ar Björn Birnir um Korteweg de
Vries jöfnuna og ólínulega Fourier
hljómgreiningu, kl. 14.30 talar
Finnur Lárusson um $LÖ2$-
aðferðina til að leysa Cauchy-Rie-
mann-jöfnuna og kl. 16 talar
Reynir Axelsson um óevklíðska
hornafræði. Áætlað er að mál-
þinginu ljúki kl. 17.
Félagið var stofnað á sjötugsaf-
mæli dr. Ólafs Dan Daníelssonar,
en hann var merkur stærðfræð-
ingur og frumkvöðull í stærð-
fræðikennslu á íslandi á fyrri
hluta aldarinnar. Nýlega kom út
hjá Háskólaútgáfunni bókin
Stærðfærðingurinn Ólafur Dan
Daníelsson eftir Sigurð Helgason
og Guðmund heitinn Arnlaugs-
son.
Allir eru velkomnir á afmælis-
fundinn og málþingið.
25 millj-
ónir á ári
vegna
presta
erlendis
KOSTNAÐUR vegna presta
sem starfa fyrir íslendinga
erlendis var samtals um 25
milljónir króna á síðasta ári.
Innifalinn er kostnaður vegna
starfa Evrópuprests frá októ-
ber 1996 til október 1997. Af
heildarupphæðinni greiddi ís-
lenska þjóðkirkjan um 14 millj-
ónir króna en Tryggingastofn-
un og ríkissjóður afganginn.
Þetta kom fram í svari Ölafs
Skúlasonar biskups við fyrir-
spurn séra Geirs Waage á
kirkjuþingi í gær.
Mestur var kostnaðurinn af
prestsembættinu í Gautaborg,
eða um 7,5 milljónir króna.
Þar af greiddi Tryggingastofn-
un tæpar 3,5 milljónir vegna
sjúklinga sem komu til Sví-
þjóðar vegna læknisaðgerða.
Kaupmannahafnarprestur
kostaði minnst í fyrra, eða
tæpar 4,8 milljónir króna.
Þjóðkirkjan greiðir allan
kostnað af því embætti.
Nýtt embætti Evrópuprests
kostaði á einu starfsári tæpar
5,2 milljónir króna, en þar er
innifalinn nokkur stofnkostn-
aður. Ríkissjóður greiðir allan
kostnað af embættinu. Kostn-
aður af presti í Lundúnum var
tæpar 7,3 milljónir króna í
fyrra, en Tryggingastofnun
greiðir nokkurn hluta hans.
Forsætis-
ráðherra
Svíþjóðar í
Keflavík
FORSÆTISRÁÐHERRA Sví-
þjóðar, Göran Persson, hafði
stutta viðdvöl á Keflavíkurflug-
velli í gær á leið sinni frá Stokk-
hólmi til New York.
Ráðherrann kom ásamt
fylgdarliði sínu og lífvörðum
inn í flugstöð Leifs Eiríkssonar
þar sem hann þáði kaffíveiting-
ar meðan eldsneyti var sett á
þotu hans. Er hún af gerðinni
Falcon og tekur 15-17 manns.
Þotan hélt síðan áfram áleiðis
til New York laust eftir klukk-
an 14.
Daniel D. tók niðri
í Grindavíkurhöfn
Bilun í
ljósavél
FLUTNINGASKIPIÐ Daniel D.
tók niðri í Grindavíkurhöfn síð-
degis á þriðjudag þegar bilun
varð í ljósavél skipsins og raf-
magni sló út. Betur fór þó en
á horfðist, því engar skemmdir
urðu á skipinu, að sögn Ragn-
ars Birgissonar matsveins.
Skipið var á leið út úr innsigl-
ingunni þegar drapst á ljósavél-
inni og skipið tók niðri en með
aðstoð lóðsbátsins í Grindavík
tókst að komast klakklaust út
úr innsiglingunni. Daniel D.
kom til Hafnarfjarðar seint á
þriðjudagskvöld og þar var gert
við bilunina í gær. Að sögn
Ragnars hafði skynjari gefið
sig. Kafari synti undir skipið í
fyrrinótt en fann engar
skemmdir. Daniel D. hélt af stað
til Danmerkur í gær, með við-
komu á Hornafírði.
Morgunblaðið/Kristinn
Islenska stærðfræða-
félagið 50 ára
Afmælisfundur og málþing til heiðurs
Sigurði Helgasyni