Morgunblaðið - 30.10.1997, Qupperneq 12
*+9qmáw
12 FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Breytingar á gjaldskrá P&S vekja spurningar um hverjir hagnist og hveijir tapi
Engar upplýsingar veittar
um skiptimm símnotkunar
Upplýsingar fást ekki
um símanotkun lands-
manna eða skiptingu
hennar á milli innanbæj-
arsímtala, langlínusím-
tala og til útlanda.
-----------------------------
Omar Friðriksson
kynnti sér málið.
PÓSTUR og sími upplýsir ekki
hvernig símnotkun skiptist milli
höfuðborgarsvæðis og landsbyggð-
ar eða á milli fyrirtækja og heim-
ila, hvaða símnotendur muni njóta
betri kjara af gjaldskrárbreyting-
unni um næstu mánaðamót og
hveijir beri aukinn kostnað vegna
hækkunar innanbæjarsímtala. Ber
fyrirtækið fyrir sig að um við-
skiptaleyndarmál sé að ræða, skv.
upplýsingum Hrefnu Ingólfsdótt-
ur, upplýsingafulltrúa P&S.
„Það er mjög erfitt að byrja án
þess að láta allan pakkann. Ef þú
segir A þá er hægt að reikna út
B. Við erum með mjög nákvæmar
mælingar og útreikninga sem við
styðjumst við og þeim hefur hingað
til verið hægt að treysta. Ég held
að fjölmiðlamenn hafi engar for-
sendur til að véfengja það,“ segir
Hrefna.
Velt út í verðlagið?
Við breytinguna í eitt símagjald-
svæði á öllu landinu hækka símtöl
innan allra gjaldsvæða úr 1,11 kr.
hver mínúta í 1,99 kr., sem verður
eftirleiðis sama verð á öllu landinu.
Við það lækka langlínusamtöl úr
4,15 kr. Verð á símtölum til út-
landa lækkar að meðaltali um 22%.
Föst afnotagjöld verða óbreytt en
þau 400 skref sem símnotendur á
landsbyggðinni höfðu innifalin í
föstu afnotagjaldi sínu lækka í 200
skref, til samræmis við það sem
er á höfuðborgarsvæðinu.
Hrefna segir að þrátt fyrir
hækkun innanbæjarsímtala sé
heildarútkoman sú að --------
símreikningar lands-
manna lækki í heild um
100 milljónir kr. Því geti
menn ekki eingöngu
haldið því fram að hækk-
unin, hvort sem hún
komi við fyrirtæki eða heimili, velti
út í verðlagið, heldur muni þessi
100 millj. kr. lækkun einnig skila
sér út í þjóðfélagið.
Neysluverðsvísitalan
hækkar
Gjaldskrárhækkun innanbæjar-
símtala Pósts og síma mun valda
hækkun á vísitölu neysluverðs í
næsta mánuði en vægi síma-
notkunar er um 1% í vísitölunni.
Óvíst er þó hversu mikilli hækkun
gjaldskrárbreytingin mun valda í
mánuðinum. Að mati P&S hækkar
meðalsímreikningur heimilanna
um 3% á hveijum ársfjórðungi í
kjölfar breytinganna.
Þrátt fyrir að grunnur neyslu-
verðsvísitölunnar byggist á upplýs-
ingum um útgjöld heimilanna úr
neyslukönnun á það ekki við um
mismunandi símnotkun heimil-
anna. Þátttakendur í neyslukönn-
uninni geta ekki flokkað símnotk-
un sína eftir tegundum símtala þar
sem símreikningar eru ekki sund-
urliðaðir á þann hátt, skv. upplýs-
ingum Guðrúnar Jónsdóttur á
Hagstofunni.
Þess í stað verður Hagstofan
að fá upplýsingar frá P&S um
notkunina, sem eru færðar inn í
reiknilíkan Hagstofunnar og með
þeim hætti er lagt mat á hvemig
--------- símreikningur vísitölu-
fjölskyldunnar skiptist
á milli innanbæjarsím-
tala, langlínusímtala og
símtala á milli landa.
Þessar upplýsingar eru
ekki veittar íjölmiðlum.
Hrefna bendir á að íbúar á
landsbyggðinni hringi ekki síður
innan sinna gjaldsvæða en íbúar
höfuðborgarsvæðisins. Ekki sé því
hægt að ganga út frá því að síma-
kostnaður höfuðborgarbúa hækki
en landsbyggðarfólks lækki við
breytinguna. Að öllu jöfnu geri
P&S þó ráð fyrir að gjaldskrár-
breytingamar komi heldur betur
Ráðherra ósk-
ar athugunar
Samkeppnis-
stofnunar
út fyrir landsbyggðarfólk, en á
móti komi að þau 400 afsláttar-
skref sem símnotendur á lands-
byggðinni nutu lækka í 200 til
jafns við notendur á höfuðborg-
arsvæðinu og jafni þennan mun.
Hrefna segir einnig mikinn vafa
leika á að eldri borgaramir verði
verst fyrir barðinu á hækkun
innanbæjarsímtala og segir að þeg-
ar mestur verðmunur var á lang-
línusímtölum og innanbæjarsím-
tölum hafi það verið talið koma
mjög illa við eldra fólk, sem hringdi
oft í afkomendur sína á milli lands-
hluta.
40% símtala milli landa
frá heimilunum
P&S hefur upplýst að 40% af
tekjum fyrirtækisins af símtölum
út úr landinu komi frá heimilunum
í landinu en 60% frá fyrirtækjum.
Hrefna segir breytingarnar komi
mismunandi út fyrir fyrirtækin líkt
og heimilin, sum muni verða vör
við mikla lækkun símreikninga
sinna, önnur ekki.
Heimilin njóti þó lækkunar sím-
tala til útlanda umfram fyrirtækin
þar sem ákveðið er að afsláttur á
símtölum til Evrópu á kvöldin hefj-
ist framvegis kl. 19 í stað kl. 21
áður.
Hagnaðist um 1100 millj.
á 6 mánuðum
Hagnaður P&S á fyrstu sex
mánuðum þessa árs, eftir reiknaða
skatta, nam 1.125 milljónum kr.
Hrefna segir að P&S sé með gífur-
lega fjárfestingu í búnaði, og ríkið
Morgunblaðið/Ásdis
sem eigandi geri kröfu um ákveðna
arðsemi af honum. Á þessu ári
bæri fyrirtækinu að greiða 860
milljónir í arð til ríkissjóðs og á
næsta ári þyrfti það að standa
skil á sköttum af hagnaði ársins.
Hrefna segir að með gjaldskrár-
breytingum sé verið að fylgja fyrir-
mælum innan Evrópska efnahags-
svæðisins um að símagjaldskrár
taki mið af raunkostnaði. „Við vilj-
um ekki byggja gjaldskrána þann-
ig upp að sá sem hringir mikið til
útlanda greiði niður innanbæjar-
símtölin hjá þeim sem hringir aldr-
ei til útlanda. Þessi skekkja hefur
verið innbyggð í gjaldskrá okkar,
okkur ber að leiðrétta hana,“ segir
hún.
Neytendasamtökin
krefjast upplýsinga
Neytendasamtökin sendu Finni
Ingólfssyni viðskiptaráðherra bréf
í gær og óskuðu þess að hann hlut-
aðist til um að Neyt- -----------
endasamtökin og/eða
S amkeppnisstofnun
fengju upplýsingar um
raunkostnað við hvert
símtal, þannig að
hægt yrði að meta
hvort álagning Pósts og síma væri
innan skynsamlegra marka. Neyt-
endasamtökin sendu samskonar
erindi til ráðherra í byijun þessa
árs í kjölfar hækkunar á staðarsím-
tölum í desember, en þá voru jafn-
framt símtöl til útlanda lækkuð
um 10% að meðaltali.
Neytendasamtökin hafa ekkert
við það að athuga að sama gjaldi
Hagstofan
fær upplýs-
ingar frá P&S
um notkunina
verði komið á fyrir öll innanlands-
símtöl en gera alvarlegar athuga-
semdir við að símtöl innanlands
hækki í heild sinni við þessar breyt-
ingar og segja breytingarnar
ákveðnar að geðþótta ráðamanna
P&S í skjóli einokunaraðstoðu
fyrirtækisins.
Fara Neytendasamtökin fram á
það við viðskiptaráðherra að hann
láti m.a. kanna hvort nauðsynlegt
hafi verið að hækka símtöl innan
sama svæðis, hvort það samræmist
góðum viðskiptaháttum að P&S
sem auglýsi netþjónustu á ákveðnu
verði, geri samninga við fjölda
neytenda og breyti síðan gjald-
skránni einhliða. Loks vilja sam-
tökin fá upplýst hvort eðlilegt sé,
miðað við raunkostnað símtala, að
lækka símtöl til útlanda á meðan
önnur símtöl, þar sem engin sam-
keppni sé um þjónustuna séu ítrek-
að hækkuð.
„Þá benda Neytendasamtökin
á, að Póstur og sími hefur ekki
beitt sér fyrir rekstrarlegri hag-
ræðingu heldur hækkað verð þjón-
ustunnar þegar ráðamenn fyrir-
tækisins hafa talið þess þörf.
Hagnaður fyrirtækisins af sím-
þjónustu var s.l. ár tæpir 3 millj-
arðar og verður því ekki séð, að
þurft hefði að koma til nokkurrar
hækkunar símtala innanlands þeg-
ar landið varð allt eitt gjaldsvæði,
einkum þar sem raunkostnaður við
símtöl milli svæða er nánast sá
sami og innanbæjarsímtöl," segir
m.a. í bréfinu til ráðherra.
Jóhannes Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Neytendasamtak-
anna, segir eðlilegt að Sam-
keppnisstofnun fylgist með rekstri
einokunarfyrirtækja eins og í þessu
tilviki.
Jóhannes segir útilokað að
draga fram hvemig einstakir hópar
verða fyrir þessum gjaldskrár-
breytingum þar sem engar upplýs-
ingar væri að hafa um heildarsím-
notkun eða skiptingu hennar milli
svæða en benti m.a. á að aldraðir
héldu því fram að hækkun á innan-
svæðasímtölum kæmi illa við þá.
Síminn væri þeirra samskiptanet,
einkum á daginn og nú væri búið
að hækka dagtaxtann innan sama
svæðis yfir 80% frá í desember.
„Þarna er um verulegan skell að
ræða,“ segir hann.
Einstaklingar og fyrirtæki
Iýsa óánægju sinni
Að sögn Jóhannesar Gunnars-
hafa fjölmargir neytendur
í samtökin til að lýsa
óánægju sinni en einnig
hefðu forsvarsmenn fyrir-
tækja hringt og talið ljóst
að þarna væri verið að
hækka ákveðinn kostnað-
arlið í rekstri þeirra.
„Auðvitað er hætt við því
að eitthvað af þessu fari út í verð-
lagið. Ég spyr þá hvort Póstur og
sími sé stikkfrí í stöðugleikanum,“
segir Jóhannes.
Viðskiptaráðherra hafði ekki
borist erindi Neytendasamtakanna
í gær en sagðist í samtali við
Morgunblaðið ætla að senda það
áfram til umsagnar og athugunar
hjá Samkeppnisstofnun.
sonar
hringt
BOÐAÐ hefur veríð til mótmæla-
fundar á Ingólfstorgi á morgun
vegna fyrirhugaðra breytinga á
8'aldskrá Pósts og síma og segir
lafur Ragnar Ólafsson, fram-
kvæmdasljóri Ægis ehf. og for-
sprakki mótmælanna, að dugi
það ekki til að telja forráðamönn-
um fyrirtækisins hughvarf verði
aðgerðum haldið áfram. Klukkan
tíu í gærkvöldi höfðu 3300 manns
skráð sig á undirskriftalista, sem
er að finna á heimasíðu Ægis og
afhenda á stjórnendum Pósts og
síma á fundinum. Síðan er stefnt
að því að halda þar útifund þar
sem verði fulltrúar Alþingis,
Reykjavíkurborgar, Neytenda-
samtakanna, Félags eldri borg-
3300 hafa mótmælt á netinu
ara og hagsmunaaðila um netið.
„Miðað við allar þær tölur, sem
við höfum heyrt, virðist Póstur
og sími vera að hækka verðið
án þess að þurfa þess,“ sagði
Ólafur Ragnar.
Mótmæli í Ástralíu
Hann sagði að fyrir nokkrum
árum hefði símfélagið í Ástralíu
reynt að hækka gjaldskrá með
svipuðum hætti. „Þar lokuðu þeir
netinu í heilan sólarhring og
Ástralía var ekki til á netinu í
24 klukkustundir. Þar tókst þeim
að knýja hækkunina til baka.
Stjórnvöld þar sáu að við það að
hækka myndu þeir tapa meiru,
en með þvi að hafa gjöldin
óbreytt.
Það sé ég að muni gerast, ætli
Póstur og sími að hækka með
þessum hætti, að notkunin á net-
inu á eftir að dragast það mikið
saman að sú athygli, sem ísland
hefur vakið, sérstaklega í Evr-
ópu en einnig í Bandaríkjunum,
á netmarkaðnum, mun hverfa.
Við munum missa þá forustu,
sem við höfum í þessum málum.“
Verður fylgt eftir
Hann kvaðst vona að Póstur
og sími myndi gefa eftir í þessu
máli á næstu dögum: „Ef þeir
gera það ekki er þessu ekki lok-
ið af okkar hálfu. Við munum
halda þessari baráttu áfram eins
lengi og þurfa þykir. Það er
hugsanlegt að gripið verði til
svipaðra aðgerða og í Ástralíu
þótt í dag sé ekki samstaða um
það. En við látum ekki vaða
svona yfir okkur og þegjum og
þetta er ekki bóla, þessu máli
verður fylgt eftir. Það er langt
í frá að þessar undirtektir komi
á óvart. Starfsmenn heilla fyrir-
tækja hafa skrifað sig á þennan
lista.“
Undirskriftalistinn ber yfir-
skríftina „Björgum netinu" og
þar er því haldið fram að innan-
bæjarsímtöl hafi hækkað um
149% á tæplega einu ári.
Ólafur Ragnar sagði að þeir,
sem hefðu mesta hagsmuni
tengda netinu á Islandi, eða Sam-
tök hagsmunaaðila um netið,
styddu mótmælin gegn gjald-
skrárbreytingunni. „Það er eng-
inn einn, sem stendur að þessu,“
sagði hann. „Það eru allir netað-
ilar á bak við okkur.“