Morgunblaðið - 30.10.1997, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
75% af sölu Gelm-
er í Frakklandi
Dreifing á fersfcfiislki suður um Eweipu
Gelmer sjávarafurða-
fyrirtækið er eitt hið
stærsta sinnar tegund-
ar í Frakklandi og
grannlöndum. IS
ke.ypti fyrirtækið ný-
lega, en SH hefur
stefnt fyrri eigendum
fyrir samningsbrot og
réttað verður í málinu í
París í dag. Þórunn
Þórsdóttir heimsótti
höfuðstöðvar Gelmer í
vikunni.
GELMER kaupir og selur
bæði nýjan og frystan fisk
og á þrjár verksmiðjur í
Boulogne-sur-Mer og ná-
grannabænum Wimille. Tæpur
fjórðungur viðskipta fyrirtækisins
er í ferskum fiski, en megnið I fryst-
um flökum sem ýmist er umpakkað í
elstu verksmiðju Gelmer eða breytt
í nær tilbúnar máltíðir í^nýrri og
fullkominni verksmiðju. A hafnar-
svæðinu er annars vegar 4 ára verk-
smiðja fyrir ferskfiskfrágang, 3.000
fm að grunnfleti með 7.500 tonna af-
köst árlega, og höfuðstöðvar fyrir-
tækisins í sama húsi. Hins vegar er
á svæðinu eldri verksmiðja fyrir um-
pökkun frosinna flaka og skelfisks
og svo smokkfiskvinnsla í nýupp-
gerðum salarkynnum. Þessi verk-
smiðja er 6.000 fm að grunnfleti og
afgreiðir um 13.000 tonn árlega.
Hægt að vinna
25 þúsund tonn á ári
Nýja frystiafurðaverksmiðjan í
Wimille er 10.000 fm að grunnfleti
og kostaði sem nemur 1,1 milljarði
króna. Hún var opnuð með viðhöfn
fyrir ári og Ólafur Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri ÍS í Boulogne,
segir hana nú starfa með viðunandi
afköstum. Aðrar heimildir blaðsins
segja afköstin enn ekki ná helmingi
þeiri-a 25.000 tonna sem hægt væri
að vinna árlega. Framboð af forunn-
um frystum fiski sé mun meira en
eftirspurn og markaður í Frakk-
landi lítill fyrir fisk í „raspi“. Frakk-
ar kaupa 60.000 tonn á ári af slíkri
matvöru, en til samanburðar fer
100.000 tonnum meira á pönnur í
Bretlandi.
í verksmiðju Gelmer eru fisk-
blokkir skornar, bútaðar og hjúpað-
ar deigi og brauðmylsnu. Þetta ger-'
ist á færiböndum í tveimur sölum
og tekur aðeins 2-4 mínútur. Var-
an er svo fryst aftur og færð i neyt-
endapakkningar í þriðja salnum,
annaðhvort með vörumerki Gelmer
eða annarra sem skipta við fyrir-
tækið. Mannshöndin grípur inní
þegar að pökkun kemur en fram til
þess vinnslustigs nægir eftirlit
starfsfólks. Þróað
gæðaeftirlit er í verk-
smiðjunni og evrópsk-
um stöðlum fylgt í hví-
vetna. Til dæmis er _______________
rusl flokkað vandlega
og sett í lúgur undir sölunum og
eigendurnir segja stoltir frá því
hvernig verksmiðjan sé hluti vist-
kerfisins: Vatni, sem notað er við
vandlega skolun tækja og húss á
hverjum degi, er dreift kerfisbundið
skika af skika yfir land í grenndinni.
Þannig fá bændur lífrænan áburð
og Gelmer losnar við þvottavatnið.
Ekki mátti taka myndir inni í
verksmiðjunni, vegna þess að sam-
setning véla og færibanda er iðnað-
arleyndarmál, en heildarmyndin er
Morgunblaðið/Puglia
HÖFUÐSTÖÐVAR Gelmer, sem gegnir talsverðu hlutverki á vinnu-
markaði í Boulogne-sur-Mer, framleiðsluborg nær helmings allra fros-
inna sjávarafurða í Frakklandi.
Morgunblaðið/Jean Allainmat
65.000 tonnum af ófrystum fiski er landað árlega í Boulogne og 300.000 tonnum ef frystur fiskur er talinn með.
ÍS ætlar að
leggja áherslu
á útflutning
eins og eitt stórt færiband. Frysti-
bílar keyra fiskkassa að öðnim enda
byggingarinnar, þeir fara í fyrsta
sal og áfram eins og lýst var og loks
er frystigeymsla og umbúða-
geymsla í hinum endanum. Utan við
miðsalinn eru tankar sem minna
helst á heyturna, með brauðmylsnu
og deigi sem fiskbitarnir eru
hjúpaðir með. Við verksmiðjuna eru
líka gastankar fyrir frystiferlin. Allt
er þetta afar snyrtilegt
og blaðamaður hitti
aðeins eina litla flugu á
gangi þar sem sér
___________ gegnum glugga niður í
vinnslusalina. Þar er
fremur kalt, um tíu stig, svo flugan
hefur haldið sig í hæfilegri fjarlægð.
f hópi þriggja stærstu
Verksmiðjan er í hópi þriggja
stærstu í Frakklandi, að sögn
Francois Lanoy, fyrrum aðaleig-
anda Gelmer, og í flokki evrópskra
„raspfiskrisa“. 100 manns vinna þar
en alls eru starfsmenn Gelmer 370.
Sölumenn eru 50 og 30 manns vinna
við skrifstofustörf. Starfsfólki var
• fjölgað úr 355 í fyrra vegna þarfar
fyrir sérfróða tæknimenn á nýja
staðnum. Þar hefst fyrsta vakt
klukkan 5 að morgni og hægt væri
að halda áfram í 21 tíma. Síðan þarf
að hreinsa, áður en byrjað er aftur.
Þegar blaðamaður kom í verk-
smiðjuna var slökkt á mörgum færi-
böndum, sem hægt er að breyta og
sveigja að ýmiskonar fiskbollum og
pinnum.
Ljóst virðist að íslensk sölusam-
bönd í Evrópu geti nýst fyrir fram-
leiðsluna, en 75% af allri fisksölu
Gelmer hefur verið innan Frakk-
lands. IS hyggjast nýta sér sam-
bönd Gelmer, en leggja áherslu á
útflutning, með aðstoð söluskrifstof-
anna í Þýskalandi, á Spáni og í
Bretlandi auk Boulogne-sur-Mer.
Helmingur fiskmetis á frönskum
markaði er innfluttur og 80% af
hráefni Gelmer koma frá útlöndum,
bæði bolfiskur og skelfiskur. Við
blasir að þáttur íslands aukist hvað
þetta varðar.
Gelmer hefur vaxið mjög frá
stofnun 1966 og verksmiðjan í Vim-
ille er annað skref breytinga til að
standast aukna samkeppni. Fersk-
fiskvinnslan við höfnina kom fyrst
og kostaði. 327 milljónir króna og
lokaáfanginn verður væntanlega
endurnýjun stóru frystiverksmiðj-
unnar á hafnarsvæðinu. Heimildir
blaðsins herma að slík endurnýjun
verði dýr, kosti nálægt 500 milljón-
um króna, en hún sé jafnframt
nauðsynleg því nú gangi þessi pökk-
unarstaður flaka á undanþágum.
Ólafur Þorsteinsson segir kostnað-
inn ekki svo mikinn við endurnýjun
stóru frystiverksmiðj-
unnar, nær sé að áætla
að hann verði um tí-
undi hluti af kostnaði
við nýju verksmiðjuna. ____________
Um breytingarnar hjá
Gelmer segir hann að vöxtur hafi al-
mennt verið í greininni og þróunin
sé stærri og færri einingar.
Byrjaði með 49 starfsmenn
Francois Lanoy opnaði litla fisk-
heildsölu fyrir 31 ári en fjölgaði
starfsfólki úr 49 í 114 strax á fjórða
árinu. Starfsmenn voru orðnir 225
árið 1980, 300 sex árum seinna og
370 nú. Hagnaður var lengi vel um
10% á ári, en síðustu ár hafa verið
erfiðari. Gelmer var eitt síðustu
Viðskipti mest
í sölu frystra
flaka
frönsku stórfyi-irtækjanna á þessu
sviði í einkaeign. Það gegnir tals-
verðu hlutverki á vinnumarkaði í
Boulogne-sur-Mer, framleiðsluborg
nær helmings allra frosinna sjávar-
afurða í Frakklandi. Þarna koma
65.000 tonn af ófrystum fiski í höfn
árlega og 300.000 tonn ef frystur
fiskur er talinn með. Boulogne er
stærsta fiskihöfn Evrópu, að sögn
yfirmanna Gelmer, og óneitanlega
handagangur í öskj-
unni á fiskuppboðum
snemma morguns.
Blaðamaður mætti
___________ uppúr sex á uppboð
miðvikudagsins.
„Frekar slappt í dag, vinan,“ sögðu
menn við hana, en þó vantaði ekki
hróp, stapp og hlaup. Fiskur sem
kemur í höfn um kvöld eða nótt er
sýndur og svo boðinn í býtið og
þvínæst er honum pakkað mismikið
unnum og keyrt í allar áttir. Þannig
er nýr fiskur í búð í París frá degin-
um áður að minnsta kosti. En hann
hefur legið á ís og fengið heilbrigð-
isskoðun og allt tilheyrandi í Bou-
logne, sem státar af gæðageymsl-
um, hraða og öryggi.