Morgunblaðið - 30.10.1997, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997 19
NEYTENDUR
Ljósmynd/Sigríður Ólafsdóttir
Astralskur
sjávarréttur
Veitingahús við sjávarsíðuna í austanverðri
--y ■ 1 ...- — — " ----
Astralíu hafa þennan sjávarrétt oft á
boðstólum. Sigríður Olafsdóttir, sem býr í
Melbourne, kynnti sér matreiðsluna.
RÉTTURINN er veryulega borinn
fram á stóru fati fyrir tvo eða fleiri.
Hann getur verið svolítið mismun-
andi frá einum stað til annars en í
höfuðdráttum er alltaf hafður
steiktur fiskur og franskar kartöfl-
ur öðrum megin á fatinu en salat,
ávextir og kaldur skelfiskur, svo
sem ostrur, rækjur og „bugs“ hin-
um megin.
„Bug“ er skelfiskur skyldur
humri en flatari og breiðari. Hann
veiðist við strendur Astralíu og
Indónesíu. í heitum sjó við strend-
ur Queenslands er hann á stærð
við mannshönd og kallast Moreton
Bay Bug. Sunnar, í kaldari sjó, er
hann miklu minni og nefnist Bal-
main Bug eftir hafnarhverfi í
Sydney.
Notið stórt flatt fat. Skiptið til
helminga með vegg úr álpappír,
6-8 sentímetra háum. Búið til beð
öðrum megin úr salatblöðum,
agúrkusneiðum, rauðri og grænni
papriku. Notið ekki tómata. Leggið
síðan kaldan skelfisk þar ofan á. Ef
erfitt reynist að fá ostrur eða
„bugs“ á Islandi má nota rækjur,
krækling og glóðaðan humar,
kældan. Inn á milli eru svo settir
ávextir svo sem sítrónubátar,
melónubitar, jarðarber, kívísneiðar
og avókadóbátar. Munið að úða
sítrónusafa yfir avókadó svo hann
dökkni ekki.
Hinn hlutinn, heiti hlutinn, er
þakinn frönskum kartöflum. Þar á
er svo raðað steiktum fiski, sem
velt hefur verið upp úr eggjum og
raspi. Ýmsan flakaðan fisk má nota
svo sem ýsu og rauðsprettu. Flök
regnbogasilungs eru líka sérlega
góð og hæfilega þykk. Kryddað eft-
ir smekk. Borið fram meðan heita
hliðin er heit og kalda hliðin köld.
Astralskt Chardonnay og Gvendar-
brunnavatn eiga vel við.
NYTT
GÓif-
hreinsi-
vél
NYLEGA hóf Pfaff hf. sölu
á Vapori gólfhreinsivélum.
Vélamar eru hannaðar í
þeim tilgangi að bylta eldri
aðferðum við umhirðu gólfa.
Vélin breytir hreinu krana-
vatni í 100° heita gufu. í
fréttatilkynningu frá Pfaff
hf. segir að rannsóknir hafi
leitt í ljós að gólfhreinsivélin
geti útrýmt stórum hluta
rykmaura með gufunni en
engin sápuefni eru notuð við
hreinsunina. Vapori gólf-
hreinsivélin er hönnuð fyrir
allar tegundir gólfefna en ef
gólffletir hafa verið bón-
aðir er hætta á að
gufan leysi upp
bón. Ekki er
hentugt að
nota hreinsi-
vélina ut-
andyra í
frosti.
Baunir og
annað heilsu-
fæði lækka
um 25%
Á MORGUN, fostudag, hefur Hag-
kaup sölu á heilsuvörum frá fyrir-
tækinu Gott fæði. Um er að ræða
1 45-50 tegundir af baunum, korni og
öðrum heilsuvörum. Á næstu mánuð-
um fjölgar síðan vöruflokkunum í 70.
Að sögn Viktors Kiernan hjá Hag-
kaupi verða heilsuvörurnar nú seldar
i Hagkaupi á að meðaltali 25% lægra
verði en fram til þessa. Varan kemur
Ií glærum pokum og verður að finna
upplýsingar á þeim um meðferð
hráefnisins. Þá stendur til
að pökkunum fylgi af og
til heilsuuppskriftir svo
viðskiptavinir átti sig
betur á möguleikum
sem baunir og kom
gefa til matreiðslu.
ÚR VERINU
JÓN Ingvarsson, formaður stjómar SH, ræðir við tvo af starfsmönnum söluskrifstofu SH í Moskvu,
þá Hauk Hauksson og Sergei Popov.
SH stefnir að tíföldun
fisksölu til Rússlands
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús-
anna opnar formlega nýja sölu-
skrifstofu í Moskvu í Rússlandi í
dag. Starfsemi þar er hafin fyrir
nokkru og veitir Páll Gíslason,
verkfræðingur, skrifstofunni for-
stöðu, en alls eru starfsmenn þar
fjórir. Jón Ingvarsson, formaður
stjómar SH, segir það mjög mikil-
vægt fyrir SH að vera með skrif-
stofu á þessum stóra markaði, sem
á séu 280 milijónir manns. Kaup-
geta í Rússlandi fari vaxandi og
miklir möguleikar séu á fisksölu
þar. „Við stefnum að því að selja
um 9.000 tonn af fiskafurðum í
Rússlandi á þessu ári, sem er
meira en tífóldun frá því, sem selt
var hér í fýrra,“ segir Jón Ingvars-
son.
Skilar hærra
verði heim
„Þetta hefur farið hægt af stað,
en við erum bjartsýnir á að ná
markmiðum okkar,“ segir Páll
Gíslason. „Við finnum mikinn mun á
því að vera í beinum daglegum
tengslum við kaupendur og teljum
að það muni skila sér í betri þjón-
ustu við þá og í hærra verði til fisk-
framleiðenda heima á Islandi. Við
seljum nú mest af sfld eins og er, en
loðna er einnig snar þáttur í söl-
unni. Einnig koma inn tegundir eins
og rækja og gulllax," segir Páll.
Söluskrifstofa SH
í Moskvu opnuð
formlega í dag
„Við höfum um áratuga skeið átt
mjög mikil og góð samskipti við
Rússland og fyrrverandi lýðveldi
Sovétríkjanna. Á árunum 1953 til
1990 seldi Sölumiðstöðin um
600.000 tonn af fiskafurðum á
þennan markað og hann reyndist
íslenzkum framleiðendum oft vera
góður. Síðan féllu þessi viðskipti
niður með falli kommúnismans hér,
en með vaxandi kaupgetu almenn-
ings og frjálsum markaðsbúskap
teljum við að hér séu umtalsverðir
möguleikar," segir Jón Ingvarsson.
Margar fisktegundir
koma til greina
„Þetta er mjög stór markaður og
við væntum góðs af því starfi, sem
hér verður unnið. Við gerum ráð
fyrir því að starfsemin og útflutn-
ingur hingað til Rússlands þróist
eðlilega, en margar fisktegundir
geta komið til greina. Þegar á
þessu ári er markið að selja um
9.000 tonn af ýmsum afurðum. Hér
er stór markaður, vaxandi kaup-
geta og Rússar borða mikinn fisk,“
segir Jón Ingvarsson.
Rússar hafa lengi verið meðal
helztu fiskveiðiþjóða heims, en síð-
ustu árin hefur heldur hallað und-
an fæti og þörf fyrir innflutning á
ýmsu fiskmeti hefur aukizt.
Mikil
samkeppni
Samkeppni í sölu á fiskafurðum til
Rússlands er þegar orðin mikil og
má þar nefna frændþjóðir okkar
Dani, Færeyinga og Norðmenn.
Fyrir upplausn Sovétríkjanna var
mest selt af karfa inn á þennan
markað, en eftir að viðskipti hófiist
að nýju, hefur mest verið selt af
frystri loðnu og sfld, en rækjusala í
Rússlandi fer vaxandi. Fyrstu 10
mánuði ársins hefur SH selt 6.816
tonn af sjávarafurðum til Rúss-
lands, tæplega 5.000 tonn af
heilfrystri loðnu, rúmlega 1.700
tonn af sfld, 227 tonn af gulllaxi, 57
tonn af karfa og lítils háttar af
þorski. Á sama tíma í fyrra hafði
SH aðeins selt Rússum 734 tonn af
loðnu.
í tilefni formlegrar opnunar
söluskrifstofunnar verður haldin
móttaka á veitingastað í Moskvu
og segir Páll Gíslason að þar sé
vænzt fjölda góðra viðskiptavina
SH. í móttökunni verða meðal ann-
arra Gunnar Gunnarsson, sendi-
herra íslands í Moskvu, Jón Ing-
varsson, formaður stjórnar SH og
Friðrik Pálsson, forstjóri SH.
Minna fryst og
saltað en í fyrra
Lítill gangur í sfldinni enn sem komið er
BÚIÐ er að frysta um 6.000 tonn af
sfld á átta stöðum á Austurlandi og
þar af mest hjá Tanga á Vopnafirði.
Er þetta eitthvað minna en í fyrra og
er það sama uppi á teningnum í sölt-
uninni enda má segja, að síldarver-
tíðin fyrir austan hafi ekki komist al-
mennilega í gang enn sem komið er.
Mikið fryst
á Vopnafirði
Af þessum 6.000 tonnum hefur
Tangi fryst um 1.700 og er þá búið að
frysta í nýja húsinu um 5.000 tonn frá
áramótum af síld og loðnu. Fer frysta
sfldin öll á Rússland en hjá Tanga
hefur aðeins lítillega verið saltað fram
að þessu. Sunnuberg GK landaði þar í
fyrradag 320 tonnum og Víkurberg
GK 220 tonnum í gær. Sfldin hefur
verið að fást úti fyrir Borgarfirði
eystra og er því ekki nema tveggja til
þriggja tíma stím inn á Vopnafjörð.
700 tonn fryst
í Neskaupstað
Hjá Síldarvinnslunni á Neskaup-
stað er búið að frysta um 700 tonn af
sfld, sem er verulega minna en í
fyrra, en hjá Borgey á Höfn er ffyst-
ingin komin í 1.300 til 1.400 tonn.
Fer hún aðallega á Rússland og Pól-
land og lítillega á Frakkland og er
eingöngu um að ræða flök á tvö síð-
astnefndu löndin. Hjá Borgey er bú-
ið að salta nokkuð á sjötta þúsund
tonn af síld og er það eitthvað minna
en á sama tíma fyrir ári.
Blab allra landsmanna!
- kjarni málsins!