Morgunblaðið - 30.10.1997, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. OKTOBER 1997 21
ERLENT
i
i
i
►
i
)
)
)
)
)
)
í
I
í
j
>
Dregið úr
áhrifum
áróðurs-
meistara
London. The Daily Telegraph.
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, hefur fyrirskipað upp-
stokkun í upplýsingaþjónustu rík-
issljórnarinnar til að tryggja að
aðferðir áróðurmeistara ríkis-
stjórnarinnar sem komu honum
til valda, grafi
ekki undan
stjórninni. Að
sögn blaðafull-
trúa hans hefur
forsætisráð-
herrann áhyggj-
ur af því að
„slúður“
ónefndra heim-
ildarmanna í
ráðuneytum
kunni að beina athyglinni frá
þeim skilaboðum sem sljórnin
vilji koma á framfæri.
Áhyggjur Blairs endurspeglast
í yfirlýsingu Robins Butler, ritara
stjórnarinnar, sem lýsti áhyggj-
um sínum vegna þess að upplýs-
ingafulltrúar sem starfað hefðu
lengi á vegum sljórnarinnar,
hefðu verið látnir víkja. Hvatti
Butler til þess að fengnir yrðu til
starfa „hlutlausir" upplýsinga-
fulltrúar.
Butler neitar því að ríkisstjórn-
in hafi komið áróðursmeisturum
sínum fyrir í ráðuneytum en
leggur áherslu á mikilvægi þess
að hafa á sinum snærum upplýs-
ingafulltrúa sem megi treysta.
UNIVER ITP
KOS
n mpw M
Reuters
0|
N ámsmenn
mótmæla í
Kosovo
UM 3.000 námsmenn af albönsk-
um ættum efndu til mótmæla í
Pristina, höfuðstað Kosovo-hér-
aðs í Serbíu, í gær til að krefjast
þess að kennt yrði á albönsku í
skólum héraðsins. Vopnaðir lög-
reglumenn voru á varðbergi
vegna mótmælafundarins en
reyndu ekki að hindra hann.
Námsmenn hættu mótmælunum
án þess að til átaka kæmi þegar
yfirmaður lögreglusveitanna fyr-
irskipaði þeim það.
Talsmenn tjái sig
opinberlega
Knis.i>ii/r\
Blair er afar annt um að upp-
lýsingaþjónustu stjórnarinnar
takist að endurvinna það traust
sem margir telja liana hafa glat-
að. Hyggst forsætisráðherrann
taka að mestu fyrir áhrif áróð-
ursmeistara Verkamannafiokks-
ins með því að koma á fót hópi
talsmanna sem hafa leyfi til að
tjá sig opinberlega um stefnu
stjórnarinnar. Þá vill Blair að
þeir embættismenn, sem hinir
pólitísku ráðgjafar stjórnarinnar
ruddu úr veginum við stjórnar-
skiptin, axli aukna ábyrgð.
Blaðafulltrúi Blairs segir hann
hafa áhyggjur af því að blaða-
greinar, byggðar á ónafngreind-
um heimildarmönnum, grafi und-
an valdi hans. Á hverjum degi
lesi forsætisráðherrann greinar í
blöðum um sig og stjórn sína,
sem eigi ekki við nein rök að
styðjast.
Það sem Blair þykir verst er að
enginn virðist lengur leggja trún-
að á mál talsmanna hans þegar
þeir reyna að bera til baka fréttir
sem skaða ríkisstjórnina.
Því leggur hann áherslu á að
starfsemi upplýsingafulltrúa
stjórnarinnar verði miðstýrt svo
að enginn vafi leiki á því hvaðan
upplýsingar komi og að þær séu
áreiðanlegar.
ALLT UM AUGLÝSINGAR OG AUGLÝSINGASTOFUR Á HEIMASlÐU SÍA,
SAMBANDS (SLENSKRA AUGLÝSINGASTOFA
www.sia.is
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA