Morgunblaðið - 30.10.1997, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Áhrif vísitöluhækkunar á Wall Street
V erðbr éfamark-
aðir heimsins
rétta úr kútnum
VIÐSKIPTI í kauphöllum heimsins
glæddust í gær, daginn eftir að
methrun hafði orðið á gengi hluta-
bréfa í inörgum þeirra. Kauphöllin
á Wall Street í New York var fyrst
til að rétta aftur úr kútnum eftir
niðursveifluna í kringum helgina en
í fyrradag var sett nýtt met í fjölda
seldra hlutabréfa þar á einum degi.
Á evrópskum mörkuðum rauk
verðið á skuldabréfum upp í gær,
í kjölfar 4,7% hækkunar banda-
rísku Dow Jones-verðbréfavísi-
tölunnar. Þessi hækkun skilaði sér
líka í hækkun gengis í mörgum
asískum hlutabréfum.
Strax eftir opnun Wall Street-
markaðarins eftir hádegið í gær
að vestur-evrópskum tíma hækkaði
brezka FTSE 100-vísitalan um
2,1% og þýzka DAX-vísitalan um
heil 6,3%. Franska CAC-40-vísital-
an hækkaði um 4,6%. Á fyrstu
klukkustundunum eftir opnun Wall
Street hækkaði Dow Jones-vísital-
an um 100 stig.
Evrópsku markaðirnir tóku einn-
ig mið af uppsveiflu á Asíumörkuð-
um. Hang Seng-vísitalan í Hong
Kong hækkaði um nærri 19% í
gær, úr 1.705,41 stigi í 10.765,30.
Japanska Nikkei-vísitalan hækkaði
þó ekki meira en um 3,3%.
Viðbúnir frekari
óstöðugleika
Nokkrir kauphallarspekingar og
verðbréfasalar sögðu að uppsveifl-
an eftir hrunið í fyrradag gæti
þýtt að þar hefði botninum verið
náð í nýjustu niðursveiflunni á
mörkuðunum.
Aðrir vöruðu aftur á móti við
því að hinar öfgafullu sveiflur
undanfarinna daga væru líklegar
til að valda viðvarandi óvissu í verð-
bréfaviðskiptum um töluverðan
tíma.
Á Wall Street, stærsta fjármála-
markaði heims, voru verðbréfasalar
viðbúnir frekari óstöðugleika. „Ég
spái því að það dragi duglega af
viðskiptum dagsins í dag (...)
vandamálum okkar er ekki lokið
enn,“ sagði ónefndur verðbréfasali
á Wall Street.
Reuters
VERÐBRÉFASALI í kauphöll Hong Kong gleðst yflr hækkun á
verði hlutabréfa þar í gær, eftir hremmingar undanfarinna daga.
Stríðshijáðir íbúar Líberíu setja traust sitt á byltingarforingjann Charles Taylor
Charles
Taylor
ÁRUM saman var Charles Taylor
afgreiddur með því að hann gæti
aldrei unnið kosningar og því hefði
hann gripið til vopna ásamt mönn-
um sínum. En nú nýverið gengu
700 þúsund Líb-
eríumenn að
kjörborðinu til
að kjósa forseta
og Taylor hlaut
þar um 600 þús-
und atkvæði eða
um 74%. Sá
frambjóðandi
sem næstur
kom, Ellen
Johnson-Sirleaf,
fékk 10% og tólf aðrir skiptu með
sér afganginum.
í nýjasta hefti The New African
segir að margir hafi kennt Taylor
um þær hörmungar sem
líberíska þjóðin gekk í
gegnum árum saman.
Að sönnu steypti hann
og menn hans af stóli
Samuel Doe 1989, spillt-
um og grimmum forseta
og bardagar geisuðu um
allt landið næstu ár með
skelfilegum afleiðingum.
Þegar leið á árið 1992
var mestöll Líbería á
valdi Taylors að undan-
skilinni höfuðborginni
Monróvíu. Bandaríkja-
stjórn latti Taylor til að
ráðast inn í höfuðborgina
og að margra mati varð
sú ákvörðun hans að fara
að þeim ráðum til að
lengja enn skelfíngar-
ástandið í Líberíu.
Segir
Bandaríkjamenn
hafa svikið sig
Taylor segir nú að
hann hafi síðan verið
svikinn. Bandarískir full-
trúar hafi fullvissað hann
um að þeir mundu þrýsta á Samu-
el Doe að víkja. Hann segist allan
tímann fram að því hafa verið í
nánu sambandi við Bandaríkja-
menn og látið þá vita um allar
áætlanir uppreisnarmannanna sem
hann fór fyrir. Þegar Bandaríkja-
menn hafi sagt að það mundi hafa
alvarlegar afleiðingar ef hann tæki
höfuðborgina hafi hann ákveðið að
Loksins frið-
ur í Líberíu
Fyrir nokkrum árum var ófremdarástandið
í Afríkuríkinu Líberíu nær daglega í heims-
fréttum. Minna hefur farið fyrir frásögnum
af því að þar voru nýlega haldnar forseta-
kosningar, skrifar Jóhanna Krístjónsdóttir.
ÞÚSUNDIR stuðningsmanna Charles Taylors í baráttuham fyrir forsetakosningarnar
fara að ráðum þeirra og því hafi
þeir setið um borgina en ekki farið
lengra.
Sendiboði Bandaríkjastjórnar,
Herman Cohen, hafí komið til fund-
ar við sig og hvatt sig til að lýsa
yfir vopnahléi gegn því að séð yrði
til þess að Doe hyrfí umsvifalaust
á braut. Þetta hafi síðan verið svik-
ið.
Taylor segir að hefði hann feng-
ið grænt ljós á töku Monróvíu -
rétt eins og Bandaríkjamenn
leyfðu Kabila að taka Kinshasa í
Zaire í fyrra - hefði tekist að
útkljá málið fyrr og þjóðin hefði
ekki gengið í gegnum enn fleiri
ár af stríði og hörmungum. Þá
hefðu Líberíumenn fyrir löngu ver-
ið búnir að jafna sig og uppbygg-
ingin væri hafin í stað þess að nú
sé allt í rúst og endurbyggingin
hljóti því að krefjast óskaplegra
krafta.
Með kjöri Taylors lýsir
þjóðin yfir friðarvilja
En með sigrinum í langþráðum
kosningum er fólkið í Líberíu að
segja hátt og snjallt að það vilji
frið og frið umfram allt. Taylor
telur að þjóðir heims ættu að Ijá
þeim lið og þá meinar hann ugg-
laust einkum og sér í lagi Banda-
rikjamenn.
Sumir fréttaskýrendur sögðu að
Taylor hefði unnið vegna þess hann
hafí haft sex ára forskot á aðra
frambjóðendur. Það er að sönnu
rétt að flokkur hans, Föðurlands-
vinaflokkurinn, hafði verið stofnað-
ur fyrir fimm árum og
átti sér ákafa fylgis-
menn.
Aðrir frambjóðendur
höfðu ekki nema nokkra
mánuði til að undirbúa
sig. Svo það má væntan-
lega líta svo á að áður-
nefndir sérfræðingar um
líberísk málefni hafi
nokkuð fyrir sér.
En mörgum fínnst líka
að Taylor hafi sýnt tölu-
verða stjómkænsku og
þor því hann hefur þegar
gert ýmsa andstæðinga
sína að ráðherram. Og
sömuleiðis hefur hann
skipað tvær mikilvægar
nefndir, aðra um mann-
réttindi og hina sem á
að vinna að sáttum inn-
anlands.
En vitaskuld stendur
hann andspænis óskap-
lega miklu verki sem
sumum þætti ef til vill
allt að því óyfirstígan-
legt. Það bíður hans ekki
aðeins að reisa landið úr
rústum í bókstaflegum skilningi og
sætta þjóðina innbyrðis. Hann seg-
ir að endurreisn efnahagslífsins
verði forgangsverkefni og hann
hefur þegar tekið bandaríkjadollara
upp á ný sem mynt í landinu vegna
sterkrar stöðu hans. Hann telur að
það muni vekja traust fjárfesta og
útlendinga á landinu og er ekki
vanþörf á.
Reuters
Buzek
kynnir
ráðherra-
lista
NÝ RÍKISSTJÓRN Póllands
var í burðarliðnum í gær, þeg-
ar Jerzy Buzek, forsætisráð-
herraefni kosningabandalags
Samstöðu, AWS, kynnti
Aleksander Kwasniewski for-
seta ráðherralista samsteypu-
stjórnar AWS og Frelsis-
bandalagsins. Gert er ráð fyr-
ir að hin nýja stjórn taki form-
lega við embætti í vikulokin.
Segja Tyrki
nota napalm
TALSMENN eins helzta
flokks Kúrda, Föðurlands-
bandalags Kúrdistans, héldu
því fram í yfirlýsingu sem
barst Reuters í gær, að tyrk-
neski herinn hefði notað nap-
almsprengjur í loftárásum á
bækistöðvar Kúrda í Norður-
írak, síðast í fyrradag.
Morð í Alsír
SKÆRULIÐAR öfgafullra
múslima í Alsír skáru sex
landbúnaðarstarfsmenn á
háls, myrtu veitingamann og
drápu tvo stjórnarhermenn í
aðskildum árásum síðustu þijá
daga, samkvæmt frásögn als-
írskra dagblaða.
UNITA
refsað
BÚIZT var við því í gær að
öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti refsiaðgerðir
gegn UNITA-hreyfingunni
sem er við völd í Angola. Fel-
ast aðgerðimar í flug- og
ferðabanni á aðila hreyfingar-
innar og að skrifstofum henn-
ar erlendis verði lokað. Refsi-
aðgerðimar voru fyrst
ákveðnar 28. ágúst sl., en
gildistöku þeirra var frestað
svo UNITA gæfist færi á að
uppfylla ákvæði friðarsamn-
inga frá 1994, sem bundu
enda á langvinnt borgarastríð
í landinu.
Samkynhneigð
pör fá blessun
BISKUPAR dönsku þjóðkirkj-
unnar samþykktu á fundi í
fyrradag að samkynhneigð
pör í Danmörku skyldu eiga
kost á því að fá blessun lagða
yfir skráða sambúð sína með
guðsþjónustu, en þau gætu
ekki farið fram á eiginlega
kirkjulega vígslu.
Vopnahlé 1
stað friðar?
FRIÐURINN sem leiðtogar
vélhjólagengjanna Hells Ang-
els og Bandidos innsigluðu
með handabandi í beinni sjón-
varpsútsendingu danska sjón-
varpsins fyrir mátiuði virðist
ekki ætla að reynast annað
en tímabundið vopnahlé. Á
sama tíma og friðarviðræður
stóðu yfir milli gengjanna
hafa nú hinar skandinavísku
deildir Bandidos gengið í
bandalag með kanadíska
genginu Rock Machine, svarn-
asta óvini Hells Angels.